Þjóðviljinn - 11.01.1966, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 11.01.1966, Blaðsíða 8
g SlÐA — ÞJÖÐVILJINN — Þriðjudagur H. janúar 1966. Ágústína ÞorvaJdsdóttir dáin 5. janúar 19^66 Nú er hún Gústa okkar dá- in sögðum við systkinin. er við hermdum lát frú Ágústínu Þorvaldsdóttur Það verður enginn héraðs- brestur þegar hógvær kona kveður þennan heim södd líf- daga En fyrir okkur sem átt- um þvi láni að fagna. að kynn- ast hennj ung að árum. þagn- aði ómfagur strengur sem lengi hafði hljómag 'og sem við * munum minnast Frú Ágústina Þorvaldsdótt- ir var faedd afl Litla-bæ á Mýrum 11 ágúst 1887. dótt- ir hjónanna Jórunnar Erlends- dóttur og Þorvaldar Þorkels- sonar sem þar bjuggu. Ólst hún bar upp með foreldrum sínum yngst margra systkina. Þegar t>orvaldur faðir Ág- ústínu dó 1898 fluttist hún með móður sinni til Reykja- víkur og bjó þar ávallt síð- an að undanskildum 4 árum. Ung að árum. 1905 hóf hún búskap með Pétri G Guð- mundssyni og giftist honum. Eignuðust þau 6 mannvænleg börn sem öll komust til full- orðinsára. Pétur G. Guðmunds- spn var einn af frumkvöðlum verkalýðshreyfingarinnar á ís- landi Má nærri geta að kona hans. Ágústína kynntist þá vel málefnu stéttabaráttunnar. sem hún hélt fulla tryggð við alla ævi. Ágústína og Pétur slitu sam- vistum 1926. Eftir það bjó hún börnum sínum yndislegt heim- ili og 'studdi þau til þroska. Stundaði hún alla algenga verkakvennavinnu til að síá sér og sínum farborða og yfir 30 ár vann hún hjá verzlun- inni Edinborg við ræstingu og fleira 1932 tók hún þátt. í að stofna Þvo.ttakvennafélagið Freyju Og var meðlimur í því félagi ávallt síðan Gústa, eins og við kölluðum hana var kona mjög fríð sýn- um. glaðsinna og virtust erf-4> iðleikar lífsins ekki bíta á hana. Úrtölur voru ekki til í hennar munni og uppgjöf þekkti hún ekki. Hún var allt- af ung í anda og uppörfandi við æskulýðinn Okkur fannst Gústa alltaf vera sólarmegin í tilverunni. þó að ýmsar sorgir yrðu á vegi hennar. Árið 1960 varð hún fyrir þeirrí sáru sorg að missa son sinn. Baldur, fyrir aldur fram. og dótfcurson sinn. Guðmund. mikinn efnismann 1965. Bömum sínum var hún frá- bær móðir og hún átti barna- láni að fagna Vinir bamanna voru hennar vinir, laðaðí hún alla að sér með hispursleysi sínu og hjartagæzku. - Ávallt hélt Gústa heimili. ■nema síðustu mánuðina. er . hún dvaldist hjá dóttur sinni 'Petru og manni hennar að iSkarði í Lundareykjadal. þá Iþrotin að heilsu Og kröftum. Ag leiðarlökum er minning- Æiuar um hina góðu og göfugu konu streyma til mín vil é? f nafni fjölskyldu minnar þ*akka tryggð sem aldrei brást og vináttu sem engan skuigga hefur á- borið. ,í nafni föður míns og syst- kSna sendi ég hugheilar kveðj- ur börnum hennar, tengda- bönnum og niðjum. um leið og við^ þakklát drúpum höfði í mineningu um kæran vin. Ása Ottesen. Trésmiiir ■ Skákmeistarakeppni félagsins