Þjóðviljinn - 12.05.1966, Síða 6
V
g SlÐA — ÞJÖÐVILJINN — Fimmtudagur 12. maí 1966.
HITAVEITUMÁL
I BORGARMALUM
í hitaveitumálum mun Alþýðubandalagið beita
sér fyrir eftirfarandi:
1
Undinn sé að því bráður bugur að afla borginni
nægrar jarðvarmaorku til þess að fullnægja þörf-
um hennar. í þessu skyni verði þegar hafnar bor-
anir í borgarlandinu og að Reykjum í Mosfellssveit
og fullkannað hvort þar megi ekki fá viðbótar-
orku. Jafnframt verði unnið áfram að því að und-
irbúa nýjar virkjanir, fjær borginhi, ,á Hengils-
svæðinu, í Krísuvík eða annarsstaðar, sem til
greina getur komið. Tæki þau, sem borgin hefur
til umráða í því skyni að afla nýrrar orku verði
nýtt, en ekki látin standa ónotuð. eins og átt
hefur sér stað á undanförnum þremuy árum.
Þar sem heita má að varmaorka borgarinnar sé
nú fullnýtt og þar sem ekki getur hjá því farið
að nokkur ár þurfi til undirbúnings og fram-
kvæmda á nýjum virkjunum, verði nú þegar haf-
izt handa við að reisa nægar kyndistöðvar í því
skyni að brúa það árabil, sem verður þar til
nýjar virkjanir komast í gagn, svo ekki komi til
þess að húsbyggjendur verði að eyða fé í kvndi-
tæki, katla og húsrými undir þessi tæki, sem
aðeins verða nýtt í stuttan tíma
Kappkostað verði að hitaveitan geti þegar í byrj-
un fullnægt hitaþörf nýbygginga.
Lögð verði séfstök áherzla á að sjá hitaveit-
unni fyrir nægum starfskröftum sérmenntaðra
manna til þess að undirbúningur tefjist ekki og
að sú varmaorka, sem fyrií hendi er nýtist sem
bezt og veitukerfi og mannyirki svari bezt til-
gangi sínum. í þessu skyni verði hafin tafarlaust
sú upplýsinga- og leiðbeiningarstarfsemi, sem
hingað til hefur verið vanrækt.
Tafarlausar ráðstafani'r verði gerðar til að koma
í veg fyrir að það ófremdarástand endurtaki sig
að hitaveitan bregðist með öllu í gamla bænum
svo sem var á sl. vetri. Innanborgarkerfi gömlu
hitaveitunnar verði allt gaumgæfilega athugað
þegar í stað og það endurbætt eftir þörfum. Rann-
sakað sé hvort ekki er heppilegt að leggja nýtt
og tvöfalt hitaveitukerfi í þéttbýlustu hluta gamla
bæ'jarins og þá sérstaklega miðbæinn, til þess
að tryggja betri nýtingu á varmaorkunni.
Hraðað verði smíði nýrra hitaveitugeyma á Öskju-
hlíð.
Aðfærsluæðin verði athuguð og endurbætt, eink-
um sá hluti hennar, sem flytur varmann frá
kyndistöðinni við Elliðaár til borgarinnar.
Hitaveitunni séu tryggðir starfskraftar til nauð-
synlegrar þjónustu við notendur.
SKIPULAGSMÁL
Alþýðubandalagið vill beita sér fyrir eftirfarandi
ráðstöfunum í skipulagsmálum borgarinnar:
1
?..
Skipulagsdeild borgarinnar sé tryggð hæf forusta.
Skipulagsstjóri sé með sérþekkingu á skipulags-
málum. Skipulagsdeildinni sé séð fyrir nægum
og hæfum starfskröftum til þess að anna verk-
efnum sínum. #
3.
Skipulagi og uppbyggingu borgarinnar verði hag-
að } samræmi við hið nýja aðalskipulag. Þess sé
gsett að ganga í tíma frá fullnaðarskipulagi íbúð-
arhverfa. er miðist við þarfir næstu fjögurra eða
fimm ára, þannig að unnt sé að gera vel undir-
búnar verkáætlanir, bæði um framkvæmdir í því
skyni að gera íbúðarsvæðin byggingarhæf og um
sjálfar húsbyggingarnar.
Unnið sé að því að breytt verði lagaákvæðum
um eignarnám á lóðum og mannvirkjum vegna
nýskipulagningar eldri borgarhverfa, eða aðrar
ráðstafanir gerðar, svo hægt sé að hefjast handa
um skipulega endurbyggingu gamla bæjarins og
breikkun umferðargatna, þ.e. á svæðinu innan
Hringbrautar og Snorrabrautar.
