Þjóðviljinn - 14.10.1966, Síða 1
Hvert hefur stórgróðinn farið?
Föstudagur 14. október 1966 — 31. árgangur — 23=3. tölublað.
□ A Alþingi i gær skoraði
Einar Olgeirsson á forsætis-
ráðherra að vera með í þvi
að samþykkja harðvítuga
eignakönnun ná í vetur svo
það kæmi skýrt 1 ljós hvar
stórgróði undanfarinna ára
hefði lent.
□ Þetta var að gefnu til-
efni því Bjarni hafði i ræðv
vefengt að nokkúr verulegur
gróði hefði Ient hjá verzlun-
inni og bröskurunum, en þvi
hafði Einar haldið fram f
ræðu
□ En svo fór að Bjarna
leizt ekki á þá tillögu að láta
fara fram nákvæma eigna-
aonnun. Hann sló undan og
hélt því fram að auðvelt væri
með ýmsum öðrum ráðum að
komast að því hvar stórgróð-
inn væri niður kominn, og
var enda á honum að heyra
að gróðinn hefði dreifzt rétt-
látlega niður méðal þjóðfé-
lagsþegnanna og hver fengið
þ’að sem honum«bar!
Stórsmyg/
ískjóli Búr-
fellsvirkj-
unar?
Þjóðviljanum hefur borizt
til eyrna að tolleftirlit með
vörum þeim sem skipað er
upp í Þorlákshöfn og eigaað
fara til Búrfellsvirkjunar, sé
heldur slakt. T.d. kom það
fyrir í sumar, að smyglað var
þar á land þremur kössuin
fullum af víni og tóbaki og
öðru banngóssi, en kassarmr
vora merktir Búrfellsvirkjun-
inni. Tollverðir komust ekki á
snoðir um smyglið fyrr en
skúrkarnir voru gripnir suð-
ur í Kópavogi nokkru síðar.
I tilefni af þessum orðrómi
sneri Þjóðviljinn sér til Öl-
afs Jónssonar tollgæzlustjóra
og spurði hann hvort að to' i-
gsezlu væri hagað á einhvem
hátt annan í Þorlákshöfn en
t.d. hér í Reykjavík.
Tollgæzlustjóri svaraði því
til að sérstakar reglur giitu
að vísu um varning til Búr-
fellsvirkjunar (en hann er
tollfrjáls), hinsvegar sendu
þeir ævinlega menn austur,
þegar þangað væri von áskipi.
með vörur til Búrfells. Þar
hefðu tollþjónar auga með því,
að Búrfellsvörur væra vinzað-
ar úr og sendar áfram þangað
austur.
Nú væri gaman að fá að
vita, hverjar þessar sérstöku
reglur eru og hvernig tollverð-
ir geta alltaf verið vissir um,
að vamingur merktur Búr-
felli eigi í raun og veru að
fara þangað?
Hljóp á bílinn
Á öðrum tímanum i gærdag
hljóp 5 ára telpa á bíl á Njáls-
gjjtu, en kom fyrir sig höndum
og mun hafa sloppið lítið meidd.
Ökumaður var á hægri ferð og
tókst samstundis að stöðva bíl-
ir.n.
Ríkisstjórnin áffl í vök qg verjast á Alþinqi í gœr
Stjórnarstefnan er
erfiðleika atvinnuveganna
Steína ríkisstjórnarinnar hefur verið miðuð við
hagsmuni verzlunarauðvaldsins íslenzka og
braskaralýðs. Öhemju þensla hefur verið í verzl-
un og þjónustustörfum, sem gleypt hafa um
40% alls nýs mannafla þjóðarinnar og óeðli-
lega stóran skerf af lánsfjáraukningunni. Verzl-
unarauðvaldi og braskaralýð hefur ríkisstjórn-
in selt sjálfdæmi um álagningu og gróða og
það hefur spennt verðlagið upp úr öllu valdi.
