Þjóðviljinn - 26.06.1966, Blaðsíða 1
□ Vegna hinnar árlegu skemmtiíerðar Starfsmannafélags Þjóðviljans,
á morgun, fellur þriðjuduagsblaðið niður. Þjóðviljinn kemur því næst út
miðvikudaginn 29. júní.
N j sköpunartogaTarnir, scm komu til landsins á árunum 1947 og 1948, hvcría hver af öðrum
Skemmti- !
ferðin
; □ Munið að iagt verður upp :
: i skemmtiferð Sósíalistafélags :
: Reykjavíkur og Kvenfélags ■
■ sósíalista stundvíslega kl. 9 ;
; árdegis í dag frá Tjarnargötu :
: 20. :
De Cauí/e
sér geimskot
í Kazakstan
MOSKVU 25/6. — De Gaulle
heimssekir í dag þá menn sem
einna dularfyllstir eru taldir í
Sovétríkjunum — vísindamenn
þá sem vinna að framkvæmd
geimferðaáætlunar landsins.
Hann er nú kominn til Bai-
konur í Kazakstan, þaðan sem
geimskipum er skotið á loft og
var um miðjan dag talið líklegt
að skotið yrði upp gevihnetti
forsetanum til heiðurs. Er hann
fyrsti útlendingurinn sem verður
vitni að geimskoti Sovétmanna.
í næstu viku munu Sovétmenn
og Frakkar undirrita samning um
samstarf að geimrannsóknum.
Leggsf fogaraúfgerS ser/n niður á íslandi?
47 ísl. togarar að veiðum fyrir
fimm árum — en nú aðeins 22
Fjórir togarar Klettsverksmiðjunnar seldir, 150 sjómenn missa atvinnu sína
□ Stjórnarfundur var haldinn núna í vikunni
hjá fyrirtækinu Síldar- og fiskimjölsverksmiðj-
unni h.f. að Kletti hér í Reykjavík og var ákveðið
þar að selja fjóra togara fyrirtækisins, sem allir
eru úti á veiðum núna.
n Þannig verður togurunum lagt hverjum á fæt-
ur öðrum næstu daga eftir því sem þeir koma til hafnar
og verður þá jafnframt hundrað og tuttugu togarasjómönn-
um sagt upp starfi og hverfa þeir með pokann sinn í land.
| | Togararnir heita Askur, Geir, Haukur og Hvalfell.
Þrír af þessum togurum eru nýsköpunartogarar frá árinu
1947, — að stærð 655 brúttórúmlestir hver, en Haukur,' áð-
ur nefndur Austfirðingur, var smíðaður í Skotlandi árið
1951 og er 708 brúttórúmléstir að stærð.
Nýlega var haldinn aðalfund-
ur Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna hér í Reykjavík og þar
minntist Gunnar Guðjónsson,
forstjóri, á hið mikla vandamál
serh felst í hráefnisskorti fyrir
hraðfrystihúsin vegna samdrátt-
ar bátaútgerðar- og1 togaraút-
gerðar í landinu.
Mikið áfall fyrlr atvínnulífið
Þessi rekstrarstöðvun og sala-
fjögurra reykvískra togara er
þannig mikið áfall fyrir hrað-
frystihúsin í Reykjavík, — þar
sem þeir hafa alltaf veitt drjúg-
an hluta úr árinu og selt afla
sinn hér í Reykjavík.
Hraðfrystihúsin hér í Reykja-
vík hafa svo selt fiskimjölsverk-
smiðjunni allan fiskúrgang og
heftir þetta þannig skapað at-
vinnu bæði í hraðfrystihúsunum
og fiskimjölsverksmiðjunni og
er þetta þannig áfall fyrir at-
vinnulífið í borginni.
Hörmulegt er að horfa upp a
þennan samdrátt í togaraútgerð
landsmanna en hann- stafar af
fjárhagsörðugleikum í dýrtíðinni
og virðist hvergi bóla á neinni
endurnýjun togaraflotans jafn-
framt þessum samdrætti.
Uppbygging — samdráttur
Rétt þykir að rekja á þessu
stigi í stórum dráttum togara-
kaup landsmanna frá styrjaldar-
I Lokadagur j
j vígsluhá- |
tíðarinnar
: - j
j □ Eins og getið var í fréttum :
j blaðsins í gær hlaut hið nýja ■
■ og glæsilega félagsheimili eða •
; samkomuhús á Egilsstöðum :
j nafnið Valaskjálf á fyrsta :
■ degi vígsluhátíðarinnar í :
■ fyrradag.
\ \ j
: □ Hús þetta þykir hið veg- :
: legasta og sérstaka athygii :
■ hefur vakið að þegar hefur ■
; verið gengið frá lóðinni kring- ■
j um húsið, en Svcinn bóndi :
j Einarsson í Miðhúsaseli í j
• Fellum hefur gert mjög ■
; fallega grjóthleðslu framan ■
: við bygginguna, eins og sjá :
j má af myndinni.
s \ • ■
■ ■
; □ Vígsluhátíðinni á Egils- ■
j stöðum var haldið áfram í i
: gær og enn verður sitthvað j
i til hátíðabrigða í Valaskjálfií ■
■ dag og kvöld. (Ljósm. sibl.). ; I lokum og afdrif togaranna til I hefur hvert félag rétt til þess
: :$>--—-------------------------------------------------r
dagsins í dag.
