Þjóðviljinn - 24.07.1966, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 24.07.1966, Blaðsíða 2
2 SÍÖA — MOÐVILJXNN — SunnudaSar 24. jölí 19ÍB. SVELLANDI SVEITABALL Á TUTTUGUSTU ÖLD Myndin upphefst á því, að Hljómar ern á þeysireið á leið á svcitaball,, og CONTRY DANCE hljómar í öllu sínu veldi. Síðan koma svipmyndir, sem sýna unga fólkið drífa að á hinuin ólíklegustu farartækjum, allt frá flugvél ofan í traktor. Öll eru þau á leið á sveitaballið. Piltamir eru búnir að koma hér fyrir í samkomuhúsinu, hvort sem það er Hlégarður, Hvoll eða Aratunga. Eitt par er á gólfinu og dansar á listitegan máta. Sumir kynnu kannski að halda, að lagið, sem nú er leikið vísi tU hugrenninga Hljóma-piltanna, BETTER DAYS (Það koma betri dagar), en sú hugmynd hlýtur að hverfa út I veður og vind fljótlega, því á næsta augnabliki er gólfið iðandi af dansandi fólki. Ungt fólk á sveitaballi. Ærandi gitarmúsík, flöktandi stúlkuaugu, hendur, sem mætast, munnar, sem mætast. Þrýstin meyjarbarmur hefst og hnígur í trylltri dansgleði. Skakkt bros ðansherrans opinberar röð af skemmdum tönnxun. MY LIFE. Tónamir hníga frá hljómsveitinni eins og í þungum en samt iðandi öldum. Æskufólkið er sem lostið annarlegum öflum. Stjörf augu, gretta, hlátur, þvöl hönd 20 cm fyrir ofan hné. Stúlkan verður andstutt og hjartað berst í takt við lagið I DON’T CARE (Mér stendur á sama). , Erlingur sleikir hljóðnemann í djúpri innlifun og Pétur gengur upp og niður við trommurnar. Allt annað er fá- sinna. Hann erí trans og skynjar EKKERT nema „beatið“. Húfan hjá Gunnari stingur skemmtilega í stúf við allt að því heimspekilega svipinn, en Rúnar brosir eins og hann hafi nýlega skorað úrslitamarkið fyrir Keflavík. Áfram heldur dansleikurinn. Unga fólkið hristist af. Híi . og sál í takt við lagið. Hún horfir ertnislega á piltinn, en hann hugsar um partíiö á eftir, og skyldi vera gott að sofa hjá henni? Hann skekur sig til eins og maður, sem er óvanur að vinna við loftbor. Aðskorin peysa að síðbuxum opinberar margt, en hann fyllir upp í það, sem á vantar. Hvelfdur magi, lendar, brjóstin, rakar varir. Sítt hárið leikur um axlimar. Trú- lofunarhringurinn í vasanum. Hún lýtur að honum og hvíslar. IP YOU KNEW (Ef þú vissir það). Þetta fjöruga lag berst í hringiðu yfir salinn, og lögregluþjónn fær sér í nefið og veltir vöngum yfir því, hvort að hann hafi krossað rétt á kosningadaginn. Það dregur að leikslokum, faðmlögin verða heitari. Vangi við vanga. Lukt augu, sem gefa fyrirheit, og LOVE ENOUGH leika Hljómar. Lagið berst út yfir mýr- ar ög móa. Ástaróður á atómöld. Bifreið kemur í Ijós uppi á hæðinni. Síðan önnur. Ljós þeirra skera myrkrið eins og framandi fyrirbæri frá annarri stjömu. Þessu er lokið jafn skyndilega og það byrjaði, en ef til vill er eftirleikurinn svellandi partí. — — Þetta er æska íslands eins og hún er anno 1966. Þetta er sveitaball. Benedikt Viggósson. Leðurjakkar á stóíkur og drengi. Peysirr og peysuskyrtur. Géðar vörur — Gott verð. Verzlunin O. L. Traðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu). f-] Þessi leikur Vals og Keflavíkur hristi þó nokkuð slenið af knattspymunni