Þjóðviljinn - 12.05.1966, Page 8
0 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN — Finrmtudagur 12. maí 1966.
• SAS-menn í kynnisferð
• Nýlega komu liingað í kynnisfcrð tvcir íulltrúar frá SAS flug-
félaginu, þeir K.A. Kristianscn yfirmaður sölustarfscmi SAS um
allan heim og Chr. Hunderup siilustjóri fclagsins i Danmörku.
Sjást Kristiansen hér á myndinni (til vinstri) ásamt umboðsmanni
SAS hér á landi, Birgi Þórhallssyni og konu hans frú önnu
Snorradóttur, sem stjórnar barnatímum í útvarpinu.
• Svar til
Mývatnsskottu
• Nýlega birtist hér á síðunni
bragur til Mývatnssveitar frá
Mývatnsskottu, og nú hefur
„burtflutt kona úr Mývatns-
sveit“ sent okkur eftirfarandi
svar til Mývatnsskottu:
Hendir Skottu háð og spé
þó heimskan lengi tóri,
en hálfu verri held ég sé
Húsavíkur móri.
Verra efni veit ég ei
þar vítis eldar brenna,
en að segja sveit mín SVEl
þá sorgar tár mín renna.
V.B.
Sama kona sendir kveðju til
Karls Kristjánssönar alþingis-
manns og sveitarstjóra á Húsa-
vík og í Mývatnssveit:
• Avinningur og tap
0
Um embœttastigann hann fikrandi fór
með festu, en varúð og hægð.
Og ættjörð og stjórnarskrá eiðana sór
af alkunnri, marklausri þægð.
Metorðin uxu, en manngildið þvarr,
þar mörg eru dæmin til sanns.
Og síðan hann hefur ei borið sitt barr
í baráttu þjóðar og lands.
HUGALL.
• Matthías, drottinn og rykkornin
samanber 38. sálm Mbl.ritstjórans, sem Austri birti í
Þjóðviljanum 23. april sl.
Mývetningar „gullgrafara
lýður“
Keflavík hér og Keflavík
þar,
kotbœndur og dollarar.
«
Moka þeir upp allan ytri
flóann.
Þannig Kanar kaupa sál
fyrir kísilgúrans drullumál.
V.B.
• Glettan
„Ég vildi helzt sameina öll
lánin sem ég hef tekið í eitt.
Það hlýtur að vera miklu auð-
veldara að neita einum manni."
• Meðreiðar-
menn ganga
með þingnefnd
• Þetta er álíka fullyrðing og
þegar þingnefnd hélt þvi fram
fyrir nokkru að heimur hefði
Tvö rykkorn Matthías miðar við 'drottin,
þau mestu á jörð.
Á Korsíku og íslandi eru þau sprottin,
og ámóta gjörð.
Með keisara þurfti guð þrátt að baksa,
— hina þrjózklyndu sál.
En rykkornið okkar má vitkast og vaxa
í viðreisn og ál.
Gamansamur.
skolfið og stórveldin hefðu gert
með sér samninga um bann við
kjamorkutilraunum, vegna þess
að hann og lítill hópur komm-
únista ásamt meðreiðarmönnum
hefðu farið í gönguferð milli
Keflavíkur og Reykjavíkur.
(Úr raeðu Péturs Sigurðssonar
þingmanns í útvarpsumræðum
— skv. texta Moggans).
• Mesta
harmsagan
• í Osló var á þriðjudaginn
haldinn kappræðufundur milli
norska stúdentafélagsins og
stúdentafélagsins í Oxford. Um-
ræðuefnið var: „That this House
Resoives that Leif Eiríksson’s
Discovery of America was the
Greatest Tragedy in Human
IIistory“ (Fundurinn ályktar að
það hafi verið hörmulegasti at-
burður mannkynssögunnar nð
Leifur Eiríksson fann Ameríku).
Formaður Oxford Union, Jos-
hua Bamfield, íór hörðum orð-
um um Leif, ekki fyrir' það að
hafa fundið Ameríku, heldur
hitt að hafa ekki numið þar
land. Afleiðingin hefði orðið að
enijjdr trúarofstækismenn hefðu
tekið sér þar bólfestu löngu
síðar, og því hefði farið eins
og fór.
