Þjóðviljinn - 14.10.1966, Síða 5
Fö&tudág&r 14. cfetóber 1966 — ÞJÓÐVH^JTNTN — SÍÐA CJ
Skólalúðrasveit 11 og 12 ára
barna í Kópavogi í vetur
Tónlistarskóli Kópavogs var
settur í fjórSa skipti sl. lang-
ardag, g. október.
Skólastjórinn, Frank Herluf-
söi, sagði í setningarræðu að
skólastarfið í vetur yrði með
líku sniði og sL vetur. Flestir
nemendanna eru innritaðir í
píanóleik, eða alls 70. Píanó-
kennarar verða þeir sömu og
áður, þau Helga Helgadóttir,
Gunnar Axelsson og skóla-
stjórinn, en auk þess hefur
Kristinn Gestsson, sem kennt
hefur við Tónlistarskóla Akur-
eyrar um árabiL verið ráðinn
píanókennari við skólann.
Nemendur í fiðluleik verða
fjórir og kennari Nanna Jak-
obsdóttir, en nemendur í gít-
arleik verða 16 og kennari
Tryggvi Thorsteinsen, sem
Leikfélag Kópuvogs
ai hefja starfsemi
Leikfélag Kópavogs er nú að
hefja starfsemi sína. Fyrst
verður tekið aftur til sýninga
og sýnt nokkrum sinnum leik-
rit Sveins Halldórssonar „Ó-
boðinn gestnr", og verður
fyrsta sýningin nk. mánudags-
kvöld 17. október.
Fyrsta nýja leikritið á þessu
leikári verður nútíma gaman-
leikur, „Douglas — Douglas“,
eftir franska leikritaskáldið
Mare Camoletti. Leikritið hef-
ur verið þýtt og staðfært af^
Lofti Guðmundssyni rithöfundi.
Leikstjóri verður Klemenz
Jónsson. Leikritið fjallar um
líf þriggja flugfrcyja, sem
starfa hver hjá sínu flugfélagi.
f>ví næst verður tekið til sýn-
inga barnaleikritið „Ó, amma
Bína“ eftir Ólöfu Árnadóttur,
leikstjóri Benedikt Árnason.
Á þessu leikári, 5. janúar ’67
verður Leikfélag Kópavogs ÍQ.
ára og verður þriðja leikritið
helgað þeim tímamótum og
y^gadað: ;tiL um val þess eins og
kostur er á, segir í fréttatil-
kynningu frá L. K.
Þá er í athugun að halda
1-2 leikl istamámskeið og verð-
ur einnig námskeið fyrfr ung-
linga og þá væntanlega í sam-
ráði við Æskulýðsráð Kópa-
vogs.
Tvö „skáldakvöld“ verða
haldin eins og undanfarna vet-
ur. Fyrra kvöldið verður hald-
ið í næsta mánuði nóvember,
og helgað Davíð Stefánssyng
en hið síðara verður í janúar
n.k. og helgað Halldóri Lax-
ness.
Núverandi stjórn Leikfélags
Kópavogs er þannig skipuð:
Gunnvör Braga Sigurðardóttir,
formaður, Sigríður Einarsdótt-
ir, gjaldkeri og Þorbjörg Krist-
insdóttir, ritari.
kennir í stað Eyþórs Þorláks-
sonar sem er í ársfríL Nem-
endur í harmóníumleik verða
3 og kennari Frank Herlufsen,
en tónfræðikennari hefur ver-
ið ráðinn Jón G. Ásgeirsson.
Fræðsluráð Kópavogs og
Tónlistarskólinn munu í sam-
einingu sjá um starfrækslu
skólalúðrasveitar, en í henni
munu verða 50—60 börn á aldr-
inum 11—12 ára. Tónlistarskól-
inn mun sjá um kennslu á
klarínettu, þverflautu og slag-
verk, en fræðsluráð um hinn
hluta kennslunnar. Vegna
þeirrar kennslu hefur bæjarráð
Kópavogs ráðið Björn Guð-
jónsson trompctleikara og mun
hann sjá um skólahljómsveit-
ina að öðru leyti, kenna tón-
fræði og annast samæfingar.
Vegna hljómsveitarinnar hafa
veTið keyptir 56 lúðrar.
Alls munu nemendur Tónlist-
arskóla Kópavogs í vetur verða
120, og eru þá ótaldir nemend-
ur í blokkflautuleik, sem vænt-
anlega verða um 70 talsins.
