Þjóðviljinn - 07.12.1965, Qupperneq 5
1
Þrföjwðagur 7. desemfoer 1965 — Þj<3ÐVí1:jINN — StDA g
Karvina-helmsóknin:
Reykjavíkurliðið þakkaði fyrir sig og sigraoi
í fyrsta leiknum í íþróttahöllinni með 23:20
□ Það var hátíðlegt augnablik þegar hinír
ágætu tékknesku handknattleiksmenn og ges’tir
Fram, ásamt úrvalsliði Reykjavíkurborgar gengu
inn í hina nýju, glæsilegu íþróttahöll, albúnir
þess að leika fyrsta leikinn þar. — Langþráð
augnablik öllum handknattleiksmönnum og unn-
endum handknattleiksins, sem er stór hópur,
var að renna upp.
Iþróttamennirnir röðuðu sér
upp á hinum fyrsta löglega
handknattleiksvelli hérlendis,
en um 2300 áhorfendur höfðu
komið sér fyrir á áhorfenda-
pöllum.
Áður en leikurinn hófst
flutti Jónas B. Jónsson stutt á-
varp, en hann er formaður
byggingamefndar Lýsti með
fárum orðum þessum áfanga
sem náðst hefði, og gat þess að
endanleg vígsla myndi verða
síðar, þegar byggingunni væri
lokið. Kvaðst Jónas vona að
hús þetta yrði Iyftistöng öllum
þeim sem það þyrftu að nota
hvort sem það væru íþrótta-
menn eða atvinnuvegir lands-
manna o, fl.
Þá flutti Geir Hallgrímsson
borgarstjóri stutt ávarp og lýsti
að lokum Höllina opnaða til
notkunar. Borgarstjórinn af-
henti og fyrirliðum beggja liða
fána með merki Reykjavíkur-
borgar til minningar um þenn-
an sogulega atburð. Fékk at-
höfn þessi mikið lófatak áhorf-
enda
Hörður Kristinsson skorar
fyrsta markið.
Eftir að leikm höfðu skipzt
á smágjöfum hófu Reykvík-
ingamir leikinn og eftir
skamma stund er Hörður Krist-
insson i allgóðu færj og skorar
fyrsta mai'kið. sem skorað er í
þessu nýja húsi.
Og ekki leið löng stund þar
til Gunnlaugur skaut nokkuð
óvænt og fékk markmaður
ekki við ráðið. 2:0 fyrir Reykja-
vík, góð byrjun. Tékkar sækja
allfast en þeim gengur ekki
sérlega vel að ná saman. Á
5. mínútu er dæmt vítakast á
Reykjavíkur liðið, sem var að
vísu dómur í strangara lagi,
en Þorsteinn í markinu ver
skotið með mikilli prýði. Var
þetta uppörfun fyrir liðið en
vafalaust að sama skapi það
gagnstæða fyrir gestina. Enda
virtust þeir heldur miður sin
næstu mínútumar.
Þeim tókst þó að skora
fyrsta mark sitt á sjöundu mín-
útu og var það Bielický og
rétt á eftir tekst Konrád að
jafna úr au’kakasti við punkta-
línú, en Þorsteinn virtist ekki
við búinn í markinu.
Nú gera Reykvíkingar 4 mörk
í röð, og gerði Hörður það
fyrsta. með skoti yf ir. Næsta
mark skorar af línu Karl Jó-
hannsson, fann smugu og
skaut þar í gegn og hafnaði
knötturinn í netinu. Enn átti
Hörður gott uppstökk og skaut
þaðan óverjandi fyrir mark-
manninn, 6:2. Voi-u nú liðnar
um 13 mínútur af leik. Þá
bæta Tékkar við tveim mörk-
um i röð. Fyrst Klimcik með
góðu skoti af línu og síðan
Ranik með skoti í gegn. Hörð-
ur bætir enn við úr víti og
stuttu síðar eykur Guðjón töl-
una upp í 8:4. En bæta gest-
imir við, þeir Ranik og Biel-
ický 8:6. Karl er kominn inn á
línu í öðru hominu, og mark-
maður ætlar að hlaupa móti
honum, en Karl var ekki í
vandræðum og lyftir mjúklega
yfir markmanninn og knöttur-
inn dettur inn í markið.
Tékkar kunna þessu greini-
lega ekki sem bezt, að ná ekki
betri tökum á leiknum, og
þeim tekst ekki að ná tökum
á mótherjunum svo bilið helzt
nokkuð svipað. Þegar liðnar
voru 22 mínútur stóðu leikar
10:7. Hafði ‘ Þórarinn litlu áður
skorað fyrir Reykjavík, en
hinn marksækni Bielický fyrir
Tékka.
