Þjóðviljinn - 26.06.1966, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 26.06.1966, Qupperneq 10
'10 SÍDÁ — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 26. iúni 1966. t WILLIAM MULVIHILL IFLUGVÉL I HVERFURI ekki tala ensku, ekki fyrr en hann rækist á hvíta menn. Hann treysti ekki þessum rytjulega klæddu, óhreinu mönnurri sem stóðu fyrir framan hann. Hann hafði hugboð um að ef hann talaði ensku myndu þeir víkja frá honum og bera saman ráð sín og síðan myndu þeir drepa hann. Hann var sannfærður um að þannig myndi það fara, og hann talaði ekki við þá. Hann brosti, geiflaði sig og hristi höf- uðið, og eftir nokkra stund urðu þeir leiðir á þessu og» leiddu hann með sér til þorpsins. Hann fann lyktina af þvi löngu áður en þeir komu að fyrsta húsinu. það var þefurinn af frárennslis- lausu þorpi í miðjum sólarhitan- um, fullu af villtu og sljóu fólki. Hann fylgdi þeim ekki sem jafningi, heldur sem fangi. Þeir höfðu reynt að yfirheyra hann og hann hann mundi nú, að þeir höfðu talað við hann stuttara-, iega og hvasst. Þeir höfðu keypt hann af búskmðnnunum. Hann var þræll, Þeir leiddu hann gegnum daunillt þorpið. Fólkið starði ekki lengur á hann. Rottulegur hundur urraði að honum úr ein- um hreysisdyrunum. Þeir gengu áfram og við endann á götunni komu þeir að hálfgerðu leirhúsi. , Þrir menn hættu að vinna sem snöggvast og litu sljólega upp Þeir voru klæddir lörfum og baktir blautum leir. Einn þeirra var gamall maður, svartur á hörund og með hvítt hár. Annar HársreifMan Hárgreiðslu- og snyrtistofa Steinu ofir Dófíó Laugavegi 18 III hæð (íyfta) SÍMI 24-6-16. PERMA Hárgreiðslu- os snyrtistofa Garðsenda 21. SÍMI 33-968 D Ö M U R Hárgreiðsla við allra hæfi. TJARNARSTOFAN Tjarnargötu 10, Vonarstrætis- megin — Sími 14-6-62. Hárgreiðslustofa Austurbæjar Maria Guðmundsdóttir Laugavegi 13 — Simi 14-6-58 Nuddstofan er á sama stað. var piltur með andlit eins og hottintotti og hvítleitan, gróf- gerðan kropp. Hinn þriðji var næstum hreinn búskmaður en andlitið var sljólegt og augun fávitaleg. Enn einn maður sat í skugg- anum við hálfbyggðan veggin^i. Hann reis á fætur og kom til hinna. Hann var tiltölulega há- vaxinn og hélt á þungri kylfu. Hánn hrópaði eitthvað til verka- mannanna þriggja og þeir tóku aftur til við starf sitt. 44 Hann gekk til Smiths og virti hann fyrir sér meðan hinir töl- uðu. Allt í einu þreif hann í handlegginn á honum og hratt honum inn í hálfunninn kofann og orgaði eitthvað til hans. Smith velti fyrir sér .hvort hann ætti að segja nokkuð, segja hver hann væri, að hann væri banda- ríkjamaður. Þeir kunnu trúlega eitthvað i ensku. Verkstjórinn hrópaði til hans og sveiflaði kylfunni. Hinir mennirnir æptu eitthvað líka; dýrsleg andlit þeirra voru afmynduð af reiði. Smith hörfaði undan og rak sig i gamla manninn. Hann kinkaði kolli til mannanna sem komu í áttina til hans. Hann vildi vinna, hann ætlaði að hlýða. Hann tók eftir því að menn- irnir hrærðu leir í trogi og báru að veggnum ög smurðu honum á stað, sem sólin var búin að burrka. Seinlegt, frumstætt verk. Hann hófst, handa, nakinn og hræddur við þessa úrkynjuðu menn. Mennirnir fjórir gengu leiðar sinnar, en verkstjórinn kom aft- ur og stóð kyrr og horfði á þá. Enginn mælti orð. Þeir fleygðu þurrum leir niður í trogið, helltu vatni á; þeir hnoðuðu hann með fótunum og báru hann rennvotan að klunnalegum veggjunum. Smith lagði harðar að sér en hinir mennimir; hann vissi að honum voru gefnar gæt- ur. Hann fann að verkstjórann langaði til að berja hann til að fá hann tií að skilja að hann væri þræll og hann yrði að hlýða tafarlaust. Tíminn leið og Smith varð hugarhægra. Hann hafði lifað af eyðimörkina;# hann var á lífi. Hann myndi verða á lífi á morg- un og hinn daginn. Og einn góð- an veðurdag myndi það gerast; það kæmi hvítur lögregluþjónn til þorpsins eða fjárleitarmaður eða einhver sem vildi og gæti bjargað honum, tekið hann með sér. Hann myndi verða frjáls. En ei-ns og á stóð, var hann þraell. VI Grace Monckton og Mike Bain fóru á fætur og átu hunang og melónu. Svo gengu þau niður gilið til að svipast eftir mat. Grimmelmann lá enn fyrir og 0‘Brien hafði farið burt áður en birti. Þau gengu í tvær stundir með- íram bergveggnum, eltu eðlur, hvíldu sig í skugga stórra steina og gengu áfram. Því lengra sem þau komu frá hellinum, því lægra varð fjallið og auðveldara að klífa það. Grace veiddi eðlu og drap hana. Mike hreinsaði hana með pennahníf og þau vöfðu hana innaní klút. — Ég held við gætum klifrað upp á tindinn héðan, sagði Grace. Bain le« upp, hann virti fyrir sér .