Þjóðviljinn - 07.04.1966, Blaðsíða 14
J/j SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 7. apríl 1966.
Ferðaskrífstofa ríkisins
Framhald af 1. síðu.
vangur landkynningar verður
æ viðfeðmari og öll fyrir-
greiðslustörf fjárfrekari með
ári hverju, en tekjuöflunar-
möguleikarnir vaxa ekki í
sama hlutfalli og liggja til
þess ýmsar orsakir sem ekki
skulu ræddar hér. En hjá því
verður ekki komizt að endur-
skoða starfsgrundvöll Ferða-
skrifstofu rikisins og skapa
henni aðstöðu til þess að gera
verkefnum sínum sómasamleg
skil á ókomnum árum.
— Því er æði oft haldið
fram — ekki hvað sízt í hópi
þeirra einkaaðila, sem reka
ferðaskrifstofur — að Ferða-
skrjfstofa ríkisins ætti ekki
að sinna almennum störfum
ferðaskrifstofa í tekjuöflunar-
skyni. Hvað viltu segja um
þetta, Þorleifur?
— Mér er það ekkert laun-
ungarmál, að ég teldi það í
alla staði heppilegri skipan, að
Ferðaskrifstofa ríkisins væri
leyst frá þeirri kvöð að afla
tekna til landkynningarstarfs-
ins og henni væri eingöngu
falið að annast landkynningu
og fyrirgreiðslustörf. Fjáröflun-
arstörfin krefjast mikils tíma
og starfsorku og aldrei er vit-
að fram í tímann hver afrakst-
urinn verður hverju sinni, en
slík óvissa hlýtur að lama alla
starfsemina. Og ég tala nú ekki
um hvað það væri áhyggju-
minna að labba upp í Arnar-
hýol einu sinni í mánuði og
sækja rekstrarfé í ríkiskassann
heldur en standa í því í nafní
þess opinbera að afla fjárins
á allskonar smáskammtavið-
skiptum.
JSn hvort sem horfið verður
að breyttri skipan í þessum
málum nú eða síðar, þá ligg-
ur það í augum uppi, að rúm-
lega hálfrar miljónar króna
framlag sem fjárlög þessa árs
kveða á um duga skammt til
þess að standa undir víðtækri
landkynningar- og fyrir-
greiðslustarfsemi. Ekkert verð-
ur gert að gagni í þessum efn-
um fyrir minni upphæð en
þrjár til fjórar miljónir kr.
á ári.
— Að lokum, Þorleifur, væri
fróðlegt að fá stutt yfirlit um
þæf ferðir innanlands sem
Ferðaskrifstofa ríkisins skipu-
leggur á næsta sumri.
— Til skamms tíma hefur
meginþorri ferðamanna sem
hingað leggur leið sína ár
hvert komið á tímabilinu frá
lokum júnímánaðar fram í
miðjan ágúst. Yið höfum á
síðustu árum lagt áherzlu á
að teygja úr þessu ferða-
mannatimabili sem mest, m.a.
til þess að hinn aukni gisti-
húsakostur í landinu nýtist
sem bezt. í þessu skyni hefur
Ferðaskrifstofan boðið erlend-
um náttúruskoðurum, fugla-
fræðingum, jarðfræðingum o.
fl„ upp á sérstakar vc*r- og
síðsumarsferðjr. Þessi viðleitni
okkar hefur borið góðan ár-
angur, og í sumar eigum við
von á stórum hópum slíkra
náttúruunnenda hingað.
Eins og áður skipuleggur F.r.
ferðir uiji landið á næsta sumri
svo hundruðum skiptir. Okkar
helztu ferðir verða þessar:
14 daga fcrðir fyrir áhugamenn
um fuglaskoðun. Farið um
Reykjanes, Suðurland, Snæfells-
nes, Akureyri, Mývatnssveit,
Tjörnes.
7 daga fcrðir á hcstum. Riðið
frá Laugarvatni um Lyngdals-
heiði og að Geysi og Gullfossi.
9 daga hringferð um landið.
Farið um Suðurland, Kalda-
dal, Borgarfjörð, Skagafjörð,
Hóla í Hjaltadal, Akureyri,
Mývatnssveit, Dettifoss, Hérað.
14 daga fcrðir fyrir áhugamenn
um jarðfræði. Farið um Akur-
eyri Mývatnssveit, Borgarfjörö,
Þingvelli, Hagavatn, Veiði-
vijtn, Jökulhéima, Landmanna-
laugar, Kirkjubæjarklaustur,
Landbrot, Sólheimajökul.
