Þjóðviljinn - 12.05.1966, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 12.05.1966, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 12. maí 1966 — í>JÓÐVTLJlNN — SÍÐA J Ky ítrekar að hann muni ekki fara frá McNamara játar að ólgan í S-Vietnam geri Bandaríkjamönnum erfitt fyrir SAIGON og WASHINGTON 11/5 — Franska fréttastof- an AFP sagði í dag að Ky, formaður herforingjaklíkunn- ar í Saigon, hefði staðfest þau ummæli sín frá þvf á laug- ardag að hann hefði ekki í hygg'ju að afsala sér völdum þegar kosningar hafa farið fram í hinum hernumdu hlut- um Suður-Vietnams. Ky hafði sagt vifj blaðamenn í Sai'gon á laugardaginn að her- for-jngjamir ætluðu ekki að af- sala sér völdum í hendur stjóm sem' kynni að verða mynduð eftir að kosningar Þser til stjóm- lagaþings hafa farið fram sem þeir neyddust í síðasta mánuði til að loifa lej ðtogum búddatrú- armanna að haldnar yrðu innan 3—5 mániaða. Þegar Rusk, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, var spurður i sjónvarpsviðtali á sunnudaginn um þessi ummæli Kys kvað hann blaðamenn hafa haft þau rangt eftir. McNamara landvamaráðherra viðuiikenndi í dag á fundi í ut- anri'kismálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþinigs að ólgan í Suð- ur-Víetnam hefði truflað hemað- araðgerðir Bandaríkjamanna þar. Hann færðist undan að svara spumingu um hvort hann teldi ástandið í Suður-Vietnam al- varlegt. Hann vildi hins vegar halda því fram ag Þjóðfrelsisfylkingin nyti stuðnings æ minn-| hluta þjóðarinnar og vitnaði í skýrslu þar sem stóð að liðhlaup skæru- liða hefðu aukizt. — Svo vjrð- ist sem Vietcong safni nú 15 ára unglingum undir sín merki. sagði McNamiara og bættj við, að um 900.000 mánns hefðu af frjálsum vjlja flutzt til þeirra héraða sem eru á valdi Saigon- stjómarinnar. Hann á þar við •Það sveitafóík sem Húið hefur HernaSur Bandaríkjanna í Vietnam undan napalmsprengjum Banda- ríkjamanna til borganna. Lofthernaðurinn Undanfama daga hefur loft- hemaðurinn yfir Norður-Viet- nam enn harðnað og á hverjum degj síðan um helgi hafa or- ustuþotur af gerðjnni MIG-17 ráðizt gegn árásarf'lugvélunum og beittu þær í dag í fyrsta sinn eldflaugum, sem Banda- ríkjamenn segja að vísu að hafi ekki hæft. í dag vo.ru samtals farnar 03 árásarferðir gegn Norður-Viet- nam og var viðurkennt í Saigon ag tvær flugvélar hefðu ©kkj kornið aftur úr þeim. Þá segjast Bandaríkjamenn hafa sökkt skipi undan suðurströnd Suð- ur-Vietnams sem hafi verið með miklar birgðir hergagna til sfcæruili ða. Cabot Lodge í Washington Henry Cabot Lodge, sendi- herra' Bandaríkjanna í Saigon, er nú kominn til Washington og ræddi hann þar í gær við John- son forseta um ástandið í Viet- nam. Ný finnsk stjórn í næstu viku HELSINKI 11/5 — Rafael Paasio leiðtogi finnskra sósíaldemókrata, iagði í dag fyrir væntanlega samstarfsflokka í nýrri ríkis- stjóm tillögur um stefnuskrá hennar. Viðræður um einstök atriði stefnuskrárinnar hafa geng- ið svo vel að sýnt þykir að nú sé ekki lengur neitt því til fyrir- stöðu að mynduð verði sam- steypustjórn stærstu flokkanna þriggja, sósía’ldemókrata, Mið- flokksins og Lýðræðisbandalags kommúnista og vinstrisósíalista, og jafnvel líkur á að Sænski flokkurinn og Frjálslyndi flokk- urinn