hér í dag, a.m.k. bauð leikurinn upp á góða skemmtun, morg mörk og vissan spenning um úr- slit þrátt fyrir 4:0 í fyrri hálfleik fyrir Val. | | En Keflvíkingar voru ekki af baki dottnir, og komu út í síðari hálfleik sem nýtt Qg óþekkjanlegt lið frá fyrri hálfleik þar sem þeir voru alls ráðandi næstu 30 mínútum- ar, en mörk þeirra urðu samt aðeins þrjú. Valur byrja&i með 4:0, en Kefla- vík hafði nærri jafnað — úrslit 4:3 '• . \ Fyrirfram var búið að spá góðum leik milli þessara liða, og stóðust þær spár á flestan hátt. Bæði liðin sýndu oft góð tilþrif í samleik og þó háifleik- urinn end'aði með 4r0 fyrir Val, var hann ekki svo ójaín, sem þær tölur benda til. Hinsveg- ar vonu Valsmennimir næmari á smugumar í vöm Keflavík- urliðsins og komust laglfega í gegnum , þær og fengu þrjú mörk sín einmitt á þann hátt. Fyrsta markið kom eftir 11 minútur og skoraði Ingvar það eftir góða sendingu frá Berg- steini, og gat Kjartan i mark- inu ekkert við það ráðið. Mörk Vals Fimm mírrútum síðar kom 'svo annað mark Vals og skor- aði Ingvar það einnig, eftir góða sendingu og góðan forieik Reynis og Hermanns. Það var eins og Keflvíking- amir kæmust aldrei í gang til að skapa sér hættuleg tækifæri. þeir skutu lika of mikið af löngu færi, ýmist framhjá eða í hendumar á Sigurði i marki Vals. Á 29 mínútu dæmj.r Baldur vftasþyrnu á Kfeflavik fyrir bragð á vítateig, og skoraði Reynir örugglega úr henni. Litlu síðar fengu Keflyíkingar óbeina aakaspymú rétt/ við vítateigslínu, og ýtti Magnús Torfasön knettinum til Jóns sem skaut fast út við stöng, en Sigurður varði. Var þetta laglega gert af öllum- Valsmenn halda sókninni og ógna hvað eftir annað og á 37 * mínútu ver Sígurðnr Alberts- son á línu. Aðeins þrem minútom fyrir hlé er Hermann kominn út tfl vinstri og faar knöttinn þang- að, .lefkur á vamarmann og skorar með óverjancfi skoti og þannig lauk fyrri hðlflerk. Keflvíkingar einráðir Það var enga Ekara en að Keflvikingar kæmu með nýtt lið út á vöHinn eftir leikhié, lið sem tók öll völd á véllin- um og hélt uppi látlausri sókn næstu 30 mínúbumar. Má segja að Valsmenn hafi varla komizt út fyrir miðju og þvi síður ógn- að marki Keflvíkinga á þessum tíma. Knettinum var ekki fyrr spymt frá marki Vals en vöm- in fékk hann í höfuðið aftur. Hinn hraði og oft skemmti- legi leikur Vals var nú allur á bak og burt og beir náðu engum tökum og urðu að berj- ast f vóminni og bjarga því sem bjargað varð hverju sinni- Það var engu líkara en að liðið í heild hefði álitið. að nú gætu þeir tekið þetta rólega, þetta væri ouðveldur sigur, en það varð nú síður en svo, og á köfktm var það fyrir heppni að þeir fengu ekki á, sig fleiri mörk en raun varð á. Þegar á fjórðn mínútu síðari hálfleiks « Magnús hörkuskot af löngu færi «em Sigurður fær naumlega slegið i hom og litlu síðar í einni sóknarlotunni, ver Þorsteirm Friðþjófsson á línu hörkuskot frá Einari Gunnars- syni. Þesri sóknarþungi hlaut að enda með marid og á 6. mfnútu fær Jón Ólafur sendingu frá Karfi, og skallar Jón laglega í mark. Þetta örfar Keflavfk og er ekkert lát á sókninni og brá þá oft fyrir hröðum og góðum samleik í