hefst að Laufásvegi 8 n.k. fimmtudag 13. þ.m. kl. 20,30. — Mætið stundvíslega. ..... Stjórn S.B.T.R. SKRIFSTOFUMADUR óskast nú þegar. Skipaútgerð ríkisins. Lausar stöður Loftleiðir óska að ráða til sín á næstunni: Skrifstofumann til Loftleiða Keflavík h.f. 4 afgreiðslumenn til starfa við farþegaaf- greiðslú á Keflavíkurflugvelli. Afgreiðslumann til starfa við farmiðasölu í Reykjavík. Tilskilið er að viðkomandi hafi góða almenna menntun, skrifstofumaðurinn hafi auk þess góða bókhaldsþekkingu og allir nokkra leikni í ensku og dönsku, Umsóknareyðublöð fást í skrifstofum félagsins Lækjargötu 2 og Reykjavíkurflugvelli svo og á skrifstofu félagsins á Keflavíkurflugvelli, og skulu umsóknir hafa borizt ráðningardeild félagsins fyr- ir 20. þ.m Hélt fyrirlestri í dönskum skólum Hinn 25 júní sl. tilkynnti stjórn Sjfóðs Selmu og Kaj Lang- vads til eflingar menningar- tengslum fslands og Danmerk- ur. að bún hefði óskað eftir Því við þjóðminjavörð dr. Kristján Eldjárn, að bann tækisfc á hend- ur fyrirlestraferð til danskra lýðháskóla á vegum sjóðsins og dveldist auk þess í Danmörku nokkurn tima til að heimsækja dönsk söfn. Þjóðminjavörður dvaldist í Danmöku 18. nóv. fil 5. des. sl. á vegum sjóðsins. Flutti hann fyrirlestra um ís- lenzka sögu og menningu í fimm lýðháskólum fcveimur á Sjá- landi. einum á Fjón; og tveim- ur á Jótlandi þ.á.m í Askov. Vö'ktu fyrirlestrarnir mikla at- hygli og var fyrirlesaranum hvarvetna vel tekið. Þjóðminja- vörður heimsótti einnig ýms dönsk söfn í Árósum, Kaup- mannahöfn og víðar og átti viðræður við danska safnmenn. Hassfu winuin®s«r í Hippdrætti OflS Á laugardaginn var dregið í 9. fl. Happdrættis D.A.S. um 200 vinninga og féllu vinningar þannig: , Ibúð eftir eigin vali kr. 500.000.00 kom á nr. 7085. Umboð Aðalumboð. Bifreið eftir eigin vali kr. 200.000.00 kom á nr. 18704. Umboð Aðalumboð. Bif- reið eftir eigin vali kr. 175.000.00 kom á nr. 16925. Umboð Siglu- fjörður. Bifroið eftir eigin vaíi 'fcr. 130.000.00 kom á nr. 15124. Urnboð Vopnafjörður. Bifreið eftir eigin vali kr. 130.000.00 kom á nr. 4234D Umboð Keflavíkur- flugvöllur. Húsbúnaður eftir eigin • vali fyrir kr. 25.000.00 kom á nr. 42818<« Umboð Aðalumboð. Hús- búnaður eftir eigin vali fyrir kr. 20.000.00 kom á nr. 30'646. Umboð Sveinseyri og 49799. Um- boð Aðalumboð. Húsbúnaður eftir eigin vali fyrir kr. 15.000.00 kom á nr. 38533. Aðalumboð, 40607, Vest- mannaeyjar, 58386 Aðalumboð. Eftirtalin númer hlutu hús- búnað fyrir kr. 10.000.00 hvert: 4137 11324 17653 34254 38542 42217 45605 49589 49602 52527 (Birt án ábyrgðar). Shastri forsætisráðherra látinn Framhald af 1. síðu. forsætisráðherra að undantek- inn; smáheimsókn til Nepal. Hann var fæddur í millistétt- arfjölskyldu í héraði nálægt Benares en þar lau'k hann há- skólanámi. Strax á sautjánda árj gerðist hann fylgismaður kenninga Gandhi um friðsamlega andstöðu við Breta. og fram til 1941 sat hann samtals níu ára í fang- elsum þeirra. 