Þjóðviljinn - 22.02.1966, Qupperneq 7
Þriðjudagur 22. fébrúar 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA J
rjmirji
\
*i
5
*
I
I
Árni Scheving víbrafónleikari
var „gestur kvöldsins“.
Þótt ekki skorti samkomu-
húsin hér í borginni og hvert
um sig hafi a.m.k. einni
hljómsveit á að skipa, gefst
fólki óviða og sjaldan kost-
ur á að hlýða á jazz
öðru vísi en af plötum. Það
eru yfirleitt dans- og dægur-
lög, sem spiluð eru, enda oft-
ast dansað í samkomuhúsun-
um. Sá hópur mun þó eigi
lítill er ann góðum jazz og
getur vel hugsað sér að eyða
öðru hverju kvöldstund á
veitingahúsi án þess að dansa.
Því var því: allvel tekið er
stofnaður var hér jazzklúhb-
ur sl. vor og hefur hann nú
starfað af fjöri í nærri því ár.
Þar sem starfsemi klúbbs-
ins hefur verið óspart hrósað
af jazzunnendum, skrapp
blaðamaður Þjóðviljans í
Tjarnarbúð eitt mánudags-
kvöldið og ræddi lítillega við
formanninn, Þráin Kristjáns-
son, um starfið í vetur og
hvað er á prjónunum á næst-
unni.
Seiðandi jazzrytmi berst
fram í anddyrið og er í sal-
inn kemur fagna gestir ó-
spart hljómsveitinni, kvartett
Þórarins Ólafssonar og gesti
kvöldsins, sem var að þessu
sinni Árni Scheving og lék
á vibrafón.
Kvartett Þórarins Ólafsson-
ar hefur verið aðalskemmti-
kraftur klúbbsins frá upphafi,
segir Þráinn, en auk þess er
alltaf hafður með „gestur
kvöldsins" og eins kemur oft
fyrir, að aðrir jazzleikarar
taka líka í hljóðfærin. Fyrir
utan að spila jazz er Þórar-
inn Ólafsson einnig flautu-
leikari góður og spilar í Sin-
fóníuhljómsveit íslands.
JAZZKLÚBBUR
REYKJAVÍKUR
STARFAR AF
MIKLU FJÖRI
Litið inn á Jazzkvöid
og rætt við
formanninn um starfsemina
Klúbburinn hefur jazzkvöld
í Tjarnarbúð á hverju mánu-
dagskvöldi kl. 9—11,30 og
fyrsta mánudag hvers mán-
aðar til kl. 1 og skemmta þá
venjulega tvær hljómsveitir.
Öllum er heimiM aðgangur.
— Við byrjuðum síðasta
vor, segir Þráinn, og þetta er
búið að ganga skínandi vel.
Klúbburinn hefur verið mjög
vel sóttur, en þó dálítið mis-
munandi eftir árstíma. í allt
sumar var svo mikil aðsókn,
að iðulega fengu færri sæti
en vildu og yfirleitt hefur
verið miklu meiri aðsókn en
nokkurntíma var reiknað
með.
Jazzklúbburinn hefur feng-
ið marga góða gesti, t.d. kom
Jón Páll gítarleikari gagngert
frá útlöndum til að leika eitt
kvöld og um áramótin komu
tveir frægir bandarískir jazz-
leikarar, Donald Byrd, sem '
lék eitt kvöld og Art Farm-
er, sem lék fimm sinnum í
Reykjavík. Art Farmer er
væntanlegur aftur í sumar,
þá með fimm manna hljóm-
sveit með sér. Eins er von á
Jóni Páli aftur bráðlega, lík-
lega í apríl og skemmtir
þá 1—2 kvöld í klúbbnum, en
hann starfar nú sem gítar-
leikari um borð í einu stærsta
skemmtiferðaskipi heims.
Nú er von á EMu Fitzger-
ald næstu daga og reiknar
klúbburinn fastlega með að
geta fengið1 Tríó Jimmy Jon-
es, sem með henni kemur, til
að að heimsækja klúbbinn og
leika þar eitt kvöld.
Einhvemtíma í vor er svo
Hér sést Þórarinn Ólafsson við píanóið og Friðrik Theódórs-
son með bassann.
von á þekktum dönskum
jazzleikurum, sem ætla að
koma hér við á leið sinni til
Bandaríkjanna, þeim Alex
Riel trommuleikara og Niels
H. írsted Pedprsen.
Það er aðallega nútíma
jazz, sem leikinn er í Jazz-
Það er er Rúnar Georgsson sem er með saxófóninn og Pétur Östlund, bítill úr Hljómum,
sem er við trommurnar, en hann getur ýmislegt fleira en spilað bítlamúsik. Þeir Rúnar
og Pétur voru í heimsókn í klúbbnum þetta kvöld og gripu í hljóðfærin með hinum. Gítar-
leikarinn er Örn Ármannsson og bassaleikari Friðrik Theodórsson og spila þeir báðir í kvar-
tettinum með Þórami.
klúþnum og yfirleitt yngri
jazzleikarar sem þar koma
fram. Jazzinn hefur breytzt
mikið frá því sem var og er
í stöðugri þróun eins og önn-
ur tónlist.