Þá eru og skipulagðar og
boðið upp á 11 mismunandi
ferðir um landið allt frá 7
dögum til 23 daga fyrir hópa
og einstaklinga. Þessar ferðir
eru jafnt seldar af ferðaskrif-
stofum erlendis sem og hér á
skrifstofunni. Auk þessa skipu-
leggur Ferðaskrifstofan tugi
sérferða um landið fyrir ferða-
mannahópa og einstaklinga af
ýmsum þjóðernum.
Eins dags ferðir.
Þingveliir — Hveragerði: alla
mánudaga og fimmtudaga frá
26. maí til 1. sept.
Gullfoss og' Geysir: alla*
föstudaga og sunnudaga frá 27.
maí til 4. sept. Alla þrjðjudaga
frá 14. júní til 6. ágúst.
Krísuvík — Álftanes: alla
laugardaga frá 28. maí til 30. *
srpt. Alla 'miðvjkudaga frá 15.
júní til 17. ágúst.
Ferðir um Reykjavík: alla
miðvikudaga frá 1. júní til 31.
ágúst. Alla mánud. og föstu-
daga frá 20. júní til 12. ágúst.
Gullfoss — Geysir — Þing-
vellir: alla miðvikudaga frá 6.
júlí til 10. ágúst.
Eins og ó undanförnum ár-
um verða skipulagðar marg-
víslegar orlofsferðir til útlanda
(I.T. ferðir — allt innifalið)
fyrir einstaklinga og hópa.
Orlofsferðir til Norður- og
Austurlands verða á boðstól-
um fyrir hópa og einstaklinga
og er þá miðað við gistingu á
sumarhótelum sem Ferðaskrif-
stofa ríkisins annast rekstur á,
t:d. Varmalandi í Borgarfirði,
Hótel M.A. á-- Akureyri og að
Eiðum á Héraði. Ferðazt er
með óætlunarbílum og flug-
vélum.
Annars eru hópfex'ðir Ferða-
skrifstofunnar innanlands fyrst
og fremst skipulagðar með
hina erlendu ferðamenn í huga.
Okkar helztu ferðir eru sem
hér segir:
Ein df 40 ferðum
Miðevrópa 23. ágúst — Verð kr. 16,900
Þetta er ný fer3 í sumaráætlun L&L. Kalla mætti hana Mið-Evrópuferð, en aðaláherzla
er lögð á Vogesafjöllin, Alpana, Rivieruna og París. Leiðin, sem valin hefur verið, er und-
urfögur allt frá upphafi til enda. Farið er rólega yfir og nægur timi ,í borgunum til að
verzla, skoða sig um. eða. skemmta sér á kvö ldin.
23. ágúst: Flogið með Loftleiðum til Luxemborg. Þar er komið seinni hluta dags, en enn
tími til að skoða staðinn.
23. ágúst: Ekið frá Luxemburg yfir landamærin til Frakklands. Fyrsti áfanginn er Verdun,
þar sem við borðum hádegisverð. Áin Mosel liðast um bæinn og skammt frá eru hinir
frægu orustuvellir fyrri heimsstyrjaldarinnar. Þaðan er farið um Nancy til Vogesafjalla.
Stanzað er í bænum Gerardmer, sem er fjallaþær við samnefnt vatn.
24. ágúst: Farið í ferð um Vogesafjöllin, en gist á sama stað við Gerardmer.
26. ágúst: Nú yfirgefum við Frakkland og við taka „Svörtuskógar“ í Þýzkalandi. Við kom-
um til Basel um hádegi og höldum síðan með ánni Rín, þar sem mætast landamæri Sviss og
Þýzkalands. Ákvörðunarstaðurinn er Konstanz við Bodensee.
27. ágúst: Nú er stefnan tekin á Alpafjöllin, og ökum við allt til Interlaken, sem stendur við
mót tveggja Alpavatna, — Thunervatns og B rienzvatns. Erum þá stödd í hjarta Sviss og
höfum farið um bæði Zúrich ög Luzern.
28. ágúst: Farin ferð á tind eins frægasta fjalls Alpanna — Jungfraujock. Ferðin er farin
með tannhjólabraut og er þessi hin hæsta í all ri Evrópu. Þegar á tindinn er komið erum við i
3454 m hæð og stöndum á lengsta jökli Alpanna. Þar uppi má m.a. fara ferðir á hunda-
sleðum um hásumar, fara á skautum í íshöll inni í sjálfum jöklinum eða njóta stórkost-
legs útsýnis.
