Þjóðviljinn - 29.01.1966, Blaðsíða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVXLJINN — Laugardagur 29. janúar 1966
Yfirlýsing frá Loftleiðum:
Loftleiðir telja flugfargjöldin of há
á leiðinni milli Islands og Evrópu
Félagið felur eðlilegt að 20—25% mismunursé á fargjöldum með skrúfuvélum og þotum.
FLUGIÐ
O Eins og gctiff er í frétt á
öðrum stað I blaðinu, hafa
Loftleiðir lagt til við íslenzk
flugmálayfirvöid, að þau hlutist
til að gerðu'f verði mis-
munur á fargjöldum með
skrúfuvéium og þotum. Hefur
félagið bent á eftírfarandi atriði
þcssari tillögu til rökstuðnings:
Millilandaflug frá íslandi til
Evrópu hófst af hálfu Loít-
leiða árið 1947 og af hálfu
Flugfélags Islands árið 1948
með íslenzkum fjögurra hreyfla
flugvélum. Á þeim tíma, sem
liðinn er, hafa ýmsar gerðir
flugvéla < verið notaðar til
millilandaflugsins. Fyrst voru
notaðar flugvélar af gerðinni
DC-4. Síðan DC-6B og Vi,s-
count vélar og nú síðast RR-
400 flugvélar. Allar þessar vél-
ar flokkast í flugmáli undir
heitið skrúfuvélar.
Fargjöld
Milli Islands og hinna ýmsu
ákvörðunarstaða i Evrópu,
sem íslenzku flugfélögin fljúga
til. gilda svo kölluð IATA far-
gjöld. þ.e. flugfargjöld, sem
ákveðin eru af hinum alþjóð-
legu samtökum flugfélaganna,
IATA. Eins og kunnugt er. er
Loftleiðir h.f. ekki meðlimur
þessara samtaka.
/ Hjá Evrópufélögunum er
ekki gerður munur á fargjöld-
um, hvort farþegar ferðast með
' skrúfuvélum eða þotum. Þessu
• er ððruvtsi farið f Bandarfkj-
um Norður-Ameríku. þvi þar
er fargjaldamismunur, á ann-
ars vegar skrúfuvélum og hins
vegar þotum í innanlandsflugi.
Fargjöld innan Evrópu, og
þar með fargjöld milli Islands
og annarra landa Evrópu,
hafa eins og að ofan er tekið
fram, verið ákvörðuð í sam-
ræmi við samþykktir IATA
um fargjöld innan Evrópu á
hverjum tíma. Islenzku flug-
félögin hafa jafnan fylgt þess-
um reglum og IATA fargjöld
gilda því um flugleiðina milli
Islands og Evrópulanda og það-
an hingað til lands.
Fargjöld í Bandaríkjum
N-Ameríku — Samanburður
Eins og að fratnan er tekið
fram, er í innanlandsflugi í
Bandaríkjunum gerður mis-
munur á fargjöldum, hvort
ferðast er með skrúfuvélum
eða þotum. Yfirleitt er þessi
fargjaldamunur allt að 18.4%
þ.e. í innanlandsflugi í Banda-
ríkjunum. Ef hins vegar er
gerður t samanburður á far-
gjöldum milli þota og skrúfu-
véla á Norður-Atlanzhafsleið-
inni, kemur í Ijós. að far-
gjaldamismunur milli skrúfu-
véla og þota hefur verið allt
að 30%.
Fargjöld Loftlciða á flug-
Ieiðinni N.Y. — Luxemborg
Eins og kunnugt er, eru í
gildi sérstök fargjöld á flug-
leiðinni New York — Luxem-
borg. Þessi sérstöku fargjöld
Loftleiða hafa verið samþykkt
áf flugmálayfirvöldum Banda-
ríkjanna og Luxemborgar. Eru
fargjöld þessi lægri en IATA
fargjöld á þessari flugleið.
Með bréfi dags, 10. ágúst
1961, sóttu Loftleiðir um heim-
ild til viðkomandi íslenzkra
flugyfirvalda til að skrá sér-
stakt fargjáld á flugleiðinni
Reykjavík — Luxemborg. Far-
gjaldið aðra leiðina skyldi
verða kr. 2.882.00, en báðar
leiðir kr. 5.188.00.
Þessari málaleitan félagsins
var synjað af hálfu viðkom-
andi íslenzkra yfirvalda.
Umsókn Loftleiða um sér-
stakt fargjald á flugleiðinni R-
vík-lAixemborg var byggð á
því að skrá fargjaldið miðað
við hlutfallslegt fargjald á
• allri flugleiðinni New York —
Luxemborg. öll sú flugleið er
6497 kílómetrar, en hluti leið-
arinnar New York — Island
er 64.1% af allri flugleiðinni,
og hlutinn Island — Luxem-
borg 35.9% af allri flugleið-
inni. í dag er fjargjaldið á
allri flugleiðinni New York —
Luxemborg kr. 8.827.00 (sum-
arfargjöld) og kr. 7.225.00
(vetrarfargjöld).
