Þjóðviljinn - 16.02.1966, Síða 8
3 SÍÐA' — ÞJÓÐVmJINN — Míðvikudagur 16. febröar 1966.
STORM JAMESON:
O,
BLINDA
HJARTA
leggja vinstri öklann upp á
hægra hnéð og halda honum þar
með báðum höndum. Þegar Mic-
hal sá hann sitja þannig á mjó-
um bekknum. varð minna en til
stóð úr fyrirhuguðum klókindum
hjá Michal.
— Af hverju gerðirðu það?
sagði hann.
Hafði Philippe átt von á þess-
ari spurningu? Hann svaraði
samstundis. Ástúðlegt augnaráð-
ið var kunnuglegt: það var
skynvilla sem stafaði af því hve
augasteinar hans voru hreinir og
tærir og umkringdir þykkum,
svörtum augnahárum eins og
tjörn í sefi.
— Mig langaði ekki til að elda
mat það sem eftir var ævinn-
ar.
— Hvers vegna f hamingju
bænum sagðirðu það þá ekki?
— Þú spurðir mig aldrei hvað
ég vildi gera, sagði Philippe
brosandi. Þú gerðir áætlanir og
sagðir mér hvemig allt yrði.
Með trúnaðarhreim í rómnum
hélt hann áfram: Sjáðu til, ég
ætlaði mér að hverfa í New
York eða London. hvort sem þú
nú sendir mig. En þetta tæki-
færi kom —
«— Tækifæri?
— Já, ég var bölvaður auli.
hefði átt að vita að þetta var
íásinna. En ég var óþolinmóður.
Þess sást enginn vottur að
honum fjmdist annað um athafn-
ir sínar, en þær hefðu verið ó-
timabærar og klaufalegar. Mic-
hai reyndi að setja sig inn í
þetta hugarástand, þennan al-
gera skort á iðrun eða eftirsjá.
Honum tókst það ekki. Það var
jafnauðvelt og reyna að skilja
erfent tungumál með þvi að lesa
af vörum útlendings.
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snvrtistofa
Steinu en D6»?ó
Laugavegi 18 III hæð (lyftaj
SlMI 24-6-16
PERMS
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21 SÍMl 33-968
D Ö M U B
Hárgreiðsla við allra hæfi
TJARNARSTOFAN
Tjamargötu 10 Vonarstræt-
ismegin — Sfmi 14-6-62
Há m reiðslustof a
Airstnrtiæiar
Maria Guðmundsdóttir.
Laugavegi 13 Siml 14-6-58
Nuddstofan er á sama stað
— Flaug þér aldrei í hug að
fyrirætlanir þínar væru kannski
dálítið verri en klaufalegar? Að
þær væru — tja, segjum ijót-
ar og hjartalausar?
Philjppe þagði við stund-
arkom og hnykklaði brýnnar.
Það var eins og hann væri
að spyrja sjálfan sig, hvort það
tæki því að ræða þetta.
— Jú, sjáðu til, pabbi — hvað
hefur maður upp úr því í þess-
um heimi að haga sér vel og
siðsamlega eins og þú myndir
segja? Líttu bara í kringum þig.
Hvað verður úr þessum prúðu
og dyggðugu ungu mönnum sem
gerðu eins og foreldrar þeirra
vildu? Þeir aka strætisvögnum
og afgreiða við búðarborð, og
kenna heimskum króum að
þekkja stafina og giftast svo og
hrúga niður bömum sem líka
aka bílum og afgreiða við búð-
arborð og svo framvegis. Ef ég
hefði verið fæddur ríkur, þá
hefði enginn áiasað mér fyrir að
vilja skemmta mér — svo órétt-
látt er þetta. Og ef út í það er
farið — það kom hæðnishreim-
ur í rödd hans — þá spurði mig
enginn hvort ég vildi fæðast,
fremur en þú spurðir hvort ég
vildi verða kokkur. Ekki fremur
en móðir mín, hver svo sem hún
var, trúlega ein af Rouchétag-
inu, spurði mig hvort ég vildi
láta kasta mér við vegbrúniná
eins og hverjum öðrum þungum
pinkli. Ég á við að þetta er allt
saman fáránlegt; allt heila gillið
er fjarstæða. Ef þú getur fengið
það Serri þu vilt. þá taktu það —
það er meira vit í því. Auk
þess — hann bandaði frá sér
hendinni með óþolinmæðisvip.
Það er tilgangslaust að tala við
Þig.
— Hafðirðu ekki áhuga á öðm
en lífinu sem þú lifðir i Nice?
Þetta kvenfólk sem þú náðir
í —
— Auðvitað hafði ég það,
greip Philippe fram í. En það
var sæmilegt til að koma undir
sig fótunum. Mér hefði orðið
betur ágengt í Ameríku, fyrir-
Iitningin í svip hans breyttist í
gáska. Fólkið er alls staðar eins,
ef maður kitlar það, fer það að
hlæja og segir: Elsku drengur-
inn, mikið ertu indæll, ekki
fara, vertu kyrr, vertu kyrr....
