Þjóðviljinn - 07.12.1965, Qupperneq 3
Þriðjudagur 7. áesember 19e5 — ÞJÖÐVTLJINN — aiÐA 2
Vietnam
THOROLF SMITH
THOROLF SMITH, höfundur þcssarar bókar,
er landskunnur blaða- og útvarpsmaður. Hann
hefur áður skrifað tvacr mcrkar bækur í þessum
bókaflokki: Ævisögu Abraham Lincolns, árið
1959, og Ævisögu John F. Kennedys, sem kom
út haustið 1964. Eins og áður, hefur staðgóð
scguþckking höfundar komið honum að góðu
haldi við samningu þcssarar bókar, sem byggð
er á traustustu heimildum.
THOROLF SMITH
WINSr
GHURC
ON
TILL
WINSTON CHURCHILL
Líf og starf Winston Churchills var ævintýri
líkast. Hann hefur oft verið nefndur „maður
aldarinnar". Churchill þjónaði sex þjóðhöfð-
ingjum, bjargaði landi sínu, og raunar vest-
rænni menningu, á örlagastundu með óbifandi
festu, kartmcnnsku og kjarki. Hann andaðist á
tíræðisaldri í janúar 1965, dáður og syrgður.
Nafn Churchills mun lifa meðan aldir renna
og verður aldrci afmáð af spjöldum sögunnar.
I þessari bók er ýtarlcga rakin saga Churchills,
uppruni, æskuár, menntun, fjölskyldulif, —
enn fremur starf hans sem blaðamanns, rit-
höfundar og stjórnmálamannns um sjö ára-
tuga skeið. Hér koma við sögu flest stórmenni
Evrópu og Ameríku síðustu 70 árin. Ævisaga
Winston Churchills er stórbrotin saga mikil-
mennis. — Bókina prýða yfir 100 Ijósmyndir.
■■■■■■■■■■■■■■■■■
Yíða hörð áhlaup
skæruliða í gær
SAIGON 6/12 — Skæruliðar Þjóðfrelsisfylkingarinnar í
Suður-Vietnam gerðu í dag víða hörð áhlaup á stöðvar
Bandaríkjamanna og Saigonhersins, eftir u.þ.b. viku hlé
á meiriháttar. vopnaviðskiptum.
Harðasta viðureignin átti sér
stað á gúmmíekrunni um 60 km
frá Saigon þar sem skæruliðar
stráfelldu tvo herflokka Saig-
onstjórnarinnar fyrir nokkrum
dögum. Þar sátu þeir í dag
fyrir bandarískum herflokkum
og er sagt að mikið mannfall hafi
orðið í liði Bandaríkjamanna.
Þeir segjast hins vegar hafa
fellt 200 skæruliða.
Skæruliðar réðust einnig á
fjögur virkj Saigonhersins öll
innan við 25 km frá höfuðborg-
inni. Setulið Saigonstjómarinn-
ar á einum stað fyrir sunnan
borgina er sagt hafa Qrðið fyrir
miklu manntjóni.
í Quang Ngai-fylkj í norður-
hluta landsins hefur verið bar-
izt um þrjú þorp sem skæru-
liðar náðu á sitt vald. Banda-
rískir landgönguliðar börðust
með Saigonhermönnum og er
sagt að skæruliðar hafi verið
hraktir aftur úr einu þorpanna.
Manntjón er einnig sagt mikið
í þessum bardögum.
Ekkert lát er á loftárásum á
Norður-Vietnam. Síðasta sólar-
hring var farið i 21 árásarferð
og sprengjum varpað á sam-
gönguleiðir milli Hanoi og Kina.
Svíar eru ósammála
Dönum um S-Afríku
STOKKHÓLMI 6/12 — Sænska stjórnin ákvað í dag að
fara ekki að dæmi þeirrar dönsku sem ákvað fyrir helgina
að taka upp einbeittari stefmi gagnvart Suður-Afríku og
greiða atkvæði á þingi SÞ með tillögu Asíu- og Afríku-
ríkja um refsiaðgerðir gegn henni.
