Þjóðviljinn - 09.08.1966, Síða 5

Þjóðviljinn - 09.08.1966, Síða 5
Þriðjudagur 9. égúst 1966 — ÞJÓÐVTLJINN — SÍÐA g HlöSver SigurSsson: Nokkrar vinsamlegar bend- ingar ti/ ungs rithöfundar Hr. Freysteinn Þorbergsson. Eins og þú mun hafa setlazt til, hefur grein þín í Morgun- blaðinu 24. júlí, „Sannleikur- inn (um) og Tarsis“, vakið nokkurt umtal. Eru þeir dóm- ar nokkuð misjafnir eins og nft vill verða. Ekki hygg ég þó, að menn almennt hafi skilið allan tilgang þinn með grein- inni, enda tilgangurinn ef til vill margþættur. Á einum vinnustað, þar sem greinin var rædd, kom einn verkamaður með þá skýringu, að greinin væri fyrst og fremst stílæfing og þar með undirbúningur undir þitt stórbrotna lifsstarf sem rithöfundur. Ég hygg, að þetta sé, ef ekki allur sann- leikurinn, þá að minnsta kosti stór hluti af honum, og þá verður greinin auðvitað ekki rétt metin nema með hliðsjón af því. Þá fer til dæmis að verða afsakanlegra, það sem margir hafa láð þér, að þú skulir hafa þagað í átta ár um harðstjórnina í Sovétríkjunum og ekki hafa hafizt handa fyrr við hið mikla endurlausnar- starf að útrýma heimskommún- ismanum, eins og það er þó orðið aðkallandi eftir öll þessi ár. Ég skil það hins vegar vel, að endurlausnari mannkynsins þarf að búa sig vel og lengi undir starf sitt Jesús Krist- ur var orðinn þrítugur, þeg- ar hann hóf að kenna, og ef ég man rétt fastaði hann úti í eyðimörkinni fjörutíu daga áður en hann tók til starfa. Líkt held ég sé að segja um fleiri trúarbragðahöfunda, en ég er ekki nógu vel að mér í trúarbragðasögu til að heimfæra meira af því tagi. Ég vil því einkum skoða grein þína út frá sjónarhóli bókmenntanna ' og gefa þér nokkrar vinsamlegar bendingar í því sambandi. Við skulum þá íyrst líta á hinar jákvæðu hliðar. Þér virð- ist vcra írcmur létt um að skrifa, og ég býst við, að þú sért vel fær í greinarmerkja- setningu og stafsetningu. En ó- lukku prentvillupúkinn heíur gert þér þann skolla að prenta alls staðar lygi með ý í stað y. Þú hefur íremur lipran stíl og mikinn orðaforða, en þér hættir til að ausa um of af þeim nægtabrunni. Rilhöfund- ur, scm bruðlar með orðaíorða sinn, er eins og glysgjörn kona, sem hengir á sig allt glingrið sitt, þegar hún vill halda sér til. Það minnir á myndina, sem Halldór Laxness dregur upp af Ólafi digra, þegar hann klæddist öllum skikkjunum hverri utan yfir aðra. Myndauðugur getur stíll þinn þó ekki talizt. Það kem- ur bezt í Ijós, þegar þú ætlar að draga upp mynd af því voðalega fangelsi, sem Sovét- rikin voru þér. Það er ekki nóg að segja, að það væri númer á herberginu þínu. Það er nefnilega númer á öllum hótelherbergjum, líka á Hótel Hvanneyri, sem þú stjórnaðir einu sinni. Hafðir þú kannski ekki veitt því athygli. Nei, það