Þjóðviljinn - 08.01.1966, Side 1
Iaugardagur 8. janúar Í1966 — 311 árgangur — 5. toluMaS
FH SIGRAÐI 19:15
I gærkvöld lékiu íalandsmeistaramir í handknattleik karla,
FH, og norsku meistararnir, Fredensborg, fyrri leik sinn í
Evrópubikarkeppninni og fór leikurinn fram í nýju Iþrótta-
höllinni í Laugardal. lÆákar fónu svo að FH bar sigur úr
býtum með 19 mörkum gegn 15. — Sjá umsögn FRÍMANNS
HEIaGASONAR um leikinn á tíundu síðu.
Áframhald-
andi gos en
engia eyja
Á fimmta tímanum f
gærmorgun náðist varð-
skipið Þór aftur á flot en
það hefur Iegið & hliðinni
í Slippnum frá því á
mánudag, er það valt þeg-
ar verið var að taka það
upp til viðgerðar. Háflæði
var þegar Þór var dreginn
á flot og gekk verkið ágæt-
lega.
Enn er ekki vitað hve
miklar skemmdir hafa orð-
ið á skipinu en það mun
hafa lasskazt eitthvað nið-
ur Við kjölinn. Hins vegar
er dráttarsleðinn sem skip-
ið var í er það valt mik-
ið skemmdur, Verður skip-
ið dregið að nýju upp í
Slippinn og kannaðar
skemmdir á því.
Óreiðusfjórn íhaldsins á borgaraiólunum:
Auknar dlogur og eyðsla en minni
framkvœmdir
Þrennt meiðist í
umferðarslysum
Síðdegis í gær Og í gærkvöld
urðu allmörg umferðarslys og
árekstrar hér í Reykjavík enda
hálka mikil á götunum. Voru
þrjár manneskjur fluttar i
slysavarðstofuna sem höfðu orð-
ið fyrir bílum en meiðsli þeirra
munu ekki hafa verið alvarleg
að þvi er lögreglan taldi er
Maðið átti tal við hana í gær-
kvöldi.
Guðmundur Vigíússon, borgarfulltrúi Alþýöuband alagsins, í ræðustól, Geir Hallgrímsson borgarstjóri
lengst tii vinstri, Auður auðuns forseti borgarstjórnar í miðið. — (Ljósm. Þjóðv. Ari Kárason).
Atkvæðagreiðslur og afgreiðsla
fjárhagsáætlunarinnar — sjá síðu 10
Leiðréttingar fengust engar á frumvarpinu
að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 1966
□ Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir
árið 1966 var afgreidd, ásamt ýmsum verulegum
hækkunum á gjaldskrám og verðtöxtum borgar-
stofnana og fyfirtækja, í lok borgarstjórnarfund-
arins snemma í gærrnorgun. Höfðu þá umræður
staðið með stuttum hléum frá því kl. rúmlega 5
; síðdegis á fimmtudag, allt kvöldið og nóttina. í
. umræðum þessum héldu fulltrúar minnihluta-
flokkanna uppi harðri gagnrýni á framkvæmda-
stjórn íhaldsins á málum Reykjavíkurhorgar og
þá slefnu er frumvarpið að fjárhagsáætlun-
inni bæri með sér og lýsa mætti með fjórum
orðum: Meiri eyðsla. — Minni framkvæmdir.
Fiskverð hækkar
Hlufa af hœkkuninni á að taka meS nýjum
sildarskafti og mófmœlti fulltrúi sjömanna
Tryggvi Helgason þeirri ákvörSun
E Yfirnefnd verðlagsráðs sjávarútvegsins ákvað fiskverð á næturfundi í fyrrinótt.
■ Ferskfiskverðið árið 1966 hækkar um 17% að meðaltali á þorsk og ýsu, og auk
þess eru smáHækkanir á einstökum fisktegundum. Smáfiskverð hækkar, auk hinnar al-
mennu hækkunar, um 3% á vetrarvertíðinni og um 28% á sumarvertíðinni. Viðbótarverð
á línufisk verður nú 50 au. á kg. í stað 25 au.