29. ágúst: Nú er ekið um hvert fjallaskarðið á fætur öðru, en St. Gottard er þeirra mest.
Þá erum við stödd í hinum ítalska hluta Sv iss og eftir heimsókn til Lugano förum við
yfir ítölsku iandamærin. Við ökum meðfram Comovatni til Como, sem er næsti áfanga-
staður.
30. ágúst: Frá Como er ekið til Milano. Það ep stutt ferð og því tækifæri til að sjá það
helzta í borginni. Þá er enn ekið suður og nú til Genúa og síðan eftir Rivierunni. Seinni
hluta dags-er komið til Alassio, sem er baðstaður á ströndinni.
31. ág.„ 1. og 2. sept.: Verið um kyrrt á bað ströndinni. Þeir sem vilja geta sólað sig allan
tímann, en hinir, sem dýrka sólina minna, h afa nóg tækifæri til að fara í ferðir. Stutt er
til San Remo og jafnvel Monte Carlo og Nissa eru skammt undan.
3. sept.: Farið með Rivierunni um San Remo til furstadæmisins Monaco.
4. sept.: Um Nissa og Cannes til Marseilles. Þar er breytt um stefnu og ekið með fljótinu
Rhón til borgarinnar Lyon.
5. sept.: Frá Lyon til Parísar.
6., 7., 8. sept.: Þrír heilir dagar í Paris.
9. sept.: Flogið um London til íslands.
Ath.: Lengja má ferðina með dvöl í London.
FERÐASKRIFSTOFAINi
LOISID & LEIÐIR
AÐALSTRÆTI 8
SÍMI 20800
FerBaleiBii' á Vestf/orðum
Framhald af 5. síðu.
Breiðadalsheiði, niður Dag-
verðardal til ísafjarðar. Á
Breiðadalsheiði er ætlunin að
grafa jarðgöng og bætir það
mjög samgöngur um Vestfirði
ó landi. Á Dagverðardal fram-
aríega er Austmannsfjáll. í
Gísia sögu Súrssonar er sagt
frá uppruna þessa örnefnis og
eir.nig nafnsiris á dalnum, en
hér er ekki rúm til að rekja
þá sögu.
Nú erum við komin til Isa-
fjarðar, höfu'ðstaðar Vest-
íiarða. Á ísafirði eru tvö
gistihús, Herkastalinn og
Mánakaffi, bæði ■ við sömu
götu, Mánagötu. Á báðum
þessum stöðum er greiðasala
og auk þess í Eyrarveri, sem
er stærsta veitingahúsið í
bænum. Þá geta þeir, sem
hafa með sér svefnpoka, feng-
ið gistingu í Skíðasþála Skíða-
félags ísafjarðar á Séljalands-
dal, spölkorn innan við bæinn.
í Tunguskógi eru tjaldstæði
fyrir ferðafóik, einnig er þar
snyrtiherbergi til afnota fyrir
þá, sem þar dvelja. Tungu-
skógur er sumarbústaðahverfi
ísfirðinga. Þar er trjáræktar-
stöð, og þar er garður Simsons.
Þar er og ágætt berjaland,
friðsælt og fagurt. Fjöldi fólks
dvelur þar á hverju-sumri, og
ber öllum saman um að þar
sé gott að vera.
Ekki má gleyma því, að Isa-
fjörður hefur með réttu verið
nefndur paradis skíðamanna,
-------------------------------<S>
Sinn 19443
en einmitt þar, sem áðurnefnd-
ur skíðaskáli stcndur, er sér-
staklega gott skíðaland. Þegar
þetta er skrifað, er að byrja
Skíðavika ísfirðinga og lands-
mót skíðamanna, sem að þessu
sinni er á ísafirði í tiiefni af
aldarafmæli kaupstaðarins.
Meðan við dveljum á ísa-
firði, förum við inn í Álfta-
fjörð og ökum þá gegnum
fvrstu og einu jarðgöngin á
íslandi.
Frá ísafirði förum við inn í
Ögur með Djúpbátnum Fagra-
nesi, nýju og ágætu skipi, og
tökum bílinn með okkur. Þetta
er stutt en skemmtileg sjóferð
í góðu vcðri. Úr Ögri ökum
við inn með ísafjarðardjúpi
og suður yfir Þorskafjarðar-
heiði í Bjarkalund, og erum
þá komin aftur á þær slóðir,
sem við fórum um í upphafi
ferðarinnar. Og nú er þessari
„svosem“-ferð okkar lokið.
