Þjóðviljinn - 25.10.1966, Blaðsíða 3
Þr.iðju*te@w 25. tíU&ae* &B6----Þ«Ö©ViSSsaaS(W — SfS*A 3
ÞakiB eitt liggur ofan á aurskríðunni sem gróf skólann undir sig
Sorg og reiBi
>■
Framhald al 1. síðu.
í>eir létu reiði sína í ljós í
dag þegar skoðun fór fram á
líkum 30 þeirra barna sem
þekkzt hafa. Þegar formaður
líkskoðunarnefndarinnar lýsti
dánarorsök eins bamanna að
hann hefði kafnað og orðið fyr-
ir ýmsum áverkum, tók faðir
drengsins fram í fyrir honum:
— Nei, lifandi grafinn af kola-
námuráði ríkisins. Ég vil að það
standi á dánarvottorðinu. Þann-
ig hugsar fólkið hér.
Aðrir tóku undir þessi orð,
hrópuðu: — Hann hefur rétt
fyrir - sér. Þeir _drápu börnin
okkar. Þeir drápu börnin okkar.
Fréttamaður brezka útvarps-
ins * sagði í dag að bæjarbúar
væru eins og lamaðir, margir
hverjir hefðu varla gert sér
fulla grein fyrir því sem gerzt
hefði, héldu að það hefði verið
óskapleg martröð sem þeir
myndu vakna upp af, en smám
saman yrði þeim allt ljóst og
að sama skapi magnaðist reiðin
í garð þeirra sem daufheyrzt
hefðu lengi við kröfum bæjar-
búa um að eitthvað yrði gert
til að koma í veg fyrir þann
hafmleik sem nú hefur gerzt.
Það er ekki lengra síðan
en í síðustu viku að fundur var
haldinn í bænum til að krefjast
slíkra ráðstafana.
Bióðugur bardagi við hótel
Johnsons forseta á Manila
Þúsundir stúdenta börðust við vopnaða lögreglu og
hermenn sem skutu úr byssum sínum á mannfjöldann
MANILA 24/10 — Blóðugur bardagi var háðúr í kvold fyr-
ir framan gistihús það í Manila þar sem Johnson Banda-
ríkjaforseti og aðrir stjórnarleiðtogar dveljast meðan ráð-
stefna þeirra í Manila stendur yfir, og áttust þúsundir stúd-
enta við vopnað lögreglulið og hermenn.
Hermennirnir hófu skothríð á
stúdentanö sem voru um 3.000
talsins og safnazt höfðu fyrir
framan gistihúsið til að láta í
ljós andúð sína á Johnson og
stríði Bandaríkjamanna í Viet-
nam. Tveir stúdentar a.m.k.
særðust af byssuskotum, annar
þeirra fékk skotsár í hnakkann.
Skothríðin hófst eftir að vopn-
að lögreglulið og hermenn með
stálþjálma á höfði höfðu hrak-
ið stúdentana út úr garðinum
umhverfis gistihúsið. Mannfjöld-
inn hafði hrópað í kór „Hæ hæ
LBJ, hve mörg börn hefurðu
drepið í dag?“, þegar lögreglan
x>g herlið réðst gegn honum
með kylfur og byssuskefti á lofti.
Stúdentar svöruðu árásinni
með því að kasta grjóti og öðru
sem hendi var næst og fjölmenn-
ir hópar ungra pilta og stúlkna
veittu lögreglunni viðnám. Marg-
ir særðust illa af kylfuhöggum
eða grjótkastinu, a.m.k. 10—15
lögreglumenn og sjö stúdentar.
Torgið fyrir framan gistihúsið
var eins og vígvöllur að viður-
eigninni lokinni.