■ Meirihluti yfirnefndar gerði samkomulag við ríkisstjórnina um breytingar á út-
flutningsgjöldum sem fela í sér hækkanir á útflutningsgjöldum síldarlýsis og síldar-
mjöls, og eiga að fást með þeim breytingum um 4% af fiskverðshækkuninni. — Þess-
um nýja síldarskatti mótmœlti fulltrúi sjómanna í yfirnefndinni, Tryggvi Helgason,
og taldi fiskkaupendur einnig geta borið pá hœkkun, ekki sízt þar sem ríkisstjórnin
lofar að hækka styrkinn til þeirra, „hagræðingarféð“, um 17 miljónir á árinu.
Þjóðviljinn náði gær snöggv^-
ast tali af Tryggva Helgasyni
fulitrúa sjómanna í yfimefnd-
inni og spurði hann um aðal-
atriði ákvörðunarinnar.
— Um verðið sjálft er það
að segja að það hækkar um
17% að meðaltali á þorsk og
ýsu og auk þess verða smá-
hækkanir á einstökum fiskteg-
undum, svo sem karfa, stein-
bít og ufsa, 3—5%.
Þá hækkar smáfiskverðið, auk
hinnar almennu hækkunar, um
3% á tímabilinu frá 1. jan. til
maíloka og um 28% á tímabil-
’nu frá 1. júní til 15. september.
Er sú verðákvörðun nokkuð
hagstæð. einkanlega fyrir smá-
útgerð fiskibáta, við dragnót og
línuveiðar, þar sem að jafnaði
þriðjungur til helmingur aflans
er smáfiskur, bæði þorskur og
ýsa. Er talið að í sumarútgerð
muni verðhækkunin raunveru-
lega nema 25—30%,
Þessar verðhækkanir sérstak-
lega á smáfiski byggjast á nýj-
um samningum við Rússa um
kaup á heilfrystum smáfiski,
þorski og ýsu.
Viðbótarverðið á línufiskinn
verður nú 50 aurar á kg. í stað
25 aura á sl. ári, og kemur við-
bótin frá fiskkaupendum.
MÓTMÆLTI SÍLDAR-
SKATTINUM
—Þú áttir ekki hlut að ákvörð
uninni um síldarskattinn?
— Nei, það atriði ákvörðun-
arinnar' sem ég gerði ágreining
um og lýsti mig mótfallinn er
samkomulagið sem meirihluti
yfjrnefndarinnar' gerði við ríkis-
stjómina um breytingar á út-
flutningsgjöldum, sem fela í sér
hækkanir á útflutningsgjöldum,
sérstakiega síldarlýsis og síldar-
mjöls og reyndar að nokkru
leyti líka hvalafurða. Áætlað er
að um það bil 4% hækkun fisk-
verðsins sé tekið með breyting-
um á útflutningsgjöldum.
Ég tel eftir þeim upplýsing-
um sem ég hef getað aflað mér
um rekstur allmargra fis:k-
vinnsöustöðva að þær hefðu átt
að geta tekið á sig þessa hækk-
un sem þarna á að sækja f
síldaraflann, ekki sízt með því
hagræðingarfé sem reiknað er
með að þær fái áfram og hækki
á þessu ári um 17 milljóhir kr.
Fréttatilkynning yfirnefndar-
innar er birt í heild á 4. síðu.
Fulltrúar Aliþýðubandalagsins
í bórgarstjórn fluttu fjölmargar
tillögur til breytinga á fjárhags-
áætlunarfrumvarpinu. eins og
getið hefur verið áður hér í
blaðinu, og voru þær við það
miðaðar að ráðizt yrði af ein-
beitni og rautisæi gegn vanda-
málunum á sviði byggingafram-
kvæmda í Reykjavík og að öðru
leyti mörkuð sú stefna sem gæfi
góða von um lausn erfiðustu
þátta húsnæðismála borgarbúa,
skólahúsnæðisskorts.ins, vöntun-
ar á barna og vistheimilum og
menningarstofunum.