Þessi stjórnarstefna hefur mætt á framleiðslu-
atvinnuvegunum og nú er það hrun þeirra þeg-
ar hafið sem hlaut að verða afleiðing stjórnar-
stefnunnar.
Þessi voru nokkur atriði í málflutningi Einars
Olgeirssonar á Alþingi í gær er umræður urðu
þar allhvassar um stjómarstefnuna.
Umræðurnar ui'ðu á fundi
sameinaðs þings eftir að forsæt-
isráðherra BJami Benediktsson
hafði flutt tilkynningu frá rik-
isstjórninni í fundarbyrjun, en
frá aðalefni hennar er skýrt hér
á eftir. Auk Bjarna, sem talaði
þrisvar, talaði Eysteinn Jónsson
tvisvar og Einar Olgeiraion
tvisvar og deildu þeir Einar og
Eysteinn hart á stjómarstefnuna
eins og hún hefur verið í reynd,
en Bjarni hélt uppi vömum.
★ Stjórnarstefnan röng
Einar benti á að forsætisráð-
herra hefði ítrekað, að það væri
meginatriði stjómarstefnunnar að
tryggja heilbrigðan grundvöll at-
vinnuveganna. En einmitt þetta
hefði rfkisstjóminni verið að
mistakast alla sinn stjómartíma
og nú blöstu afleiðingamar við.
Ríkisstjórnin hefði fleytt sér á
eindæma verðhaekkunum í«-
lenzkra útflutningsafurða og
geysilegri aflaaukningu í íslenzk-
um sjávarútvegi. Nú um leið og
verðlækkun hefjist á islenzkum
útflutningsvörum komi afleiðing-
ar stjómarstefnunnar í ljós í
stórfelldum örðugleikum fram-
leiðsluatvinnuveganna.
Það muni vart reynast áhrifa-
mikið þó ríkisstjómin segist nú
vilja stöðva verðhækkanir
kannski í nokkra mánuði; við-
reisnarstjórnin hafi í upphafi
lofað því að verðlag skyldi ekki
verða hækkað þ'ó kaup hækkaði.
Við það loforð hefði stjómar-
fl'okkunum verið nær að standa
1961, í stað þess að breyta þá
genginu og hleypa verðbólgu-
skriðunni af stað.
★ Verzlunarauðvaldið ræður
Einar taldi að orsökin til'upp-
gjafar ríkisstjómarinnar í þessu
Framhald á 7. síðu.
Frumvarp flutt á Alþingi
Aínám vísitöiubind-
ar á húsnæðislánin
Þrír þingmenn Alþýðu-
bandalagsins. Einar Olgeirs-
son, Geir Gunnarsson og Eð-
varð Sigurðsson flytja á ný
frumvarp á Alþingi um af-
nám vísitölubindingar á lán-
um Húsnæðisjnálastofnunar-
innar. en sams konar frum-
vörp fluttu beir á b'nginu í
fyrra.
Frumvarpíð er um breyting-
ar á lögunum um Húsnæðis-
málastofnun rikisins og eru
greinar þess þannig:
1. gr. — C-liður 7. gr. lag-
anna breytist þannig: 3. máls-
liður: „Hver árgreiðsla, af-
borgun, vextir og kostnaður
skal hækkuð eða lækkuð, eft-
ir því sem við á, samkvæmt
kaupgreiðsluvísitölú, sbr. lög
nr. 63/1964“ — falli burt.
2. gr. Húsnæðismálastofnun
ríkisins skal breyta þeim
lánssamningum, sem þegar
hafa verið gerðir við hús-
byggjendur, þannig að~ eigi
verði reiknuð vísitala á þau
lán.
3. gr. — Teknir skulu upp
samningar við þá Iánveitend-
ur, sem veitt hafa húsnæðis-
málastjórn beint eða hús-
byggjendum fyrir hennar
milligöngu lán með þessum
skilyrðum um vísitölugreiðslu.