Svei!
Michal fann snögga reiði gagn-
taka sig. Þú verður ekki alltaf
ómótstæðilegur!
— Nei, en þegar þar að kem-
ur — byrjaði Philippe. Hann rak
upp skellihlátur, hreinasta og
tærasta hljóð í heimi, Ó, pabbi,
pabbi, skelfing ertu mótfallinn
því að mig skuli langa í það
sem þér datt aldrei í hug að
sækjast eftir, alla þína virðing-
arverðu þrældómsævi sem skikk-
anlegur heiðursmaður og meira
að segja lögreglan ber virðingu
fyrir. Enda ekki við öðm að
búast. Það er víst ekki hætta á
að þú gerjr neitt af þér!
— Ef þú hefðir sagt mér hvað
þú vildir, sagði Michal hljóðlega,
þá hefði ég' reynt að hjálpa þér.
— Já, ójá. Ef ég hefði viljað
eitthvað virðingarvert og skyn-
samlegt og siðlegt að þínu á-
liti. Siðgæði! Svei skítalyktinni!
Michal sagði ekki neitt. Hvem-
ig stóð á því að hann sá fyrir
sér grýttan veg sem lá niður á
við að girtri höfn? Hann hvarf
og eftir sat hann tómhentur.
Með erfiðmunum sagði hann:
— Það er fleira til — stolt,
hjartagæzka, tryggð ........
— Handa hverjum?
— Nú handa sjálfum þér.
Philippe leit á hann með ein-
lægum undmnarsvip. Pabbi, þú
trúir ekki þessu, þú trúir ekki
þessu kjaftæði. Ekki í raun og
veru/. Þú ert í rauninni enginn
heimskingi. Hann hélt áfram
með þreytulegri fyrirlitningu:
Það er þetta sem ég get ekki
sætt mig við — þessar vísvitandi
lygar. Ég á við, að sumt fólk
segir þetta vegna þess að það er
svo heimskt og hefur aldrei á
ævinni hugsað. Þú ert ekki
heimskur, þú ert klókur á þinn
hátt.
Sorgin sem altók Michal var
eins og sár og hann hefði verið
að horfa á drenginn dmkkna
án þess að geta hreyft hönd né
fót tii að hjálpa honum.
— Ó, guð minn góður, stundi
hann. Ég* get ekkert gert.
— Vertu ekki að reyna það,
sagði Philippe heimskulega. Það
er tilgangsiaust.
— Veiztu ekki hvað ég var
hreykinn af þér?
— Ojú, jú. Og afbrýðisamur.
Frá sorg til reiði er minna en
eitt fótmál. Michal sagði hálf-
kæfðri röddu:
— Hvern fjandann áttu við?
Philipppe brosti. Auðvitað
varstu afbrýðisamur. Gamlir
menn em ailtaf afbrýðisamir
við okkur ungu mennina. Þeir
geta ekki gert að því þótt ..
Jafnvel áður en þú vissir um
Ti...... Honum var ekki alis
vamað, því að hann fór að
stama og hélt áfram með
breyttri röddu, sem var næstum
biðjandi: Það var gjeggjað af
henni að koma upp um sig. Ég
hefði aldrei farið að nefna þetta.
Og sjáðu tn, pabbi.......
— Ég veit það eitt, að hvað
sem fyrir þig kemur geturðu
aldrei sokkið dýpra, sagði Mic-
hal með ofsa.
Philippe yppti öxlum. Ég skil
big svo sem. En vertu ekki að
þykjast vera betri eða göfugri
en við hinir.
Útundan sér sá Michal að
Gaude skotraði til hans samúð-
araugum, fullum af áhuga, og
hann áttaði sig.
— Ég þykist ekki eitt eða neitt.
sagði hann. Ef ég gæti þurrkað
út þetta — þetta sérstaka til-
felli með því að lumbra á þér,
þá myndi ég sjálfsagt gera það.
Og þó, sagði hann hryggur á
svip en með biturleik x röddinni.
Ég hata þig ekki fyrir það, og
þegar reiðin nær ekki tökum
á mér, þá ásaka ég þig ekki einu
sinni, Hví skylcE ég gera það?
Þú ert eins -og guð geröi þig
úr garði — jafnvel þótt þú vitir
það ekki sjálfur.
— Ef, sagði Philippe hæðnis-
lega, ég hefði minnstu hugmynd
um, hvað þú ert að tala um!
