Þjóðviljinn - 25.10.1966, Blaðsíða 1
Landsfundur Alþýðubandalagsins
Fundurínn settur kl.
4 sd. ú föstuduginn
Kostar
63,1 milión
króna
ö Sú verðlækkun á mjólk
sem kom til framkvæmda í
gær nemur rúmum tveim-
ur vísitölustigum °og kostar
rikissjóð 63,1 miljón króna
á ári. Mjólkin varð að
sjálfsögðu fyrir valinu
vegna þess að hún hefur
einna mest áhrif á visitöl-
una af öllum vörutegund-
um.
□ Fyrir mánuði greiddi rík-
isstjórnin niður hækkun á
landbúnaðarvörum sem
nam 3,7 vísitölustigum og
kostar ríkissjóð 111 miljón-
ir króna á ári.
□ Þessar nýju niðurgreiðsl-
ur nema þannig samtals
nær sex vísitölustigum og
kosta ríkissjóð 174,1 milj-
ón króna á ári. Sú upphæð
er að sjálfsögðu tekin af
neytendum með söluskatt-
inum; hér er verið að færa
fjárhæð milli vasa til þess
eins að verðbólgumælirinn
— vísitalan — sýni ekki
hvað raunverulega er að'
gerast í efnahagslífinu.
■ Landsfundur Alþýðubandalagsins verður hald-
inn í Reykjavík dagana 28. — 30. október n.k. og
munu sitja' hann á ánnað hundrað fulltrúar frá Al-
þýðubandalagsfélögum um land allt en 10 ný fé-
lög hafa verið stofnuð undanfarna daga.
Laridsfundurinn verður settur
í Átthagasal Sögu n.k. föstudag
kl. 4 síðdegis en á dagskrá fund-
arins þann dag eru m.a. kosn-
ingar starfsmanna fundarins og
nefnda svo og framsaga um
skipulagsmál Alþýðubandalags-
ins.
Á laugardag hefst fundur að
nýju kl. 13.30 og verður þá
flutt framsaga um stjórnmála-
viðhorfið og næstu verkefni Al-
þýðubandalagsins og framsaga
fyrir tillögu stefnuskrámefndar.
Ennfremur fara þann dag fram
umræður um tillögur stefnú-
skrárnefndar, tillögur skipulags-
nefndar og um stjórnmálavið-
horfið og verkefni Alþýðubanda-
lagsins.
Sunnudaginn 30. okt. verða
rædd álit nefnda fundarins og
síðan fara fram kosningar 'og
fundarslit en um kvöldið kl. 20
hefst sameiginlegt borðhald
fundarmanna.
Hjón biðu banu í umferðar-
s/ysi á Reykjanesbrautinni
Hörmulegt slys varð á Reykja-
nesbraut á sunnudaginn er
fólksbifreið lenti framan á og
innundir vörubíl með þeim af-
Ieiðingum, 'að roskin hjón, Jó-
hann F. Guðmundsson 67 '' ára
z og Þóra Jónsdóttir 70 ára gömul,
Eskihlíð 10 A, biðu bæði bana.
Xvö barnabörn þeirra voru með
í bílnum og slasaðist annað
þeirra.
Áreksturinn varð kl. hálf sjö
um kvöldið og voru hjónin á
leið suður Reykjanesbraut í
■ Volkswagen bifreið sinni R-
17440, en vörubifreiðin R-411
kom á móti og mættust bílamir
rétt vestan við gangbrautina á
móts við Valsheimilið. Segist
vörubílstjórinn hafa verið á um
45 km hraða og vel vinstra meg-
in á veginum þegar hann sá
VW bílinn koma á móti sér ak-
andi á miðjum vegi og jafnvel
meira til hægri. Sá bílstjórinn
að hætta var á ferðum, hemlaði
og telur. að bifreiðin hafi verið
stönzuð er áreksturinn varð.
Hafði þá Volkswagen bifreiðin
Framhald á 8. síðu.
Myndin sýnir f jallshlíftina sem skriðan úr gjallhaugnum féll niður á námubæinn Aberfan í Wales.
Frumvarp Alþýðubandalagsmanna um verðlagsmál rætt á Alþingi
Ríkisstjórnin hefur selt bröskurun-
um sjálfdæmi um verðlag og gróða
■ Það er tilgangur þcssa frumvarps að aðstoða við stöðvun verð-
bólgunnar með því að hindra hinar tíðu verðhækkanir, sagði Einar
Olgeirsson á Alþingi í gær; hann flutti klukkustundar framsögu-
ræðu fyrir frumvarpinu um verðiagsmál sem hann flytur ásamt
Eðvarð Sigurðssyni og Ásmundi Sigurðssyni, en það var til 1. um-
ræðu á fundi neðrideildar f gær.
