Þjóðviljinn - 14.10.1966, Blaðsíða 6
T
0 SlÐA — ÞJÓÐVILJXNN — Föstudagur 14. oktöber 1906.
SANDGERÐI
Það tilkynnist hér með, að Gísli Guðmundsson, raf-
virkjameistari, hefir tekið við umboði fyrir félagið
í Sandgerði og Miðneshreppi. Afgreiðsla fer fram
í skrifstofu Rafveitunnar, Tjarnargötu 4, á venju-
legum skrifstofutíma.
Heimasími umboðsmanns er 7580.
Brunabótafélag íslands.
Stúdentafélag Reykjavíkur
heldur almennan fund í Tjarnarbúð (niðri) laugar-
daginn 15. þ.m. kl. 2,00 e.h.
JULIUS C. HOLMES, fyrrum ambassador
flytur erindi um
„Skuldbindingar Bandarikjamanna í Suð-
austur-Asíu“.
Að erindinu loknu mun han svara fyrirspurnum.
Aðgangur er öllum heimill.
Stjórnin.
NÁMSKEIÐ
Myndlista- og handíðaskólans
Nokkrir nemendur geta enn komist að í
1) Undirbúningsnámskeið í teiknun fyrir nemend-
ur menntaskólans og stúdenta til undirbúnings
tæknináms (arkitektur, verkfræði). Kennt
þriðjud. og föstud. kl. 8—10.15 síðdegis.
2) Fjarvíddarteiknun. Kennt mánud. og fimmtu-
daga kl. 8 — 10,15 síðdegis
Umsóknir berist skrifstofu skólans, Skipholti 1
sem fyrst. Sími 19821.
* Skölastjóri.
Rússneskunámskeið
fyrir byrjendur hefst seint í október ef næg
þátttaka fæst.
Kennarar:
Ámi Bergmann og Elena Túvína.
Upplýsingar í skrifstofu MÍR, Þingholts-
stræti 27, sími 17928.
ANDRÉS
auglýsir
Erlend karlmannaföt frá kr. 1390,- til kr. 1990,-
Stakir jakkar kr. 975,-
Stakar terylenebuxur frá kr. 575,- til kr. 770,-
■ár ☆ ☆
Drengja- og unglingaföt frá kr. 1200,- til kr. 16í>0,-
Stakir jakkar frá kr. 700,- til kr. 775,-
Stakar terylenebuxur frá kr 540,- til kr. 585,-
Föt úr enskum efnum. Mjög hagstætt verð.
• Dansskóli Hermanns Ragnars í
smekklegu eigin húsnæði í Miðbæ
Hjónin og tlanekennararnir Unnur Arngrímsdóttir og Hermann
Ragnar Stefánsson í forstofu hins nýja húsnæðis dansskólans
í Miðbæ. — (Ljósm. Þjóðv. v.h.).
• Dansskóli Hermanns Ragn-
ars er nú að hefja nfunda
starfsár sitt hér í Reykjavíkog
hefur flutt starfsemi sína í
mjög smekklegt eigið húsnæði
í Miðbæ að Háaleitisbraut
58 — 60.
Hefur dansskólinn l>ar tvo
kennslusali, báða sérstaklega
innréttaða til danskennslu og
búna fullkomnustu tækjum á
því sviði. Stærri salurinn er
130 fermetrar að stærð, en sá
minni 50 og er þeim skipt með
rennihurð sem draga má frá
þegar samkomur fara fram í
húsinu. Mjög hugvitsamleg nýj-
ung eru borð í sölunum sem
dregin eru upp í loft þegar
kennsla fer fram en niður aft-
ur þegar samkomur eru. Auk
salanna eru á hæðinni eldhús,
snyrtiherbergi, skrifstofa og for-
stofa með fatahengi.
Hefur skipulag innréttinga
og framkvæmdir að mestu hvílt
á hjónunum Jóhanni Hallgríms-
syni og Petrínu Jakobsen. en
um raflagnir sá Guðni Bridde,
pípulagnir Sigurður Þorkelsson
og málningu Guðm. G. Einarss.
Hefur sú nýbreytni verið tek-
in upp við skólann að þc’.r
sem koma með yngstu börnin i
tímana eiga þess nú kost að
kaupa sér kaffi og láta fara
vel um sig við lestur eða handa-
vinnu í inmá forstofu meðan
börnin dansa.
Ókeypis dansæfingar verða
hafðar fyrir nemendur skól-
ans, unglinga og fullorðna, um
helgar og einnig munu H.R.-
klúbburinn og Dansklúbbur
unga fólksins eiga þama sama-
stað, en þessir klúbþar báðir
eru stofnaðir af eldri nemend-
um skódans og hafa komið sam-
an nokkrum sinnum á vetri til
að halda við sinni fótamennt.
Dansáhugi hefur mjög aukizt
á Xslandi síðustu árin og minn-
ist Hermann Ragnar þess að
er hann fyrir níu árum aug-
lýsti danslcennslu fyrir hjón í
fyrsta sinn, komu aðeins 7 pör,
en nú annar skólinn ekki eft-
irspurninni, þótt fjórir kennar-
ar starfi við skólann auk fimm
aðstoðarkennara. Aðalkennarar
við skólann eru þau hjómn
Unnur og Hermann Ragnar,
Ingibjörg Jóhannsdóttir og
öm Guðmundsson.