Og hvaða fólk skyldi það
nú vera, sem aðallega er jazz-
hneigt hér í borg? Ekki er
það bítlaæskan og yfirleitt
ekki unglingar, segir Þráinn
okkur, heldur fólk uppúr tví-
tugu, og líklega mest milli 20
og 40 ára. Það er áberandi,
segir hann, hve mikið af
menntafólki og listamönnum,
ekki sízt ungu tónlistarfólki,
hefur gaman að jazz ekki síð-
ur en klassískri tónlist. Enda
er þó nokkuð um góða jazz-
leikara í Sinfóníuhljómsveit-
inni, má nefna sem dæmi
Þórarin Ólafsson, Sigur-
björn Ingþórsson, Björn R.
Einarsson og Gunnar Orms-
lev.
i
!
Norræni sun-
arháskólinn
Nýlega fóru aðalkraftar
Jazzklúbbsins að Laugarvatni
og spiluðu þar á jazzkvöldi
hjá Menntaskólanum. Var
salurinn þéttsetinn og hljóð-
færaleikurunum mjög vel
tekið. Verður þetta kannski
endurtekið síðar í vetur.
Þetta var mikil tilbreyting
og mjög uppörvandi fyrir
jazzleikarana að finna svona
áhuga líka utan klúbbsins,
sagði Þráinn, og við höfum
bæði áhuga og vilja til að að-
stoða aðra skóla og reyndar
hvaða stofnun sem er til að
halda jazzkvöld.
Myndir og texti vh.
Þorsteinn Sveinsson form.
irurstfsmn jvuinssun furns• p# >• _
Þ/óðleikhússkórsins i 10 ár FiSHIllfÍII ilýir StÓðlllllðDldi'
Norræni Sumarháskólinn
verður haldinn í Abo í Finn-
landi 25. júlí til 5. ágúst n.
k., og er það 16. sumarið, sem
skólinn starfar.
Oftast hafa sótt hann um 250
stúdentar, kandídatar og há-
skólakennarar frá öllum Norð-
urlöndum, en tilgangur sumar-
háskólans er fyrst og fremst að
gefa sérmenntuðum mönnum
kost á að ræða efni, sem liggja
á mörkum jTnissa fræðigreina
og hamla þannig gegn of mik-
illi sérhæfni. Jafnframt gefst
mönnum gott tækifæri til að
kynnast þeim, sem stunda hlið-
stæð störf á Norðurlöndum eða
glíma við svipuð vandamál og
viðfangsefni. Að vetrinum eru
haldnir umræðufundir í öllum
háskólabæjum Norðurlanda til
undirbúnings þátttöku í sum-
arháskólanum. Svo hefur einn-
ig verið í Reykjavik og verð-
ur í vetur.
Þeir, sem kynnu að hafa
áhuga á þátttöku í Norræna
Sumarháskólanum, en hún er
, heimil öllum þeim, er lokið
hafa stúdentsprófi, skulu snúa
sér til Þóris Einarssonar, við-
skiptafræðings, Iðnaðarméla-
stofnuninni, fyrir 1. marz n.k.
Rithöfundar
samhvkkir dómi
MOSKVU 18/2 — í yfirlýsingu
frá sovézka rithöfundasamband-
inu. sem birtist í ,Líteratúmaja
Gazéta" í dag. segir, að bæði
sovézkir rithöfundar og allur al-
menningur séu samþykkir dóm-
unum yfir Sínjavskí og Daníel,
enda séu þeir í samræmi við
lög landsins. Yfirlýsingin er svar
við fyrirspurnum til samtakanna
frá erlendum rithöfundum vegna
dómsins.
!
i
Aðalfundur Þjóðleikhússkórs-
ins var haldinn nýlega og var
afar fjölsóttur.
Á fundinum mætti þjóðleik-
hússtjóri, Guðlaugur Rósin-
kranz. og söngstjóri kórsins,
Carl Billich. I ýtarlegri skýrslu
stjórnarinnar kom m.a. fram,
að stjóm minningarsjóðs dr.
Victors Urbancic hefði úthlutað
styrk ú ■ sjóðnum að upphæð
kr 6.000.00 til John E. Bene-
diktz læknis, sem stundar sé.r-
fræðinám í heila- og taugasjúk-
dómum í Manchester í Eng-
landi, en mun starfa í sérgrein
bessari á íslandi að námi loknu.
Starfsemi kórsins var fjöl-
breytt á liðnu starfsári og nú
eru æfingar að hefjast á óper-
unni „Ævintýri Hoffmans" eft-
ir Offenbach, sem sýnd verð-
ur f Þjóðleikhúsinu í vor.
