Þjóðviljinn - 04.01.1966, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 04.01.1966, Blaðsíða 6
g SlÐA — ÞJÖÐVILJINN — Þriðjudagur 4. Janúar 1966. Mig dreymdi að Jesús ksemi aftur Bandaríski rithöfundurinn Biil Caldwell hefur ritað þessa frásögn og segir frá undarlegum draumi: Jesús kom til jarðarinnar aftur en var nú orðinn negri Eina nóttina dreymdi mig það, að Jesús kæm; til jarðarinnar aftur og lenti i Alabama. En í stað þess að vera Gyðingur var hann orð- inn negri. Þetta var und- arlegur draumur. Fyrst hafði brotizt út ný borgarastyrjöld milli Norður- og Suðurríkja Bandaríkjanna. Hún hófst vegna þess. að Ku Klux Klan, The White Citiz- ens Council, John Birch Soci- ety og nokkur félagssamtök önnur höfðu óvart og i sára sakleysi hrakið alla blökku- mennina norður á bóginn. Martin Luther King var um kennt. CIA komst að því, að hann vaeri yfirlýstur kommúnisti, sem hefði getað dulizt með því að þykjast vera mann- vinur f Suðurríkjunum var hans leitað fyrir landráð og í Norðurríkjunum var lí'ka álitlegur hópur manna. sem vildi hafa hendur í hári hans. Því var líka slegið föstu. að hann ætti Kinverja i ættinni. Málin snerust nú á þann veg, að samtök þeldökkra Múhameðstrúarmanna urðu ein helzta baráttusveit fyrir Ku Klux Klan. Bandariski herinn reyndist tvískiptur i hollustu sinni. Johnson forseti neyddist til þess að flýja land. eftir að hann hafði orðið fyrir ásókn erindreka CIA frá Norður- ríkjunum og erindreka ríkis- lögreglunnar, FBI frá Suður- ríkjunxim Sök hans var sú að hafa boðið Kína upptöku í samfélag þióðanna og stutt þ"að' ' að Martin Luther King yrói nýr landstjóri i Alab- ama Eftir æðisgenginn flótta frá einu Nató-landinu til ann- ars. neyddist hann að lokum til þess að biðjp um hæli sem pólitískur flóttamaður bak við járntjaldið f Moskvu fékk hann íbúð við hliðina á Krústjoff Kona hans. Lady Bird, varð einn helztur áróðursmaður Sovét- ríkjanna gegn ,the american way of life1, bæði í Norður- og Suðurríkjunum. en eink- um þó i Texas. Goldwater Nixon og Eis- enhower urðu þekktir undir nafninu „Þrjár blindar mýs*‘ Suður-Afríka sendi hjálpar- sveitir til Suðuríkjanna Tsjombe sendi málalið til Norðurríkjanna fyrir drjúga borgun og England hleypti bandaískum flóttamönnum af engilsaxneskum uppruna inn í landið. Kúbumenn á Florida reyndu að stelast aftur til eyjarinnar og Kastró féllst á að sleppa þeim inn í land- ið gegn því, að Florida nfi niður vísindastöðina á Kenn- edyhöfða. Heimurinn var ein hringa- vitleysa. Þetta er versta martröð, sem ég hef fengið, og hún var í litum. Bæði Suður- og Norður- ríkin kröfðust þess, að Frakkland borgaði samstund- is allar sinar skuldir og það í gulli. De Gaulle þótti þetta sanngjörn krafa en yppti þó öxlum og lýsti því yfir. að hann myndi því aðeins punga út, að Frakkland fengi Lou- isiana aftur Hann lagði fram skjöl sem sýndu það, að Napóleon hafði ekki ha.ft heimild til þess að selja Bandaríkjamönnum svæðið. svo það hlaut að réttu að heyra undir Frakka. Kína kom fram á sjónar- sviðið sem mesta mannúðar- þjóð heims, eftir að bæði Suðurríkin og Norðurríkin höfðu eyðilagt uppskeruna hvort fyrir öðru með skemmdarverkum. Kínverjar sendu tugmiljónir lesta af hrísgrjónum til glorsoltinna Bandarikjamanna. Kanadamenn hófu vígbún- að á landamærunum. Súkarnó bauð Sameinuðu þjóðunum að flytja aðal- stöðvar sínar