Þjóðviljinn - 14.10.1966, Síða 10
Borgarráð hefur nýlega sam-
þykkt að setja Helga V. Jóns-
son, skrifstofustjóra borgarverk-
fræðings í embætti borgarendur-
skoðanda. Er þetta embætti það
er Guttormur Erlendsson gegndi
árum saman, en hann lézt sem
kimnugt er í júlímánuði s.l.
t
Starf skrifstofustjóra borgar-
verkfræðings hefur verið auglýst
til umsóknar og er umsóknar-
frestur um það-til 26. okt n.k.
— Umsóknir eiga að berast skrif-
stofu borgarstjóra í Austurstræti
1«.
Staða ritara nor-
rænnar samstarfs-
nefnHar er laus
St= ara norrænnar sam-
starfsn„±.,dar um rannsóknir á
sviði alþjóðastjómmála er laus
til ‘ umsóknar. Umsækjendur
þurfa að vera háskólagengnir og
geta hafið störf sem fyrst á ár-
inu 1967 með búsetu í Osló til
eigi skemmri tíma en 1 árs.
Heildartekjur á ári munu nema
um 330.000,00 fsl. kr. Umsóknir
skulu berast í síðasta lagi hinn
20. nóvember n.k. til utanríkis-
ráðuneytisins, sem veitir nánari
upplýsingar. — (Frá utanríkis-
ráðuneytinu). Reykjavík, 11. okt.
1966.
Föstudagur 14. október 1966 — 31. árgangur — 233. tölublað.
Síldveiðin:
6—7000 tonna
veiði dag hvern
Ólympíuskáksveitin er á förum til Kúbu
N.k- þriðjudag heldur harðsnúin sveit íslenzkra skákmanna utan til þátttöku í Olympíumótinu í skák,
sem að þessu sinni er haldið á Kúbu. Myndin hér að ofan er af Olympíuförunum ásamt fararstjóra
þeirra. í fremri röð eru talið frá vinstri: Gunnar Gunnarsson, Friðrik Ólafsson og Freysteinn Þor-
bergsson- Aftari röð: Guðbjartur Guðmundsson fararstjóri, Guðmundur Pálmason, Ingi R. Jóhanns-
son og Guðmundur Sigurjónsson- — (Lijósm. Þjóðv. A.K.).
Nýjar bækur frá Heimskringlu og MM:
Nýr Ijóðaflokkur eftir
Jóhannes og grísk saga
■ Út em komnar tvær nýjar bækur á forlagi Máls og
menningar og Heimskringlu, og sæta báðar tíðindum. Önn-
ur er ný ljóðabók eftir Jóhannes úr Kötlum sem nefnist
„Mannssonurinn“ — birtist þar ljóðaflokkur um Jesúm frá
Nazarét sem Jóhannes setti saman fyrir löngu og hefur
ekki áður komið á prent. Hin bókin, sem er félagsbók MM
ef forn grísk saga, Dafnis og Klói eftir Longus, og hefur
einhver farsælasti þýðari okkar, Friðrik Þórðarson, „snar-
að“ úr frummálinu.
Jóhannes úr Kötlum gerir I neska tilveru lentu í deiglunni
grein fyrir ljóðaflokknum á svo- — þar á meðal hin hátíðlegu
felldan hátt í formála: „Á trúarviðhorf uppvaxtaráranna —
kreppuárunum sælu, þegar flest- þá tók ég Upp á því að virða fyr-
ar hugmyndir manns um jarð-1 ir mér helgisöguna um trésmiðs-
Stjórnarfrumvörp
flutt í vetur
í tilkynningu á Alþingi í gær
skýrði Bjarni Benediktsson for-
sætisráðherra frá eftirfarandi
stjórnarfrumvörpum sem flutt
verða á þessu þingi.
