Þjóðviljinn - 12.05.1966, Page 5
Fimmtudagur 12. maí 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
ÆSKAN
OG SOSiALISMINN
MÁLGAGN ÆSKULÝÐSFTLKINGARINNAR - Ritn.: ARNMUNDUR BACHMANN, RANNVEIG HARALDSDÓXTIR og ÖRN ÓLAFSSON
Munií G-lista fundinn í
Austurbæjarbíói / kvöld
Alþýðubandalagið í Reykjavík heldur opinberan fund um
borgarstjórnarkosningarnar í kvöld kl. 9 í Austurbæjarbíói.
Stuttar ræður og ávörp flytja: Guðmundur Vig-
fússon, borgarfulltrúi, Sigurjón Björnsson, sál-
fræðingur, Jón Snorri Þorleifsson, formaður
Trésmiðafélags Reykjavíkur, Guðmundur J.
Guðmundsson, varaformaður Dagsbrúnar, Guð-
rún Helgadóttir, menntaskólaritari, Jón Bald-
vin Hannibalsson, hagfræðingur, Björn Ólafs-
son, verkfræðingur og Svavar Gestssón stud.
jur. Fundarstjóri verður Þórarinn Guðnason
læknir. Ungt fólk er hvatt til að fjölmenna á
fundinn.
Guðrún
Ungt fólk er hvatt til að fjölmenna á fundinn
Framsókn gengur klofin
til kosninga 22. maí n.k.
Innan Félags ungra fram-
sóknarmanna í Reykjavík er
nú sem endranær verulegur
klofningur, sem ekki er séð
fyrir endann á. Sem fyrr berj-
ast þar um völdin Varðbergs-
þiltar, sem fylgja hægri armi
Framsóknarflokksins, með Tóm-
ás Karlsson fyrrv. formann
FUF í Reykjavík í fararbroddi,
vinstri-menn, sem starfað hafa
í Samtökum hernámsandstæð-
inga svo og fylgismenn núver-
andi formanns Sambands ungra
framsóknarmanna örlygs Hálf-
dánarsonar, scm. fimastir cru í
þeim pólitíska vopnaburði
Framsóknarflokksins að vera
bæði með og móti hernámi,
Náto, sjónvarpi, aúmín og kís-
iléiir.
Inn í þessar ,,hugsjónadeilur“
blandast svo hatröm persónu-
lég valdastreita innbyrðis milli
.rbánna um það hverjir taka
éigi við stjórnartaumunum í
Frámsóknarflokknum, þeigar
fram líða stundir.
Glaumbæjarfundurinrt
Eins og mönnum er i fersku
minni urðu þessar deilur opin-
ÓLAFUR BALDUR
— móti her — móti her
TÓMAS DANÍEL
— mcð hcr með og móti her
berar s.l. haust, þegar FUF í.
Reykjavík boðaði til aðalfund-
ar í Glaumbæ. Á þeim fundi
var smalað á báða bóga og lá
ekki Ijóst fyrir hvort um var
að ræða almennt liðsboð vinstri
og hægri manna í félaginu,
a.m.k. gekk örlygur Hálfdán-
arson ötullega fram í því að
boða sína liðsmenn á fundinn
og tryggja sér þar endanlega
öruggan frama f hinum pólit-
iska stjörnuhimni Framsóknar-
flokksins. Má í því sambandi
geta þess að örlygur smalaði á
fundinn unglingaskara Og
kra^fðist þess að þeir fengju
inngöngu í félagið og þar með
fullan atkvæðisrétt, þegar
ganga átti til stjórnarkosninga.
Urðu endalok þessa sögulega
fundar á þá leið að nær helm-
ingur fundarmanna gekk af
fundi, þar með taldir allir
Varðbergsmenn. en örlygur lét
kjósa nýjan formann í stað
Tómasar Karlssonar, sér hlið-
hollan, Daníel Halldórsson.
Það atti þó ekki fyrir Daníel
að liggja að stjórna félaginu
lengi, því að rokkrum vikum
síðar var honum hi-undið úr
formannssæti, Má segja að
hundadagar Daníels hafi verið
skemmri en til 'var ætlazt. í
stað stjórnar, sem örlygurhafði
hróflað saman, var nú soðin
saman sú sundurþykkasta stjórn,
sem ríkt hefur í FUF í Rvík.
Er óhætt að segja að þar ægi-
saman Varðbcrgsmönnum, her-
námsandstæðingum og örlygs-
mönnum, og er þar hver hönd-
in upp á móti annarri, eins og
að líkum lætur.
Örlygi sparkað!
Þegar framsóknarmenn i
Reykjavík birtu framboðslista
sinn til borgarstjórnarkosniriga
vorið 1962 var farið mörgum
fögrum orðum um listann og
þá ungu atgervismenn, sem á
honum voru. Þar var m.a. af-
rekslisti Örlygs Hálfdánarsonar,
formanns Sambands ungra
framsóknarmanna, rakinn lið
fyrir lið. Var t.d. tekið fram að
Örlygur hafi setið í stjórn FUF
í Reykjavík í nokkur ár og
vCTið formaður SUF síðan 1960.