til Djakarta. Almenningsálit um heim allan fordæmdi harðlega þá ákvörðun Afríkurík.ianna að hleypa aðeins hundrað bandarískum flóttamönnum inn í landið árlega. Þó keyrði fyrst um þver- bak. þegar Jesús birtist í Alabama og labbaði sig beipt inn 5 aðalstöðvar Ku Klux Klan. — Meðan ég man, Norðurríkin höfðu látið Man- hattaneyju með Harlem sem höfuðborg af hendi við þel- dökka Múhameðstrúarmenn, gegn því. að þeir styddu Norðurríkin í baráttunni við Suðurrikin Múhameðstrúarmennirnir. þessir bleksvörtu svikahrapp- ar. höfðu brugðizt því traustj sem Ku Klux Klan hafði sýnt þeim. og fært enn einu sinni sönnur á það að negranum er að engu treystandi! Öll hin þeldökka millistétt neitaði að taka þátt i því að flyti hvítt blóð. hvort heldur væri að sunnan eða norðan. Jafnframt þessu kvaðst þessi sama þeldökka millistétt líta með samúð og skilningi á baráttu þeldökkra Múham- eðstrúarmanna. En snúum okkur aftur að Jesú. Stórdrekinn fyrir Ku Klux Klan hugsaði hægt með sér. að annaðhvort væri þessj maður vitstola eða Þá ag þetta væri eitthvert ó- þokkabragð að norðan. Það skyldi þó aldrei vera, að strákhvolpurinn hann þama Robert Kennedy stæði bak við þetta? Ég man það svo greinilega. að í draumnum heyrði ég stórdrekann segja: .,Jseja, drengur minn. hver er það sem hefur kennt þér þetta ó- guðlega yankee-trick? Það má vera hevrjum manni ljóst. að Þér hefur ekki dott- ið þetta í hug sjálfum. bölv- uðum kálhausnum. Hvað heldur þú eiginlega að Þú sért? James Bond, eða hvað? Og taktu af þér pottlokið þegar þú talar vig hvítan mann! Þú ert hreint ekki svo lítið ósvífinn! Stendur þarna keikur og segir upp í opið geðið á mér, að guð hafi sent þig!“ ,Ég verð að játa það“, sagði Jssús ,,að mig lang- aði ekki sérstaklega hingað niður aftur — en pabbi hélt fast við sitt“ Stórdrekinn varð svo æva- reiður að hann þreif af sér hettuna og þeytti henni í gólfið. ,.Gættu nú að þér. lúsablesinn! Ef þú leggur aftur guðs nafn við hégóma, þá krossfestum við þig fyrst og brennum þig svo um há- bjartan daginn! Ertu með á nótunum?“ ..Sjáðu nú til“ sagði Jes- ús þolinmóður, hann vissi svo sem vel, að hverju hann gekk ..síðasta skiptið, sem ég var hér, þá var ég negld- ur á kross fyrir það að vera Gyðingur, og ég hafði þó ekkert annað í huga en að frelsa mannkynið. Nú er ég kominn aftur, og mitt til- boð stendur“. „Jæja, drengur . minn“, sagði Stórdrekinn með brosi. sem var blandift hatri. ótta og aukinni virðingu, ,.við skulum afgreiða bæði þig og þetta kjaftæði þitt til föður- húsanna fljótf og vel“. Þegar nú Stórdrekinn hafði hugsað sig um litla hríð fékk hann snilldarhugmynd. Hann ætlaði að bjóða full- trúum hinna hvítu þjóða heims (ftalir, Slavar Frakk- ar og þjóðir með þann lit- arhátf og umhverfi ekki með- reiknaðar) að vitna í réttar- höldunum um þá svívirðu, sem Robert Kennedy. CIA. Gyðingar og fyrrverandi bandamenn hans, þeldökkir Múhameðstrúarmenn, fundu upp á til þess að sverta Suð- urríkin . . Það næsta sem ég man, er réttarhöldin. f réttinum voru lagðar fram myndir af Jesú Kristi sem þátttakanda í ,sit-in“ mótmælaaðgerðum. Vitni báru það, að þau hefðu séð hann í mótmælagöngu fyrir réttindum blökkumanna meg nunnu sér við hönd. Málið lá ljóst fyrir. Er réttarhöldin voru senn á enda runnin. heimtuðu menn kraftaverk sem sönn- un þess að hann væri í raun og veru Jesús Kristur Og