Johnson forseti og aðrir þátt-
takendur í ráðstefnunni voru í
gistihúsinu þegar rósturnar hóf-
ust. Þegar mannfjöldinn hafði
verið hrakinn á brott, tóku her-
menn með alvæpni sér stöðu við
húsið. \
Mótmælaaðgerðirnar höfðu
hafizt við forsetahöllina í Manila,
þar sem fundir ráðstefnunnar
Sovézkt geimfar á
leiðinni tii tunglsins
MOSKVU 24/10 — Enn eitt sovézkt geimfar er nú á leið
til tunglsins og mun koma þangað seint á þriðjudagskvöld
eða snemma á miðvikudagsmorgun.
eru haldnir og þaðan fóru stúd-
entar blysför til bandaríska
sehdiráðsins, þar sem ætlunin
var að mótmælunum lyki. Eftir
þriggja, tíma fund fyrir framan
sendiráðið, spurðu leiðtogar
stúdenta mannfjöldann hvert
hann vildi nú halda og var þá
þegar lagt af stað til gistihúss-
ins sem er í grennd við sendi-
ráðið. „Farðu heim, Johnson",
hrópaði mannfjöldinn þegar
hann nálgaðist gistihúsið.
Ráðstefnan hafin
Fyrsti fundur ráðstefnunnar í
Manila var haldinn í dag, en á
henni eiga sæti stjórnarleiðtogar
sjö ríkja, Bandaríkjanna, Filips-
eyja, Suður-Vietnams, Suður-
Kóreu, Thailands, Ástralíu og
Nýja Sjálands. Þeir héldu fram-
söguræður sínar í dag, en ekkert
nýtt kom fram í þeim.
Síhanúk prins, leiðtogi næsta
nágrannaríkis Suður-Vietnams,
sagði í Kambodju í gær að land
hans myndi ekki taka þátt í nein-
um friðarviðræðum sem kynnu
að verða ákveðnar í Manila. Þau
sjö ríki sem fulltrúa ættu í Man-
ila væru öll andvíg friðsamlegri
lausn í Vietnam.
— Eina hugsanlega lausnin
er sú að Bandaríkjamenn fari frá
I Vietnam og til þess þarf hvorki
I málamiðlun né samningaviðræð-
ur, sagði hann.
Tunglfarinu, „Lúnu 12.“, var
skotið á loft á laugardag og
þykir líklegast að ætlunin sé að
það fari á braut umhverfis
tunglið, eins og tvö síðustu
tunglför Sovétríkjanna, en ekk-
ert hefur verið látið uppi um
það enn hver tilgangurinn er
með tunglferðinni.
Sennilegt þykir að „Lúna 12.“
hafi með sér ljósmyndunar- og
sjónvarpstæki og sé ætlunin að
taka myndir af yfirborði tungls-
ins og senda til jarðar. Tilraun
Bandaríkjamanna til slíkrar
myndatöku með „Lunar Orbit-
er“ fyrir skömmu mistókst að
nokkru leyti.
í hinni opinberu tilkynningu
um tunglskotið vac aðeins sagt
að ætlunin væri að gera athug-
anir á tunglinu og næsta ná-
grenni þess.
Kröfur leiðtoga hlutlausra ríkja
Hætt sé árásum á N- Vietnam,
aiiur erlendur her fari burt
Lokið viðræðum Nassers, Títós og Indiru Gandhi í
Nýju Delhi — Algert samkomulag þeirra um Vietnam
NÝJU DELHI 24/10 — í lokatilkynningu um viðrasður
stjórnarleitoga-Jndlands, Júgóslavíu og Egyptalands í Nýju
Ðelhi er þess krafizt að Bandaríkin hætti þegar 1 stað
og skilyrðislaust loftárásum sínum á Norður-Vietnam.
Tilkynningin var gefin út eft-
ir fjögurra daga viðræður Ind-
iru Gandhi, forsætisráðherra Ind-
lar.ds- Títós, forseta Júgóslavíu,
og Nassers, forseta Egyptalands.
