Þjóðviljinn - 23.06.1966, Side 10

Þjóðviljinn - 23.06.1966, Side 10
/ Fimmtudagur 23. júní 1966 — 31. árgangur — 137. tölublað. Myndin er tekin rétt ádur en lögreglumennirnir lögðu af stað i sKruogonguna. — iiajosmynaan *muuvujímk> Lögreglukórarnir gerðu „lukku" □ Eins og sagt var frá 1 Þjóðviljarmm í gær fóru norrænir lögreglukórar í skrúðgöngu í Reykjavík á þriðjudagskvöldið og héldu tónleika við M-enntaskólann. □ Mikill mannfjöldi var samankominn til að hlýða á tónleikana og ennfremur fylgdust margir með skrúð- göngunni frá gángstéttunum, en gengið var frá nýju lög- reglustöðinni og sem leið lá niður að MR. Þegar kórarnir fimm höfðu gengið í . fimm fylkingum með lúðrasveit í fararbroddi eg þjóð- fána hvers lands á undan kóm- um. stilltu þeir sér upp fyrir framan Menntaskólann. Söngurinn hófst með því að lögreglukór Reykjavíkur söng nýtt lag eftir Pál Isólfsson og síðan sungu kórarnir hver af öðrum og að lokum var þetta orðinn einn allsherjarsamsöngur. Voru undirtektir hlustenda og áhorfenda frábærar og söng- mönnum óspart Klappað lof í lófa, enda þótt gárungarnir segðu að kóramir hefðu átt að syngja fyrir fangana í Síðumúla og' Steininum og stytta fangelsis- vistina um nokkrar vikur eftir þessa refsingu. En það vom sem sagt gárangarnir sem sögðu þetta. Hinir ágætu söngmenn halda jónleika í Háskólabíói í dag, en uppselt mun vera á tónleikana. 1 kvöld verður kveðjuhóf fyrir þátttakendur í Móti norrænna lögreglukóra að Hótel Sögu, en erlendu þátttakendumir — halda heimleiðis á morgun og á laug- ardag. ViBsemjendur mjólkurfræð- inganna virðast týndir! □ Mjólkurfræðingafélag íslands hefur óskað eftir því að vísa kjaradeilu sinni beint til Sáttasemjara ríkisins og hafa engir viðræðufundir farið fram við atvinnurekendur á þessu stigi málsins án sáttasemjara. □ Höfðu þeir fund með sáttasemjara síðastliðinn mánu- dag og annar fundur hefur verið boðaður í dag kl. 5. Þjóðviljinn hafði í gærdag samband vig Þórarin Sigmunds- son, mjóikurfræðing á Seifossi, en 'h^nn er formaður MjólkUr- fræðingafélags íslands. Hversvegna vísuðuð Þið deilu ykkar beint til sáttasemjara? Við höfum átt í erfiðleikum meg að finna viðsemjendur okk- ar að undanfömu til þess að árétta efndir frá samningum á síðastliðnu ári. Á undanfömum árum höfum við alltaf þurft ag nota verk- fallsvopnig til þess ,ag réttir að- ilar kæmu fram í dagsljósig til þess ag ræga vig okkur og þótti okkur rétt ag þessu sinni ag vísa deilunni Þeint til sáttasemj- ara, — hann hefur þær skyldur samkvæmt embætti sínu að draga fram mótaðilann hinum megin við borðið til þess að samningar geti farjg fram. Deiluefnið „er svokölluð ald- ursprósenta og höfðum við sam- ið í fyrra um þessa aldursprós- entu á tveim stigum, — fyrsta sti-gið var ákveðin kauphækkun- arprósenta fyrir sveina eftir tíu ár í starfi og annað stigig var svo hærri prósenta fyrir sveina eftir fimmtán ár í starfi. Þessi aldursprósenta komst til framkvæmda hjá Mjólkursam- laginu í Reykjavík, — hinsvegar uróu engar efndir á þessu hjá mjólkurbúum úti á landi. — Við höfum reynt að taka upp þráð- inn við forstjóra mjólkurbúanna úti á landi og hafa þeir visað þessu frá sér og bent á Vinnu- málasambandið hér í Reykjavík. Þeir hafa hinsvegar ekki vilj- ag vigurkenna sig sem viðsemj- endur og vísag deilunni aftur til forstjóranna, — þá höfum vig haft samband vig Vinnu- veitendasambandig og rætt þar vig tvo menn og tóku þeir kurt- eislega á þessum málum, — hinsvegar hefur ekkert komig út úr því, — þá snerum vig okkur ti.l sáttasemjara o.g kannski fáum vig ag sjá framan í vigsemjend- ur okkar í dag, — sagði Þór- ■arinn að lokum. almenníngsorku- dregst saman um 2,7% □ „Þjóðviljamim“ hefur borizt skýrsla Raf- orkumálastjóra um orkumál og er þar að finna ýmislegan fróðleik. Rútur Halldórsson, skýrir svo frá í skýrsluinngangi, að töflur um orkuvinnslu fyrsta ársfjórðungs þessa árs sýni það greinilega, að orkuvinnsla hjá almenningsorkuverum lands- ins hafi dregizt nokkuð saman, eða um 2.7 af hundraði. Mest er hér um að kenna vatnsskorti og hefur -orðið af þessum sökum að grípa til stór- aukinnar vinnslu í varmaaflsstöðvum. Þessi samdráttur sem hér um ræðir, kemur raunar nær