■ Vitnaði hann til ræðu Bjarna Benediktssonar, sem birt
var í Morgunblaðinu á sunnudag, þar spyrði forsætisráð-
herrann, hvers vegna hér væri svo erfitf að halda föstu
verðlagi. Svarið er, að þeir sem völdin hafa á íslandi
vilja verðbólguna. Það hefur verið eitt af aðaláhugamálum
núverandi ríkisstjómar að afnema verðlagseftirlit, og gefa
þar með heildsölum og bröskurum eirikarétt til að hækka
verðlag eins og þeim þóknast, hrifsa fyrirhafnarlaust gróða
af almenningi og þrengja að sjávarútvegi og iðnaði.
Einar Olgeirsson
í ræðustól Alþingis.
Átaldi Einar að svo virtist
sem ráðherrarnir hefðu méiri
áhuga á að ræða þessi vanda-
mál utan þings en á Alþingi þar
sem hægt væri að ráða við
þau. Var fáskipað í ráðherra-
tólum meðan Einar flutti raéðu
sína, þar mættu þó Jóhann Haf-
stein og Gylfi Þ. Gíslason, en
hvorugur lagði í það að verja
stefnu stjórnarinnar í verðlags-
málum né ræða um frumvarp
Alþýðubandalagsþingmannanna
sem gerir ráð fyrir sjö manna
verðlagsnefnd sem; hafi vald til
að ákveða hámarksverð á vör-
um og þjónustu. Frumvarpið og
greinargerð þess hafa verið birt
hér í blaðinu.
Frelsl heildsala og braskara
Einar deildi fast á það sem
ríkisstjórnin kallaði „frelsi“ í
verzlun, en væri í raun frelsi
kaupmanna og braskara til að
skammta sér gróða. Aðrar stétt-
ir hefðu ekkert hliðstætt frelsi.
Verkalýðshreyfingunni dygði
ekki að segja: Ég vil hafa þetta
kaup, heldur yrði hún að berj-
ast fyrir hverri smáhækkun.
Sjávarútvegurinn yrði að semja
og berjast um uppbætur og aðra
aðstoð vegna álags verðbólg-
unnar og gæti ekki skammtað
sér slíkt sjálfur.
Og gróðinn sem heildsalastétt-
in og braskararnir skófla til sín
fer að minnstu leyti til þess að
afla nýrra atvinnutækja, hann
fer í fínar vHhir, fínar skrifstof-
ur, fína bíla, fínar verzlunar-
hallir og bákn, og annað^ þess
háttar. Við því eru engar höml-
ur. Þegar ríkisstjórnin barmar
sér vegna hættulegs ástands og
segir að verkamenn megi um
fram allt ekki hækka kaup,
væri hennl nær að taka þátt í
umræðum á Alþingi um þessi
mál, og ræða þessa þætti vand-
ands.
Pólitískar orsakir
Einar minnti á að hverg-i í
Evrópu væri verðbólguþróunin
jafnhröð og hér á landi. Það
ætti sér pólitískar orsakir. Hér
væri það heildsalastéttin sem
réði í Sjálfstæðisflokknum og
hin^ vegar hefðu stjórnendur
Sambandsins öll tök á Fram-
sókn, og þessir aðilar teldu sig
báðir hafa hag af verðbólgu-
þróun. Þess vegna hefði ekki
verið hægt að koma fram um
langt skeið stjórnarstefnu sem
Framhald á 8. síðu.
Sorg og reiði
ABERFAN 24/10 — í kvöld
höfðu fundizt 145 lík í námu-
bænum Aberfan í Wales, þar
sem skriða féll úr gjall- og
kolahaug á föstudaginn og gróf
undir sig barnaskólann og- 15
önnur hús. Flest líkanna eru af
börnum og munu lík 49 barna
enn vera ófundin.
Ólýsanlég sorg ríkir í bænum
þar sem heita má að hver ein-
asta fjölskylda hafi misst eitt
eða fleiri böm — hvert einasta
níu ára gamalt barn í bænum
beið bana í skriðufallinu — en
sorgin er reiði blandin. Bæjar-
búar kenna stjórnarvöldum og
sérstaklega stjórn brezku kola-
námanna hvernig fór.
Framhald á 3. síðu.
Laxness forsetl
Alþjóðaráðs
leikritahöfunda
A heimsþingi Steffélag-
anna sem nú stendur yfir í
París var Halldór Laxness
kjörinn forseti Alþjóðaráðs
leikritahöfunda að því er
Ríkisútvarpið skýrði frá í
gærkvöld í lok frétta sam-
kvæmt skeyti frá París.
Skriðan sem féll á Aherfan
Þriðjudagur 25. október 1966 — 31. árgangur — 243. tölublað.
>