Stjómarleiðtogar þessara 3ja
forysturíkja hinna hlutlausu
landa heimsins segja ennfremur
að Þjóðfrelsiefylking Suður-Viet-
-------------------------------:—
Ríkisstarfsmenn
í Svíþjóð í 3ja
daga verkfalli
STOKKHÓLMI 24/10 — í morg-
un hófst í Stokkhólmi þriggja
daga verkfall sem samtök há-
skólamenntaðra ríkisstarfs-
manna SACO hafa boðað til. í
samtökunum eru 35.000 félagar,
af þeim eru 22.000 kennarar í
verkbanni eða verkfalli frá því
í síðustu viku, en 7.500 af hin-
um taka ekki þátt í þriggja
daga verkfallinu þar sem þeir
eru taldir gegna lífsnauðsynleg-
um störfum (á sjúkrahúsum o.
nams hljóti að verða einn helzti
aðilinn í sérhverri viðleitni til
að kt>ma á friði í Vietnam.
Þá taka þeir fram að brott-
flutningur erlendra herja frá
Vietnam myndi leiða til friðar
bg veita vietnömsku þjóðinni að-
stöðu til að ráða sjálf fram úr
vandamálum sínum í samræmi
við ákvæði Genfarsamninganna
frá 1954.
Indira Gandhi, Tító og Nasser
ræddu öll við blaðamenn og
gerðu hvert fyrir sig grein fyrir
tilkynningunni. Nasser sagði að
með orðunum „allir erlendir her-
ir‘‘ væri fyrst og frerhst átt við
bandaríska herinn í Vietnam.
Hann bætti því við að hlutlausu
rikin þrjú hefðu engar sannan-
ir fyrir því að norðurvietnamskir
hermenn væru í Suður-Vietnam,
eri ef svo væri, ætti einnig að
flytja það herlið burt þaðan.
Ýms önnur alþjóðamál voru
rædd á fúndinúm í Nýju Delhi
og varð algert samkomulag 'milli
stjórnarleiðtoganna um öll meg-
inatriði. Titó sagði við blaöa-
menn að Kína hefði ekki borið á
góma í viðræðunum, nema hvað
ítrekuð hefði verið sú afstaða
allra þriggja ríkjanna að Peking-
stjórninni beri sæti Kína hjá
Sameinuðu þjóðunum.
Hassan konungur
gestur í Moskvu
MOSKVU 24/10 — Hassan Mar-
okkókonungur kom í dag til
Moskvu í opinbera heimsókn.
Hann mun ræða við sovézka
leiðtoga um aukna samvinnu
landanna. Þetta er í fyrsta sinn
sem konungur Mar.okkós kemur
til Sovétríkjanna.
Njósnarinn Blake sem slapp
úr ensku fangelsi leitað
LONDON 24/10 — Brezka lög-
reglan hefur síðan á laugardags-
kvöld gert mikla leit að George
Blake, sem þá slapp úr fangels-
inu þar sem hann afplánaði 42
ára fangelsisdóm fyrir njósnir í
þágu Sovétríkjanna.
Flóttinn uppgötvaðist ekki
fyrr en eftir hálfan annan tíma
og lögreglan mun ekki gera sér
miklar vonir um að hafa hendur
í hári Blakes. Hann hafði sorf-
ið í sundur járnrimla fyrir
klefaiglugga stnum, komizt nið-
ur í fangelsisgarðinn eftir reip-
stiga og þaðan yfir fangelsis-
múrinn.
Blake var dæmdur árið 1961.
Hann hafði starfað í brezku
leyniþjónustunni síðan 1944, en
var fyrir réttinum sakaður um
að hafa jafnframt njósnað í
þágu Sovétríkjanna í níu ár, og
látið þeim í té mikilsverðar upp-
lýsingar. Hann var dæmdur í
lengri fangelsisvist en nokkur
annar maður í Bretlandi á þess-
ari öld.
Radio Corparation of America
hefur mestu reynslu i framleiðslu
Sjónvarpstækja
Nýkomin sending
af hinum vinsælu
RCA sjónvarpstækjum
RCA sjónvarpstækin eru fyrir bæði kerfin.
Árs ábyrgð — Greiðsluskilmálar.
Þeir sem eiga pöntuð RCA sjónvarpstæki hafi
vinsamlegast samband við verzlunina sem fyrst.
RA TSJÁ
Laugavegi 47. — Sími 11575.