Þjóðviljinn - 06.07.1966, Side 1
Á KAPPREIÐUM í DÖLUM
★ 1 Þjóðviljanum á morgun, miðvikudag, verður m.a. sagt
★ frá hestamannamóti, sem haldið var í Dölum vestur um
★ síðustn helgi og birtar þaðan allmargar myndir af hestum
★ og hestamönnum. — Við birtum einnig myndir af nokkrum
★ Ieikenda I úilendri kvikmynd, sem senn verður farið að
★ taka hér á landi.
'• •• *
[«<»*
I i.ltlet
R«>-Kjavityir Ktug.vi>1 Jur
/ ;■ ’
fengu Reykjavíkurflugvöll
■ í dag, 6. júlí, eru liðin 20 ár frá því Reykjavíkur-
flugvöllur var afhentur íslendingum samkvæmt samn-
ingi milli ríkisstjórna íslands og Bretlands. Á þessum 20
árum hafa um það bil 1.700.000 farþegar farið um völlinn
og lendingar og flugtök ,eru samtals á aðra miljón.
U Thant fíytur fyrirlestur
i Háskólanum um störf SÞ
í fréttatilkynningu frá flug-
málastjóra um starfrækslu flug-
vallarins þessi 20 ár segir m.a.
svo:
I Undirbúningur að yfirtöku
flugvallarins hófst haustið 1945,
með því að sex íslendingar hófu
I störf og þjálfun á flugvellinum
á vegum flugmálastjórnarinnar,
þeir: Arnór Hjálmarsson, As-
björn Magnússon, Björn Jóns-
son, Gunnar Sigurðsson, Lárus
Þórarinsson og Sigfús H. Guð-
mundsson.
Störfuðu þeir með brezka
flughernum ásamt fleiri íslend-
ingum, í um það bil 9 mánuði,
áður en yfirtakan fór fram. Auk
þess störfuðu nokkrir Bretar um
stuttan tíma vegna frágangs á
eignum flughersins, og til leið-
beiningar íslendingum í flugum-
ferðarstjórn.
Þar sem íslendingar höfðu
ekki áður haft með höndum
flugvallarrekstur, varð að byggja
hér allt upp frá grunni, og var
það ýmsum erfiðleikum háð,
sérstaklega með tilliti til þess,
hversu umferð sú er um völlinn
færi þarfnaðist, þ.e. millilanda-
flug erlendra flugvéla, en flug-
vélar frá eftirtöldum flugfélög-
Framhald á 7. síðu.
Tvísýnt um Burkna
Fyrir þremur árum keyptu
tveir bræður á Akureyri Fata-
gerðina Burkna af Rolf Johansen
hér í Reykjavík og keyptu þá
riýjan vélakost frá Vestur-Þýzka-
landi og Bandaríkjunum. Um
skeið unnu hjá fyrirtækinu um
þrjátíu manns og sérhæfði fyrir-
tækið sig í framleiðslu á skyrt-
um og vinnufatnaði.
1 dag hefur hallað svo undan
Framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, herra U Thant, hefur
þekkzt boð félags Sameinuðu
þjóðanna hér á landi um að
halda fyrirlestur um starfsemi
Sameinuðu þjóðanna í hátíðasal
Háskólans föstudaginn 8. júlí n.
k. kl. 5 e.h. Fyrirlesturinn verð-,
ur fluttur á ensku og er öllum
heimill aðgangur. Af hálfu fé-
lagsins mun formaður þess Ár-
mann Snaevarr háskólarektor
kynna framkvæmdastjórann og
bjóða hann velkominn.
' r'
30 miljónir kr. að láni vegna
smíði Fossvogssjákraháss
★ Borgarráð Reykjavíkur heimilaði borgarstjóra á fundi sínum sl.
föstudag að taka lán fyrir hönd borgarsjóðs til fjögurra ára með
gildandi fasteignalánavöxtum að upphæð 30 miljónir króna vegna
byggingar borgarsjúkrahússins i Fossvogi.
★ Lán þetta verður endurgreitt mcð framlagi ríkissjóðs til sjúkra-
hússbyggingarinnar.
Barði NK er aflahæstur
I gær barst Þjóðviljan-
um skýrsla Fiskifélags fs-
lands um afla einstakra
skipa á síldveiðurium norð-
anlands og austan miðað
við miðnætti sl. laugardag.
Alls hafa 134 skip fengið
einhvem afla. 12 skip hafa
aflað 2000 lestir og þar yf-
ir og fara nöfn þeirra hér
á eftir en aflaskýrslan í
heild verður birt hér <
blaðinu síðar.
Barði NK 2545
Jón Kjartansson SU 2511
Þórður Jónasson EA 2414
Snæfell EA 2240
Reykjaborg RE 2185
Seley SU 2175
Asbjörn RE 2163
Bjartur NK 2137
Gísli Arni RE 2128
Þorsteinn RE 2041
Ólafur Magnúss. EA 2037
Sigurður Bjarnas. EA 2035
Tíllifsleysi stjórnarvalda l gcrrð iSnaÓarins
Viðreisnin drepur hvert
fyrirtækið eftir annað
■ Mikla athygli hefur vakið frétt hér í blaðin u í gærdag um uppsagnir hins þjálfaðá starfsfólks
yinnufatagerðarinnar og mun þetta fyrirtæki ha fa gefizt upp á að framleiða vinnnfatnað og flytur
hann nú inn frá Ameríku.