hefði snúið aftur til jarðar- innar. En Kristur synjaði um kraftaverkið. Skæruliðar Vietko’ng, sem höfðu unnið Vietnam- stríðig vegna þess ag allar bandarískar hersveitir höfðu verið fluttar á aðrar mikil- vægari vigstöðvar. höfðu meðan þessu fór fram náð á sitt vald hinum frægu bandarísku B-25 sprengju- flugvélum með öllum útbún- aði og með hjálp kinverskra flugmanna og sovézkra tæknifræðinga höfðu vélarn- ar verið fluttar til Kúbu. Á þann hátt áttu bæði Vietkong og Kastró að geta nág nokkrum hefndum. Það stóð heima ag einmitt þegar Ku Klux Klan hafði neglt Jesú á krossinn, tók sprengjunum að rigna, Smám saman féllu sprengjur á all- ar mikilvægustu borgirnar í Norður-ríkjunum og Suður- ríkjunum. Þau höfðu verið sammála um það. að beita ekkj sprengjunum gegn hvor öðrum. en komust nú að þeirrj niðurstöðu. að allsherj- arútrýming væri það eina. sem dygði. Það var þrýst á hnappana. Spádómur James Baldwins hafði rætzt: „Það verður eldur næsta skiptið“. Jesús. sem hékk á krossi Ku Klux Klans. leit til him- ins og hrópaði: ,.Faðir. fyrir- gef þeim. því þeir vita ekki‘ hvag þeir gera“. „Fyrirgefa hverjum?" spurði þrumuraust. Þegar ég leit við í draumn. um tóku allar mannverur að hverfa unz eftir var aðeins skuggalegur kross. Og skyndilega glaðvaknaði ég. Sveittur og skjálfandi af ótta gekk ég út. Ég gekk fram hjá blaðsöluturni og tók eft- ir blaðafyrirsögn; ,,45 B-25 sprengjuflugvélar eyðileggja tvo Vietkongher- flokka í Suður-Vietnam — þorpsbúar til allrar óham- ingju drepnir í árásinni" Undir aðalfyrirsögninni stóð önnur mnni; „Ku Klux Klan fagnar því að látnir hafa verið lausir þrír meðlimir samtakanna. sem ákærðir voru fyrir morð“. ,,Þeir geta ekki stöðvað oss nú“ stóð undir mynd af Stórdrekanum. Sem ég rölti áfram leiðar minnar velti ég því fyrir mér, hvort mig væri enn að dreyma. Því miður var ég glaðvakandi. 1 I I 1 Afbrotin falin á bak við orð „Ein helzta orsök þess að jafn mörg afbrot eru drýgð og raun ber vitni er sú, að notuð eru orð, sem hylja það, sem raunverulega er um að ræða: Glæpsamleean verkn- að. Menn finna eitthvert orðalag, sem sameinað geti tvö hlutverk: Hlutverk heiðarlegs manns og afbrotamanns- ins“. Það er bandarískur prófess- or Donald Cressey víð Kali forníuháskóla, sem þessari ^koðun sinni lýsir í fyrirlestri, sem hann hélt nýlega i Osló. Niðurstaða hans er i stuttu máli sú að það sé m’jög mik- ilvægur liður í baráttunni gegn afbrotum að kalla hlutina sín- um réttu nöfnum. Fjárdráttur Prófessor Cressey hefur einkum rannsakað það. sem hann kallar „hvítflibbaafbrota- menn“, og segir að það sé einkum þrennt sem einkenni þann mann er fremur venju- legan fjárdrátt. Hann standi í fyrsta lagi frammi fyrir fjár- hagsvandamálum, sem hann telji sig þó verða að þegja yfir. f öðru lagi gegni hann svo trúnaðarmiklu starfi. að hann telji sig geta leyst þessi vandámál með fjárdrætti í kyrrþey. Og í þriðja og síð- asta lagi finni hann eitthvert orðalag til lýsingar á sjálf- um sér. þannig, að hann skoði sig áfram mann í trúnaðar- stöðu en ekki afbrotamann, enda þótt hann misnoti þann trúnað. sem honum var sýnd- ur. u „Féð fengið að láni Lykilorðið í fjárdrættinum er oft „lán“ Hinn væntanlegi afbrotamaður myndi hrökkva við í skelfingu, ef einhvei segði honum að stela fé frá yfirmanni sínum — en það er ailt annag ag fá fé að láni. Og enn hægar veitist