Þjóðviljinn - 29.06.1966, Qupperneq 10
I
Eg spái engu um frumhuldið,
i - viStal viS ESvarS SigurSsson, formann Dagsbrúnar |
i
!
I
Þjóðviljinn náði tali af Eð-
varði Sigurðssyni, formanni
Dagsbrúnar, í gærdag og leit-
aði eftir áliti hans á nýaf-
stöðnum samningum.
—Við héldum almennan
fund í Dagsbrún í gærkvöld,
sagði hann, og fór hann fram
í Iðnó og voru samningarnir
þar samþykktir .nær einróma,
— fimmtán mótatkvæði komu
fram á fundinum.
Ég flutti framsögu fyrir
samnifigunum'á þessum fundi
og rakti þar gang mála, —
minnti ennfremur á þá stefnu
síðustu árin í samningum að
ná fram ýmsum atriðum um-
fram þær beinu kauphækkan-
ir, sem hefðu átt sér stað.
— Verðtrygging á kaupi
hefur verið mikið áhugamál
og náðist fram í samningum
árið 1964 og hefðu laun
hækkað um 14% vegna verð-
lagsbreytinga, sem að öðrum
kosti hefði þurft að sækja
með harðri verkfallsbaráttu
eins og árið 1963.
-1- Þá minnti ég ennfremur
á taxtatilfærslur á undanförn-
um árum og tel, að verka-
menn hafi fengið með þeim
drjúgan ávinning síðustu ár-
in.
— Þá. var komið inn á lausn
ýmissa félagsmála eins og
með tilkomu styrktarsjóð-
anna, sem hefði reynzt félags-
mönnum og félaginu sjálfu
drjúgur bakhjarl og í öðru
lagi húsnæðismál launafólks,
þar sem tekizt hefði að
hækka lánin verulega og í
fyrra var svo farið inn á nýj-
ar brautir, — raúnhæfa leið í
þá átt að verkafólk geti raun-
verulega eignazt húsnæði.
Með þessum samningi teljum
við að þessari meginstefnu
hafi verið fylgt. Við vonum
að hinn nýi orlofssjóður, sem
nú hefur verið stofnað til,
Eðvarð
eigi eftir að verða verkafólki
drjúgur til að bæta aðstöðu
til þess að njóta orlofs, — þá
teljum við einnig að með nú-
verandi taxtatilfærslum sé
veruleg bót ráðin fyrir all-
stóran hóp félagsmanna.
Með varlegri áætlun mun
þessi taxtatilfærsla ná til
átta hundruð verkamanna hjá
Dagsbrún.
— Sjálf grunnkaupshækk-
unin leysir engan vanda út
af fyrir sig fyrir verkamenn
í ört vaxandi dýrtíð og þess
má geta, að megineinkenni
þessara samninga er, að þeir
eru til skamms tíma, — ég
vil hinsvegar engu spá um
framhaldið á þessu stigimáls-
ins, en það fer að sjálfsögðu
eftir því, hver þróunin verð-
ur í verðlags- og dýrtíðar-
málum.
— Þá má að lokum geta
hinnar góðu samstöðu verka-
lýðsfélaganna innan Verka-
mannasambandsins og ef þessi
samstaða á eftir að eflast
mun hún vafalaust færa
verkafólki aukinn ávinning,
sagði Eðvarð að lokum.
I
I
I
I
!
I
Sumningur tvívegis / vor
- Wðío/ y/ð Björn Jónsson, formann Einingar á Akureyri
Þjóðviljínn hafði samband
í gærdag við Björn Jónsson,
formann Einingar á Akureyri
og innti hann eftir áliti hans
á samningunum.
— Við Norðanmenn höfum
nú tvívegis gert bráðabirgða-
samninga með stuttu millibili
núna í vor og fengið mikils-
verðar leiðréttingar á ýmsum
átriðum og er ég eftir atvik-
um ánægður með þessa samn-
inga.
Að þessu sinni tel ég mik-
ilsverðast við þessa samninga
okkar Norðanmanna aukið
öryggi verkafólks við stop-
ula vinnu í frystihúsum og
við skipaafgreiðslu, — það er
réttur verkamanna til greiðslu
fyrir helgidaga aðra en sunnu-
daga í vikukaupi á slíkum
vinnustöðum, — sérstaklega
hef ég þar í huga verka-
mennina við Eimskip á Ak-
ureyri, sem hafa unnið ára-
tugum saman án þessara rétt-.
inda.