muni einnig vilja taka þátt í stjórninni. Búizt er við að gengið verði að fullu frá stjómarmynduninni í næstu viku. Þessi mynd birtist fyrst í franska vikublaðinu „Paris-Match“ og er tckin af frcttamanni þess og ljósmyndara í Suður-Víctnam, Sean Flynn (syni kvikmyndaleikarans Errols Flynn). Maðurinn sem hangir á fótunum upp í trcnu hafði orðið á vegi málaliða Saigonstjórnarinnar og hafði cngin skilríki á sér. Hann var hengdur upp í tréð þegar hann fékkst ekki til að játa að hann væri skæruliði. Talsmaður Bandaríkjastjórnar: Hafnar samningi við Kína um að beita ekki kjarnavopnum Bandaríkjamenn segja að sprengimagn kjarnasprengju Kína í fyrradag hafi samsvarað 130.000 TNT-lestum WASHINGTON 11/5 — Talsmaður bandaríska utanríkis- málaráðuneytisins viðurkenndi í dag að Bandaríkjastjórn hefði hafnað ítrekuðum tilmælum kínversku stjómarinnar að ríkin gerðu með sér gagnkvæman samning sem skuld- byndi þau að þeita aldrei kjarnavopnum hvort ge'gn öðru. McCloskey, blaðafulltrúi ráðu- neytisins, var að því spurður þegar hann ræddi við blaða- menn í Washington í dag um síðustu kjapnasprengingu Kín- verja hvort það væri rétt sem Sjú Enlæ, forsætisráðherra Kína, hefði sagt að Bandaríkjastjórn hefði hafnað tilmælum frá þeirri kínversku um slíka gagnkvæma skuldbindingu McCloskey 'viður- kenndi að það væri rétt. Afstaða Bandaríkjastjórnar væri sú að Kínverjar hefðu að- eins lýst sig fúsa til að lofa því að beita aldrei kjarnavopnum gegn Bandaríkjunum að fyrra bragði, en enginn vissa væri fyr- ir því að við slíkt loforð yrði staðið. Slík loforð miðuðu held- Samkomulag 6 EBí eftir enn einn maraþonfund í Brussei Samið um skipan landbúnaðarmála og lokafrest fyrir samræmingu á tollum á 18 klukkustunda næturfundi BRUSSEL 11/5 — Á enn einum maraþonfundi í ráðherra- nefnd Efnahagsbandalags Evrópu tókst samkomulag í nótt um skipan landbúnaðarmála og lokafrest fyrir samræm- ingu á tollum á innflut.ningi sexveldanna frá öðrum ríkj- um. Síðasti fundur ráðherranna stóð samfleytt í átián klukkustundír na mnnaði oft mjóu að upp úr slitnaði. Það var ágreiningur um sk'p-1 an landbúnaðarmála, verðlag og verðjöfnun á landbúnaðarafurð-; um, sem varð til þess sl, sumar; að Frakkar hættu í rauninni öllu samstarfi innan bandalagsins,: svo að stofnanir þess máttu j heita í lamasessi í rúml. hálft ár. Aðalatriði samkomulagsins sem gert var í nótt eru þessí: L. Samkomulag varð um skip- an landbúnaðarmála og stofnun sjóðs sem bæði á að styrkja út- flutning á landbúnaðarafurðum iil annarra ríkja og aðstoða við að gera landbúnað aðidarríkj- anna arðbærari. Sjóðnum eru ætlaðir um 75 miljarðar króna í tekjur árlega. 2. Frá 1. júlí 1968 verða af- numin öll höft á verzlun með landbúnaðar- og iðnaðarvörur milli .sexveldanna og verða þá afnumdir allir tollar á þeim innan bandalagsins. 3. 1. júlí 1968 erða einnig toll- ar allra aðildarríkjanna á inn- flulning frá öðrum ríkjum sam- ræmdír. En þótt þetta samkomulag Framhald á 9. síðu. ur ekki á neinn hátt að almennri afvopnun. Blaðafulltrúinn sagði að Kín- verjar hefðu fyrst lagt þetta til í opinberri yfirlýsingu fyrir einu ári, en síðan hefðu þeir ítrekac þá tillögu í beinum viðræðum við fulltrúa Bandaríkjanna Sennilega er þar átt við fundi þá sem haldriir eru annað slagið milli sendiherra Bandaríkjanna og Kína í Varsjá. 