1951 lét hann fyrst að sér kveða í landsmálapólitík og átti mikinn þátt í kosningasigri Kongressflokksins 1952. en hann var þá. aðalritari hans. FLUGIÐ Framhald af 12. síðu. fjölgaði einnig um 14% á árinu, úr samtals 50.116 árið 1964 í 57.007 í fyrra. Þar af fjölgaði flugtökum og lendingum far- þegaflugivóla um 46% eða úr 12.683 árið 1964 í 18.491 í fyrra, en herflug jóíkst um 3 af hundr- aði úr 37.433 í 38.516 flugtök og lendingar. Ekki liggja enn fyrir tölur um 'jölda farþega sem farið hafa um flugvellina á liðnu ári. Eftir það gegndi hann mörg- ; um ráðherraembættum en sagði af sér ráðherraembættj 1963 til að geta helgað sig flokksmálum. Meðan Nehru var veikur var Shastri raunverulega varafor- sætisáðherra og flokkurinn ,gerði hann að forsætisráðherra aðeins sex dögum eftir lát Nehrus í mai 1964, en þessa daga hafði nú- verandi forsætisráðherra Ind- lands. Nanda gegnt embættinu í fyrra sinn Fyrsta árið í embættj forsæt- isráðherra var honum erfitt, hann glímdi bæðj vifi utanríkismál í sambandi vjfi Pakistan oc Kina og erfiðustu innanríkismál' sem voru síhaékkandi matvælakostn- aður. 25 árekstrar á 10 tímum Mikið var að gera hjá Reykja- víkurlögreglunni á laugardaginn, en þá urðu hvorki meira né minna en 25 áreksitrar á tíma- bilinu frá !kl. 8—6. Nokkur hálka var á götunum, en mest mun hér þó um að kenna óað- gaezlu, telur lögreglan. Taka ökumenn efcki nægilegt tiliit til þess þegar háinar, en aka eins og þeir eru vanir. Þyr/ur fíytja farþega mifíi Manhattan og Kennedyváfíar Þyrlan, sem bcr 25 farþega, lyftir sér af þaki Pan Am bygging- arinnar og leggur upp i ferðina til Kenn,cdy-flugvallar sem tekur 7 mínútur. • Hinn 22. desember sl. hóf- ust áætlunarferðir með þyrl- um milli Pan Am byggingar- innar í miðrj New York borg og J.F. Kennedy flugvallarins. Ferðin tekur aðeins 7 mínút- ur en eins og þeír vita, sem reynt hafa getur þessi ferð í bíl tekið 1—2 tíma og stund- um lengur ef umferðin er mikil. Þag er flugfélagið New York Airways sem annasf þetta flug á vegum Pan American. Farnar eru 17 ferðir á dag ■«— í sam- bandi við ferðir Pan American frá J. F Kennedy flugvelli. Þessi flugferð kostar kr. 300 aðra leiðina — en kr. 430.00 báðar leiðir, en það er minna en kostar að aka í leigubíl þessa sömu leið Farþegar sem fara frá New York áka að sérstakri af- greiðslu í Pan Am bygging- unni. Hraðfara lýítur flytja farþegana upp á 58. hæð bygg- ingarinnar. en þaðan eru nokk- ur skref út á þakið þar sem þyrlah stendur tilbúin til flugs. Þegar þyrlan lendir við byggingu Pan Am á flugvell- inum ganga farþegar beint um borð í þotuna sem flytUr þá frá New York Þegar farþegar Pan Am koma til New York og hafa lokið tollskoðun er þeim ek- ið beint að þyrlunni sem flyt- ur þá á 7 mínútum til mið- borgarinnar og lendir þar