Þjóðviljinn - 19.10.1966, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 19.10.1966, Blaðsíða 1
'Miðvikudagur 19. október 1966 — 31. árgangur — 237. tölublað. Hvers mega Norðlendingar vænta? Ragnar Arnalds flytur eft- irfarandi fyrirspurn á Al- þingi: „Til ríkisstjórnarinnar um störf tveggja nefnda, sem settar hafa verið til að rann- saka atvinnuástand á Norð- urlandi. Hví hefur enginn sýnilegur árangur orðið af störfum stjórnskipaðrar nefndar, sem fyrir rúmum tveimur árum ferðaðist um Norðurland til þess að rannsaka atvinnu- ástand þar og gera tillögur til úrbóta, og hví hefur ekkert spurzt til þessarar nefndar í tvö ár? Má vænta árangurs'.af störf- um nýrrar nefndar, sem í sumar ferðaðist im Norður- land á vegum stjómarvald- anna og kvaðst hafa nákvæm- lega sama hlutverk og hin fyrri? Ef árangurs má vænta, þá hvenær?“ Geir Gunnarsson, fuiltrúi Aiþýðubandalagsins í útvarpsumræðum um fjáriögin: Stjórnarstefnan er órsök kreppunnar í hvassri ádeilu á stjórnarstefnuna við 1. um- ræðu fjárlaga í gærkvöld sagði Geir Gunnarsson, fulltrúi Alþýðubandalagsins í umræðunum, und- V M \ SKARÐSBÓK \ \ \ \ \ ! KOMIN HEIM □ Skarðsbók, einn mesti dýrgripur meðal fornra handrita íslenzkra, sem íslenzkir bankar keyptu a uppboði í London í desember sl., er nú komin til landsins og var í gær afhent ís- lenzku þjóðinni til ævarandi eignar og varo- veizlu við hátíðlega athöfn í Ráðherrabústaðn- um í Tjarnargötu. Sjá baksíðu ir lok ræðu sinnar: „Hér ber allt að sama brunnilytri aðstæðna né heldur til þess að verkafólk hafi um það að þau kreppueinkenni sem tekin eru að fengið of mikið í sinn hlut. Hér er stjómarstefn- marka atvinnulífið verða ekki rakin til óhagstæðra | an sjálf að verki, og verðlækkanir á afurðum verða kenna um ófarnaðinn né til þess að halda fyrir verkafólki rétt- mætum hlut þess úr þjóðartekjunum. Og það verðUr ekki samrýmt neinni skynsemi að gera kröfur til launafólks nú að það afsali sér rétti til meiri kaupmátt- ar ^ tímakaupsins, og leggja um leið fram fjár- lagafrumvarp sem gerir ráð fyrir aukinni skatt- heimtu sem nemur 850 miljónum króna á einu ári og miðar við 20—30% og yfir 40% hækkanir á rekstrarliðum. Þverneita þannig á sama tíma að hverfa frá þeirri verð-1 bólgustefnu sem ' er að koma framleiðsluat- vinnuvegunum í þrot.“ Geir tók rækilega til meðferð- ar fyrirheit stjómarflokksunna ogv minnti á hvemig þau hefdu ver- ið svikin eitt af öðru. Hánnsýndi Framhald á 3. síðu. Frá. afhendingunm: Gylfi Þ. Gíslason flettir Skarðsbók; hjá honum standa til vinstri Jóhann- es Nordal bankastjóri Seðlabankans, Einar Ólafur Sveinsson forstöðumaður Handritastofnun- ar íslands og aftar Guðlaugur Gíslason alþingismaður, Guðni Jónsson prófessor og Kristján Aðalsteinsson skipstjóri á Gullfossi. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.). Norðurlönd beiti sér gegn árásurstríði Bandaríkjanna Einróma samþykkt norrænna málarasveina ■ Fimmta ráðstefna norrænna málarasveina var haldin i Kaupmannahöfn 8.—10 október s.l. með þátttöku málarafélaga frá Helsingfors, Tammer- fors, Ábo, Osló, Björgvin, Árósum, Reykjavík og að sjálfsögðu frá Kaupmannahöfn. Á ráðstefnunni var fjallað um hagsmunamál málarasveina og ýms sérmál í byggingariðnaði, ; en auk þess kom styrjöldin í Víetnam á dagskrá. Þátttakendur voru allir á einu máli um það að binda yrði sem fyrst endi á yfir- gang Bandaríkjamanna í Víet- nam með öllum tiltækum ráðum. í því sambandi var eftirfarandi ályktun samþykkt einróma: „Fimmta ráðstefna nor- rænna málarasveina lýsir á fundi í Kaupmannahöfn 8. okt. 1966 yfir samstöðu sinni með þjóð Víetnams. Stríðið i Víetnam