Skal reynt að fá þá til þess
að falla frá þessu skilyrði
með aðstoð ríkisstjórnar og
breyta samningum (skulda-
bréfum o.s.frv.) í samræmi
Við það. Takist það ekki, skal
ríkissjóður greiða mismunmn.
4. gr. — Lög þessi öðlast
þegar gildi. »
Ýtarleg greinargerð fylgir
frumvarpinu ©g verður hún
birt einhvern næstu daga.
Einar Olgeirsson flytúr ræðu á Alþingi í gær. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
Álýktun 24. þings BSRB.
Opinberir starfsmenn fái
samnings- og verkfallsrétt
■ Aðalmálin á 24. þingi Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja sem nýlokið er hér í Reyk'javík voru kjaramálin og
samningsréttarmál opinberra starfsmanna og gerði þingið
ályktanir í báðum þessum máluih svo og fleiri málum
s§m það fjallaði um. Hér á eftir fer samþykkt þingsins um
samningsréttarmálið en í gær var birt ályktun þingsins
um kjaramál. »
,,24. þing BSRB fagnar því,
að skipuð hefur verið nefnd til
að endurskoða lög um samnings-
rétt opinberra starfsmanna og
væntir þess að hún hraði störf-
um, svo að unnt verði að af-
greiða breytingar á komandi
Alþingi.
Þingið felur fulltrúum banda-
lagsins í nefndinni að beita sér
fyrir eftirfarandi:
a) Viðurkenndur verði fullur
samningsréttur opinberra starfs-
manna og þar með talinn verk-
fallsréttur.
b) Aukin verði áhrif einstakra
bandalagsfélaga á samningagerð-
ir.a og jafnframt verði Alþingi
beinn aðili að skipun samninga-
Stofnfundur í kvöld
Stofnfundur Alþýðubandalags-
félags á Suðurnesjum verður í
kvöld, föstudag, f félagsheimilinu
Stapa, Ytri-Njarðvík og hefst kl.
8.30- /
nefndar af hálfu ríkisins og á
sama hátt verði bæjarstjórnir
beinn aðili.
c) Kjarasamningar verði við-
tækari en nú er og nái m- a.
til lífeyrisréttinda, hiunnintíá,
aukatekna, orlofsréttar, kaups í
veikindaforföílum og annarra
fríðinda, sem líkt er farið.
d) Ákvæði um uppsögn kjara-
samninga svo og tíminn til
samningaviðræðna verði endur-
skoðað og miðað við reynslu í
undanförnum samningum.
e) öllum þeim, sem kjarasaipn-
ingar ná til skal skylt að greiða
samningsréttargjald til samtak-
anna, enda eiga þeir rétt á að
gerast félagsmenn".
A/þingiiaær
Allur fundartími Alþingis í
gær fór í fund sameinaðs þings,
en þar var á dagskrá tilkynn-
ing frá ríkisstjórninni, fyrirspurn
frá Jónasi Rafnar um sjónvarp
til Norðurlands og tvær þings-
ályktunartillögur.' Var samþykkt
að leyfa fyrirspurnina og ákveð-
in ein umræða um tillögurnar.
Fundir höfðu verið boðaðir í
báðum þingdeildum og var eitt
mál á dagskrá í neðn deild en
tvð í efri deild. Voru fundir rétt
settir til málamynda en málin
tekin strax af dagskrá og fund-
um hætt.
Þingfundir verða næst á mánu-
dag.
Sósíalistafélag Revkiavíkur
□ Sprlakvöld Sósíalistafélags Reykjavíkur byrja næst-
komandi sunnudagskvöld í Tjamargötu 20 kl. 8.30.
□ Pétur Pálsson kemur með gítar sinn op svnmv nýj-
ustu vísur sínar.
□ 'Nánar auglýst í blaðinu á morgun. — STJÓRNIN,