Fargjöld milli Islands og
Evrópu — skrúfuvéiafargjöld
og þotufargjöld
Eins og tekið er fram hér
að framan, gilda IATA far-
gjöld milli Islands og Evrópu.
Einnig er þess getið. að innan
Evrópu er enginn fiargjalda-
miismunur á skrúfuvélum og
þotum.
Telja verður, að nú sé tíma-
bært að endurskoða þessa skip-
an mála, einkum og sér í lagi
með tilliti til þeirrar stað-
reyndar, að milli Islands og
Evrópu er nú hafið reglubund-
ir nokkru. Er hér átt við þofcu-
flug flugfélagsins Pan Ámeri-
can, er hófst til Bretlands á
árinu 1963 og frá 7. október
s.l. til Kaupmannahafnar um
Prestwick.
1 dag greiða farþegar sömu
fargjöld fyrir að ferðast í þot-
um Pan American flugfélags-
ins til Bretlands og Kaup-
mannahafnar og þeir greiða
fyrir að ferðast í skrúfuþotum
Loftleiða og Flugfélags Islands
(DC-6B og Viscount flugvélum)
á sömu flugleiðum.
öll rök virðast mæla með
því, að önnur og lægri far-
gjöld ættu að gilda fyrir
skrúfuvélar en þotur. Má þvi
til áréttingar benda á eftir-
farandi atriði:
a) Hraðamismunur á DC-8
þotum og t.d. RR-400 flugvél-
um er um 39%, og mun meiri
á DC-6B flugvélum.
b) Að öðru jöfnu kýs fólk
að fara með hraðskreiðari flug-
vélum, en hins vegar er eðli-
legt að fyrir lægra gjald ferð-
ist farþegar með hægfarari
flugvélum.
c) Flugreksturskostnaður á
skrúfuvélum félagsins er slík-
ur, að hann réttlætir lægra far-
gjald en með þdtum á sömu
flugleiðum. Er t.d. reksturs-
hagkvæmni RR-400 mun meiri
en þota og það réttlætir aftur
lægri fargjöld.
Hér að ofan er drepið á
nokkur atriði til rökstuðnings
því, að fargjöld ættu að vera
lægri á skrúfuvélum en þotum
á 'sömu flugleiðum. Af því
leiðir, að Loftleiðir telja, að
flugfargjöld milli Evrópu og
Islands séu of há, og það beri
að lækka þau. Til frekari á-
réttingar á því, að fargjöldin
beri að lækka, skal bent á, að
í flugsamningum Islands við
Norðurlönd og fleiri Evrópu-
lönd, eru ákvæði þess efnis, að
við ákvörðun fargjalda skuli
hafa sérstaka hliðsjón af rétt-
lætanlegum sparnaði í rekstri
og aðstæðum, er eiga við á
hverri leið, t.d. hraða og að-
búnaði. Að því er varðar
flutningaþörfina og flugvéla-
rými eru ákvæði í samningum
um að miða skuli við hagsýnan
rekstur langleiðaflugsins.
Þessi samningsákvæði virðast
eiga við, þegar bent er á hag-
kvæmari rekstur skrúfuvéla en
þota og því réttlætanlegt, að
lægri fargjöld ættu að gilda
um skrúfuvélar en þotur frá
íslandi til Evrópulanda.
Hinn menningariegi qrmiwlhr norræns
samstarfs mikiivægari en nokkru sinni
sagði Sigurður Bjarnason við setningu 14. fundar Norðurlandaráðs
Fjórtándi fundur Norður-
landaráðs hófst i Kristjáns-
borgarhöll í Kaupmannahöfn í
gær. Fráfarandi forseti ráðsins,
Sigurður Bjarnason, aiþingis-
maður, sctti fundinn með ræðu.
í upphafi ræðu sinnar minnt-
ist Sigurður eins af fulltrúun-
um í Norðurlandaráði, Kauno
Kleemola, forseta finnska þings-
ins, sem lézt á sl. ári, aðeins
mánuði eftir að Reykjavíkur-
fundi ráðsins lauk, 59 ára að
aldri.
Sigurður Bjarnason vék síð-
an f ræðu sinni að þeim efna-
hagserfiðieikum, sem Norður-
lönd ættu við að stríða, vanda
vaxandi dýrtíðar, og drap á
efnahagssamvinnu landanna og
afskipti Norðurlandaráðsins af
þeim málum. Sfðan gat hann
nokkurra mála sem unnið hefði
verið að og sagði þá m.a.:
Menningarsjóður Norðurlanda
Ályktun síðasta ráðsfundar
um stofnun menningarsjóðs
Norðurlanda er nú að komast
í framkvæmd. Það hefur að
vísu valdið vonbrigðum og
gagnrýni,. að ríkisstjómimar
hafa aðeins treyst sér til að
hefja starfsemi sjóðsins með
600 þús. d. kr. byrjunarfram-
lagi í stað 3ja milj. d.kr. fram-
lagi, eii.s og tillagan gerði ráð
fyrir. En hér er aðeins um
fyrstu framkvæmd að ræða.