130.000 lestir af TNT Áður háfði McCloskey skýr blaðamönnum frá því að þriðja kjarnasprengja Kínverja sem sprengd var á mánudag hefð haft sprengimagn sem samsVar aði 130.000 lestum af TNT Sprengjan var öflugri en í fyrstu var talið, sagði hann. I gær hafði verið sagt í Washington að sprengimagnið hefði samsvar- að um 20.000 lestum af TNT eða verið sambærilegt við spreng magn fyrstu kínversku kjarna sprengnanna tveggja og þeirrar sem Bandaríkjamenn vörpuðu Hiroshima. Enn væri þó o snemmt að fullyrða að Kínverj ar hefðu sprengt vetnissprengju. Fyrstu geislavirku agnirnar frá þriðju kjarnasprengingu Kín- verja bárust yfir norðurhluta Japanseyja í morgun. Sumar agnirnar höfðu allt að sex sinn- um meiri geislavirkni en mæld- ist eftir fyrri sprengingarnar tvær og vísindamenn við Niigata- háskóla segja að geislavirknin muni nú vera tvisvar-þrisvar sinnum meiri að jafnaði en í bau skipti. t Washington var sagt í gær- kvöld að ekki væri ástæða til að búast við að skaðlegt geisla- virkt úrfelli frá sprengingunni myndi berast til Bandaríkjanna. Hvers vegna ég varð kommúnisti Úr varnarræðu Abrams Fischers Á mánudaginn var suðurafríski lögmaðurinn Abram Fischer dæmdur í ævilangt fangelsi í Pretoria fyrir baráttu sína gegn kynþáttakúguninni. Fischer sem er einn kunnasti lögmaður Suður-Afríku, og af einni helztu Búaætt lands- ins, sonarsonur forseta Oranje-frírikisins, gekk í Kommún- istaflokk Suður-Afríku, mcðan starfsemi hans var leyfð. Hér fer á eftir kafli úr varnarræðu hans fyrir réttinum í Pretoria, en þar gerir hann grein fyrir því hvers vegna hann gekk í kommúnistaflokkinn. Þessi kafli er þýddur úr brezka vikublaðinu „The Observer‘‘. Búar eru hér, eins og nú er venja orðin, kallaðir Afríkanar. Réttur er haldinn yfir mér sökum stjórnmálaskoðana minna og fyrir þær athafnir mínar sem þessar skoðanir leiddu af sér. Hvað sem ákærurnar gegn mér eru kall- aðar, stafa þær allar af því að ég hef verið félagi í kommúnistaflokknum og af starfi mínu í honum. '*É.g hóf það starf vegna þess að ég áleit að það væri skylda mín £ því hættuástandi sem skap- að hefur verið í Suður-Afriku. Ég fellst á þá meginreglu að hlýða beri lögum sem sett eru ’ t’.l verndar þjóðfélaginu. En þegar lögin sjálf brjóta í bága við siðgæðið og krefjast þess af þegninum að hann taki þátt í skipulögðu kúgun- arkerfi — þó ekki sé nema með þögn og afskiptaleysi — þá tel ég að hlýða beri æðri skyldu. ÞeSsi lög voru ekki sett tll að köma í veg fyrir útbreiðslu kommúnisma, heldur í því skyni að bæla niður andstöðu mikils meirihluta þegna okk- ar. Mér eru í huga tvær aug- ljósar ástæður fyrir því að ég gekk kommúnistaflokknum á hönd. önnur er hið hróp- lega ranglæti sem ríkir og hefur lengi ríkt í suðurafrísku þjóðfélagi. en hin er sú, að mér varð smám saman Ijóst eftir því sem ég tók æ' meiri þátt í starfsemi Þjóðþings- hreyfingarinnar, þeirrar hreyf- ingar sem stefnir að frelsi og jöfnum mannréttindum öllum til handa, að það voru ævin- lega félagar úr kommúnista- flokknum sem voru reiðubún- ir, hvað sem í húfi var, að fórna mestu, að gefa það sem þeir áttu dýrmætast, að leggja í mestu hættumar í barátt- unni gegn fátækt og misrétti. Allir þeir sem ekki eru, blindaðir af fordómum geta séð hið hróplega ranglæti .... Allir hvítir Suður-Afríkumenn geta séð það. