Þjóðviljinn - 08.01.1966, Síða 10
I
\
Eftir 14 klukkusfunda borgarstjórnarfund:
Niðurstöðutölur fjárhugs-
áætlunur 842.006.000kr.
Afgreiðslu fjárhagsáætiun-
ar Reykjavíkurborgar fyxir
árið 1966 var ekki lokið fyrr
en Mukkan sjö í gærmorgun.
föstudag. Síðari umræða um
áætlunarfrumvarpið hófst í
upphafi borgarstjómarfundar
klulkkan rúmlega fimm síð-
degis á fimmtudag. Fyrstur
talaði Geir Hallgrímsscffi
borgarstjóri og síðan Guð-
mundur Vigfússon borgar-
fulltrúi Albýðubandalagsins,
en begar Guðmundur hafði
lokið máli sínu var Mukkan
um átta og matarhlé gefið
til Mukkan 9.30 Eftir hléið
tóku þessir til máls: Kris-t-
ján Benediktsson (F) tvisvar.
Óskar Ha-llgrímsson (A)
tvisvar, Einar Ágústsson (F)
tvisvar, Guðmundur Vigfús-
son tvisvar, Birgir I. Gunn-
arsson (fh), Gísli Halldórsson
(fh). Þórir Kr. Þórðarson
(íh). Adda Bára Sigfúsdóttir
(Alb), og borgarstjóri.
Klukkan var orðin 5.30 og
kominn föstudagsmorgun,
þegar umræðunum lauk og
hófst þá atkvæðagreiðsla, sem
stóð yfir í hálfa aðra kiukku-
stund.
Fyrs,t komu til atkvæða
tillögurnar um hækkun gjald-
Skránna. Frávísunartillaga
Alþýðubandailagsins vegna
25% hækkunar á vatnsskatt-
inum var felld með níu atkv.
íhaldsins gegn sex atkvæðum
hi'nna flokkanna og hækkun-
in síðan s-amþykkt með sama
atkvæðamagni.
Tillagan um 13,35% hækk-
un rafmagnsverðsins var
samþykkt með 10 samhljóða
atkvæðtim íhaids og Úskars
Hallgrímssonar krata, en
borgarfulitrúar Alþýðubanda-
lagsins og Framsóknar
greiddu ekki atkvæði.
Alþýðubandalagsfulltrúarnir
gerðu þá grein fyrir hjásetu
sinni að þeir vildu ekki taka
ábyrgð á afleiðingum áiagn-
ingar rafmagnsskattsins held-
ur eftirláta það fulltrúum
þeirra flokka sem hana hafa
ákveðið með meirihlutavaldi
á Alþinei.
Tillöff" Pramsóknarmanna
um að mótmæla rafmagns-
skattinum var vísað frá með
tíu atkvæðum íhalds og krata
gegn fimm atkvæðum Al-
þýðubandalags' og Framsókn-
ar.
Tillaga Guðmundar Vigfús-
son,ar um að nota stiga að-
stöðugjaidanna að mestu
samkvæmt heimild laga og
reglugerða var felld með níu
atkvæðum íhalds gegn þrem
atkvæðum Alþýðubandalags-
ins; fulltrúar Framsóknar og
krata sátu hjá.
Tillaga Framsóknar um ör-
litla hækikun aðstöðugiafda-
stigans frá því sem gert var
ráð fyrir í tiMögum íhaldsins
var felld með níu atkvæðum
gegn fimm (kratinn sat hjá).
Tillaga fha-ldsins um aðstöðu-
gjöldin var að svo búnu sam-
þykkt ssamhljóða.
Þá var gengið til atkvæða
um breytingar á gjaldskrá
gatnagerðargjalda. Breyting-
artillaga minnihlutaflokkanna
um að gjaldskráin fyrir ein"
býlishús og raðhús hækkaði
aðeins um 15% var felld með
níu atkvæðum íhaldsins gegn
sex. VaratiIIaga Öskars Hall-
grimssonar um að heimila
borgarráði að gefa allt að
30% afslátt á gjaldskrá varð-
andi raðhús sem reist kynnu
að verða á tveim hæðum og
væru allt að 300 m3 var
samþykkt samhljóða.