Framhald á 2. síðu.
Samningafundur hefst á Akureyri í
dag — hófst í Reykjavík í gærdag
■ í dag klukkan 13.30 hefst á Akureyri samningafund-
ur atvinnurekenda |Og verkalýðsfélaganna á Norðurlandi.
Hér er um að ræða verkalýðsfélög á svæðinu frá Blðndu-
ósi austur á Þórshöfn. — í Reykjavík voru mættir í gær
fulltrúar félaganna af Suður- og Vesturlandi og hófst
samningafundurinn klukkan 2 síðdegis.
Björn Jónsson, alþingismaður,
skýrði ÞJÓÐVILJANUM frá
þessum samningafundi í gær og
kvað lítið meira um málið að
segja á þassu stigi. 5 manna nefnd
var skipuð í vor, og eiga í henni
sæti þeir Tryggvi Helgason,
Björn Jónsson. Óskar Garíbalda-
son, Sveinn Júlíusson og Páll
Árnason.
Fjölmenna.
Auk þessarar nefndar, sem eins
og fyrr segir var skipuð í vor,
að senda einn fulltrúa til samn-
ingafundarins, ef það vill og
getur. Björn kvaðst búast við
því, að meirihluti félaganna
myndi senda fulltrúa.
Austanmenn.
Bjöm skýrði enrífremur svo
frá, að enn hefði ekkert verið
endanlega ákveðið um samn-
ingafund Austfjarðafélaganna. en
allar líkur bentu til þess, að
hann yrði haldinn eftir helgina
og þá sennilega fyrir austan.
Vestfirffingar.
Þórir Daníelsson, framkvæmda-
stjóri Verkamannasambandsins,
skýrði blaðinu svo frá í gær, að
þá myndi og hefjast á ísafirði
samningafundur. Eru það verka-
lýðsfélögin á Vestfjörðum, sem
þar setjast að samningabor^i. —
Eins og fyrr segir eru mættir í
Reykjavík verkalýðsfulltrúar af
undirbúningsfund fyrir hádegi í
gær. én settust síðan að samn-
ingaborði og stóð sá fundurenn
Suður- og Vesturlandi. Þeirhéldu er blaðið fór í prentun.
Sósíalistafélag Reykjavíkur:
Páll Bergjtórsson
kosinn formaður
Banaslys í
I Neskaupstað
Neskaupstað 25/6 — Hér varð
I banaslys síðastliðna nótt við síld-
I arlöndun úr síldveiðiskipinu Þor-
bimi II. GK frá Grindavík með
þeim hætti, að grabbj datt niðbr
í höfuðið á einum skipverjanum
og lézt hann samstundis. Skip-
verjinn hét Þormar Magnússon
og var búsettur í Grindavík.
Þorbjöm II. frá Grindavík var
að landa afla sínum í Síldar-
Framhald á 2. siðu.
Eins og frá hefur verið skýrt
í blaðinu, var affalfundur Sósíal-
istafélagsins haldinn síffastliðinn
föstudag. Miklar umræður urðu
á fundinum, sem stóð fram á
nótt. Formaður félagsins var
kosinn Páll Bergþórsson, veðurfr.
Varaformaður félagsins var
kosinn Björgúlfur Sigurðsson.
Meðstjórnendur voru kosnir þau
Edda Guðnadóttir, Jón Thór
Haraldsson, Guðmundur Jóns-
son, Guðmundur Þ. Jónsson og
Páll Bergþórsson
formaður Sósíalistafélagsins
Sigurjón Pétursson. — í vara-
stjórn voru kosnir þeir Eggert
Þorbjamars., Steingrímur Aðal-
steinsson og Högni Isleifsson.
Endurskoðendur voru kosnirþeir
Sigurðar Baldursson og Guðgeir
Magnússon.
Banas/ys á
ísafírði
lsafirði 25/6 — I fyrradag varð
banaslys á svonefndum Hnífs-
dalsvegi í nágrenni Isafjarðar,
þegar veghefill fór út af hárri
vegarbrún og lenti á hliðinni í
stórgrýtisurð. Stjórnandi veghef-
ilsins. Njáll Kristjánsson frá Isa-
firði, andaðist af völdum slyss-
ins á leið á sjúkrahús.
Veghefillinn var á nokkurri
ferð og er talið að stýrisútbún-
aður hafi bilað og var vegar-
kanturinn, þar sem hefillinn með
manninum lenti út af nær
þriggja mannhæða hár. Njáll
heitinn var 36 ára gamall. Hann
lætur eftir sig konu og þrjú
böm.