Þjóðviljinn - 08.09.1966, Qupperneq 1
\
Dóinur faHinn - birtur í dag
f gær var fclldur ium það
úrskurður, hvort frestur sikuli
veittuT í málinu varðandi
brottflutning á tækjum aula-
kassaáhugamanna af Stóra-
Klifi í Vestmannaeyjum. For-
maftur# og lögmaður Félags
sjónvarpsáhugamanna, Bragi
Bjömsson, hefsr farið fram á
hálfs annars mánaðar fresttil
gagnasöfnunar' og vitnaleiðslu
í því máli, en úrskurðurinn
verður ekki birtur fyrr en
eftir klukkan tvö í dag. Segir
fulltrúi bæjarfógeta, JónÓsk-
arsson, þaS vera gert af sér-
stökum ástæðum, enda mmnt
málsaðilar nú vera sð bræða
með sér næsta skrefíðá þc®>u
máli.
BARÁTTA ÞJÓÐRÆKINNA ISLENDINGA BER ÁRANGUR.
f
■ Barátta þjóðrækinna Islendinga gegn hermanna-
sjónvarpinu hefur borið árangur: Bandaríska her-
stjómin tilkynnti utanríkisráðherra með bréfi 6.
september að lagt yrði til að sjónvarpssendingum
frá herstöðinni „verði hreytt þannig að venjuleg
sjónvarpsmóttaka á heimilum verði takmörkuð að
svo miklu leyti sem hægt er við næsta nágrenni
Keflavíkurflugvallar, þar sem varnarliðið dvelur“.
Þetta muni framkvæmt þegar íslenzka ríkisstjórn-
in óskar, „væntanlega þegar íslenzka sjónvarpið
hefur útsendingar sínar“.
Ríkisstjórnin „ekki mótfallin!"
■ Emil Jónsson utanríkisráðherra svaraði með
bréfi í gær, 7. september, og lýsti yfir að ríkis-
stjórn íslands muni „ekki vera mótfallin tillögu
yðar um að draga úr sjónvarpsútsendingum yðar,
þannig að þær verði takmarkaðar við venjulega
sjónvarpsmóttöku í næsta nágrenni Keflavíkur“.
Og ríkisstjórnin fer þess á leit vegna breytingar á
tækjum og loftnetum (!) „að breytingar á Kefla-
víkur AFRTS-útsendingunum verði samræmdar
tilkomu íslenzka sjónvarpsins“. Mun lengi þurfa
að leita að lágkúrulegra skjali frá stjórn sjálf-
stæðs ríkis.
Árangur þjóðræknisbaráttu
B Það er tvímælalaust hinn sívaxandi þungi í
baráttu þjóðrækinna íslendinga sem hefur knúið
fram þessa takmörkun á hermannasjónvarpinu,
enda þótt sá háttur sé á hafður sem Þjóðviljinn
hefur oft spáð að ríkisstjómin kysi að láta líta svo
út að frumkvæðið kæmi frá herstjóminni. íslend-
ingar munu allflestir fagna þessum sigri í barátt-
unni við hina erlendu ásælni, og láta hann verða
sér hvöt til margefldrar baráttu gegn erlendum
her og herstöðvum á íslandi.
® Það hefði að sjálfsögðu verið í alla staði eðli-
legra að sjónvarpið hefði alveg verið takmarkað
við herstöðina og reyndar er allur útvarps- og sjón-
varpsrekstur bandaríska hersins á íslandi lögleysa
og átroðningur við íslendinga og hlýtur það mál
allt að verða áfram til meðferðar.
■ Bréfin sem fóru á milli yfirmanns hemámsliðs-
ins á íslandj og utanríkisráðherra bárust Þjóðvilj-
anum síðdegis í gær og eru þau birt orðrétt á
3. síðu.
Staldrað við á Vopnafirði
Myntiin hér ;w> ofan er tekin á Vopnafirði fyrir nokkrum dögum er frétta-
maður frá Þjóðviijanum var þar stadtlur á ferðalagi um Norðausturland- og
Austurland, en eins og fleiri staðir á þessum landshluta byggir Vopnafjörður afkomu sína á síldinni svo sem sjá má á myndinni.
í blaðinu í dag birtist grein um Vopnafjörð, Staldrað við á Vopnafirði, .eftir Grétar Oddsson og fleiri myndir þaðan er hann tók
í ferðalagi sínu. — Sjá síðu 7.
Fimm kunnir útgerðarmenn og afla
skipstjórar keyptu síldarverksmiðji
■ Nýlega hefur verið stofnað nýtt hlutafélag,
Oddafell h.f., um rekstur síldarverksmiðjunn-
ar á Bakkafirði og standa að því fimm kunnir
síldarskipstjórar ásamt verksmiðjustjóranum.
Eins og kunnugt er var verk-
smiðjan á Bakkafirði reist fyrir
allmörgum árum, er til landauðn-
ar horfði í byggðarlaginu vegna
atvinnuleysis. Stofnað var hluta-
félag um verksmiðjuna, Sandvik
hf., sem flestir hreppsbúar áttu
aðild að, og stjómaði verksmiðj-
unni fyrst kennarinn á staðnum
og síðar presturinn. Þótt Bakk-
firðingar legðu sig alla fram um
að halda fyrirtækinu gangandi
og legðu margir hverjir kaupið
Framhald á bls. 9.
Einu sinni í fyrrasumar kom aflakóngurinn Eggert Gíslason með
skip sitt og landaði í verksmiðjuna á Bakkafirði. Myndin er tekin
við það tækifæri og sést verksmiðjan í baksýn.
Vistmenn frá Reykjalundi og Vífílsstöðum i ökuferð
í gær var farið í 13. skemmtiferð Iíreyfils með vistmenn af Vífilsstöðum og Reykjalundi. 35 bílai voru í ferðinni og sést lestin á
myndinni hér að ofan. Ilaldið var í Þjórsiárdal og á Búðarliáls og var fararstjóri Stefán Magnússon, framkvæmdastjóri Hreyfils.
(Ljósm. Þjóðv. A.K.).
Myndin er tekin í fyrrasumar er vb. Heimir frá Stöðvarfirði lá við
bryggju á Bakkafirði. -r- Á miðri myndinni sést verksmiðjustjór-
inn, Árni Gíslason.
I