Allar breytingartillögur Al-
þýðubandalagsins, Framsókn-
ar og Al'þýðuflokks við fjár-
hagsáætlunarfrumvarpið voru
felldar, en hinsvegar sam-
þykktar fáeinar minniháttar
breytingartillögur sem borg-
arráð stóð að og Sjálfstæðis-
flókkurínn.
Niðurstöðutölur fjárhagsá-
ætlunarinnar, eins og hún
var afgreidd, eru 842.006.000
kr. (í frumvarpinu 839.083.000
kr).
Rekstrargjöldin nema 663.
756.000 kr. (í frumvarpinu
660.833.000),
Til eignabreytinga gengur
óbreytt upphæð frá frum-
varninu eða 178.250.000 kr.
Fjárhagsáætlunin var sam-
þykkt með tíu samhljóða at-
kvæðum íhalds og Óskars
krata, en fulltrúar Albýðu-
bandalags og Framsóknar
sátu hjá við atkvæðagreiðsl-
una. Fjárhagsáætlanir ein-
stakra borgarfyrirtækja voru
samþykktar með samhljóða
at.kvæðum.
!
I
\
\
\
\
Handknattleikslið FH í nýju íþróttahöllinni í Laugardalnum.
Evrópubikarkeppnin í handknattleik:
FH hefur flöra marka forskot eftir
fyrri leikinn, vann Fredensborg 19:15
Laugardagur 8. janúar 1966 — 31. árgangur — 5. tölublað.
íþróttamaður ársins 1965
Valbjörn Þorláksson
í fámennu eftirníiðdagssam-
sæti að Hótel Borg í gærdag
voru tilkynnt úrslit í árlegu
kjöri á beztu íþróttamönnum
ársins, :— það er fyrir árið 1965
að þessu sinni — voru 27 í-
þróttamenn tilnefndir af með-
Iimum Félags íþróttafréttarítara
og hefur ekkj svona mikill
fjöldi áður komið til greina við
þessa útnefningu.
Að þessu sinni hlaut bikarinn
sem íþróttamaður ársins 1965
Valbjörn Þorláksson hlaut hann
64 stig af 66 stigum mögulcg-
um. — var þar haft j huga af-
rek Valbjörns í Helsinki í sum-
ar, þegar ha'nn varð Norður-
landameistari í tugþraut á ár-
inu.
Númer tvö varð Jón Þ. Ól-
afsson, ÍR 45 stig. númer þrjú
varð Gunnlaugur Hjálmarsson,
Fram. 25 stig. númer fjögur
varð Hrafnhildur Guðmúnds-
dóttir ÍR, 23 sti,g númer fimm
Þorsteinn Hallgrímsson. ÍR. 18
stig. númer sex Eyleifur Haf-
steinsson, ÍA 17 stig, 7.— 9.
Guðmundur Gíslason ÍR. Ragm
ar Jónsson FH og Magnús Guð-
mundsson ÍBA, 15 stig hver og
númer io Ellert Schram KR,
12 stig.
Allir þessir íþróttamenn voru
sæmdir bókargjöfum og voru
flestir þeirra viðstaddi útnefn-
inguna. Sigurður Sigurðsson.
útvarpinu. hafðj orð fyrir i-
þróttafréttariturum og einnig
voru viðstaddir þarna Benedikt
G. Waage, heiðursforseti ÍSÍ, og
Hermann Guðmundsson fram-
kvæmdastjórj ÍSÍ. — tóku þeir
báðir til máls og þökkuðu í-
þróttamönnunum fyrir afrek
|
Valbjörn Þorláksson
þeirra á árin,u Þá' er rétt að
telja aðra. sem hlutu stig og
eru þeir þessir:
Krisitinn Baneid'iktsson, ÍBÍ,
Karl Jóhannsson KR. Hrafn-
hildur Kristj ánsdóttir. Ármanni,
Ármann J. Lárusson, Breiða-
bliki. Árdís Þórðardóttir ÍBS,-
Hermann Gunnarsson, Val. Er-
lendur Valdimarsson ÍR Dav-
ið Valgarðsson. ÍBK, Sisríður
Sigurðardóttir, Val. Hörður
Kristinsson. Ármanni, Rikharð-
ur Jónsson. ÍA. Þorsteinn
Bjömsson. Fram, Matthías Hall-
grímsson ÍA Björk Ingimund-
ardóttir. UMSB, Guðni Sigfús-
son. ÍR Jón Árnason TBR cg
Kolbeirin Pálsson. KR.