Þá er um að ræða 12%
hækkun með taxtatilfærslu
fyrir fiskvinnu, — hún hefur
alltaf verig-í 1. flokki borið
saman við 2. flokk hjá verka-
fólki við Faxaflóa. Annars
höfum við Norðanmenn mjög
haft í huga, hvað samning-
arnir eru til skamms tíma og
höfum við alltaf átt erfitt um
vik til baráttu að sumrinu.
Grunnkaupshækkunin er
smávægileg borið saman við
ört hækkandi nauðsynjar al-
mennings í dýrtíðinni, — rík-
isstjómin vinnur nú að lausn
þessara mála í sumar sam-
kvæmt loforði og hvernig
framhaldið verður í haustfer
að sjálfsögðu eftir lausn mál-
anna eftir þá athugun, —
þannig að ég vil að svo
stöddu ekki spá neinu um að-
gerðir okkar í haust. Hér
ræður þróunin í verðlags- Og
efnahagsmálum miklu um á
næstunni, sagði Bjöm að lok-
Bjöm
I
Síldveiðar:
95.254 lestir norðanlands
og austan, 12.657 sunnan
□ ASfaranófct sl. sunnudags var heildaraflamagnið á síld-
veiðunum norðanlands og austan orðið 95.254 lestir, eða
8.406 lestum meira en í fyrra. Á sama tíma höfðu borizt
á land 12.657 lestir suðurlandssíldar.
Góð sala Víkings
í Brstlandi
Togarinn Víkingur seldi afla
sinn í Bretiandi í síðustu viku
og fékk fyrir hann ágætis verð
miðað við árstíma eða 14,500
sterlingspund fyrir 250 tonna
þorskfarm.
Aflinn var mestmegnis feng-
inn við A-Grænland á 8—9 dög-
um, togarinn fór héðan 7. júní
og seldi í Grimsby 23. þm.
f dag og á morgun selja þrír
íslenzkir togarar ísfisk í Grims-
by og Hull, Röðull, Ingólfur Arn-
arson og Marz. Þeir eru allir
með fremur lítinn afla.
Vöruskipta-
jöfnuðurinn
óhagstæður
Vöruskiptajöfnuðurinn í maí-
mánuði var óhagstæður um
46.571.000 krónur. Inn var flutt
fyrir 567.099.000 krónur eii út-
flutningurinn nam 520.528.000
krónum að verðmæti.
Er þá vöruskiptajöfnuðurinn
frá ársbyrjun til maíloka orð-
inn óhagstæður um alls kr.
102.133.000, en innflutningurinn
fyrstu fimm mánuði ársins nam
2.371.555.000 kr. og útflutning-
ur 2.269.422.000 kr. samkvæmt
bráðabirgðatölum Hagstofu ís-
lands. I
Á sama tíma í fyrra nam út-
flutningur kr. 1.959.752.000 kr.
og innflutningur 1.847.442.000
kr. og vöruskiptajöfnuður því
hagstæður, munur 112.310.000
krónur.
í skýrslu Fiskifélagsins um
síldveiðarnar fyrir norðan og
austan í síðustu viku segir m.a:
Fyrri hluta vikunnar var'síld-
veiðiflotinn aðallega 100—150
sjóm. austur og austnorðaustur
af Langanesi. Veður var all-
sæmilegt til veiða, en afli rýr.
Síðustu tvo daga vikunnar
glæddist veiðin allverulega. Á
föstudag var Síldarleitinni til-
kynnt um rúmar 5.800 lestir og
laugardag rúmar 8.400 lestir og
er það langbezti afladagur sum-
arsins til þessa. Voru skipin þá
mestmegnis 90—130 sjómílur
austur og austsuðaustur af Dala-
tanga.
Aflinn sem barst á land í vik-
unni nam 14.648 lestum. Þar af
fóru í bræðslu 14.462 lestir, í
frystingu 11 lestir og saltað
hafði verið í 1.296 tunnur. Telja
má að til söltunar hafi farið 175
lestir síldar.