Skólinn tók til starfa 10.
október og er fullsetinn í vetur.
Kuldajakkar og úlpur
í öllum stærðum.
Góðar vörur — Gott verð.
Verzlunin Ó. L.
Traðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu).
Auglýsið i Þjóðviljanum
• Otvarp. föstudag, 14. okt.
13.15 Lesin dagskrá næstu viku.
15.00 Miðdegisútvarp. Liljukór-
inn syngur. Fílharmonían í
New York leikur ,Pulcinellu‘,
el'tir Stravinsky; Bernstem
stjórnar. Albanese syngur ar-
íur úr „Eugene Onegin" eft-
ir Tjaikovský. Philharmonia
leikur þætti úr Gayaneh-svít-
unni eftir Khatsjatúrjan; höf-
undurinn stjórnar. Gutnikoff
og Sinfóníusveitin í Prag
leika Konsert í a-moll fyrir
fiðlu og hijómsveit eftir Sla-
vik; Smetácek stjómar. Rostr-
opovitsj og Dedjukhin leika
á selló og píanó.
16.30 Síðdegisútvarp; hljóðfæra-
leikur og söngur.
18,00 Lög eftrr Ástu Sveins-
dóttur og Áskel Snorrason.
20,00 Margt dylst í hraðanum.
Axel Thorsteinsson rithöfund-
ur flytur erindi.
20.35 Ungverski karlakórinn
syngur; L. Vass stjómar.
21,00 Böðvar Guðmundsson les
úr nýrri ljóðabók sinni.
21,10 Tangó og Konsert fyrir
tvö píanó eftir Stnavinsky. V.
Vronsky og V. Babin leika.
21.30 Útvarpssagan „Fiskimenn-
irnir“.
22.15 Kvöldsagan: „Grunurinn“
eftir F. Dúrrenmatt.
22.35 Frá tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Xslands í Há-
skólabíói kvöldiðáður. Stjórn-
andi: B. Wodiczko. Sinfónfa
nr. 4 eftir B. Martinu.
23.15 Dagskrárlok.
sjónvarpið
Það er gott og sjálfsagt að
sýna mönnum jjögiar kvik-
myndir; hitt er svo annað mál
hvort það bráðliggur á því að
grafa upp Douglas Fairbanks.
Var það ekki hann sem eitt
sinn var kallaður heimsmeist-
ari í því að hoppa yíir girðing-
ar, brosandi eins og hross?
Fræknustu skákmenn lands-
ins tefla hraðskák í hvorki
meira né minna en þrjátm og
fimm mínútur. Ja, héma, hvað
skyidi Maó segja?
Sjónvarpið föstudaginn 14. okt.
20.00 Blaðamannafundur: Þór
Guðjónsson, veiðimálastjóri
svarar spurningum blaða-
manna. Fundarstjóri: Eiður
Guðnason, ritstjórnarfutl-
trúi. Spyrjendur auk hans:
Haukur Hauksson, blaðamað-
ur, og Indriði G. Þorsteins-
son, ritstjóri.
20w25 „Þöglu myndirnar":
Fyrsta myndin nefnist
„Svarti sjóræninginn". Aðal-
hlutverkið leikur Douglas
Fairbanks.
20.50 „Frá hundasleðum til eld-
flauga“: Heimildarkvikmynd
frá Bandaríkjunum um þró-
un og þýðingu flutningatækn-
innar í nútímaþjóðfélagi.
21.15 „í uppnómi": Hraðskák-
keppni: Keppendur: Friðrik
Ólaísson, stórmeistnri og
Ingi R. Jóhannsson, alþjóð-
legur meistari. Kynnir er
Guðmundur Arnlaugsson.
21.50 „Dýrlingurinn“: Þessi
þáttur nefnist „Þrjár sæmd-
arkonur". Aðalhlutverkið,
Simon Templar, lefkur Roger
Moore.
• 1. október voru gefin saroan
í hjónaband aF séra Árelíusi
Níelssyni ungfrú Ingibjörg
Jónsdóttir og Guðjón Þorkels-
son. Heimili þeirra er á Laug-
arnesvegi 85 — (Nýja mynda-
stofan, Laugavegi 43 B, sími
15125).
• 10. september voru gefin
saman í hjónaband af Séra
Gunnari Árnasyni ungfrú Dóra
Einarsdóttir og Jón Ásgeirsson.
Heimiíi þeirra er að Brekku-
götu 37, Aknreyri. — Ljós-
myndastofa Þóris, Laugavegi
20 B).
• 8. okt. voru gefin saman í
hjónaband af séra Þorsteini
Björnssyni ungfrú Sigrún Ólafs-
dóttir og Sigurjón Kristjánsson.
Heimili þeirra verður í Boga-
hlíð 26 (Stúdíó Guðmundar
Garðastræti 8).
• 8. okt. voru gefin saman S
hjónaband af séra Árelíusi Ní-
elssyni ungfrú Hjördís Jónasd.,
Álfheimum 56 og Guðmundur
Gígja. Naustanesi Kjalamesi.
Heimili þeirra verður í Álf-
heimum 56 (Stúdíó Guðmundar,
Garðastræti 8).