með þá á Þakj Pan Am byggingar- innar á miðri Manhattan. Þessi þyrlu-flugvöllur — þakið á Pan Am byggingunni er rúmlega 23 þúsund ferfet að stærð os { 800 feta hæð frá götu. Þess má að lokum geta að ísl. farþegar Pan Am geta að sjálfsögðu keypt sína þyrlu. farmiða um leið og þeir kaupa farseðla sína hjá Aðalumboði Pan American, Hafnarstræti 19 eða bjá ferðaskrifstofun- um. Ferðir Pan Am um ísland eru á hverjum fimmtudegi. Þoturnar koma hingað að morgnj og fara til Glasgow og Kaupmannahafnar. Flugtím- ínn t’l Hafnar er aðeins 3’A tímj os er komið þangað um hádegi að dönskum tíma. (Frá Pan Am-umboðinu) • Tímaritið Heilsuvernd • 6. hefti 1965 af Heilsuvernd. tímariti Náttúrulækningafélags fslands er nýkomið út. Það flytur m.a. þetta efni; Máttur sólar eftir Jónas lækni Kristj- ánsson Jólahugleiðing eftir séra Jón Thorarensen, greinar um Veganhreyfinguna eftir Björn L. Jónsson lækni, hirð- ingu húðarinnar eftir dr. med. Werner Tiegel. æðakölkun og sykur eftir dr med. M. O. Bruker í ritinu eru uppskriftir eftir Bryndísi Steinþórsdótfcur hús- mæðrakennara. fréttir frá landsþingi NLFÍfc smágreinar um matarliti. DDT í dýrum suðurheimskauts, hjartasjúk- dóma. dýrafitu og erfiðisvinnu sykur- og feitisneyzlu. um frumorsakir æðakölkunar. skordýraeitur og fiskalíf o.fl. Ritstjóri er Bjöm L. Jóns- ^on læknir • Trúlofun • Á aðfangadag jóla opinber- uðu trúlofun sína ungfrú Jó- hanna Rögnvaldsdóttir frá Siglufirðj og Páll Magnússon vélstjóri. Lokastíg 18 Reykja- vík. Hjónabönd • Laugardaginn 18. desember sl. voru gefin sarnan í h.jóna- band í Laugarneskirkju af séra Árelíusi Níelssyni ungfrú Kristín Hólm Berg Sigurðar- dóttir og Anthony Martino. Heimili þeirra er að Nýbýla- vegi 27 A, Kópavogi. (Ljósm. Þóris). • Annan jóladag voru gefin saman í hjónaband í Kópa- vogskirkju af séra Ólafi Skúla- syni ungfrú Guðbjörg Guð- mundsdóttir og Bruce Colton starfsmaður á Kbflavíkurflug- velli. Heimili þeirra er að Faxabraut 3,3, Keflavík, ,,, v (Ljósm. Þóris). • Á jóladag voru gefin saman í Árbæjarkirkju af séra Ólafi Skúlasyni ungfrú Jónína Helgad. og Víkingur Sveinsson, Sogavegi 130. (Nýja myndastofan) • Á jóladag voru gefin saman í hjónaband. af séra Ragn- ari Fjalar Lárussyni, ungfrú Áslaug Þorleifsdóttir frá Siglu- firði og Benedikt Sigurðsson vélvirki Heimili þeirra er að Reynimel 56, Reykjavík. • Happdrætti Lögreglukórsins ' • Dregið var í happdrætti lög- reglukórs Reykjavíkur 23. des. s.l. Upp komu eftirtalin núm- er: 1. Volkswagen bifreið nr. 654 2. Sjónvarpsviðtæki — 4119 3. Saumavél 6666 4. Flugferð til USA — 9044 5 Tveir farm. R.sk. — 2958 6 Farm. Gullfoss — 3601 7 Flugferð Kaupmh. 8426 8 Herraföt — — 5768 9 Herraföt — 7619 10 Bílfar — 7582 Vinninganna skal vitjað hjá aðalumboðsmanni happdrætt- isins, Guðbirni : Hanssyni, Skeggjagötu 14, Reykjavík,

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.