Þjóðviljinn - 24.07.1966, Page 1
B/jabúar harSir í sjónvarpsmáiinu:
Furðulegar uðgerðir
bseiurstjómurmnur!
□ Þau furðulegu tíðindi gerðust í sjónvarpsmálinu í Eyjum í fyrradag, að
eftir að kunnugt varð í Vestmannaeyj um um þá ákvörðun stjómarvaldanna
að láta loka hinni ólöglegu sjónvarpsendurvarpsstöð þar, var bóðað til auka-
fundar í bæjarstjóm kaupstaðarins og samþykkt með atkvæðum allra bæj-
arfulltrúa að mótmæla lokuninni og jafnframt dregin í efa heimild viðkom-
andi stjómarvalda til þessara aðgerða.
□ Þá samþykkti bæjarstjórnin einnig með 8 samhljóða atkvæðum að taka
eignarnámi rafstreng Landssímans upp á Stóra-Klif, sem notaður hafði ver-
ið í beimildarleysi fyrir endurvarpsstöðina, og að heimila notkun hans
í sambandi við endurvarpsstöðina að eignarnámsframkvæmdum loknum.
Eins og ádur segir samþykkti
bæjarstjórn Vestmannaeyja einn-
ig að taka rafstreng þann sem
Landssíminn lagði á sínum tíma
upp á Stóra-Klif, og notaður hef-
ur verið í heimildarleysi fyrir
endurvarpsstöðina, eignarnámi.
Jafnframt samþykkti bæjarstjóm
að leyfa afnot af strengnum til
endurvarpsstöðvarinnar þegar er
eignaraámsaðgerðimar hefðu náð
fram að ganga.
S urfur og j
Sœmundur \
á selnum
Um Ieið og Ijósmyndari [
Þjóðviljans, Ari Kárason, [
tók myndimar af gróður- ■
húsi Stefáns Árnasonar :
skauzt hann inn í garðinn :
til Ásanxmdar Sveinssonar, [
myndhöggvaraa, og tók [
þar þessa skemmtilegu [
mynd. Til vinstri er ný- ■
Ieg höggmynd er Ásmund- :
ur nefnir „Surt“. Til hægri [
er höfuðið af „Sæmundi á [
Selnum“.
Þjóðviljinn reyndi í gær að
ná sambandi við lögfræðing
Landssímans til þess að leita á-
lits hans á þessari eignarnáms-
samþykkt bæjarstjórnarinnar en
tókst það því miður ekki- Hins
vegar mun að jafnaði þurfa sér-
staka lagasetningu 'til þess að
heimila eignarnám og er Þjóð-
viljanum ekki kunnugt um, hvort
samþykkt bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja hefur einhverja slíka
stoð í lögum að bakhjarli-
Loks samþykkti bæjarstjórnin
áskorun til viðkömandi stjórnar-
valda að hraða up: setningu end-
urvarpsstöðvar í Eyjum fyrir ís-
lenzka sjónvarpið. I þessu sam-
bandi getur Þjóðviljinn upplýst,
að fyrsta endurvarpsstöðin fyrir
ísienzka sjónvarpið verður ein-
mitt sett upp í Vestmannaeyj-
um- Er stöðin þegar komin til
lapdsins. og fjárveiting fyrir
hendi til uppsetningar og er þess
að vænta að hún verði. sett upp
strax og íslenzka sjónvarpið* tek-
ur til starfa sem mun verða í
haust. Ættu Vestmannaeyingar
því að geta beðið rólegir þangað
til í stað þess að vera að basla
við að koma sér upp sníkju-
stöð fyrir Keflavíkursjónvarpið
í trássi við Jandslög-
. Mótmælasamþykkt bæjar-
stjórnarinnar er svohljóðandi:
f „Bæjarstjórn samþykkir að
mótmæla tilkynningu útvarps-
stjóra semkvæmt fyrirmælum
mcnntamálaráðuneytisins um
bann við ráðstöfunum Vest-
mannaeyinga til að geta horft á
sjónvarp, þar sem bæjarstjórn
telur vafasamt, að í lögunum
um ríkisútvarpið séu nokkur á-
kvæði, sem slíkt bann geti
byggzt á.“ ■ t
í greinargerð með samþykkt-
inni segir m.a. að tugþúsundir
íbúa í þéttbýlinu við Faxaflóa
horfi á sjónvarp frá Keflavíkur-
flugvelli þegar þeim sýnist og
verði að telja fráleitt að banna
öðrum landsmönnum að skapa
sér sömu aðstöðu, ef þeir vilji
leggja í þann kostnað sjálfir er
því fylgir.
í sambandi við þessa greinar-
gerð er rétt, að benda á, að sam-
kvæmt íslenzkum lögum hefur
Ríkisútvarpið einkarétt á dreif-
ingu útvarps og sjónvarps hér
á landi og'>samkvæmt þeim er
endurvarpsstöð fyrir Keflavík-
ursjónvarpið því ólögleg alveg
eins og það væri ólöglegt að
einstaklingar reistu endurvarps-
stöð hér á landi fyrir Keflavík-
urútvarpið.