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra lætur það ekkii á sig fá. Annaðhvort verða þeir þess ekki varireða afsaka það á þeirri tilbúnu forsendu, opinskátt eða undir niðri, að þeldökka fólkið í landi okkar sé af óæðri stofni, að hugsjónir þess, vonir og draumar séu aðrir en okkar. Það er rétt að apartheid hefur verið til áratugum sam- an með öllu sem því hefur fylgt, frá aðskilnaði kynþátt- anna og réttindasviptingu til þess sem mætti virðast lítil- Viðræður Nasssrs og Kosygins KAÍRÓ 11/5 — 1 dag hófust í j Kaíró formlegar viðræður þeirra Kösygins forsætisráðherra Sovét- ríkjanna og Nassers forseta, en \ Kosygin kom í gær til Kaíró "£ átta daga opinbera heimsókn Siðar f dag var ætlunin að þei'-; færu flugleiðis til Assúan-stífl- unnar í Níl sem gerð var með aðstoð Sovétríkjanna. fjörlegt atriði að í blöðum okkar Afríkana er Afríku- maðurinn á teikningum jafn- an sýndur eins og eitthvert millistig milli apa og banda- rísks svertingjaþræls á nítj- ándu öld. En það sem landar minir, Afríkanar, átta sig ekki á, vegna þess að þeir hafa hætt öllum samskiptum við þel- dökkt fólk, er að þeim er gef- ih öll sökin á því hvernig of- sóknirnar hafa magnazt síð- ustu fimmtán árin. Þeim er kennt um allar hörmungar og auðmýkingar apartheids. Það er þess vegna sem lög- reglumenn eru nú kallaðir „Hollendingar“. Og það erlíka þess vegna að þegar ég tek Afríkumann upp í bil minn, neitar hann að trúa því að ég sé Afríkani. Allt veit þetta á illt fyrir okkur. Af þessu hefur sprott- ið djúpstætt hatur í garð Afríkana, til tungu okkar stjórnmálaskoðana og viðhorfs Vneðal þeldökks fólks — já jafnvel meðál þeirra sem reyna að komast til metorða með því að þykjast styðja apartheid. Það er að gereySa allri trú þeldökkra manna að nokkurn tíma verði hæg að vinna með Afríkönum. Til þess að brjóta niðui þennan múr mun þurfa alla stjórnvizku og allt áhrifavalc þeirra þjóðþ'ngsleiðtoga sem nú eru í fangabúðum og fang elsum'fyrir stjórnmálaskoðan ir sínar. Til þess verða Afrík anar einnig að mótmæla mis réttinu opinskátt og afdráttar- laust. Allar þær. athafnir mína sem ég er ákærður fyrir hafa miðað að því að halda upp tencíslum og skTningi mill kynþáttanna hér í landi. E þær geta orðið til þess þót síðar verði að hjálpa til a brúa bilið milli leiðtog hvítra manna og þgldökkra svo að þeir geti ráðið örlög um okkar allra ’með samnina u.m en ekki vopnavaldi, mun ég geta borið af hugprýð hvern bann dóm sem hé kann að verða kveðinn up yfir mé-. Það mun að minnst kosti verða mér stoð að é veit að í 25 ár hef ég enga bátt tekið. ekki einu sinn rtieð óvirku afskiptaleysi. f þ\ viðbióðs'Ieea misréttisker: sem við höfum komið upp bessu landi og alræmt er orð ið í öllum hinum siðmennt BRUSSEL 11/5 — Real Madrid vann í dag Evrópubikarinn í knattspyrnu í sjötta sinn með því að sigra Partizan frá Bel- grad með 2 gegn 1. eftir 0:0 i hálfleik. Þetta er í áttunda sinn ó ellefu árum sem Real Madrid kemst í úrslit og hefur aðeirts tapað þeim tvisvar fyrir Benfica og Inter.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.