«c*.-jr>gurnar og langar brekkumar. — Við skulum reyna, sagði hann. Hann hafði alcjrei fyrr komið á þessar slóðir. Kannski fyndu þau eðlunýlendu. Þau byrjuðu að klifra. Þau fóru sér hægt og völdu leiðina vandlega. Þau stönzuðu við brattan vegg. — Þetta er eina leiðin, sagði Bain. Ég get komizt upp, ef ég má nota hendurnar á þér sem ístað. — Við skulum reyna sagði Grace. Hún spennti areipar, steig fast upp að veggnum og beið. Bain virti hana fyrir sér og bergvegginn. Hann horfaði nokk- ur skref til' að fá tilhlaup, steig berum fætinum í lófa hennar og sveiflaði sér upp. Hann fann hvemig hún reyndi að halda takinu, en svo gliðnuðu fingum- ir sundur. ?In hann hafði náð taki á steini ofar í veggnum og sveiflaði sér upp. Hann lagðist endilangur á heit- an steininn, teygði sig niður og greip um úlnið á stúlkunni. Hann dró hana upp hægt og varlega, og hún hjálpaði til með því að spyrna með berum tán- um. Þau lágu örmagna hlið við hlið. Það sem eftir var leiðar- innar, yrði auðvelt. / Bain fann ilminn úr hári hennar og af heitum líkamanum; brjóstin voru þrýstin undir rif- inni, .hálfopinni blússunni; það skein í gullin lærin gegnum rif- umar á pilsinu. Hún smeri sér við, tófe eftir því að hann var að horfa á hana og brosti. Hún fór að hugsa um Bain. Hann var myndarlegur, þótt hann væri magur og tekinn. Þau risu á fætur og héldu á- fram ferðinni án þess að segja orð. Þau drápu irvær syfjaðar éðl- ur í viðbót. Bain kastaði steini að litlum fugli án þess að hitta, og þau sáu fuglinn fljúga burt yfir óendanlega auðnina. Honum | varð ljóst að hann hataði O1- | Brien. Þegar nóttin kæmi, myndi hún fara til hans, eins og húp hafði gert á hverri nóttu upp á síðfeastið. Þau gengu upp að tindinum o*? steinninn var glóðheitur undir | berum fótum þeirra. Þau kpmu j að djúpri holu í berginu; hún minnti á brunn og var tólf til fimmtán feta djup, álíka víð. Þau horfðu niður. .; — Hvernig hefur þetta getað j myndazt? spurði Grace undrandi. — Ég, veit það ekki, sagði Mike. Veggirnir voru of sléttir | til að hægt væri að klifra nið- ur; hann langaði til að reyna, en það væri ómögulegt án reip- is. Kannski stáfaði holan af því að mýkra berg hafði blandazt granítinu. Tíminn og höfuð- skepnurnar hófðu tært hann upp. — Þetta er undarlegt, sagði Grace. Bain greip um úlniði hénnar og hélt henni fastri. Farðu var- lega, steinninn er háll. Hann dró hana fjær brúninni. Hún stóð þétt við hann, heit, sveitt Ijóshærð, gullin og dásamleg. Hann sleppti takinu og gekk af stað. £>‘Brien átti hana. Jefferson Smith vann, svaf og át. Hann vandist fábreytileika hins nýja lífs. Hann beið eftir björguninni. Hann hugsaði um þau hin, um Grimmelmann, Mike Bain og Grace. Hvað myndi 0‘Brien gera við þau? Honum féll illa að hugsa um það, því að hann gat ekkert gert. Hann gat ekki strokið og farið yfir eyðimörk- ina, hann gat ekki sagt til sín án þess að eiga á hættu að verða myrtur. Hann var fangi. Hann gat ekki annað gert en bíða og vona, láta hverjum degi nægja ■sína þjáningu. Hann virti fyrir sér fólkið og lífið í þessu litla samfélagi og var agndofa yfir fáfræðinni, sóðaskapnum og hinu ömurlega LíÐURJAKKAR RÚSKINNSJAKKAR fyrir herra fyrir drengi Verð frá kr. 1690,00 VIDGERDIR LEÐURVERKSTÆÐI ÚLFARS ATLASONAR Bröttugötu 3 B Sími 24678, 4785 — Silky, Fissei og Súsanna bíða eftir Bobby. Gaman að heyra hvað mömmudrengurinn hefur að- segja. — Hann kemur og vill fá að tala við Silky undir fjögur augu. — Jæja, hvað er það nú? Ja, það er dálítíð .... íg hef skipt um skoðun .... Nú vil ég fá-þig til að gera við það aftur, sem þú skemmdir .... — Ekki hægt, svarar hinn. Það er að segja .... bíddu nú við .... jú annars, kannski. En það verður dýrt! — Já, auðvitað, ég skil .... Ég borga ’pér hundrað dollara. Silky hlær. — Hundrað | dollara?! Ertu geggjaður? Þú verður að borga minnst þúsund! Bobby stekkur á fælur, bálreiður. — Nei, þú verður kyrr hér! | SKOTTA Hvernig finnst þér? Ég var að veggfóðra með myndum af fyrrverandi kærustum! TRYGGINGAFÉLAGIÐ HEIMIRf LINDARGÖTU 9 • REYKJAVfK SÍMI 22122 — 21260 Gúmmívinnustofan h.f. Skipholti 35 — Símar 31055 og 30688 Leðurjakkar - Sjóliðajakkar á stúlkur og drengi — Terylenebuxur, stretch- buxur, gallabuxur og peysur. GÓÐAR VÖRUR — GOTT VERÐ Verzlunin O L. Traðarkotssundi 'V\ móti Þjóðleikhúsinu).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.