hefði verið áhrifameira, ef þú hefðir getað látið lesendur gruna fangaverði og helzt fangaklæðnað. Fjórar skákir frá HM stádenta / skák Hér fara á eftir nokkrar skákir frá heimsmeistaramóti stúdenta í skák, sem nú fer fram í Örebro í Svíþjóð. FYRSTA UMFERÐ: Hvítt: Jón Þ. Þór. Svart: Jansa, (Tékkóslóvakía). Sikileyjarvörn 1. e4, c5; 2. Rf3, e6; 3. d4, cxd; 4. Rxd, Rc6; 5. Rc3, d6; 6. g3, Rf6; 7. Bg2, Bd7; 8. Rce2, a6; 9. c4. Be7; 10. 0—0, 0—0; 11. b3, Rxd4; 12. Rxd4, b5; 13. e5, dxe5; 14. Rc6! Bxc6; 15. -Bxc6, Hb8; 16. cxb5, axb5; 17. Dxd8, Hfxd8; 18. Bb2, e4; 19. Bxf6, Bxf6; 20. Hadl, Bd4; 21. Bxe4, f5; 22. Bd3, Ha8; 23. Bxb5, Hxa2; 24. Hdel, e5; 25. He2, Hxe2; 26. Bxe2, Ha8; 27. Bc4t, Kf8; 28. Hel Ke7; 29. He2, g;5; 30. Kg2, Kf6;,31. h3, h5; 32. Hc2, e4; 33. Hd2, Ke5; 34. f4f, exf3; 35. Kxf3, g4f; 36. hxg4, hxg4t; 37. Kg2, Ke4; 38. Be6, Ha5; 39. b4, Hb5; 40. He2t, Kd3; 41. Ha2 — jafntefll. Hvitt: Tompa (Ungverjaland). Svart: Davie (Skotland). Frönsk 1. e4, e6; 2. d3, d5; 3. Rd2, Rf6: 4. Rf3, Be7; 5. g3, 0—0; 6. Bg2, c5; 7. 0—0, Rc6; 8. Hel b5; 9. e5, Rd7; 10. Rfl, Bb7; 11. h4. a5; 12. Bf4, a4; 13. h5, a3; 14. b3, Bb6; 15. h6, g6; 16. Dd2, d4; 17. Bg5, Rd5; 18. Rh2. Rcb4; 19. Rg4, Kh8; 20. Bxe7, Dxe7; 21. Rg5, Rxc2; 22. Bxd5. Bxd5; 23 Rf6, Rxal; 24. Hxal. c4; 25. dxc4, dxc4; 26. bxc4, Bxc4; 27. Hcl, Hfc8; 28. Db4, Bd5; 29. Hxc8, Hxc8; 30. Kh2, Dc7; 31. Dd4, Ha8; 32. Rxd5, Hd8; 33. Df4. — gefið. Hvítt: Hort (Tékkóslóvakía) Svart: Trausti Björnsson. Pirc- vörn. 1. e4, d6; 2. d4, Rf6; 3. Re3, g6; 4. f4, Bg7; 5. Rf3, 0—0; 6. Be3, c6; 7. Bd3 Rbd7; 8. h3, Dc7; 9. g4, e5; 10. dxe5, dxe5; 11. f5, Hd8; 12. De2, b5; 13. 0—0—0, Bb7; 14. fxg6, hxg6; 15. Rg5, a6; 16. Df2, c,5; 17. Rd5, Dd6; 18. Hhfl, c4; 19. Rxf6t Dxf6; 20. Dh4, cxd3; 21. Dh7t, — gefið. ÖNNUR UMFERÐ: Hvítt: Jón Þ. Þór. — Svart: E. C. Scholl (Holland). Kóngsind- versk vörn. 1. d4, Rf6; 2. c4, d6; 3. g3, g6; 4. Bg2, Bg7; 5. Rf3, 0r-0; 6. 0—0, Rc6: 7. Rc3, a6; 8. e4?, Bg4; 9. h3, Bxf3; 10. Bxf3, Rd7; 11. Be3, e5; 12. d5, Rd4; 13. Bg2, c5; 14. dxc dxc; 15. b4, de7; 16. Dd3, De6; 17. Hfcl, a5; 18. b5, Rc5; 19. Dfl, cxb; 20. cxb, a4; 21. Rd5, Hab8; 22. Habl, Dd7; 23. b6, Hb7; 24. h4, Dg4; 25. Bxd4, exd4; 26. Rf4, Hb8; 27. Kh2, Be5; 28. f3, Dd7; 29. Bh3, Dd8; 30. Rd5, d3; 31. Hxc5!, dxc5; 32. Dxd3, Hb7; 33. Dc4, Db8: 34. f4, Bd4; 35. e5, Hd8; 36. Bg2. Kg7; 37. Dxa4, h5; 38. Dc6. c4: 39. Df6t Kh7; 40. Re7 Hf8. 