Kennsla í blokkflautuleik mun
að mestu leyti fara fram í
bamaskólunum í samráði við
skólastjórana. Kennarar verða
Frank Herlufsen og Fjölnir
Stefánsson.
Orlofsheimili opinberra starfs■
manna á undirbúningsstigi
Til viðbótar fyrri ályktun-
um, sem Þjóðviljimi hefur birt
frá nýafstöðnu þingi Banda-
dggg starfsmanpa ríkis ogbæja,
fer hér á eftir samþykkt þings-
ins um 'orlofsheimilasjóð, svo-
• hljpggptli
„24. þing ÍLS.R.B. felur
bandalagsstjóminni að beita
sér fyrir aff útvega og skipu-
leggja land meff þaff fyrir aog-
um aff gefa bandalagsfélögum
kost á aff eignast orlofsheimili.
Til þessara framkvæmda
heimilar þingiff bandalags-
stjórninni aff verja af tekjnm
bandalagsins allt aff 400 þús-
und krónum á næstu tveimur
árum. Jafnframt felur þingiff
stjóminni aff leita eftir stuffn-
ingi ríkisins viff mál þetta meff
framlagi til þess í fjárlögum.
Þá felur þingiff bandalags-
stjóm og Kjararáffi svo og
stjórnum bæjarstarfsmannafé-
laga aff leitast viff aff fá inn í
næstu samninga ríkis- og bæj-
arstarfsmanna ákvæffi um
framlag til orlofsheimilasjóða
bandalagsfélaganna hliffstætt
slíkum ákvæffum í kjarasamn-
ingurm ýmissa vcrkalýffsfé-
Svetlana Nédéljaéva við anddyri háskólans í Vilnius.
SVETLANA ÞÝÐ-
iR HEIMSLJÓS
■ Ung kona rússnesk, Svetlana Nédéljaéva, hefur nýlega
varið kandídatsritgerð sína, og fjallaði hún um Heimsljós
Halldórs Laxness. Frá Svetlönu segir í eftirfarandi við-
tali, sem fréfamaður APN átti við hana fyrir skömmu í
Vilniús, höfuðborg Láetúvu (Litháen), en þar kennir hún
fomíslenzkn og gotnesku.
Svetlana Nédéljaéva-Steponav-
iciene sker sig að engu úr
í hópi ungra stúlkna í háskól-
anum í Vilnius (höfuðborg
Lietaivu). Menn halda gjarnan
að Inin sé stúdent, þótt hún sé
reyndar kennari þar við skól-
ann og cand. philol.
Mig furðaði á því áð liún
reyndist taía líetúvesku reip-
rennandi og hreimlaust, því ég
vissi að Svetlana er rússnesk,
fædd í Moskvu og hefur búið
aðeins tvö ár í Lietúvu. Þetta
bendir til ótvíræðra tungu-
málahæf iletka •— og reyndar
kimn hún ágætlega vel nokkur
slavnesk mál auk rússnesku,
svo og germönsk, þar með talda
íslenzku, sem hún hefur fengið
sérstakar mætur á.
Svetlana er fædd í Moskvu
árið 1936 og að loknum mið-
skóla hóf hún nám í slavnesk-
um málum við málvísindadeild
Moskvuháskóla. Meðal erlendra
stúdenta við háskólann voru
íslendingar og höfðu kynni af
þeim, tungu þeirra og bók-
menntum mikil áhrií á starfs-
val Svellönu. Fyrst af öllu hól
hun að nema íslenzkti upp á
cigin spýtur og nauK þá nokk-
urrnr aðsloðnr íslonzkra' vina
sinna, og ekki leið á löngu áff-
ur en hun tók að fást við þýð-
ingar.
— T-jað var tiltölulega auðvelt
að kynna sér grundvall-
aratriði málsins, segir Svetlana,
en það tók fimm ár að kynnast
öllum blæbrigðum þess. Ég er
mjög þakklát stúdentunum
sem hér voru, Halldóri Stefáns-
syni rithöfundi, Áskeli Snorra-
syni tónskáldi og öðrum gest-
um, sem hafa hjálpað mér af
mikilli þolinmæði. Ég fékk
þann áhuga á íslandi að þegar
ég lauk háskólanámi árið 1959
ákvað ég að gera menningu
landsins að höfuðviðfangsefni
mínu. í því skyni fór ég í
framhaldsnám við háskólann í
Leníngrad. Sem viðfangsefni til
kandídatsritgerðar valdi ég
skáldsögu Laxness ,.Heimsljós“.