Stórt gróÓur-
hús oð risa i
Reykjavik
* Inni í Sigtúni er að rísa, mik-
* ið gróðurhús. Það er Stefán
* Árnason bóndi að Syðrx*-
* Reykjum sem á gróðurhúsið,
* Á balcsíðu er nánar frá þess-
* um framkvæmdum sagt. —
* Myndin er af verkamönnum
* að vmnu við gróðurhúsið. —
* (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
fbúðarhús skenm-
ist af eldi
í fyrrinótt kom upp eldur í
íbúðarhúsi að Krossamýrarbletti
9 á Ártúnshöfða. Kviknaði £ út
frá eldavélarröri og urðu
skemmdir allmiklar af eldi á
loftum í eldhúsi, stofu og gangi
og einnig varð að rífa hluta af
þakinu til þess að komast fyrir
eldinn. Þá urðu og talgverðar
skemmdir af vatni og reyk.
Enn kynþátta-
óeirðir í Banda-
CLEVELAND 23/7 — Enn eru
kynþáttaóeirðir í þremur borg-
um í Bandaríkjunum í dag, og
hefur lögreglan í Clevsland
handtekiS sex hvíta menn og
eru þeir grunaðir um að hafa
æst til óeirða.
Kynþáttaóeirðirnar í Cleveland
hafa heldur breiðst út og hefur
komið til átaka í dag í hverfi
hvítra manna í borginni, en
hingað til hafa óeirðirnar eink-
um .verið í kringum íbúðahverfi
blökkumanna, Hough-
Þá ha|a óeirðirnar í Brooklyn
farið vaxandi og einnig í smábæ
í New York fylki.
27 skip veiddu sam-
tals 1677smálestir
Síldarfréttir Iaugardaginn 23-
júlí 1966.
Stormur var í gær á sildar-
miðunum og skipin ýmist i vari
við Jan Mayen eða á leið til
lands- Nokkur skip tilkynntu um
veiði frá því aðfaranótt föstu-
dags-
Samtals 27 skip með 1977 lest-
ir-
Raufarhöfn:
lastir.
Halkion VE 110
Skarðsvík SH 90
Ólafur bekkur OF 70
Guðbjörg GK 31
Gjafar VE 170
Sigurður Jónsson SU 60
GuUberg NS 110
Akraborg EA 35
Fákur GK 65
Seley SU 120
Skálaberg NS 50
Jón Þórðarson BA 55
Hávarður IS 60
Sæfaxi II. NK 66
Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 90
Dalatangi:
' lestir.
Barði NK 180
Vonin KE 25
Ólafur Sigurðsson. AK 100
Dan IS 65
Höfrungur II. AK 80
Sóley ÍS 65
Grótta RE , 100
Snæfugl SU 50
Guðrún GK 40
Jörundur II. RE 50
Æskan SI 20
Siglufjörður: lestir.
Bjarmi EA 70
Innbrotsþjófur
staðian að verki
í fyrrinótt voru framin tvö
innbrot hér í Reykjavík. Var
sami maðurinn að verki á báðum
stöðum og handtók lögreglan
hann á síðari , innbrotsstaðnum.
Fyrst brauzt hann inn í verzkin-
ina Málningarvörur að Berg-
staðastræti 19 bg stal þar 2800
krónum í peningum og síðan
brauzt . hann inn i mjólkurbúð
-?ð Týsgötu 8 og þar var hann
tekinn.
Síiari dagur lands-
□ Landskeppni Dana og íslendinga í sundi hófst
í nýju sundlauginni í Laugardal í gærdag um líkt
leyti og Þjóðviljinn var tilbúinn til prentunar svo
að ekki er unnt að skýra frá úrslitum í þessu blaði.
Keppninni verður haldið áfram
í dag klukkán 5 síðdegis og þá
keppt £ sex greinum landskeppn-
innar: 100 m skriðsundi karla
(Jóhn Bértelsen, Guðmundur
Gíslasori og tveir aðrir), 100 m
flugsundi kvenna (Bente Dunker
og Hrafnhildur Guðmundsdóttir),
200 m baksundi karla (Lars Kr.
Jensen og Davíð Valgarðsson),
100 m skriðsundi kvenna (Vi-
beke Stot, Hrafnhildur Kristjáns-
dóttir og þrjár til viðbótar), 4x
100 m fjórsundi kvenna og 4x
100 m fjórsundi karla- Auka-
greinar í dag verða fjórar: 100
m bringusund karla. 100 m br,-
sund kvenna, 100 m skriðsund
karla og 100 m baksund stúlkna-
23/7 — Gromiko utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna kom til
Tókíó í dag til að rasða við jap-
önsku stjórnina.
Féll í höfnina
og drukknaði
Um klukkan 6-40 í gærmorgun
var tilkynnt til lögreglunnar að
maður hefði fallið í sjóinn út af
Ingólfsgarði. Félagi mannsins og
skipverji af varðskipinu Óðni
köstuðu sér í sjóinn til þess að
reyna að bjarga honum en tals-
verða alda var og náðu þeir
ekki til hans og björguðust sjálf-
ir nauðuglega með aðstoð vakt-
manna á bryggjunni. Andri Heið-
berg kafari náði líki mannsins
upp um klukkustundu síðar.
Ekki er hægt að birta nafn
mannsins að sinni en hann var
héðan úr Reykjavík, tvitugur að
alcjj'i.