ein- göngu fram hjá vatnsaflsstöðv- unum, en nemur þar 8,4%. All- ar vatnsaflsstöðvamar að tveim undanskildum, Rjúkandisvirkj- un og Laxárvirkjun, hafa skilað minni orku en á fyrsta ársfjórð- ungi fyrra árs, sem þó var lé- legra ár en 1964. Útför Kristins Ármanns- sonar verður gerð í dag Á myndinni sést Páli Kr. Pálsson stjórna söng íslenzka lögreglu- kórsins og í baksýn hluti af hinum mikla mannfjölda. — (Ljósm. Þjóðviljans A. K.). Skemntiferð um Rangárþing • Næsta sunnudag verður farin skemmtiferð um Rangárþing á veg- um Sósíalistafélags Reykjavikur og Kvenfélags sósíalista. • Leiðsögumaður verður Árni Böðvarsson, cand. mag. Lagt verður ’PP frá Tjarnargötu ?0 klu^kan níu um morguninn og komið til v -rgarinnar aftur klukkan sautján að kvöldi. I dag klukkan 13.30 fer fram frá Dómkirkjunni jarðarför fíristins Ármannssonar, fyrrver- andi. rektors Menntaskólans í Reykjavík. Kristinn andaðist sem kunnugt er í fyrri viku í Lund- únum, en hafði áður gengið und- ir uppskurð. Helztu æviatriði Kristins hafa áður verið rakin hér í blaðinu og skulu ekki end- urtekin nú, en með honum er fallinn í valínn einn þekktasti skólamaður íslendinga, virtur maður og vinsæll. Blóm eru af- beðin við jarðarförina. en þeim, er minnast vildu hins látna er bent á minningarsjóð, sem stofn- aður hefur verið um hann við Menntaskólann í Reykjavík. Minningarspjöld sjóðsins fást í skrifstofu Menntaskólans og hjá Eymundsson í Austurstræti. — Þjóðviljinn vpttar eftirlifandi konu og börnum Kristins Ár- mannssonar innilegustu samúð sína. Nýir dósentar Frá 15. september næstkom- andi að telja hafa eftirtaldir menn verið skipaðir dósentar við Háskóla íslands, Arinbjöm Kolbeinsson og Snorri Páll Snorrason í Læknadeild, Guð- mundur B.iörnsson, verkfræðing- ur í Verkfræðideild og dr. Ró- bert A. Ottósson í Guðfræðideild. Allir hafa þessir menn kennt áð- ur við skóann. Almenn notknn Þrátt fyrir samdrátt orkur vinnslurmar hefur almenn notk- un aukizt talsvert, eða um 8.0 af 'hundraði, yfir allt land, en um 6,5% á hinu samtengda svæð’ Sogsins. Stómotkun hefúr hins vegar dregizt mjög saman, eink- um hjá Áburðarverksmiðjunni, sem venjulega hefur notag um fjórðung af allri orku landsins. Undanfarin missiri hefur hins- vegar dregið talsvert úr sölu af- gangsorku til Áburðarverksmiðj- unnar, sá samdráttur nemur nú 63.5 af hundraði miðað við fyrsta ársfjórðung fyrra árs. Er þetta skýring á minnkandi heildarorku- vinnslu. Annars hefur orkuvinnsla auk,- izt tglsvert á að heita má öll- um orkusvæðum landsins, en helzt er þetta áberandi á Aust- urlandi; þar hefur vinnslan auk- izt um 21,8 af hundraði. Orku- Vinnsla ársins 1965 sýnir sömu tilhneigingu og kemur fram á fyrsta ársfjórðungi nú, þ.e.a.s. minnkandi orkuvinnslu í heild. Gjaldskrárhaakkanij- Allar rafveitur landsins, að einni undanskilinni, hækkuðu gjaldskrá sína á þrem fyrstu mánuðum ársins. Af töflu yfii heildsölu rafmagns fyrir árið 1965 sést,’ ag meðalverð hjá helztu virkjunum er sem hér segir; Landsvirkjun 20 aur/kWh, Andakílsárvirkjun 24 aur/kWh, Laxárvirkjun 28 aur/kWh og Rafmagnsveitúr ríkisins 34 aur/ kWh. Rafvæðingu senn lokið? Þá segir ennfremur í þessari skýrslu, að nú styttist óðum í það, að rafvæðingu íslands sé að mestu lokið. í árslok 1964 vom alls 96.3% íbúa landsins með aðgang að rafmagni, þar af 93,7% hjá almenningsrafveitum, en 2,6 af hundraði hjá einka- stöðvum. Ömurleg aðkoma 1 fyrrakvöld vom flestar rúð- ur brotnar í hragga einúm i Kamp Knox C9 og var heimilis- fólk ekki heima. Þarna býr ekkja með syni sínum og vom þau við gróðursetningu upp í Heiðmörk um kvöldið og komu heim á öðmm tímanum um nótt- ina. Var það heldur ömurleg að- koma. Sökudólgarnir reyndust nokkrir strákar í hverfinu Pg rannsakar lögreglan málið. Aðilfundur Sósí- aiEslafélagsins Aðalfundur Sósíalistafélags R- víkur verður haldinn annað kvöld. — föstudag að Tjamar- götu 20 og hefst hann klukkan ~20.30. — Venjuleg aðalfundar- störf. — Stjómin. Frá Kvenfélagi sósíalista FÉLAGSKONUR, takift þátt skemmtiferð sosíalista um Rangárþing. Uppiýsingar á skrifstofu Sósíalistafélags R- víkur. Tjarnargötu 20. sími ' 17510. 4

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.