íslenzka almanakið
Rafreiknir notaður við út-
reikninga í fyrsta sinn
■ Eftir nokkra byrjunarörðugleika tókst FH að vinna
fyrri leikinn gegn Fredensborg með fjögra marka mun.
Síðari leikur liðanna er á sunnudag og má FH þá tapa
með þriggja marka. mun og kemst þó í aðra umferð
keppninnar.
Það var greinilegt í byrjun'
leiksins að í báðum liðum var
mikil spenna og liðin óviss um
styrkleik hvors annars. Virtust
þau leita fyrir sér, og til að
þyrja með var sem Fredensborg
tækist að finna veilur í vörn
FH-inganna Og voru þeir eftir
5 mínútur komnir í 3:1. Þeir
byrjuðu líka að skora en örn
jafnar, en Gunnerud og Engum
bæta tveim mörkum Við. Guð-
laugur skorar annað mark FH
og nú fá þeir tækifæri til að
jafna, er þeir fá dæmt vítakast,1
en hinn snjalli markmaður
þeirra, Klepperás, ver hörku-
skot frá Erni. Enn skorar Gunn-
erud, en Jón Gestur eykur töl-
una fyrir FH. Hansen skorar
fyrir Fredensborg og á 12. mín.
tkorar Pá'll úr viti. Á 17. mín-
útu tekst Geir að jafna fyrir
FH 5:5 en Fredensborg tekur
rétt strax forustuma með skoti
frá Reinertsen.
Nú er eins og FH hafi fundið
„tóninn“ meira og skorar nú 3
mörk í röð, Ragnar 2 og Birgir
1, og kcmast 2 mörk yfir, en
aftur ná Norðmennirnir því að
iafna á 8:8 og voru þá 25 mín.
liðnar af leiknum. Jón Gestur og
Páll skora tvö í röð 10:8, en
rét.t fyrir leikhlé skorar Reinert-
sen fyrir Fredensborg og hálf-
Viknurp lauk með 10:9 fyrir FH.
Hjalti byrjaði ekki sérlega vel
-i« virtist ekki verulega átta sig
i hlutunum og í heild náði liðið
til að byrja með ekki verulega
saman. Vera má að mótstaða
Fredensborg hafi verið mun
meiri en gert v*r ráð fyrir og
Fredensborg var mun betri en
flestir gerðu ráð fyrir án þess
þó að búast við þeim svipuðum
og 1964 í Há'logalandi. Við það
bættist að þeir léku mun fast-
ar en maður gerði ráð fyrir og
sluppu þeir heldur vel að fá
ekki harðari dóm hjá hinum
danska dómara.
Þegar Hafnfirðingarnir höfðu
áttað sig svolítið á leik gest-
anna var sem þeir næðu betri
tökum á leiknum án þess þp
að ná verulegum undirtökum.
Strax í byrjun síðari hálfleiks
jöfnuðu Norðmennirnir 10:10, Og
var það Hansen sem það gerði.
Er líða tók á fyrri hálfleík
sýndi það sig að þetta voru að-
eins byrjunarörðugleikar hjá
Hjalta. því hann tók að verja
mjög vel hvað eftir annað er á
leikinn leið.
Þegar þarna var komið fengu
FH-ingar á sig vítakast, en
fyrir liðið var þetta þýðingar-
mikil vörn. Og rétt á eítir skora
þeir bræðurnir Geir og örn sitt
markið hvo.r 12:10. Litiu síðar
er Geir vikið af leikvelli og var
það vægast sagt harður dómur,
en það virtist sem það herti FH-
inga upp. því þrátt fyrir að þeir
voru einum færri skorar Örn
mjög glæsilegt mark, 13:10.
Enn bæta Norðmenn ein,u við
en Birgir svarar með 2 mörkum
í röð og Ragnar bætir því þriðja
við og stóðu leikar eftir 17
mínútur 16:11.