Stefán Sandholt bætir við
marki fyrir Reykjavík en Chin-
er kvittar fyrir litlu síðar.
Hermann skorar tólfta markið
með mjög fallegu skoti af línu
og ekki leið á löngu þar til
Janik skorar af línu. Hörður
eykur töluna í 13 úr vítakasti
og stuttu síðar skorar Janik
með frábærlega skemmtilegu
skoti úr öðru hominu, 13:10.
Bielický bætir enin við og
Hörður skorar síðasta markið
fyrir leikhlé úr vítakasti, 14:11.
I síðari hálfleik byrjuðu
Tékkarnir með miklum ákafa
og var sem Reykvíkingarnir
væru fcví ekki viðbúnir. Virt-
ust þeir heldur gefa eftir og
eftir 9 mínútur hafði Tékkum
tekizt að jafna 15:15. Hermann
hafði skorað eina markið sem
Reykjavík tókst að skora á
þessum tíma. Konrád, Bielický
skoruðu sitt hvort markið, en
Chiner 2 í röð.
Var ekki laust við að menn
væru famir að óttast að út-
hald okkar manna mundi vera
farið að segja til sín. En Sig-
urði Einarssyni tekst að gefa
forystu, 16:15, og gengur á
ýmsu um áhlaup. Tékkar verj-
ast allhárkalega og er dæmt
vítakast á þá. Hörður skorar
17:15. En Adam var ekki lengi
í Paradís, enn jafna Tékkar
og ógna. Voru það Hadrova
og Ranik sem það gerðu 17:17.
Þetta gerðist á 19. mínútu
leiksins. Enn var útlitið heldur
slæmt um sigur fyrir Reykja-
vík.
Karl Jóhannsson hafði til
þessa verið eins og alltaf áður
vel með í leiknum, en nú var
það eins og han.n hefði tekið
nær „einkaleyfi" á því að
skora mörk fyrir Reykjavík,
bví þegar svona stendur skorar
hann tvö í röð. 19:17. Enn
sýnir Janik listir sínar í horn-
skotum og skorar. Hermann
hafði. er á leikinn leið,
látið skemmtilega að sér kveða.
og bætir við markatöfluna með
skemmtilegu skoti 20:18, og
svo sem 5—6 mínútur eftir.
Útlitið lagaðist heldur, en
sannarlega hefðu hinir mörgu
áhorfendur mátt hvetja sína
menn meir en þeir g’erðu.
Enn er það Karl sem Tékkar
átta s.ig ekki á, og óvænt skýt-
ur hann í gegn óverjandi 21:18.
Tékkar sækja, en það virðist
ekki verulegur „broddur“ í
sókn þeirra. Þó tekst Hadrova
að skora, en Karl er ekki seinn
á sér að „kvitta“ fvrir með
góðu skoti í gegn 22:19. Tíminn
er alveg að verða búinn. svo
aðeins óhöpp ættu að valda
ósigri Reykjavíkur. Ranik
kemst í gott færi og skorar
20. mark Tékka. og tíminn al-
veg að verða búinn. Það er
brotið á Reykvíkingi, og rétt í
bví gefur tímavörðurinn merki
um að tíminn sé búinn. Það
eina sem má gera er að taka
aukakastið, og það verður að
Þama liggur knötturinn inni í tékkneska markinu. Myndin
er frá leik Tékkanna og Reykjavíkurúrvalsins á laugardag.
— Ljósm. Þjóðv. A.K..
fara beint í markið ef árang-
ur á að fást. Karli er gefið
þetta verkefni, og þrjá metra
frá honum er að því er virðist
pottþéttur tékkneskur „múr“-
veggur. En Karl sá betur, hann
eygði smugu rétt sem nam
knattarbreidd. og með sinni
alkunnu snöggu sendingum
þeytir hann knettinum þarna
í gegn, en við þessum ,.leka“
var markmaðurinn ekki búinn
og knötturinn söng i netinu.
Og var þetta fyrsta þolraunin
fyrir hvolfbak Hallarinnar hvað
snert.ir óp oe fagnaðarlæti á-
horfenda!
Komust Tékkarnir
aldrei í gang?
Eftir leik Tékkanna í Há-
logalandi móti KR hafði mað-
ur búizt við að leikur þeirra
myndi verða nokku öðruvfsi
á hinu stóra gólfi en tilfellið
varð, því að ekki er að draga
£ efa að þetta er gott lið. Hraði
þeirra naut sín ekki og beir
miss.tu knöttinn óþarflega.