Gera verður ráð fyrir, aðstarf-
semi sjóðsins verði efld veru-
lega strax á næsta ári, ef hinn
norræni menningarsjóður á að
ná þeim tilgangi sínum að
verða þróttmikill aflgjafi menn-
ingarlegra samskipta hinna nor-
rænu þjóða. En bað var ein-
dreginn vilji ráðsins þegar til-
lagan um stofnun hans var
samþykkt. Á þessum fundi ráðs-
ins hefur m.a. verið flutt til-
laga af meðlimum mennta-
málanefndar um hækkun á
framlagi til menningarsjóðsins.
A sviði menningarmáia hefur
norræn samvinna e.t.v. verið
árangursríkari en á nokkru
öðru sviði. Hún hefur átt sinn
ríka þátt í að færa þjóðimar
saman, auka kynni þeirra og
treysta vináttu þeirra.
Á þessum miklu breytinga-
og byltingatímum er hinn
menningarlegi grundvöllur nor-
ræns samstarfs mikilvægari en
nokkru sinni fyrr. Aukin tækni
og vélvæðing er gagnleg og
stuðlar að efnahagslegri upp-
byggingu og aukinni velmegun.
En menningin, andlegur þroski
og siðferðisvitund fólksins er
grundvöllur mannlegrar ham-
ingju, frumskilyrði betra og
innihaldsríkara lífs. Stökkbreyt-
ingar tækninnar skapa því að-
eins nýjan og betri heim, að
manninum takist jafnhliða að
tryggja heilbrigði sálarinnar,
andlegt jafnvægj, og alhliða
þroskun hæfileika sinna.
Margt bendir til þess, að hin-
ar fámennari þjóðir hafi betri
skilyrði en aðrar til þess að
gera sér þetta ljóst og haga
sér eftir því.
Norrænar ráðstefnur.
Af öðrum aðgerðum Norður-
landaráðs á sl. ári leyfi ég mér
að nefna rannsóknarráðstefn-
una í Helsingfors í apríl, sem
ráðið gekkst fyrir í samráði við
ríkisstjómir landanna. Tilgang-
ur hennar var að sfcuðla að
auknu norrænu samstarfi á
sviði vísinda og rannsóknastarf-
semi. Var hún sótt af fjölda
vísindamanna og menntamanna,
og er það von forseta ráðsins,
að verulegt gagn muni af henni
verða.
1 júní gekkst ráðið fyrir ráð-
stefnu í Hasselby í Svíþjóð fyr-
ir embættismenn og forvígis-
menn ýmissa alþjóðlegra stofn-
ana, sem hafa höfuðstöðvar í
Evrópu. Var tilgangur hennar
að veita upplýsingar um sam-
vinnu Norðurlanda, form henn-
ar og árangur og skapa jafn-
framt tækifæri til gagnkvæmra
skoðanaskipta um alþjóðleg við-
fangsefni og vandamál. Mun
þetta fyrsta alþjóðlega ráð-
stefnan, sem haldin er • fyrir
alþjóðleg samtök og því ekki
ómerk nýjung. Var það skoðun
þeirra, er hana sóttu, að hún
hafi tekizt vel.
A þessu ári hefur verið á-
kveðið að efna til ráðstefnu á
vegum Norðurlandaráðs um
skattamál og framkvæmd
þeirra. Verður til hennar boðið
ýmsum sérfræðingum ásamt
fjármálaráðherrum Norður-
landa.
SKIPATRYGGINGAR
, ÚTGERÐARMENN. ‘
TRYGGJÚM hvers konar skip og allt,
SEM ÞEIM VIDKEMUR
TRYGGINGAFELAGIÐ HEIMIR"
LINDARGÖTU 9 - REYKJAVÍK -SiMI 22122 — 21260
BEaðadreifing
Unglingar óskast til blaðbnrðar í eftirtalin
hverfi:
Öðinsgötu — Laufásveg — Hverfisgöfu II
— Skipholt — Múlahverfi — Sogamýri.
ÞJÓÐVILJINN
sími 17-500.
Skrifstofumaður
'r- , ía -V *0...
Viljum ráða nú strax skrifstofumann til að
annast verðlagningu og tollafgreiðslu vara.
STARFSMANNAHALD S.Í.S.
Verzlunarmaður
Viljum ráða mann til afgreiðslu í varahluta-
verzlun nú þegar eða sem fyrst.
STARFSMANNAHALD S.Í.S.
T/LBOÐ ÓSKAST
í nokkrar fólksbifreiðir, sendiferðabifreið
með framhjóladrifi og jeppabifreið er verða
sýndar að Grensásvegi 9, mánudaginn 31.
jan. kl. 1—3. — Tilboðin verða opnuð í
skrifstofu vorri kl. 5 sama dag.
Sölunefnd varnarliðseigna.
KÓPA VOCUR
Félag óháðra kjósenda heldur árshátíð í félagsheimili
Kópaivogs í dag laugardaginn 29. janúar kl. 7.30.
Á borðum verður ljúffengur þorramatur.
Karl Guðmundsson leikari fer með nýjar og snjallar
eftirhermur og Rúrik Haraldsson og' Bessi Bjarnason
flytja smellinn gamanþátt. Dans.
Óseldir miðar fást við innganginn.
Stjómin.