41. Bxb7 (?), Dxb7; og gafst upp um leið. <5>- Eins og ég sagði áður, má vara sig á orðunum. „Þeir taka upp orð í kippum við götu sína og tala — það fæ ég enn ekki skilið", segir eitt unga skáldið okkar. Það má ekki strá orðunum í kringum sig hugsunarlaust, þau hafa nefnilega öll ákveðna merk- ingu, eða eiga að minnsta kosti að hafa það. Það hefði til dæmis vcrið áhrifameira, þegar þú íerð að telja upp allar tegundir af lygi, sem þú kannt að neína, að ílokka þær. Það mátti gera á ýmsa vegu, t.d. draga íram samstæður eða þá andstæður, og í þriðja lagi mátti hafa jafna stígandi í upplalningunni. Það sést ekki, að þú gerir neinn mun á smá- lygi og stórlygi. Svo er það meinlegur galli, að þú hefur gleymt að minnsta kosti einni lygi, einmitt þeirri, sem rit- höfundur þarf að kunna góð skil á til að geta varazt hana, en það er sjálfslygin- Mesta skáld á Norðurlöndum H. Ib- sen varði allri ævi sinni til að afhjúpa hana. Nokkru máli skiptir, að rit- smíðar beri viðeigandi nöfn. Fyrst hét grein þín Sannleik- urinn um Tarsis, en seinna var það leiðrétt, og nú kvað hún heita Sannleikurinn og Tarsis. Þér mun hafa þótt íyrra nafn- ið hafa of þrönga merkingu, því að lífshlaup þitt og fleira, sem þú ræðir um í grein þinni, er ekkert skylt við Tarsis. En er þá ekki siðara naínið að sama skapi of yfirgripsmikið? Nokkru nær hefði verið Tars- is og sannleikurinn um Sov- étríkin. Hitt nafnið minnir mig á bókartitil, sem íslenzkur prestur gaf smáritlingi, sem hann gaf út og nefndi: „Um guð alheiminn og margt fleira“. Sannleikurinn er neínilega nokkuð fyrirferðarmikill, eí þú hefur ætlað að taka hann all- an með. Þá skulum við næst athuga lítils háttar efni greinar þinn- ar. Eflaust ætlast þú til, að lesendur taki mark á henni, en eins og þú segir sjálfur, eru menn oft á tíðum býsna tor- tryggnir á áróðursgreinar í blöðum. Jafnvel blaðakona Morgunblaðsins lýsti yfir þvi, að hún tæki lítið mark á Tars- is. Ég hygg, að það stafi mest af því, hve írásögn hans var einhliða og oístækisfull. Nú hef ég orðið þess var, að af- I arfáir taka grein þína alvar- lega. Ég held bara það séu ekki aðrir en ritstjórar Vísis og Morgunblaðsins. Gæti það nú ekki stafað af þvi, að hún sé nokkuð einlit? Hcldurðu ekki. að lesendur hefðu trúað þér betur, ef þú hefðir getað bcnt á eitthvað jákvætt í fari sovézkra stjórnarvalda? Þar er kannski íátt um fína drætti, en þó hafa þeir íorsetar Banda- rikjanna, Kcnnedy og jafnvel Johnson, þótzt finna þar ýmis- legt jákvætt, en kannski eru þeir nú bara blekktir af ein- hverri bannsettri rússnesku lyginni, hvaða nafni, sem við ættum nú að nefna hana. Þú segir lesendum ævisögu þina i stórum dráttum, og á hún víst að sanna, að maður með svo víðtæka lífsreynslu, sé fær um að birta okkur all- an sannleikann að minnsta kosti um Sovétríkin. Hér eins og víðar er þó of laust tekið á málum. Mann grunar. að þú dragir eitthvað undan. Við skulum segja, að það sé óvilj- andi. Þar gæti hún hafa leikið á þig lygin, sem þú gleymdir að væri til, hún hefur margan leikið grátt. Lífsreynsla sú, sem