Þeim tókst betur nú hvað snert-
ir leik við línuna og var bar
sérstaklega athyglisverður leik-
ur Oldrich Janik. sem skoraði
skemmtilega þaðan og bá sér-
staklega með sínum sérstæðu
köstum úr hornum. Langskytt-
ur þeirra, þeir Bielický, Chin-
er og Ranik voru ágætir bæði
í sókn og vörn.
I heild var leikur Karviná
góður á köflum sérstaklega í
bvriun síðari hálfleiks. en samt
ekki eins sterkur og maður
hefði búizt við.
Vera má að mótstaðan sem
liðið fékk og þá sérstaklega i
byrjun hafi komið þeim á ó-
várt, og það getur haft sín
alvarlegu áhrif þegar útí leik-
inn er komið.
Framhald á 9. síðu.
FH NÆR SIGRINUM, EN
JAFNTEFLI VARÐ 19:19
□ Þetía var bezti leikur Tékkanna til þessa,
meiri hraði einkenndi þá nú og má raunar vera
að það hafi verið hraði Hafnfirðinga sem kom
þeim verulega af stað. Hafnfirðingarnir byrj-
uðu þegar með hraða og oft skemmtilegum sam-
leik, en þeir voru of gráðugir í að skjóta og skutu
í tíma og ótíma og misstu fyrir það knöttinn
alltof oft.
Þetta er þó vafalaust mik-
ilvægur leikrur fyrir FH í sam-
bandi við leik þeirra í Evr-
ópubikarkeppninni í hand-
knattleik sem fyrir dyrum
stendur.
Leikur þessi var bezti leik-
urinn sem leikinn hefur verið
í heimsókn þessari, og kemur
þar til líflegur leikur Tékk-
anna, svo og mjög góður leik-
ur FH, allt frá byrjun. Hann
var frá upphafi „spennandi“.
og tvísýnn að kalla allan tím-
ann, og skiptust liðin á um
foirystuna.
Tékkar byrjuðu að skora
þegar á fyrstu mínútu leiksins,
og var það stórskyttan Bielický
sem það gerði, en mínútan
hefur naumast verið liðin þeg-
ar örn jafnar fyrir FH. Enn
komast Tékkar yfir, en Jón
Gestur jafnar 2:2. Þetta held-
ur svona áfram, og Geir jafn-
ar mjög skemmilega 3:3. Nú
komast Tékkar 2 mörk yfir,
en öm og Páll jafna á 5:5.
Bielický skorar enn og stuttu
siðar er dæmt vítakast á Tékka
og tekur Páll það, og mark-
maður ver, en knötturinn
hrekkur til Geirs sem jafnar
6:6. FH-ingarnir leika oft
mjög vel, en þeim gengur svo-
lítið illa að loka markinu fyr-
ir ágangi Tékkanna. Og nú um
skeið hafa þeir forustuna í að
skora, en Tékkar jafna: 7:7—
8:8. FH-ingar komast nú tvö
mörk yfir eða í 10:8, en á 27.
mín. tekst Tékkum að jafna
á 11:11, en hálfleiknum lauk
með 13:12 fyrir FH.
Eftir leikhlé ná Hafnfirðing-
ar góðum leikkafla og skora
þegar í byrjun og sækja hart,
én Tékkar eru full harðir og
Karl dæmir vítakast, sem
Ragnar tekur og markmaður
ver. Og uppúr því kemur ann-
að víti, og nú reynir Öm en
allt fer á sömu leið. Þetta
dregur heldur mátt úr Hafn-
firðingum, og eftir 11 mínút-
ur eru Tékkar búnir að jafna
á 15:15. Hafnfirðingar eru þó
heldur með frumkvæði en
Tékkar jafna 16:16, þá henti
það að Hafnfirðingar voru of
seinir aftur og Tékkar jafna
og aftur eftir misheppnaða
sendingu koma&t Tékkar yfir í
17:16, en Páll jafnar með föstu
skoti niður við gólf: 17:17, og
12 mín. eftir.
Tékkar hafa nú heldur frum-
kvæði og með nokkru millibili
skorar Bielický tvö mörk í röð
19:17. Útlitið var ekki gott til
að sigra, tíminn var að verða
búinn, aðeins fáar mínútur
eftir. Á 27. mín. er dæmt víta-
kast á Tékka, og nú heppnast
Páli að skora 19:18, og nokkm
síðar eða rétt fyrir leikslok
tekst Birgi að jafna 19:19, og
þar við sat.
Framhald á 9. síðu.
1