Á næstu mínútu skorar Eng-
um mjög laglega úr homi en
Ragnar svarar og aftur skorar
Engum úr homi og var sem
Hjalti áttaði sig ekkj á þessu,
en eftir það lokaði hann mark-
inu fyrir þessum skæða leik-
manni. Ragnar skorar enn 17:12.
og á næstu mínútu skora gest-
irnir tvö mörk í röð 17:14. Á
21. mínútu bjargar Hjalti og
nær langsendingu framan við
nefið á þrem sóknarmönnum en
enginn FH-j'ngur annar til varn-
ar, og sendir hann fram til
Arnar sem skorar skemmtilega
Á 3. mín skorar Hansen og á
Framhald á 7. síðu.
Komið cr út almanak um ár-
ið 1966, geflð út af Menningar-
sjóði og Þjóðvinafélaginu og
prentað í Ríkisprentsmiðjunni
Gutenberg. Almanakið á sér
orðið langa sögu, því að það
hefur komið út samfellt síðan
1837, eða í 130 ár, og er það því
meðal clztu rita á íslcnzku,
þeirra scm enm eru gefin út.
Lengi framan af var almanakið
samið og prentað í Kaupmanna-
höfn, og var það fyrst eftir
1922, sem fslendingar tóku end-
anlega að sér alla gerð alman-
aksins, bæði útreikning þess og
útgáfu.
Að' útliti til svipar almanak-
inu enn þann dag í dag til út-
gáfunnar eins og hún var fyrir
öld; — þannig hefur brotið
haldizt óbreytt frá 1861 og for-
síða og efnisniðurröðunin verið
með ábekku móti. ‘
Með almanakinu 1966 verður
sú mikla breyting, að nær allir
stjarnfræðilegir útreikningar eru
unnir með rafeindareikni Há-
skóla Islands og reiknað efni
iafnframt miög aukið. Er þar
brotið blað í sögu almanaksins,
bví að með fvrri aðferðum voru
útreikninaarnir svo umfangs-
miklir. að ekki þótti koma ti'l
mála neín teliandi aukning á'
reiknuðn eín> fram vfir það. er
iVrir var f almanakinu.
^egar ror«indareiknir háskól-
nns kom til landsins síðla árs
1964 va- strax hafizt handa fyr-
■- oimnakið. Getur nú að lfta
"••rrtn árangur þess starfs. bví
' rlrnanakinu fvrir 1966 hafa
sllar töflur um gang sólar.
tungls og reikistjarna á fslandi
verið reiknaðar með rafeinda-
reikninum. Þfer, sem áður voru
aðeins reiknaðar tölur um sólar-
uppkomu og sólarlag í Reykja-
vík, koma nú miklu ítarlegri
sólargangstöflur sem sýna birt-
ingu sólaruppkomu. hádegi sól-
arlag og myrkur á sex stöðum
á landinu (Reykjavík, Isafirði,
Framhald á 7. síðu.
Fer páfi lil
Póllands?
VARSJÁ 7/1 — Yfirmaður
kaþólsku kirkjunnar í Póllandi,
Stefan Wyszinski kardínáli lét
enn að því liggja í gærkvöld,
að Páll páfi VI. muni ef til vill
koma til Póllands í sambandi
við há-tíðahöldih vegna 1000 ára
1 afmælis Guðskristni í landinu.
Kardínálinn skýrðj frá því í
gær að Páll páfi hefð: aftur
, tekið til við að læra pólsku,
en hann var sendimaður Vatik-
| ansins í Póllandi fyrir 30 ár-
um. og sagði kardínálinn að
þetta nám gæti komið honum í
góðar þarfir innan skamms.
Orðrómur hefur lengi verið
uppí um það að páfj muni
heimsækja Pólland í vor og
^ muni það vera í fyrsta skipti
1 sem æðst; yfirmaður kaþólsku
kirkjunnar heimsækir land, þar
sem kommúnistar ráða ríkjum.
í Varsjá er sagt að heimsókn-
! in munj hafa ýmsa erfiðleika
■ í för með sér þar sem mikill
'. ágreiningur er nú uppi milli
ríkisvaldsins og kirkjunnar í
Pólland;