Þótt Halldór Laxness sé ein-
hver forvitnilegasti rithöfund-
ur samtímans hefur furðu lítið
verið skrifað um verk hans. Að
líkindum hef ég í þessari rit-
gerð orðið fyrst til að taka til
athugunar vandamál er varða
stíl Laxness. hvernig hann beit-
ir málinu. Ég byggði þessar at-
huganir fyrst og fremst á
„Heimsljósi", því það verk tel
ég fróðlegast um sérkenni stíls
hans með því leikandi spili
beittrar hæðni og innilegrar
ljóðrænu.
Svetlana hefur þýtt smásögur
eftir Halldór Stefánsson og
Ólaf Jóhann Sigurðsson svo og
skáldsöguna T "v--’>ði jarðar“
eftir Ólaf ,T
Tll Vilnir etlana kom-
in með þeim hætti að í Lenin-
grad giftist hún ungum ensku-
fræðingi lietúvískum, ' Albertas
Steponavicius. Þau fluttu heim
til hans ættborgar og kenna sið-
an bæði við elzta háskóla í
gjörvöllum Sovétríkjunum, há-
skólann í Vilnius, sem stofnað-
ur var árið 1579. Svetlana
kennir forníslenzku og gotnesku
og svo sænsku þeim er óska.
Svetlana er um þessar mund-
ir að ljúka við að þýða „Heims-
ljós“ Halldórs Laxness og er
búizt við því að bókin komi út
á næsta ári. Auk þess kveðst
hún hafa áhuga á öðrum sam-
tíðarhöftmdum, ekki sízt þeim
yngri.
Aðspurð kvaðst Svetlana
skrifast á við marga þá íslend-
inga sem hún hefur kynnzt við
ýmisleg tækifæri. En hún hefur
ekki komið til fslands, ekki
erm. Því miður.
Fyrir alla fjölskylduna:
Skemmtun á Hótel
Söguá sunnudag
Á sunnuáagínn kemur, 16.
október, ætlar Kvenfélag Bú-
staðajóknar að halda tvær
skemmtanir á Hótel Sðgu til
ágóða fyrir smíði Bústaffakirkju.
Verður fyrri skemmtunin kl. 3
síðdegis, ætluð börnum og
fullorðnum, en sú síðari um
kvðldið kl. 8,30.
Margt vérður til skemmtunar
í bæði skiptin, m.a. tízkusýn-
ing, þar sem sýnd verðurhaust-
og vetrartízkan fyrir karla,
konur og unglinga frá tísku-
vérzluninni Eros og P & O.
Ómar Ragnarsson mun skemmta
með söng og gamanþætti og
nemendur úr Dansskóla Her-
manns Ragnars sýna nýjustu
dansana. Um kvöldið verður
auk þess einsöngur Sigurveigar
Hjaltested við undirleik Skúla
Halldórssonar og síðan leikur
hljömsveit Ragnars BjarnasGn-
ar fyrir dansi til kl. 1. Kynnir
á báðum skemmtununum verð-
ur Hermann Ragnar Stefáns-
soh.
Þá gangast konurnar fyrir
happdrættissölu og eru vinn-
ingar danskt postulín frá Bingo
Gröndal í Kaupmannahöfn
auk barnaleikfanga frá Reykja-
lundi. Á síðdegisskemmtuniiir.i
verða kaffiveitingar og ganga
safnaðarkonur þá sjálfar um
beina og veita kökur sem þær
hafa bakað.
Kvenfélag Bústaðasóknar heí-
ur starfað frá því söfnuðurinn
var stofnaður 1952 og ákvað á
síðasta aðalfundi að legg.ja
fram 100 þús. kr. til kirkju-
smíðinnar en þess fjár hefur
félagið aflað með bösurum og
kaffisölu á kirkjudögum. For-
maður félagsins er Ebba Sig-
urðardóttir en auk hennar hafa
unnið að undirbúningi skemmt-
unarinnar á sunnudaginn Erla
Magnúsdóttir, Jenny Jónsdóttir,
Kristín Jónsdóttir, Sigríður Ax-
elsdóttir, Steinunn Bemdsen og
Unnur Arngrímsdóttir.
Aðgöngumiðar að báðuni
skemmtununum verða seldir á
Hótel Sogu ó laugardag kl. 2 til
4 og er verð þeirra kr. 100 fyr-
ir fullorðna og 65 fyrir böm og
eru kaffiveitingar innifaldar á
sfðdegisskemmtuninni.
Þær sýna fötin
fyrir Eros á
sunnudaginn.