hefur í æ ríkara mæli orðið styrjöld milli Bandaríkjanna og þjóð- ár Víetnams. Styrjaldaraðgerðirnar verða sífellt ruddalegri og víðtæk- ari, og beiting á nútímavopn- um, gasi og benzínhlaups- sprengjum leiðir óendanlegar þjáningar yfir íbúana. Átökin eru alvarleg og stöð- ug ógnun við heimsfriðinn. Við skorum því á allar nor- rænar þjóðir að bera fram eftirtaldar kröfur við ríkis- stjórnir sínar og þjóðþing: 1. Sprengjuárásum Banda- rikjanna í Víetnam verði þeg- ar í stað hætt. 2. Vandamál Víetnams verði leyst í samræmi við Genfarsamningana frá 1954. 3. Allir erlendir herir verði kvaddir heim. 4. Siðan verði haldnar frjálsar kosningar bæði í norður- og suður-hluta Víet- nams“. Sendinefnd frá Víetndm, sem var á ferð í Kaupmannahöfn um þessar mundir, héimsótti ráð- stefnuna, og gafst þátttakend- um þannig kærkomið tækifæri til að skiptast á kveðjum við víetnömsku fulltrúana. Aðalfundur Félags róttækra stúdenta Aöalfundur Félags rót- tækra stúdenta verður hald- inn í kvöld, mánudaginn !9. okt., í Glaúmbæ uppi oghefst kl. 9. Dagskrá: 1. Svavar Gestsson kynnir ný lög féiagsins. 2. Venjuleg aðalfundar- störf. 3. Magnús Jónsson ræöir vetrarstarfið. 4. Júníus Kristinsson ræðir ný viðhorf í félagslífi stúd- enta. 5. Jón Böðvarsson rekur þætti úr sögu félagsins. Róttækir stúdentar, fjöl- mennið! — Stjórnin. Svartolíubrák í Revkjavíkurhöfn Mikil og ' ljót svartolíubrák flýtur nú um allt hafnarsvæðið til tjóns og leiðinda fyrir alla þá, sem þurfa að sinna störfum i og við hana. Hér er um að ræða eftirhreytur af svartolíu, sem slapp í sjóinn inn við Klett fyrir nokkuð löngu. Þjóðviljinn sneri sér til Gunnars B. Guð- mundssonar hafnarstjóra og spurðist fyrir um þetta mál. Gunnar sagði að ekki væri fullkomlega ljóst hvemig olían hefði komizt inn 1 höfnina, en hinsvegar hefði verið unnið að því undanfarnar vikur inn á Laugamestöngum að íleyta mesta AlþýSuhandalagsfundur í Lídó á morgun Eins og frá var skýrt hér í blaðinu í gær heldur Alþýðu- bandalagið : Reykjavík fund S Lídó annað kvöld kl. 20,30 og verða þar kjörnir 34 aðalfulltrú- ar félagsins á landsfund Alþýðu- bandalagsins sem haldinn verð- ur f lok þessa mánaðar. Alþýðubandalagsmenn i Rvik eru hvattir til að fjölmenna á fundinn og ber að sýna félags- skírteini við innganginn. Þar verður einnig tekið á móti greiðslu félagsgjalda, og auk þess verður skrifstofa Alþýðu- bandalagsins í Lindarbæ opin f dag og á morgun kl. 12—19 og geta menn greitt þar félagsgjöld sín, ef þeir eiga það eftir. Auk fulltrúakjörsins er á dag- ákrá fundarins erindi um sjón- varpsmál, sem Bjöm Th. Bjöms- son, listfræðingur, fulltrúi Al- þýðubandal. í Útvarpsráði, flytur. olíumagninu ofan af sjónummeð þar til gerðum útbúnaði. Ekki hefði samt vérið hægt að komast hjá því að eitthvað slyppi. Sumt hefði eflaust rekið út í Faxaflóa, en nú á föstudaginn hefði brák- in náð inn á höfnina. Ekki kvað Gunnar hægt að neita þvi að ýmislegt óhagræði stafaði af olíunni. Miklu erfið- ara og óhreinlegra væri að vinna við ýmsar lagfæringar á bryggi- um. Olian sezt á báta í höfninni og verður sennilega að hreinsa þá. Einnig sezt hún á vatnsslöng- ur. Ekki sagði hann þó að hægt væri að tala um beint tjón af völdum olíunnar. Gunnar sagðist að lokum vilja taka fram, að Faxaverksmiðjan hefði lagt til vinnuafl við hreinsun 4 olíunni og hefði ekki komið til neinna 1 árekstra í því tilefni. I----------------------------- Vinnuslys Það slys varð við Tollvöru- geymsluna kl. hálfþrjú í gærdag að fullorðinn maður sem þar var við vinnu varð fyrir lyftara og fótbrotnaði. I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.