Þögn, Michal hugsaði: Hann
væri mér ekki glataðri þótt
hann væri dauður. Hugsaðu
þannig um þetta. Hugsaðu: Fyr-
ir ári, fyrir fjórum árum, dó
Philippe .... Blaður, tilfinninga-
sjúkt rugl, hugsaði hann þurr-
lega. Hann er bráðlifandi fyrtr
framan mig, saurgaður af eigin
höndum, ef til vill glataður, og
þetta er stundin sem ég vel til
að þurrka hann út.
Hann var gripinn undarlegri
tilfinningu: það var eins og
sprunga opnaðist fyrir innan
augun í honum og myrkrið úr
henni hreinsaðist burt og
hann hugsaði: Það er tilgangs-
laust að hugsa um að elska fal-
legt og elskulegt Sott barn, sem
ekki er til, eða vera hreykinn'
af fegurð þess og áhrifum henn-
ar á fólk. Eins og nú er hefur
hann ekkert að gefa mér. Get ég
horft á hann eins og hann er,
kuldalega og hörkulega og elsk-
að hann? Kannski er það ekki
gerlegt; ég er ekki þolinmóður
maður.
— Hamingjan góða, sagði
hann snögglega. — Ég vildi gefa
báðar hendur mínar til að geta
hjálpað þér.
Philippe bar fyrir sig hand-
legginn eins og til varnar. Mig
langar ekkert til að þú hjálpir
mér, sagði hann ógnandi. Sízt af
öllu þú.
— Jæja, mér þykir það leitt,
sagði Michal. Þú verður að
kyngja þvf, en ég kenni í
brjósti um þig, og ef ég gæti,
þá myndi ég hlífa þér og
treysta því að þú myndir vitk-
ast. En það er ekki á mínu valdi,
þú ert ekki á tmfnu valdi; þessa
stundina get ég ekkert gert fyrir
þig snnaö en að segja að ég hef
engar sakir á hendur þér.
Andartak hélt hann að piltur-
inn ætlaði að falla saman. Það
fóru viprur um andlit hans eins
og þegar hann var lítill drengur
að játa á sig einhverja barna-
lega sök. Svo herti hann sig upp
og sagði:
— Stórkostlegt. En ég get ekki
ímyndað mér eftir hverju þú ert
að seilast — hvað þú heldur að
þú græðir á þessu. Ertu kannski
að sýna kristilegt umburðar-
lyndi eða hvað?
— Nei.
— Hvaða fítus er þetta þá?
— Svei mér ef ég veit það,
sagði Miehal. En — þú sleppur
ekki útúr þessu án þess að vera
í fangelsi um tíma. Ég veit ekki
hversu lengi það verður — en
þegar því er lokið geturðu ....
Hann hikaði, leitaði að orðum
sem ekki myndu valda piltin-
um gremju.
En áður en hann hafði fundið
þau orð, rak Philippe upp hlát-'
ur. Nújá, þama kemur það.
Að byrja aftur, ha? Æ, sami
gamli pabbinn, — nokkrir dagar
upp á vatn og brauð og strákur-
inn verður feginn að komast aft-
ur í eldhúsið og lifa heiðarlegu
lífi. Þú heldur það já. En ég
skai segja þér eitt — hann hall-
aði sér áfram og augu hans
ljómuðu af gáska og hann sýnd-
ist ekki annað en sérlega falleg-
ur og glaður piltur. Ég' skal
aldrei láta undan, aldrei. Ég
þórður
sjóari
4683 — Um borð í snekkjunni er annar bátur settur út og
sendur að landi til að sækja Þórð og hina særcu. Haderi kem-
ur auðvitað með og andlit hans ljómar þegar hann stendur fyr-
ir framan prinsinn, sem grípur hendur hans og þakkar hon-
um fyrir.
Nú fá þeir að heyra í smáatriðum hvað gerzt hefur. |
Hassan þekkir kastalann og veit, að það er vonlítið, að frels- j
un fanga þaðan takist. En h mn er ákveðinn í að hætta á hvað
sem er.
SKIPATRYGGINGAR
ÚTGERÐARMENN.
TRYGGJUM HVERS KONAR SKIP OG ALLT,
SEM ÞEIM VIOKEMUR
TRYGGINGAFÉLAGIÐ HEIMIR"
LINDARGÓTU 9 • REYKJAVfK - S1M I 22122 — 21260
BYGGINGA
VÖRUR
★ Asbest-plötur
★ Hör-plötur
★ Harötex
★ Trétex
★ Gips þilplötur
★ Wellit-einangrunarpiötur
★ Alu-kraft aluminpappír
til húsa-einangrunar
★ Þakpappi, tjöru og asfait
★ lcopal þakpappi
★ Rúdugler
MARS TRADING CO. H.F.
KLAPPARSTfG 20 SÍMl 17373
Dátabuxur ov torolvnehnxur
á drengi. — Leðurjakkar á stúlkur
og drengi.
Verzlun Ó.L.
Traðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu)