Þjóðviljinn - 26.06.1966, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 26.06.1966, Blaðsíða 6
I g SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 26. júní 1966. Heimsókn á hússtjórnarnámskeið í Réttarhoiti á borö. Ragnheiður Olafsdottir og Þorunn M atthiasuottir aiiar. Þ*r eru að læra rcttu handtökin við hirðingu fata og ]»vott. Þarna cr þaö pcysa sem á að fara að þvo og stúlkurnarr byrja á að taka af hcnni mál ti’ að gcta fcngið rctta lögun á hana eftir þvottinn. Þær hcita frá vinstri: Þórunn Matthíasdótlir, Itagnheiður Öiafsdóttir, Jóhanna Fjcldsted ........ og Margrct Gúslafsdóttir. Það eru 16 á námskeiðinu í einu og er þeim daglega skipt í fjóra flokka, þar sem ein er húsmóðir, eldar spónamat og hefur yfirumsjón með sínum flokki, önnur býr til kjöt, fisk — eða grænmetisrétt, sú þrið.ja sér um ræstingu ug leggur á borð og sú fjórða bakar. Þegar lokið er við að elda hádegisverð, borðum við hann saman og síðan er smáhlé til útivistar eftir matinn og svo þvo þær upp og ganga frá öllu á eftir. Kertnslunni lýkur kl. 2. — Heldurðu, að unglingarnir hafi gagn af þessu námi? María Ilclga Guðmundsdóttir steikir kjöt á pönnunnh I stuttu viðtali við Þjóðvilj- ann sagðist Bryndí.s hafa mjög gaman að þéssari kennslu tólf ára stúlknanna, það væri að mörgu leyti skemmtileg til- breyting fyrir sig að kenna svona ungum stúlkum, en Bryn- dís kennir nemendum í gagn- fræðaskóla verknáms á vet- uma. — Þær sýna mikinn áhuga og sækja þetta vel og mér virðist þetta einnig mælast' vel fyrir meðal foreldranna. — Hvemig lídur dagurinn hjá ykkur? — Það er byrjað í.sundi kl. 8 í Breiðagerðisskólanum og þar njóta þær tilsagnar sundkenn- ara. Síðan er farið í eldhúsið kl. 9 og tekinn til morgunverð- ur og kennsla hefst þegar bú- ið er að boröa. Aðallega er þetta verkleg kennsla, þó með sýnikennslu. Þá er kennt sfpá- vegis í næringarefnafræði og vöruþekkingu og þá náttúrlega við þeirra hæfi, þ.e. miðað við aldur. Kennsla er miðuð við að ung- lingarnir geti að námskeiðinu loknu gripið inn í eða aðstoð- að við heimilisstörf ef á þarf að halda og það er fleira kennt en að búa til mat, t.d. að bvo þvotta og ganga frá, hirðing á fatnaði, ræsting og margt fleira. Ekki má sjóða uppúr pottunum. Það eru Sólrún Siguroddsdóttir (til vinstri) og Arnfrlíður Jónasdóttir, sem standa við eldavélina. — Já, ég held það, eftir því sem þroski þeirra leyfir. Þetta verður til að vekja áhuga á heimilisstörfunum og kannski hjálpa þau frekar til heima á eftir. Þá er þetta góður undir- búningur áður en þær fara í matreiðslunám í gagnfræða- skólanum, því þar er námið nokkuð misjafnt eftir skólum, í verknáminu fá stúlkur 5 eða 10 tíma á viku í bússtjórn eftir því hvort þær eru í saumadeild eða hússtjórnardeild, en í bók- námsdeildunum fá þær ekki nema fjóra tíma á viku bg oft ekki nema hálfan vetur. Það er svó mikill skortur á kennslu- eldhúsum í bænum. að það er ekki hægt að láta þær fá fleiri tíma. Það er mjög þægilegt að lienna svona á námskeiðum og f rauninni þetra en með öðru námi í skólanum, nú er ekkert annað nám sem truflar og þetta nýtist því miklu betur en ella. □ Eins og sagt hefur verið frá í Þjóðviljanum hefur sú nýbreytni verið tekin upp hjá Fræðsluráði Reykjavíkur að e'fna til hússtjómarnám- skeiða fyrir unglinga sem lokið hafa barnaprófi. Er tilgangurinn með þessum námskefðum að veita unglingum á þessum aldri, sem eiga mjög erfitt með að fá störf við sitt hæfi yfir sumarið, hentug sumarverkefni auk þess sem hægt er að nýta með þessu kennslueldhús skólanna, sem eru reyndar of lítil og fá á veturna, en standa auð á sumrin. Q Námskeiðin fara fram í þremur skólum, Melaskóla, Laugarnesskóla og Réttarholtsskóla og kennarar eru hússtjórnarkennararnir Sigríður Ól- afsdóttir, Þórunn Pálsdóttir.og Bryndís Steinþórsdóttir. — Ljósmyndari Þjóðviljans fór nýlega í heimsókn á námskeiðið hjá Bryndísi í Réttar- holtsskólanum og þaðan eru myndirnar á síðunni. Allir erU* önnum kafnir vid eldhúsvcrkin. Fremst á myndinni cr kennarinn, Bryndís Steinl>órsdóttir. ........1 mmmm Þvf má bæta við hér, að mikll aðsókn hefur verið á námskeiðin og eru þau fullskip- uð. Næstu námskeið verða. haldin í ágúst og rétt er að benda á, að þá verður einnig flokkur fyrir drengi ef næg þátttaka fæst. Unglingar á aldr- inum 13—14 ára verða þá lát- ir ganga fyrir. Þátttökugjald er kr. 1000 fyrir hvern nerh- anda, en kostnaður er að siálf- sögðu meiri og nýtur þessi starfsgrein styrks úr borsar- sjóði. Tnnritun á ágústnám- skeiðin verður 4,—8. júlí klukk- an 14—16 á Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur. Kristín Skúladóítir sctur smákökurnar í ofninn. — (Lósmyndari Þjóðviljans, Ari Kárason, tók myndirnar). I y.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.