Tillaga Asíu- og Afríkuríkj-
anna um refsiaðgerðir er miðuð
við 7. kafla stofnskrár SÞ og
skuldbindur því aðildarríki sam-
takanna til refsiað'gerða ef hún
verður samþykkt eins og telja
má líklegt.
Norðurlönd hafa fram að þessu
haft samstöðu í Suður-Afríku-
málinu. eða þar til Danir skár-
ust úr leik, Þau hafa ek-ki sagzt
vera andvíg refsiaðgerðum gegn
Suður-Afríku. en ekki viljað
greiða þeim atkvæði vegna þess
að vafasamt væri að Þær myndu
bera tilætlaðan árangur. Þessi
tvískinnungur hefur vakið mikla
óánægju margra á Norðurlönd-
um, ekki sízt innan flokka sósíal-
demókrata og hefur þeirrar óá-
nægju einnig gætt mjög í Sví-
þjóð.
Ákvörðun sænsku stjórnarinn.
ar var tekin eftir þriggja klst.
sérstakan ráðuneytisfund og sam-
ráð við forystumenn stjórnar-
andstöðuflo;kkanna. Nilsson utan.
ríkisráðherra sagði að fulltrúi
Svía á þingi SÞ myndi gera grein
fyrir afstöðu sænsku stjómarinn-
ar áður en atkvæði verða greidd
um tillögu Asíu- og Afríku-
ríkjanna.
Sænsku stjóminni höfðu bor-
izt tilmæli frá 129 framámönn-
um sósíaldemókrata í Stokk-
hólmi um að styðja tillöguna og
málgögn flokksins ..Stockholms-
Tidnimgen“ og ,,Aftonbladet“,
höfðu fagnað afstöðu Dana.
Allt hefur gengii
ai óskum í Gemini
HOUSTON 6/12 — AUt hefur
gengið að óskum í síðasta mann-
aða geimfari Bandaríkjanna,
Gemini 7., sem skotið var á
braut á laugardagskvöld, en
truflanir á sambandi við stöðvar
þær á jörðu niðri sem fylgjast
með ferðum þess gerðu það að
verkum í dag að fresta varð
ýmsum tilraunum sem fyrirhug-
aðar höfðu verið.
Geimfömnum Frank Borman
og James Lovell líður ágætlega,
einkum þó Lovell sem fékk í
dag, fyrstur bandarískra geim-
fara, að fara úr geimfarabún-
ingnum og vera í nærfötunum
einum nokkra stund. Margir
sovézku geimfaranna hafa áður
getað fært sig úr geimbúningum
sínum.
1 dag hafði verið ætlunin að
Forsetakosningar
Framhald af 1. síðu.
enda þótt skoðanakannanir rétt
fyrir helgina hefðu gefið til
kynna að de Gaulle myndi ekki
fá helming atkvæða. Blöð bæði
vestan hafs og austan telja að
úrslitin hafi verið mikið áfall
fyrir de Gaulle; nú hafi sann-
azt að hann sé ekki ósigrandi.
skjóta á loft Minuteman-flug-
skeyti frá Vandenberg-stöðinni
í Kaliforniu og áttu þeir Borman
og Lovell að fylgjast með ferð-
um þess. Hætta varð við það
eldflaugarskot.
í tilraunastöðinni á Kennedy-
höfða er haldið áfram undir-
búningi að því að skjóta Gemini
6. á loft næsta mánudag, en
ætlunin er að láta geimförin
tvö mætast á braut í geimnum
þóft ekki verði reynt að tengja
þau saman.