Sem vænta mátti snerist i-
haldsliðið gegn þessum um-
bótatillögum — það er ekki
samfemi við stefnu þcss að
séð verði með eðlilegri og
réttlátri tekjuöflun og sparn-
aði í borgarrekstrinum fyrir
stórauknum framlögum til
þeirra framkvæmda er mest
eru aðkallandi fyrir borgina.
ÓHEILLASPOR IHALDS-
STEFNUNNAR
Við umræðurnar á borgar-
stjórnarfundinum í fyrrakvöld
benti Guðmundur Vigfússon, !
borgarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins, m.a. á þann augljósa skyld-
leika sem er með stefnu nú-
verandi ríkisstjórnar og fjár-
málastefnu borgarstjórnarmeiri-
hlutans. Skattheimtan mikla
hverfur í vaxandi mæli í rekst-
urskostnað, og eyðslu, brennur
upp í loga óðaverðbólgunnar. Af
153,5 milj. króna tekjuaukningu
borgarsjóðs frá því spm var á
sl. árl fara 132,4 milj. í hækk-
Framhald á 7. síðu.
Þór náðist
aftur á flot
Síðdegis í gær barst
Þjóðviljanum eftirfarandi
fréttatilkynning frá Land-
helgisgæzlunni:
I dag flaug gæzluflug-
vélin Sif yfir nýju gos-
stöðvarnar við Surtsey.
Voru gosin tvö en iítil og
stutt milli þeirra. — Hæð
sprengigosanna var um
10—15 metrar og rnynduð-
ust smá gufubólstrar sem
eyddust áður en þeir náðu
að berast inn yfir Surtsey.
Engin eyja er sjáanleg en
sjór brotnaði mikið við
gosin. Einnig sást öðru
hvoru eldbjarmar niðri í
sjónum. Veður var suð-
vestan stinningskaldi og
mikill sjór.
t
t
Skipun læknpþjónustu iandsspítaluns endurskoðuð
23. des. sl. skipaði heil-
brigðismálaráðherra nefnd
til þess að endurskoða skip-
un og fyrirkomulag á lækna-
þjónustu í Landspítalanum
Er nefndin skipuð vegna mik-
illar óánægju Iækna á Lands-
spítalanum og Rannsóknar-
stofu Háskólans með Iauna-
kjör sín og starfsskilyrði en
18 læknar hafa nú sagt upp
störfum hjá þcssum stofn-
unum af þessum orsökum.
1 nefndinni eiga sæti Guð-
íón Hansen tryggingafræðing-
ur, formaður, prófessor Sig-
urður Samúélssan og Ólafur
Bjarnason yfirlæknir, til-
nefndir að yfirlæknaráðí
Landsspítalans og rannsókr,
arstofunnar Jón Þorsteins
son læknir, tilnefndur af
Læknafélagi Reykjavfkur, og
Árni Björnsson læknir, til-
nefndur ag Læknafélagi ís-
lands. Er ætlunin að nefnd-
in hafi lokið störfum og skil-
að tillögum sínum áður en
uppsagnir þeirra lækna er
fyrstir sögðu upp störfum
koma til framkvæmda en það
er um miðjan febrúar.
k
Ölvaðir piltar
stálu bifreið og
veltu henni út af
í fyrrinótt um klukkan 2 var
lögreglunni í Reykjavík tilkynnt
að bifreiðin G-2827 lægi á hvolfi
við Suðurlandsveg skammt frá
Geithálsi. Hafði bifreiðin oltið
út af veginum og skemmzt mjög
mikið.
Síðar um nóttina handtók *lög-
reglan tvo unga pilta úr Hafn-
arfirði og játuðu þeir við yfir-
heyrsdur að hafa stolfð bifreið-
inni og ekið henni útaf. Hafði
annar pilturinn meiðzt er bif-
reiðin valt og var hann fluttur
á slysavarðstofuna þar sem gert
var að sárum hans.
Piltamir voru báðir ölvaðir og
mnar þeirira auk þess ökurétt-
ndalaus en þeir viðurkenndu
ið hafa ekið bifreiðinni til skipt-
!s um nóttina unz hún fór útaf.
Var sá þeirra þá undir stýri
sem ekki hafði ökuréttindi.