þú segir frá, er fyrst og fremst sú, að þú hefur flakkað um fimmtán lönd. stundað allmörg störf og kynnzt kommum, krötum, framsóknarmönnum og sjálf- stæðismönnum — þeim höfum við hinir nú kynnzt líka öll- um saman. En þetta, sem þú segir írá, eru bara ytri at- burðir í lífi þínu. Þú gefur líka í skyn, að þú haíir vitað hið sanna um Sovétríkin, áð- ur en þú fórst þangað til dval- ar. Það er ekki gott að hafa íyrirframsannfæringu, ef leggja skal hlutlaust mat á málefnin. En ekkert þetta skýrir þá stór- kostlegu hugarfarsbreytingu, sem hjá þér hcfur orðið síðan þú varst barn, og nú vil ég tilfæra þín eigin orð: „Sem barn hafði ég í styrjöldinni haft mesta samúð með þeim aðila, sem halloka fór hverju sinni. Þarna haíði því samúð mín snúizt írá Rússum til Þjóð- verja, þótt ætíð væri hún blönduð báðum“. Þetta var á vígvöllunum við Moskvu, þar sem herir nazista urðu að láta undan síga. Mcðaumkunin er svo rík í fari þínu, að samúð þín snýst á sveif með herjum Hitlers bara af því að þeir fara halloka án tillits til málstaðar. Svona er barnslund þín ennþá hrein, og þó ertu búinn að vera með kommum í Moskvu. En nú er orðin mikil breyting á hugarfari þínu. Nú talar þú fagnandi um „hreinsun Indó- nesíu“, þar sem kommúnistum er slátrað í hundraða þúsunda tali, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, án þess að hafa nokkurn möguleika til að verjast. Nú er samúð þín ekki lengur mcð þeim, sem halloka fer, heldur með þeim, sem drepa. Svipað er að segja um átökin í Vietnam. Mér finnst næstum óhugsandi, að þessi mikla hugarfarsbreyting geti stafað af kynnum þínum af Sjálfstæðismönnum á Siglufirði, en það er sú eina líísreynsla, sem þú heíur bætt við þig, síð- an þarna í Moskvu íorðum, ef bara er stuðzt við ævisögu þína í Morgunblaðsgrein þinni. Ég fer nú ekki að hafa þessi orð öllu fleiri. Þú mun skilja af þeim, að enn þá tel ég þig skorta nokkuð á að geta tekið þér fyrir hendur að ráða nið- urlögum kommúnismans, þótt þú jafnvel nytir litils háttar stuðnings frá Tarsis og fleiri góðum mönnum. Þú ert alls ekki fullþroska rithöfundur enn þá, en í því hlutverki mun þurfa mikils við. Þú þarít líka að öðlast meiri tiltrú hjá þjóð þinni fyrst og síðan hjá öðr- um þjóðum. íslenzk alþýða er svo hláleg, að hún heldur, að það sé ekki nóg að flakka til útlanda til að sðlast vizkuna. Samanber vísupartinn: „Kálfur sigldi, kom út naut, kussi lifði og dó hann“, sem enginn skyldi þó voga sér að heimfæra upp á þig. Liklega er þér þetta líka sjálfum ljóst. Þess vegna vfllt J>ú enn auka lífsreynslu þína að minnsta kosti næstu fjögur árin sem bæjarstjóri á Siglu- íirði. Þú ræddir í því sam- bandi við annan bæjarfulltrúa Alþýðubandalagsins, Kolbein Friðbjarnarson, og leitaðir eft- ir stuðningi