viðkomandi mannj að fremja verknaðinn ef hann hugsar sér að hann Framhald á 8. síðu. Atriði úr myndinni Blökkumaður — en hvítur þó. BLÖKKUMAÐUR - EN HVÍTUR ÞÓ Kvikmyndin ,,Blökkumaður — en hvítur þó“ eftir Carl Lemer er gerð eftir hinni á- hrifamiklu bók með sama nafni eftir bandaríska blaða- manninn Howard Griffin. Læknir nokkur hjálpaði hon- um að skipta um hörundslit og síðan fór hann í ferð um Suð- urríkin og fékk að finna það á eigin skinni hvað það er að vera blökkumaður í Banda- ríkjunum í dag. Höfundur kvikmyndahand- ritsins Gerda og Carl Lemer hafa búið þessari átakanlegu sögu óvenjulegan búning á4>- tjaldið. Atriði taka hratt við hvert af öðru, en hvert þeirra er þýðingarmikið, fullt af efnivið í átök, mannlegri hlýju, vonzku, hatri, beisju, öfugugga- hætti, minnimáttarkennd sem sé öllu þvi sem einkennandi er fyrir kynþáttaágréininginn í Bandaríkjunum. Hörundsliturinn skiptir siköp- um. Daginn sem blaðamaður- inn gengur út á götu með öðr- um hörundslit kemur hann inn í annan heim. Horfinn er hinn kunnugi heimur hvítra manna og í stað þess lifir hann í stöð- ugri martröð. Allur dagurinn fer í það að vera blökikúmaður. Að vera blökkumaður er það sama og þurfa æfinlega að vera á verði gegn duldum og þeinum fjandskap. Hættumar eru á hverju stxái. Þær sjást í andlitssvip hvítra manna og á almennin gssalernunum. Það er ráðlegra að drekka ekki vatn í vinnunni snemma dags, ef það er langt að kló- setti fyrir blökkumenn. Hvítur maður mun heldur láta blökfcumenn pissa á ság en hleypa þeim inn á hvítra manna salemi! Hvítir menn hafa mikinn á- huga á þvi að vita hvort blökkumaður sem þeir hitta hafi stærri kynfæri en þeir og skammas't sín ekki fyrir að biðja hann að opna klaufina. Hvítir menn vilja gjarna vita hvort kona blökkumanns- ins hafi lagzt með hvítum manni, eða hann sjálfur sofið 1 hjá hvítri konu. Þess háttar spurningar eru næstum alltaf bomar fram ef þeir fá að sitja í á þjóðvegin- um. Alltaf eru þeir minnimáttar, nokkurs konar dýr sem þeir hvitu geta leikið að vild. Framhald af 8. síðu. — Maður á að kaupa jóla- bækurnar tímanlega svo mað- ur geti lesið Þær áður en þær eru gefnar. (— Salon Gahlin) V-þýzkir bréf- berar vopnast gegn hundum! MIÍNCHEN — Það kemur nú alvarlega til tals að vopna bréfbera í Vestur-Þýzkalandi gegn grimmum hundum. Vopn- ið. sem um þessar mundir ér reynt í Múnchen. er sprautu- byssa, sem gefur frá sér vökva. sem er einhverskonar sainbland af olíu og pipar. Það fylgir sögunni að póst- stjórnin í Vestur-Þýzkalandi vænti sér mikils af þessu vopni, sem enginn hundur á að geta staðizt. Á það er enn- fremur bent i þessu sambandi, að á árinu 1964 einu saman hafi um 2.000 bréfberar orðið fyrir árásum grlmmdarhunda. Sagf & skrifað Þejr Knud Rasmussen og Peter Freuchen voru eitt sinn, skömmu fyrir 1930, staddir á M/S „Dis- ko“ í Godhavn á Græn- land. Grænlendingur einn. Karl Thygescn, hcim sótti þá landkönnuðina og sagði frá því. svona í fram- hjáhlaupi, að næsta sumar ætlaði hann að bregða sér til Danmerkur, „Þá verður þú að heim- sækja mig t Hundested“ sagði Knud Rasmussen, ,.þar skaitu iifa þrjá daga. sem þú aldrei gleymir“ ,.Já“ bættj Peter Freuch- en við, ,.en komdu svo á eftir til mín á Enehöje, þar skaltu Iifa þrjá daga sem þú verður aldrei í standi til að muna!“ 1

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.