Örlygur skipaði þá 5. sæti list-
ans eins og reyndar líka fyrir
kosningarnar 1958. En nú vill
svo kynlega til að í borgar-
stjórnarkosningunum í ár, fyr-
irfinnst fqj'maður Sambands
ungra framsóknarmanna ekki á
listan'im!
Ástæðan liggur auðvitað í
þeim hatrömmu deilum, sem
nú blossa í bessum furðulega
félagsskap.
1 kvöld boðar FUF í Reykja-
vík til fundar í Lidó og er
ungu fólki sérstaklega boðið á
fundinn, og kynnast þar af eig-
in raun þeirri samansuðu mis-
munandi hagsmunahópa, sem
fram að þessu hafa barizt um
völdin í félaginu. Þar munu
m.a. halda ræður hernámsand-
stæðingarnir Baldur Öskarsson
og Ólafur Ragnar Grímsson,
Varðbergsmcnnirnir Tómas
Karlsson og Jón A. Ölafsson
og örlygsmaðurinn Daníel
Halldórsson. Ekki er talið ráð-
legt að hleypa örlygi að hljóð-
JÓN Örlygur
— nieð hcr — af hverju
sparkað?
nemanum og er hann því fund-
arstjóri.
Ritnefnd æskulýðssíðunnar er
það. auðvitað þvert um geð að
i'ifja upp hér hinar hatrömu
deilur kaldrifjaðra forustu-
manna FUF í Reykjavík, en
vegna skx-umfundarins sem nú
á að halda í Lídó í kvöld, og
smala á ungu fólki, þykir rétt
að birta í hnotskui'n sanna
lýsingu á ungum fi-amsóknar-
mönnum í dag, ef það mætti
verða til þess að hægt væri að
svipta þeirri pólitísku sauðar-
gæru, sem forustumenn Fram-
sóknar skríða jafnan undir rétt
fyrir kosningar.
G-listinn, listi
unga fóiksins!
Fyrir þessum atriðum munu borgarfulltrúar
G-listans m.a. berjast:
J Komið verði upp æskulýðsheimilum í sem
flestum hverfum borgarinnar.
Byggð verði miðstöð fyrir æskulýðsfélögin
í borginni á þeim stað, sem heppilegastur
verður talinn.
^ Aukinn verði fjárstyrkur og fyrirgreiðsla
til íþróttafélaganna.
^ Unnið verði að því að koma upp í nágrenni
borgarinnar tjaldbúðasvæði fyrir æskufólk.
^ íþróttahúsið í Laugardal verði fullgert fyrir
næstu áramót og lokið verði að fullu bygg-
ingu íþróttaleikvangsins í Laugardal.
Q Hafinn sé undirbúningur að því að koma upp
varanlegum æskulýðsbúðum í nágrénni
borgarinnar.
J Lokið verði byggingu sundlaugarinnar í
Laugardal og byggðir búningsklefar við
Sundlaug Vesturbæjar.
g Sköpuð verði aðstaða til skautaiðkana í
borginni og aðstaða til skíðaiðkana í ná-
grenni borgarinnar stórlega bætt.
Q Starfsemi æskulýðsráðs verði stórlega efld
og því séð fyrir nægu fjármagni til að
sinna hinum fjöl-
mörgu vandamál-
um unga fólksins.
|Q Skipulagt verði full-
komið útivistar-
svæði og sundstað-
ur í Nauthólsvík og
framkvæmdir hafn-
ar.
Yngstu frambjóð-
endurnir eru á
G-LISTANUM
□ Andstæðingar G-listans hafa nú sem oft áðut
hafið skrumherferð á hendur æskunni í borg-
inni. ,,Listi unga fólksins”, ,,ungt fólk í frám-
boði” o.þ.h. hafa oft og. einatt verið aðalfyrir-
sagnir blaða andstæðinga G-listans. Æskulýðs-
síðunni þykir rétt að hrekja þessi ósannindi í
eitt skipti fyrir öll.
□ Þegar athugaður er aldur 10 efstu frambjóð-
enda listanna í Reykjavík, kemur í ljós að
meðalaldur frambjóðenda G-listans er lang
lægstur eða 35,8. Áldur 10 efstu frambjóðenda
hinna listanna er þessi: Alþýðuílokkur: 43,3,
Framsóknarflokkur: 39,3 og Sjálfstæðisflokk-
ur: 40,4.
□ Ennfremur skal tekið fram að 8. frambjóðandi
Alþýðubandalagsins, Svavar Gestsson stud.
jur., er yngsti frambjóðandinn í borgarstjórn-
arkosningunum í Reykjavík, 21 árs. Hann er
því verðugur fulltrúi þeirrar æsku sem nú í
fyrsta skipti gengur að kjörborðinu.