• Leiðrétting
• 1 frétt í Þjóðviljanum í gær
um námskeið veitinga- og gisti-
húsaeigenda var ranghermt, að
Wilhelm Wessman hefði mat-
reitt síldar- og fiskrétti sem
þar voru á borð bornir. Wil-
helm sá um framreiðslu en
matreiðslumaður var Sveinn
Friðfinnsson, kennari við Mat-
sveina- og veitingaþjónaskól-
ann. Eru hlutaðeigandi beðnir
velvirðngar á þessum mil9-
tökum.
13.00 Eydís Eyþórsdóttir stjórn-
ar óskalagaþætli fyrir sjó-
menn.
15.00 Miðdegisútvarp. Eggert
Stefánsson syngur. A. Nicol-
et og hljómsvcit leika Flautu-
konsert í D-dúr eftir Haydn;
K. Richter stjórnar. E. Berg-
er, L. Otjo, R. Schock, G.
Unger, G. Frick, kór og
hljómsveit flytja atriði úr
Brottnáminu úr kvcnnabúr-
inu, eftir Mozart; W.
Schuchter stjómar. Suisse
Romande hljómsveitin leik-
ur Stenka Rasin. sinfónískt
ljóð eftir Glazunoff; E.
Ansermet stjórnar. Hljóm-
sveit Ch. Mackerras leikur
Valse triste eftir Sibelius.
16.30 Síðdegisútvarp. Kór t)g
hljómsveit R. Conniffs, H.
Zacharias og hljómisveit, G.
Sönck, N. Riddle og hljóm-
sveit, B. Streisand, og Mant-
ovani og hljómsveit lei,ka
þjóðlög frá ýmsum löndum.
18.00 Lög úr söngleikjum og
kvikmyndum.
20.00 Daglegt mál.
20.05 Konsert í F-dúr eftir
Vivaldi-Bach. E. G. Sartori
lekur á sembal.
20.15 Ungt fólk í útvarpi. Bald-
ur Guðlau,gsson kynnir þátt
með blönduðu efni.
21.00 Sinfóníuhljómsveit Is-
lands heldur tónleika í Há-
skólabíói. Stjórnandi: I. Buk-
etoff. Söngkona: Adele Addi-
son frá Bandaríkjunum. a)
Sinfónía nr. 100 eftir Haydn.
b) Exultate, jubilate, eftir W.
A. Mozart.
21.45 Kvæði eftir Davíð Ás-
kelsson. Baldvin Halldórs-
son leikari les.
22.15 Mynd í spegli, eftir Þóri
Bergsson. Finnborg ömólfs-
dóttir og Arnar Jónsson lesa.
22.35 Djassþáttur. Ölafur Step-
hensen kynnir.
23.05 Bridgeþáttur. Hjalti Elías-
son og Stefán Guðjohnsen
ræðast við.
• Brúðkaup
• Laugardaginn 16. apríl voru
gefin saman af séra Áreliusi
Níelssyni ungfrú Guðný Helga-
dóttir og Stefán Jónsson. Heim- ‘
ili þeirra verður að Klepps-
vegi 120. (Ljósmyndastofa Þóris,
Tímeaveei 20hV
• Sumardaginn fyrsta voru gef-
in saman í hjónaband af séra
Ölafi Skúlasyni ungfrú Ingveld-
ur Þórarinsdóttir og Ingjaldur
Indriðason. Heimili þeirra
vérður að Stóra Kambi, Breiðu-
vík. (Ljósmyndastofa Þóris,
Laugavegi 20b).
• Þann 23. apríl voru gefin
saman í hjónaband af föður
brúðgumans, séra Gunnari
Gíslasyni, ungfrú Jónína
Bjarnadóttir og Stefán Gunn-
arsson. Heimili þeirra verður á
Laugarnesvegi 100. (Ljósmynda-
stofa Þóris, Laugvegi 20b).
• Sumardaginn fyrsta voru
gefin saman í hjónaband af
séra, Garðari Svavarssyni ung-
frú Dorothy Senior og Gísli
Garðarsson. Heimili þeirra verð-
ur á Reyðarfirði. (Ljósmyndá-
stofa Þóris, Laugavegi 20b).