Formaður kórsins hefur ver-
ið Þorsteinn Sveinsson héraðs-
dómslögmaður s.l. 10 ár og
voru honum þökkuð störf hans
á fundinum. Mikill áhugi og
eining ríkti á fundinum.
Stjórn og varastjóm kórsins
var öll endurkjörin.
Aðalstjórn skipa: Þorsteinn
Sveinsson, form., Guðrún Guð
mundsdéttir, ritari og Svava
Þorbjamardóttir, gjaldkeri.
Varastjórn skipa: Sighvatur
Jónsson, Guðmundur Baldvins-
son og Ivar Helgason.
Þessa dagana er verið að
setja upp 50 nýja stöðumæla
í Austurstræti, Hafnarstræti og
Bankastræti og um leið hækk-
ar stöðumælagjaldið á þessum
stöðum úr einni krónu í tvær
krónur fyrir hverjar 15 mín-
útur. Þessir stöðumælar eru
eingöngu gerðir fyrir tveggja
krónu peninga.
Samþykkt hefur verið að
sama gjald verði við stöðu-
mæla á Laugavegi að Snorra-
braut og á Hverfisgötu frá
Lækjargötu að Klapparstíg, en
mælarnir sem þar verða sett-
ir upp eru í pöntun og verð-
ur breytingin væntanlega gerð
í vor eða sumar.
Þá hefur borgarstjórn
Reykjavíkur ákveðið að settir
verði upp stöðumælar á eftir-
töldum götum: Vatnsstíg milli
Hverfisgötu og Laugavegs.
Vitastíg milli Hverfisgötu og
Grettisgötu. Barónsstíg milli
Hverfisgötu og Grettisgötu.
Hverfisgötu frá húsi nr. 70 að
húsi nr. 52. Skólavörðustíg
milli Óðinsgötu og Týsgötu.
Á þessum stöðum verður
yjaldið ein króna fyrir hverj-
ar byrjaðar 15 mín. og verða
notaðir þeir mælar sem voru [
áður í Austurstræti, Hafnar-
stræti og Bankastræti.
Stöðumælar voru fyrst. sett-
ir upp hér í Reykjavík 1857,
en það ár voru 138 stöðumælar
settir upp á sex götum. í árs-
lok 1965 voru 367 stöðumælar
í notkun á 20 götum. Þá má
geta þess að stöðumælasjóður
hefur nú 300 gjaldfrjáls bíla-
stæði á leigu af ýmsum aðil-
um í miðborginni eða næsta
nágrenni hennar.
* Minningarspjöld Hrafn-
Kelssjóðs fást Bókabú*
Braga Brvnjólfssonar
★ Fótaaðgerðir fyrir aldrað
fólk eru i safnaðarheimili
Langholtssóknar þriðiudaga
klukkan 9-12. Gjörið svo vel
að hringja í sáma 34141,
Rit um skéla-
kerfi í átián
Evrénurikjum
Nýlega kom út í Strassbourg
bók um skólakerfi í 18 ríkjum
í Evrópu. Bókin er gefin út af
Samvinnuráði Evrópu um
menningarmál, sem starfar í
tengslum við Evrópuráðið.
Bókin var samin, þar sem þörf
fyrir slíkt yfirlitsrit hefur
komið fram á síðustu árum,
eftir að náin samvinna komst
á um athuganir á ýmsum þátt-
um skólamála milli ríkja f
Evrópu. Island hefur tekið þátt
í starfsemi samvinnuráðsins, og
er fjallað um íslenzka fræðslu-
kerfið í ritinu, svo og skóla-
kerfin á hinum Norðurlöndun-
um. Bæði er sagt frá skyldu-
námi, kennaranámi, iðnnámi
og annarri verkfræðslu. I bók-
inni eru einnig birtar tölur
um mannfjölda og fjölda fólks
á skólaaldri.
Rit þetta er eins og önnur
rit Samvinnuráðs Evrópu um
menningarmál gefið út bæði á
ensku og frönsku. Hinn enski
titill þess er: School System —
A Guide. Það er 356 bls. og
verðið 17/6 s. önnur nýútkom-
in rit frá samvinnuráðinu fjalla
um tómstundastörf ungs fólks,
málakennslu í sjónvarpi og
kennslukvikmyndir. Utiplýsing-
ar um útgáfubækur ráðsins má
fá hjá Upplýsingadeild Evrópu-
ráðsins, pósthólf 97, Reykjavík.
Fundur um götulýsingu og
lýsingu á vinnustöðum utan
húss, verður haldinn fimmtu-
daginn 24. febrúar í Tjarnar-
búð.
Magnús Oddsson tæknifræð-
ingur mun flytja erindi um
götulýsingu og Ólafur S.
Björnsson verksmiðjustjóri um
lýsingu á vinnustöðum utan
húss.