í aflaskýrslu síðustu viku
vantaði 411 lestir, sem fóru til
bræðslu á Hjalteyri. Var því
heildaraflinn þá 80.363 léstir.
Heildarmagn komið á land á
miðnætti sl. laugardag var
95.254 lestir og skiptist þannig:
í frystingu 16 lestir. í salt 175
lestir (1.296 upps.tn.) í bræðslu
95.063 lestir.
Á sama tima í fyrra varheild-
araflinn sem hér segir:
í salt 25.279 upps. tn. .(3.413 1.)
í frystingu 1.271 uppm. tn. (137
1.) í bræðslu 617.020 mál (83.298
1.) Samanlagt gerir þetta 86.848
Jestir.
Aflinn skiptist þannig á lönd-
unarstaði: Iestir
Reykjavík 9.121
Bolungarvík 1.703
Siglufjörður 586
Ólafsfjörður 1.641
Krossanes 2.916
Hjalteyri 411
Húsavík 1.077
Raufarhöfn 13.346
Vopnafjörður - 7.003
Seyðisfjörður 22.247
Neskaupstaður 16.770
Eskifjörður 8.982
Reyðarfjörður 3.881
Fáskrúðsfj örður 4.306
Breiðdalsvík 307
Djúpivogur 957
Síldveiðarnar sunnanlands
Frá 1. júní til miðnættis laug-
ardagsins 25. júní höfðu borizt
á land 12.657 lestir suðurlands-
síldar. Hefur síldin veiðzt á
svæðinu frá Jökli til Hrollaugs-
eyja.
Tekið skal fram, að suður-
landssíld sem landað er austan
Vestmannaeyja, er talin með í
skýrslu um síldveiðarnar norð-
anlands og austan.
lestir
Vestmannaeyjar 6.893
Þorlákshöfn 2.649
Grindavík 1.762
Sandgerði 316
Keflavík 328
Reykjavík / 357
Akranes 243
Bolungarvík 109
Fölsuðu ávísanir
Talsverð brögð hafa verið að
því í Kópavbgi að undanförnu
að unglingar fölsuðu ávísanir. í
fyrri viku hafði lögreglan í
Kópavogi upp á öllum þessum
ávísunum og kom í ljós að hóp-
ur unglinga á aldrinum 12—13
ára hafði falsað þær.
Unglingarnir hafa einnig haft
í frammi alls konar óknytti und-
anfarið að sögn lögreglunnar.
Miðvikudagur 29. júní 1966 — 31. árgangur — 141. tölublað.
Hlaut 850 þús. kr.
sekt fyrir okur
□ Síðastliðinn íöstudag var kveðinn upp í saka-
dómi Reykjavíkur dómur í máli ákæruvaldsins gegn
Margeiri J. Magnússyni, víxlara, Miðstræti 3A fyr-
ir brot gegn lögum um bann við okri, bókhalds-
lögum og almengum hegningarlögum. Margeir var
dæmdur í 850 þús. króna sekt, en til vara í tíu
mánaða varðhald. Einnig var honum gert að greiða
sakarkostnað.
1 dóminum þykir sannað, að
Margeir hafi á árinu 1964 veitt
manni nokkrum víxillán til sex
mánaða að fjárhæð samtals
450.000 vaxtalaust, en áskilið
sér sem endurgjald vaxtalaust
víxillán til 20 ára að fjárhæð
150.000. Hafði maðurinn á þenn-
an hátt selt Margeiri fimm víxla
til sex mánaða að upphæð 450
þúsund kr. og fengið þá greidda
með 300.000 kr. í peningum og
kr. 150.000 með víxlum til 20
ára, samþykktum af Margeiri.
Endurgjald það, sem Margeir
hafði þannig áskilið sér í sam-
bandi við þessa lánveitingu tald-
ist að frádregnum löglegum há-
marksvöxtum, að upphæð kr.
110.166,33.
Þá var Margeiri ennfremur
gefið að sök að hafa ekki haldið
bókhald með löglegum hætti. —
Halldór Þorbjömsson, sakadóm-
ari, kvað upp dóminn. Margeir
óskaði þess, að dóminum yrði
skotið til Hæstaréttar.