„Af einstökum málum, sem
lögð verða fyrir Alþingi auk
fjárlagafrumvarps -og þeírra
frumvarpa, sem eru í sambandi
við það, og frumvarpa um stað-
festingu á bráðabirgðalögum, er
þessara að vænta í upphafi
þings:
Frv. til laga um landhelgis-
gæzlu ísl.; frv. ftil 1- um breyt-
ingu á lögum um bann við botn-
vörpuveiði í landhelgi; frv. til
1. um breytingu á áfengislögum;
frv. til 1. um fávitastofnanir;
frv. til 1. um breytingu á lögum
um almannavarnir; frv. til 1. um
skipun prestakalla og prófasts-
dæma; frv. til 1. um Kristnisjóð;
frv. til 1. um verðjöfnunargjald
af veiðarfærum; fr- til laga um
námslán og námsstyrki; frv. til
skólakostnaðarlaga; frv. til 1. um
afnám Viðtækjaverzlunar ríkis-
ins; frv. til höfundarlaga, frv.
til 1. um greiðslur. til höfunda
vegna .útlána úr bókasöfnum;
frv. til 1. um breytingu á út-
varpslögum vegna ísl. sjón-
varps; frv. til 1. um útflutnings-
gjald af sjávarafurðum, þ.e.
sarnskonar hlutdeild sjómanna-
samtakanng og Landssambands
ísl. útvegsmanna; frv. til laga
um áframhald heimildar fyrir
landanir erlendra veiðiskipa hér
við land; frv. til laga um aðild
verzlunarfólks að atvinnuleysis-
tryggingum. Ennfremur verður
endurflutt frv. til laga um rétt-
indi skipstjórnarmanna, um sam-
ábyrgð íslands á fiskiskipum og
frv. um bátaábyrgðarfélög, svo
og frv. til breytinga á laxveiði-
lögum.
Síðar á þinginu er að vænta
frv. til nýrra heildarlaga um
tollheimtu og tolleftirlit, frv. um
staðgreiðslu opinberra gjalda og
frv. til laga um listamannalaun".
soninn frá Nazaret í alþýðlegra
ljósi en áður. Varð þetta til
þess að ég rímaði saman lítinn
flokk um fáein atvik hennar —
en hann hefur alla tíð síðan orð-
ið útundan, þegar ég hef dregið
saman efni í ljóðabækur mínar
Vegna þeirra, sem enn kypnu
að luma á einhverri forvitni ’bm
ljóðferil minn, tel ég rétt að
fresta ekki lengur birtingu þess-
ara kviðlinga, enda þótt þeir í
einu og öllu heyri til liðnum
tíma, þar sem hér er um mikils
til óbreyttan þtjátiu ára gamlan
kveðskap að ræða . . .,-Inngangs-
sálmurinn var þó ekki ortur fyrr
en síðari heimsstyrjöldin var
dunin yfir“.
f fyrra kom út ritgerðasafn
eftir Jóhannes og í hitteð-
fyrra ljóðabókin „Tregaslagur“.
„Mannssonurinn“ er gefin út í
fimm hundruð eintökum, tölu-
settum og árituðum af höfundi.
Bókin er prentuð í Hólum.
Dafnissaga
Söguná af Dafnis og Klói
þýddi Friðrik Þórðarson, fom-
málamaður, stárfandi í Osló, en
hann hefur unnið sér mikið orð
fyrir göfugt málfar; hann þýddi
„Grískar þjóðsögur og ævin-
týri“, sem út komu árið 1962.
í formála segir m.a. að þessi
saga hefði orðið einna lífseigust
fornra grískra sögubóka og sú
þeirra sem víðlesnust hefur ver-
ið á vesturlöndum og í mestu
gengi: Goethe segir einhversstað-
ar að það sé hollræði að lesa
hana á hverju ári. Hagir menn
hafa skemmt sér að því að búa
til við hana myndir og tónlist-
armenn fundið þar efni í lög og
söngleika; hirðingjasögur síðari
tíma áttu mikinn part kyn sitt
til hennar að rekjá á meðan þær
bókmenntir voru enn í góðu
gæti. . . Um höfundinn er ekk-
ert vitað; hann er nefndur Long-
os (Longus á latínumáli) í obba
handritanna, en vísast er það
ekki annað en forn ritvilla. Það
Gott vedur var á síldarmiðun-
um fyrra sólarhring og reytings-
veiði eins og undanfarna daga.