sóknarlínu Keflavíkur, þar sem Valsmenn virtust staðir og ósjálfbjarga í þessum hamagangi. Á 17- mín- útú fá Keflvíkingar aukaspyrnu langt út til vinstri og spymir Jón Ólafur vel fyrir markið. en vöm Vals glejrmir að loka og lendir knötturinn í sóknar- manni Keflvíkinga og hrökk þaðan í markið- Þetta mark áttu Valsmenn að verja. Þetta dregur ekki kjarkinn úr Keflvílcingum> og sækja þeir enn sem fastast og munaði litlu að Einar Magnússon skor- aði með góðu skáskoti en knött- urinn straukst framhjá. 28. mínútu er Magnús Torfa- son sem oftast var skipuleggj- andinn og sá sem undirbjó sóknaratlögur Keflvíkinga, kom- inn inn í vítateiginn og fær þangað ágæta sendingu og með góðum skalla skorar hann þriðja mark Keflavíkur. Jafntefli liggur í loftinu og sigur Keflavíkur þá mun lík- legri eins og þeir höfðu leikið þennan hálfleik. En þá er eins og Valsmenn vakni af svefni sínum og hrinda nú tíðar sókn Keflvíkinga en áður, kannski þeir sunnanmenn hafi tekið Of nærri sér til að halda þessari áköfu sókn áfram- En svo mik- ið er víst, að leikurinn jafnast og í þessar 15 mínútur skiptast liðin á um að sækja og má segja að jafntefli hefðu' verið nokkuð sanngjöm úrslit. Éins og Valsliðið lék fyrri hálfleik, ættu þeir að komast langt í þessu móti, en það er ljóður á liðinu að geta dottið svo niður í samfleytt 30 mín- útur, eins og það gerði, og er erfitt að skýra það fyrirbæri, en það getur verið liðinu dýrt spaug- Svipað er raunar um Kefla- vík ,að segja og ef þeir geta í heilum leik endurtekið 30 mín- útumar í síðari leik, ættu þeir ekki að verða í vandræðum með að komast á toppinn í mótinu. En það er einmitt þetta öryggisleysi í okkar knatt- spyrnu í dag sem speglaðist í þessum leik, og það hjá okkar e-t.v. tveim beztu liðum ídag. Beztu menn Vals voru Her- mann, Ámi Njáls, Þorsteinn Friðþjófsson og Reynir, Fram- verðirnir Hans og Sigurjón náðu ekki að trufla nóg sókn mótherjanna, eða byggja upp sókn þegar þess var verulega þörf. Liðin I liði Keflavíkur voru beztir Magnús Torfason, sem var e-t.v- bezti maður liðsins og hann og Einar Magnússon vom þeir, sem mestu réðu á miðju vallar- ins- Einar Gunnarsson lofar góðu. Aftasta vöm Keflavíkur með Sigurð Albertsson sem bezta mann, var skipuð sterk- um einstaklingum, en hún féll ekki nógu vel saman í fyrri hálfleik þegar verulega reyndi á hana. Jón Ólafur lék oft ágætlega og ógnaði hvað eftir annað, og ruglaði vörn Vals. 1 heild var þetta skemmti- legur leikur, enda veður hið bezta, og áhorfendur margir. Dómari var Baldur Þórðar- son og slapp allvel, en sást oft yfir hindranir sem höfðu al- varlega þýðingu fyrir gang leiksins. Frímann. Skrifstofur borgarstjóra í Austurstræti 16 og Pósthústræti 9 verða lokaðar mánudaginn 25. júlí, kl. 10—12 f.h., vegna útfarar Guttorms Erlendssonar borg- arendurskoöanda. LEYLAND DIESELVÉLAR í bifreiðir iðnaðarvélar þungavinnuvélar og fi Seldar með eða án gearkassa og kúplingu LEYLAND hefur örugga varahlutaþónustu LEYLAND umboðiö ALMENNA VERZLUNARFÉLAGIÐg # SKIPHOLT 15 SÍMI 10199 SÍÐUMÚLI, 19 SÍMI 35553 LoylandMcÁor | CbrpSfalion

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.