■ Hvert fyrirtækið á fætur öðru er nú að legg ja upp laupana þessa daga eða hefur þegar hætt
rekstii og missir þar margt fólk atvinnu sína.
■ Margt af þessu fólki hefur unnið áratugi samvizku-
samlega að störfum sínum og á óhægt um vik að skipta
um stúrf og hrekjast um á vinnumarkaðnum.
■ Sumt af þessu fólki er líkamlega vanheilt, en þykir
kjörið starf að vinna að léttum iðnaði og vinnur þar gagn-
leg störf, — þessu fólki er meðal annarra hent út á vinnu-
markaðinn.
■ ' Hér ræður fyrst og fremst för óðaverðbólgustefna
ríkisstjórnarinnar og eru erlend iðnfyrirtæki látin ryðjast
tillitslaus og hömlulaus inn á markaðinn. — Þessu fylgir
líka ^ífurleg fjármunasóun á nýrri og gamalli fjárfestingu.
hömlulauss innflutnings á skyrt-
Fífa hætti
dögunum
Eitt iðnfyrirtæki hefur verið
rekið á Húsavík um tíu ára
skeið. Það nefnist Fífa. Núna
um helgina fer starfsfólk þessa
fyrirtækis í sumarleyfi og hætt-
ir þar með rekstur fyrirtækis-
ins. Að loknum sumarleyfum
koma aðeins nokkrir aftur til
þess að ganga frá endanlegri
lokun fyrirtækisins.
Þetta fyrirtæki var myndar-
lega rekið v" -’ð og sérhæfði
sig aðalle' amleiðslu á
vmnuskyrt; kyrtum og
vinnufötum.
Um skeið unnu hjá fyrirtæk-
inu allt að þrjátíu manns og
vélakostur var keyptur allur nýr
til fyrirtækisins. Síðustú árin
hefur þó hallað undan fæti vegna
Uppdráttur af Reykjavíkurflugvelli.
20 ár frá því íslendingar
um og var mannahald verksmiðj
unnar komið niður í tfu manns
og tapar nú þetta fólk atvinnu
sinni.
Ekki fyrir alllöngu réðist fyr-
irtækið í kaup á vélum til næl-
onsaumaskapar svo eitthvað sé
nefnt, — vélakostur af nýjustu
gerð.
Öll fer þessi fjárfesting í súg-
inn og verður engum til gagns.
Um síðastliðin mánaðamót
hætti undirfatagerðin Amaró
rekstri sínum á Akureyri og
sagði upp öllu sínu starfsfólki,
um tuttugu manns.
Þettá fyrirtæki var rekið með
miklum myndarbrag fyrir nokkr-
um árum, og hafði tugi manna
á sínum vegum við saumaskap
og hefur lagt út i mikla fjár-
festingu í allskonar vélakosti, —
sérstaklega á fyrirtækið dýrar
vélar af bandarískri gerði og
fer nú öll þessi fjárfesting í
súginn.
Síðustu árin hefur hallað und-
an fæti smátt og smátt undir
viðreisn þangað til fyrirtækið
lagði upp laupana um síðustu
mánaðamót.
fæti með rékstur fyxirtækisins,
að það er vart svipur sjá sjón
þessa daga.. Núna vinna um tíu
manns hjá fyrirtækinu og það
framleiðir aðeins vinnufatnað.
Mjög er tvísýnt um rekstur þessa
fyrirtækis og það kæmi engum
á óvart endalok þess á næstu
vikum.
Magni í
Hveragerði
Fyrirtækið Magni h.f. í Kvera-
gerði á að baki um aldarfjórð-
ungsrekstur og framleiddi um
skeið vinnufatnað og á nokkuð
nýlegan vélakost.
1 dag vinna hjá þessu fyrir-
tæki um fimmtán marins. Fyrir-
tækið hefur nú alveg hætt fram-
leiðslu á vinnufatnaði. Það hef-
ur sérhæft sig í framleiðslu á
tjöldum, svefnpokum og teppum.
Þá hefur það líka verið í úlpu-
gerð.
Samkvæmt viðtali við forstjór-
ann í gærdag hefur framleiðslan
dregizt mjög saman í sumar og
tvísýnt er um framtíð fyrirtækis-
ins.
Skyrtugerðin
Skírnir
Fyrirtækið Skímir eign Bárðar
Sveinssonar hefur rekið blóm-
Framhald á 7. síðu.
Lífíð er að nema
land í Surtsey
Lífið er *að nema land í
Surtsey, þótt það eigi enn í ó-
jafnri baráttu við hörð náttúru-
öfl. Leiðangursmenn sem fóru út
£ eyna í fyrrakvöld fundu þar
á einum stað fjörukál, ennfrem-
ur eintök af grastegund sem
ekki var unnt að greina, vegna
þess hversu smátt grasið var. en
virtist vera einhverskonar ving-
ull.
Sigurður Þórarinsson skýrði
Þjóðviljanum frá þessu í gær,
en hann skrapp til Surtseyjar í
fyrrakvöld ásamt allmörgum
mönnum öðrum. Var aðalerindið
að fara með skilrúm í húsið sem
vísindamenn eiga að hafa til
sinna nota. og urðu nokkrir eft-
ir úti í eynni til að ganga end-
anlega frá húsinu. Síðan er ætl-
unin að einhver hafist við í hús-
inu að staðaldri, en vísindamenn
Framhald á 7. síðu.