Forvaxtahækkun
WASHINGTON 6/12 — Stjórn
seðlabanka Bandaríkjanna, Fed
eral Reserve Board, hækkaði
dag forvexti sína um hálfan af
hundraði, upp í 4V2 prósent
Þessi hækkun sem ákveðin var
þvert ofan í ósk Johnsons for-
seta mun hækka allan fjár
magnskostnað í Bandaríkjunum
og er henni ætlað að draga úr
fiárfestingu og þannig hafa hem
il á verðbólgu sem bankastjórn-
in telur að stafa muni af stór
auknum kostnaði Bandaríkjanna
vegna stríðsins í Vietnam. 1
Leiðtogar kommúnista og sósíaldemókrata í Frakklandi,
Waldeck Rochet og Guy Mollet, á einum kosningafundanna.
Kosningar í Frakklantfí
U~ rslit forsetakosninganna í
Frakklandi á sunnudaginn
komu á óvart, þótt skoðana-
kannanir undanfarnar vikur
hefðu bent til þess að fylgi
de Gaulle færi þvarrandi.
Áður en kosningabaráttan
hófst fyrir mánuði þegar de
Gaulle loks tilkynnti framboð
sitt höfðu flestir talið að
hann myndi sigra með yfir-
burðum þegar í fyrri lotu,
enda hafði hann látið liggja
orð að þvi að hann myndi
ekki sætta sig við minna en
hreinan meirihluta. að hann
myndi telja önnur úrslit van-
traust á sig. Þegar á leið og
kjördagur nálgaðist var það
einróma álit allra sem með
fylgdust að vígstaða de
Gaulle hefði versnað og fylgi
hans rýmað. Skoðanakönnun
sem birtist í ,,France-Soir“ á
laugardaginn benti til þess að
hann myndi aðeins fá 42
prósent atkvæða og reyndist
harla rétt. Það verður þvi
ekki sagt að atkvæðahlutfall
de Gaulle hafi komið mönn-
um algerlega á óvart. öðru
máli gegnir um. hlut Fran-
cois Mitterrands, frambióð-
anda vinstriflokkanna. Eng-
inn mun hafa búizt við því
að hann fengi rétt tæpan
þriðjung atkvæða og að að-
eins rúmlega tíu prósent
myndu skiljn milli hans og
de Gaulle. Servan-Schreiber
ritstjóri vi'kublaðsins „L’Ex-
press“, sem hefur verið Mitt-
errand heldur hliðhollt, taldi
þannig rétt fyrir kosning-
amar að ekki kæmi til greina
að hann fengi meira en um
fjórðung atkv., þótt hlutfall
hans myndi á hinn bóginn
varla fara mikið niður fyrir
það mark. Þriðji frambjóð-
andinn sem máli skipti, Jean
Lecanuet, sem studdist við
miðflokkana og íhaldsmenn
og byggði kosnineabaráttu
sína á gagnrýni á stefnu de
Gaulle gagnvart EBE og
Nato, hlaut talsvert meira
fylgi en honum hafði verið
ætlað í fyrstu, en þó minna
en búizt hafði verið við eftir
frammistöðu hans í sjón-
varpsáróðrinum sem sögð er
hafa verið frábær. Telja má
nær víst að Lecanuet hafi
dregið til sín verulegan f.iölda
atkvæða sem annars hefðu
fallið á de Gaulle og þannig
jafnvel ráðið úrslitum um
það að forsetinn hefur ekki
enn verið endurkiörinn.
Þar sem enginn frambjóð-
enda hlaut hreinan meiri-
hluta verður kosið aftur eftir
hálfan mánuð og þá milli
þeirra tveggja sem flest at-
kvæðin fengu. de Gaulle og
Mitterrands — með þeim fyr-
irvara þó að de Gaulle gefi
aftur kost á sér. Annars verð-
ur kosið milli þeirra Mitter-
rands og Lecanuet. Þótt de
Gaulle hafi gefið í skyn að
hann myndi draga sig í hlé
ef kjósendur veittu honum
ekki traust sitt þegar í fyrri
lotu. má telja víst að hann
brjóti odd af oflæti sínu —
og enginn efast um að hann
myndi sigra 19. desember. En
bótt honum séu tryggð for-
setavöld í Frakklandi enn eitt
sjö ára kjörtír abil, ef hann
kærir sig um, hafa úrslitin á
sunnudaginn markað -tíma-
mót í frönskum stjórnmálum.