IEfnt sé til almennrar hugmyndasamkeppni innan-
• lands eða á víðtækari grundvelli um einstaka
þætti aðalskipulags borgarinnar og þá fyrst og
fremst um mikilvægustu verkefni eins og skipu-
1ag nýja miðbæjarins við Kringlumýrarbraut.
• Hinir kjömu fulltrúar í skipulagsnefnd borg-
*• arinnar skulu vera arkitektar og með sérþekkingu
í skipnlagsmálum, sé þess kostur.
Við myndun hverfa í gamla bænum eða væntan-
legri nýrri byggð, sé tryggt að ákveðnar séu og
mótaðar miðstöðvar fyrir verzlunar-, menningar-
og félagslega þjónustu og jafnframt komið í veg
fyrir tilviljanakennt fálm hins óhefta einkafram-
taks.
7.
8.
9.
10.
11.
Lögfestur sé verðhækkunarskattur á fasteignir,
sem hækka í verði vegna skipulagsaðgerða borg-
arinnar eða -annarra ráðstafana bæjarfélagsins.
Skattur þessi renni í skipulagssjóð og sé varið til
að kosta nauðsynlegar skipulagsbreytingar.
Við skipulag miðborgarinnar og framkvæmd þess
verði sérstakt tillit tekið til menningarsögulegra
minja og þess gætt að ekki raskist of mikið hið
sérkennilega svipmót eldri borgarhluta.
Leitað verði ráða þjóðfélagsfræðinga, þegar ný
hverfi eru skipulögð eða eldri hlutum borgarinn-
ar breytt.
Leitazt verði við að fegra og snyrta borgina. Lögð
sé meiri áherzla eftirleiðis en hingað til á að
menn 'ljúki við mannvirki og lóðir.
Listamenn verði fengnir til að skreyta opinberar
byggingar á vegum borgarinnar og til þess varið
ákveðnum hluta byggingarkostnaðar.
Frá kosningastjám Alþýðubandalagsins
A1J&YÐTJ
BANDALAGIÐ
□ UTANKJÖRFUNDAR-
KOSNING stcndur yfir. I
Reykjavík er kosiö í gamla
Búnaðarfclagshúsinu við Uækj-
argötu, opið alla virka daga
kl. 10—12 f.h., 2—6 c.h., cn á
sunnudögum kl. 2—6 c.h.
Cti á iandi cr fcosið hjá
öllum bæjarfógetum og hrepp-
stjórum. Skrá yfir kjörstaði
erlendis og LISTABÖKSTAFI
Alþýðubandalagsins er birt á
öðrum stað f blaðinu. Þeir,
sem dvclja fjarri hcimilum
sinum á kjördag þurfa að
kjósa strax, og cru allir
stuðningsmenn Alþýðubanda-
lagsins beðnir að gefa kosn-
ingaskrifstofum okkar allar
nauðsynlegar upplýsingar um
þá, sem fjarvcrandi eru.
n KOSNINGASKRIFS^OF-
UR Alþýðubandalagsins i •
Rcykjavík sem þegar hafa
verið opnaðar, eru f Tjarnar-
götu 20, opið kl. 9 f.h. til 22
c.h. alla daga, símar 17512,
17511 og 24357 og að Laufás-
vegi 12 opið kl. 9—19, símar
21127 og 21128. Báðar skrif-
stofurnár vcita allar almenn-
ar upplýsingar varðandi
kosningarnar. Ag Laufásvegi
12 er einnig hverfisskrifstofa
fyrir Vesturbæ innan Hring-
brautar og Þingholt. .
□ HAPPDRÆTTI og
KÖNNUNARLISTAR. Allir
þeir, sem fengið\ hafa senda
könnunarlista eða miða f
kosningahappdrætti Alþýðu-
bandalagsins eru beðnir að
gera skil nú þcgar. A kosn-
ingaskrifstofunum er cinnig
tckið við framlögum í kcsn-
íngasjóð og scldir miðar i
kosningahappdrættinu, en í
því vcrður drcgið daginn eft-
ir kjördag.
□ SJALFBOÐALIÐAR,
scm starfa vilja fyrir Alþýðu-
bandalagið fyrir kjördag og á
kjördag cru beðnir að láta
skrá sig á kosningaskrifstof-
unum.
□ BlLAU. A kjördag þarf
Alþýðubandalagið á að halda
öllum þeim bílakosti, sem
stuðningsmenn þess hafa yfir
að ráða. Eru bíleigendur
sérstaklega beðnir að vera
viðbúnir og láta skrá sig nú
þcgar til starfs á kjördag.
1.