Samtals tilkynntu 51 skip um
afla, alls 6.571 lest.
olof nn<ri •
Víðir II. GK 130, Gullberg NS
120, Þorbjörn II GK 100, Þór-
katla II GK 150, Elliði GK 230,
Bjartur NK 180, Skarðsvík SH
190, Margrét SI 253, Reykjanes
GK 130, Amames GK Í33, Ösk-
ar Halldórsson RE 70, Sæhrímn-
ir KE 115, Sig. Jónsson SU 110,
Gissur hvíti SF 60, Gísli Ámi RE
260. Þorgeir GK 50, Keflvíking-
ur KE 70, Jón á Stapa SH 50,
Guðrún Jónsdóttir IS 130, Sigur-
ey EA 330, Þorsteinn RE 140,
Björgúlfur EA 140, Þ. Jónass. EA
180, Faxaborg GK 40, Sunnutind-
ur SU 80, Jón Kjartanss. SU 170,
Hamravík KE 140, Þrymur BA
140, Halldór Jónsson SH 100,
Höfrungur III AK 150, Amar
RE 200, Gjafar VE 210, Gunnar
SU 110, Brimir KE 120, Sóley
IS 125, Þráinn NK 75. Akurey
SF 60, Jón Eiríksson SF 65,
Viðey RE 170, Grótta RE ,170,
Súlan EA 130, Bjarmi EA 50,
Ófeigur II. VE 50, Björg NK
100, Ól. Tryggvason SF 50. Sig-
urvon RE 130, Engey RE 100,
Dagfari ÞH 140, Sigurborg SI
125, Ámi Magnússon GK 100,
Loftur Baldvinsson EA 130.
Eggiastrðinu á
Skaganum lokii
Jóhannes úr Kötlum
er helzt ætlandi að hann hafi
verið uppi um 200 árum e. Kr. b.
Bókin er 168 bls. prýdd mynd-
um eftir Aristide Maillol. Hún
er prentuð í Hólum.
Ljóðaflokkur Jóhannesar kost-
ar kr. 591 í bandi, en Bafnissaga
301 kr. í bandi (verð til utanfé-
lagsmanna).
★ Fundizt hefur í skjalageymsl-
um Akranesbæjar afsal, sem
sannar að bærinn á dágóða
landsspildu í Akrafjalli. Ekki
myndi þetta samt teljast til
tíðinda nema af því að á
hverju einasta vori undanfarin
ár, hefur staðið hálfgert hem-
aðarástand milli Akranesbúa
og bænda á Innnesinu útaf
eggjatöku í fjallinu- Bændur
hafa hvað eftir annað hófcað
hörðustu aðgerðum, ef bæjar-
’búar sætti' sig ekki við að
greiða þeim toll fyr-ir eggja-
tökuna og auglýst það ræki-
lega í útvarpinu-
★ Af skjali því sem fannst í
skjalageymslunum er Ijóst, að
Bjöm Lárusspn fyrrum bóndi
að Ósi í Ytri Akraneshreppi,
seldi bænum land í fjallinu
þann 1. desember 1928 fyrir
5000 krónur. Hefur þetta lengi
verið á vitorði eldri manna í
bænum, en ekki tekist að.
sanna það vegna þess að af-
salið hefur ekki fundizt.
★ Landið er í norðanverðum
Berjadal og er nánar kveðið
á um takmörk þess í afsal-
inu. Þar með ætti þetta
skrítna eggjastríð að vera úr
sögunni að mestu.
■**- •m* *
HÁBÆR
AÐÁRBÆ
Myndina hér að neðan tók
ljósmyndari Þjóðviljans í
gærdag, þegar verið var að
flytja húsið Hábæ, sem stóð
á Vegamótalóð, upp að Ar-
bæ. Samkvæmt upplýsing-
um Lárusar Sigurbjörns-
sonar verður húsið 100 ára
á næsta sumri. Þarna bjó
lengi Pétur Hafliðason
beykir, sem er gömlum
Reykvíkingum að góðu
kunnur. Húsið er ágætt
dæmi um ramm reykvíska
byggingarlist, sem hægt er
að kalla „tómthús stein-