Leiðin, sem við fórum þennan
síðasta spöl, var ekki síður
skemmtileg og falleg en þær,
sem við höfðum áður farið í
þessu ferðalagi.
Við höfum í þessari ferð far-
ið eingöngu almennustu leið-
ina, en marga staði eigum við
eftir að hcimsækja. Má þar
nefna leiðina Vatnsfjörður —
Patreksfjörður — Tálknafjörð-
ur — Bíldudalur. Þá er Rauði-
sandur og Látrabjarg. Stranda-
sýsla öll. Ingjaldssandur yzt
við Önundarfjörð að sunn
Súgandafjörður, Hornstrandir
og Jökulfirðir, en um tvo síð-
ast nefndu staðina yrðum við
að fara fótgangandi. Á öllum
þessum stöðum er mikil nátt-
úrufegurð, og sumstaðar svo
stórþrotin og sérkennileg, að
hún á óvíða sinn líka. Þgð
væri því gaman að geta ferð-
ast þar um, þó ekki væri nema
„svosern".
Sunna
Framhald af 6. síðu.
er fjölbreytt leikhús- og
fkemmtanalif. Einnig er dvalið
góðan tíma í baðstrandarbæn-
um Dubrovnic í Júgósla^íu og
Luzern í Sviss. •
Þá er komið að hinni klass-
ísku 17 daga ferð Sunnu til
París—Rínarlanda og Sviss, en
þessi ferð hefur verið farin
svo til óbreytt í sjö ár. Farar-
stjóri er Jón Helgason og verð-
ið er kr. 17.650,—, farið verð-
ur héðan 19. ágúst.
Gunnar Eyjólfsson, leikari,
er fararstjóri í 7 daga ferð
sem farin verður 27. ágúst á
Edinborgarhátíðina. Þessi ferð
hefur verið farin sl. sex ár
og jafnan fullskipuð, enda er
þetta mikilfengleg listahátíð.
Farið verður einnig í skemmti-
ferðir upp í hálendi Skotlands.
Ferðin kostar kr. 7.210.
1. september er fyrirhuguð
21 dags ferð til Ítalíu og kost-
ar ferðin kr. 21.300,—. Flogið
verður til Miiano og ekið það-
an um fegurstu byggðir ítalíu,
með 3—4 daga viðdvöl í Fen-
eyjum, Florenz og Róm. Frá
Róm liggur leiðin um Napoli,
Pompei til Sorrento og skropp-
ið er út til eyjarinnar Capri.
Þátttakendur í þessari ferð fá
tækifæri til að sigla með einu
glæsilegasta hafskipi heims,
risaskipinu Michelangelo (43
þús. smál. að stærð) norður
með ströndum ítalíu og Frakk-
lands. Síðustu dagana er dval-
ið í Nizza. Fararstjóri er Thor
Vilhjálmsson, • rithöfundur.
23. september er lagt af stað
til Ítalíu og Spánar, ferðin tek-
ur 21 dag og kostar kr. 24.860.
Fararstjóri Jón Helgason. í
fyrra var farin slík ferð og
var það í fyrsta skipti, sem
farið var héðan til Ítalíu og
Spánar í sömu hópferðinni.
Flogið er til Feneyja, síðan
til Rómar og dvalið þar í
nokkra daga, enda nóg að
skoða. Frá Róm er ekið til
Napoli og siðan siglt með
Michelangelo, hinu nýja haf-
skipi ítala, til Gibraltar. Þá
verður dvalið í Torremolinos
á Spánv flogið þaðan til Ma-
drid og komið við í London
í heimleiðinni.
7. október hefst „Ævintýra-
ferðin til Austurlanda“ og
stendur hún í 21 dag og kost,-
ar 22.700,—. Fararstjóri verð-
ur Guðni Þórðarson. í
þessari ferð er m.a. komið til
Aþenu, Delfi, borgar véfrétt-
arinnar, Kairo og Beirut, en
þaðan er ekið til Damaskus.
E R HVER SÍÐASTUR A Ð
TRYGGJA SÉR FAR.
með m.s. Gullfossi
I S U M A R
tij
ís
■v
H.F. EIMSKIFAFll 4G ÍSLANDS
SIMI 21460.