Hið mikla fylgi sem Mitter-
rand hlaut er vísbending um
að vinstrimenn geta starfað
saman og náð árangri ef þeir
gan,ga til samvinnunnar af
einlægni. Með framboði Mitt-
errands tókst í fyrsta sinn
samvinna milli franskra
kommúnista og sósíalista um
landið allt, síðan kommúnist-
ar voru .settir utangarðs" að
kröfu Bandaríkjanna árið
1947. Ýmsir ,,óháðir“ vinstri-
menn höfðu vantrú á slíkri
samvinnu. töldu að stuðning-
ur kommúnista myndi fæla
fylgi frá Mitterrand. Hann
var sjálfur óhræddur við það
og sagði í viðtali við „L’Ex-
press“ fyrir kosningamar að
hann teldi að ,,fjöldi Frakka
léti ekki lengur kommúnista-
grýluna á sig fá“. Úrslitin
staðfestu þetta álit hans eft-
irminnilega og munu því
auðvelda frekara samstarf
vinstriaflanna framvegis. Þótt
of snemmt sé að gera ráð
fyrir nýrri Alþýðufylkingu í
Frakklandi, hefur sigur hins
sameiginlega framb.ióðanda
kommúnista og sósíalista
greitt fyrir samstarfi þeirra,
eins og væntanlega mun
koma í Ijós í þingkosnirtgun-
um 1967. Það var alltaf vitað
að framboð Mitterrands vær
aðeins fyrsta skrefið á þeirri
braut að sameina vinstriöflin
í Frakklandi og ótvíræður
sigur hans á sunnudaginn
spáir góðu um framhaldið.
Sagt er að úrslitum kosn-
inganna hafi verið fagn-
að x aðalstöðvum EBE í
Brussel og að bandarískir
ráðamenn fari ékki dult með
ánægju sína yfir því áfalli
sem þeir telja að de Ganlle
hafi orðið fyrir. Sum blöð á
vesturlöndum hafa túlkað úr-
slitin sem ósigur fyrir utan-
ríkisstefnu de Gaulle; fransk-
ir kjósendur hafi látið í ljós
óánægju sína með þann á-
greining sem hann hefur gert
innan EBE og Atlanzbanda-
lagsins. Sú skýring virðist
heldur langsótt. Lecanuet,
eini frambjóðandinn sem
byggði alla kosningabaráttu
sína á því hve hollur harnx
væri „vestrænni samvinnu“,
hlaut þó ekki meira en tæp-
an sjöttung atkvæða. Mitter-
rand hefur að vísu gagnrýnt
de Gaulle fyrir framkomu
hans gagnvart öðum ríkjum,
en jafnframt lýst fylgi við
það meginsjónarmið að Frakk-
ar eigi að hafa sjálfstæða
utanríkisstefnu. Fráleitt er að
telja að þau atkvæði sem á
hann féllu og eru a.m.k. að
helmingi til komin frá
kommúnistum séu ,,vest-
rænni samvinnu“ til fram-
dráttar. Það er hætt við að
andstæðingar de Gaulle í
Brussel, Washington og Bonn
hrósi happi of snemma.
Fréttaskýrandi brezka út-
varpsins benti réttilega á það
í gær að de Gaulle hefði
aldrei verið erfiðari viðfangs
eða harðari í hom að taka en
begar á móti blés. Það máttu
beir sanna á stríðsárunum,
Churchill og Roosevelt. og á
bvi munu aðrir fá að kenna
á næstu árum. ef hann verð-
ur enn húsbóndj í Elysée-
höllinni rim ræstu inl — ás.