Varð fyrir
byssuskoti
Það hörmulega slys varð í
Biskupstungum á sunnudags-
morgun, að tvítugur piltur,
Magnús Harðarson frá Sólveig-
arstöðum við Laugarás, varð fyr-
ir slysaskoti og beið bana.
Magnús hafði verið á ferð við
Hvítá ásamt félaga sínum og
voru þeir á leið á skytterí. Gekk
Magnús aftar og heyrði hinn
pilturinn allt í einu hvell. Peg-
ar hann leit við sá hann að
Magnús hafði orðið fyrir skotinu.
Hann mun hafa látizt samstund-
Ánægjuieg ferð sósíulistu
um sögustuði Rungárþings
Þjóðviljinn hafði í gær tal af
formanni Sósíalistafélagsins, Páli
Bergþórssyni vcðurfræðingi, og
spurðist fyrir um ferð félagsins
um Rangárþing. Páll kvað ferð-
ina hafa verið hina ánægjuleg-
ustu.
Ekið var sem leið liggur á
Hvolsvöll og þar snæddir dilk-
ar úr Hvolhreppnum. Veður var
gott að sögn Páls, lítið um rign-
ingu og „stundum jafnvel sól-
skin‘‘ eins og hann komst að
orði. Enda hafði Jóni Rafnssyni
þótt það vænlegast til heilla að
yrkja ákvæðavísu, enda þótt
veðurfræðingur væri með í för-
inni, og var hún á þessa leið:
Steypist yfir stórrigning
standi þetta í sólarhring:
uppi, niðri og allt um kring
undanskil ég Rangárþing.
Frá Hvolsvelli brugðu menn
sér síðan yfir Þverá, horfðu til
jökla og snöm ferðinni svo til
Odda. Þar skoðuðu menn „feg-
urstu sveitakirkju landsins“ eins
og Páll orðaði það, svipuðust
um af Gammabrekku, heiðruðu
Þykkvabæinn með marxistískri
Vilja viður-
kenna Kína
WASHINGTON 28/6 — Sam-
kvæmt úrslitum skoðanakönnun-
ar sem birt voru í Bandaríkjun-
um í gær eru 57% Bandaríkja-
manna því fylgjandi að banda-
ríska stjórnin viðurkenni kín-
verska alþýðulýðveldið.
55% aðspurðra voru fylgjandi
inngöngu Kína í SÞ með þeim
skilmála að ríki kínverskra
þjóðernissinna héldi sæti sínu
einnig.
37% vildu að aðeins ríkis-
stjórnin í Peking sendi fulltrún
Kínverja til SÞ. í
nærveru sinni og í bæinn voru
menn komnir um átta leytið að
kvöldi. Fararstjóri var Árni
Böðvarsson.
Banaslys varð
í Keflavík
Aðfaranótt laugardagsins varð
banaslys í Keflavík. G-fólksbif-
reið ók eftir Hafnargötu og ætl-
aði að beygja inn á Skólaveg en
stanzaði við vegamótin vegna
vegfarenda. Þá kom þar að önn-
ur fólksbifreið og lenti hún utan
í G-bílnum og síðan utan í tveim
fótgangandi mönnum.
Annar piltanna, Steinar Hólm
Sveinbjörnsson sem var 18 ára
gamall og átti heima á Kirkju-
vegi 4A, hlaut mikið höfuðhögg.
Hann var fluttur á sjúkrahús í
Keflavík og lézt þar.
Hinn pilturinn sem ekið var á,
fótbrotnaði. Hann heitir Krist-
inn Karlsson.
Unglingalands-
liðið sigraðj
pressuliðið 4:2
Unglingalandsliðið, sem á að
mæta danska unglingalandslið-
inu eftir viku, sigraði pressulið-
ið á Laugardalsvelli í> gær-
kvöld og urðu úrslit 4:2 eftir
Iéttan og skemmtilegan leik.
í hálfleik stóðu leikar 2:2.
Kalt var og leiðinlegt veður og
því fremur fátt áhorfenda á
vellinum.
1 unglingalandsliðinu eru leik-
menn 24 ára og yngri, valdir af
landsliðsnefnd KSl, en and-
stæðingarnir í gærkvöld voru
valdir af íþróttafréttariturum
' dagblaðanna.