hans, en eins og þú veizt erum við Alþýðu- bandalagsmenn venjulega kall- aðir kommúnistar af sálufélög- um þínum. Þetta táknar vænt- anlega það, að þú ætlir ekki að beita hér sömu aðferðum gegn kommum og þeir gera í Indónesiu, enda hefur hingað til verið látið nægja að segja að þeir mættu hypja sig úr bænum. Svo tek ég eindregið undir orð þín: „Engan stríðs- áróður“. Að svo mæltu kveð ég þig með beztu óskum, og minni þig á að varast þá lyg- ina, sem þú gleymdir að væri til. Siglufirði, 1. ágúst 1966. Hlöðver Sigurðsson. Framkvæmdastjóri rannsoknamála í Noregi í heimsókn hér E. Fjellbirkeland, framkvæmda- stjóri hinnar nýju yfirnefndar rannsóknarmála í Noregi (Hov- edkomiteen for Norsk Forskn- ing), kemur til Islands á vegum Rannsóknan-áðs ríkisins ogdvelst hér dagana 9.—15. ágúst. Hr. Fjellbirkeland mun taka hér þátt í umræöum, sem Rann- sóknarráð efnir til, ,um skipu- lag rannsókna á Islandi. Næstkcmandi fimmtudag, 11. ágúst, flytur hann fyrirlestur í 1. kennslustofu Háskólans. Fyrir- lesturinn nefnist: Organisation for naturvidenskabelig forskning og humaniora med særlig hen- blik paa de erfaringer som er gjort í Norge. Aðgangur að fyrirlestrinum er öllum heimill. (Frá Rannsóknarráði rikisins). Scð yfiT nokkurn hluta sýningarsvæðisins í BRNO. Iðnsýningin og kaupstefnan í Brno 11.-20. september n Dagana 11—20. scptember næst komandi verður haldin hin árlega alþjóðlega vörusýn- ing og kaupstefna í borginni Brno í Tékkóslóvakíu. Sýnend- ur verða yfir 900 S hópi stærstu framleiðenda og sölufyrirtækja allra helztu iðnaðarlandanna í austri og vestri. Eins og oftast nær áður verð- ur höfuðáherzla lögð á það i Bmo í haust að sýna hvers- konar iðnaðarframleiðslu, eink- um á sviði þungaiðnaðar og í véltækni hverskbnar, en einnig verða til sýnis vélar fyrir neyzluvöruiðnaðinn, matvæli, vefnaðarvöru o. s- frv., líka raf- magnstæki af hinni margvís- legustu gerð, samgöngutæki, landbúnaðarvélar, o. fl. Sýningarskálar verða 14 tals- ins og gólfflöturinn þar 75 þús- fermetrar, en að auki verða úti- sýningarsvæði að grunnfleti 65 þús. fermetrar. Tékkar munu að sjálfsögðu hafa yfirgrips- mestu sýninguna þama, en stór- ar sýningardeildir verða einnig frá iðnfyrirtækjum í Bretlandi, Sambandslýðveldinu Þýzka- landi, Þýzka alþýðulýðveldinu, Sovétríkjunum, Bandaríkjun- um, Sviss, Japan, Svíþjóð og fléiri löndum þar sem iðnaður og tækni em á háu stigi. ★ Á undanförnum vörusýningum og kaupstefnum í Bmo hafa vísindamenn og tæknifraéðihgar haft einstakt tækifæri til að hittast og skiptast á skoðunum og reynslu. Svo verður einnig í haust, því að efnt verður til sérstakrar dagskrár og funda- halda vísindamanna og tækni- fræðinga- i !

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.