Þjóðviljinn - 25.10.1966, Page 2
J
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJTNN — Þriðjwtegur 25. október 1966.
Forseti heimspekideildar háskólans, próf. Halldór Halldórsson (í miðju) lýsir doktorskjöri. Til
hægri dr. Sigurður Nordal, til vinstri háskólarektor, Árni Snævarr prófessor. (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
Háskóli íslands sýnir dr.
Sigurði Nordal æðsta sóma
Dr. Signrður Nordal flytur á-
varp sitt á háskólahátíð.
■ Afhending doktorsbréfs
Sigurðar 'Nordals setti mest-
an svip á háskólahátíð 1966
sl. laugardag, fyxsta vetrar-
dag.
Heimspekideild háskólans
hafði sem kunnugt er ákveðið
að sýna Sigurði þennan æðsta
sóma í tilefni af áttræðisaf-
mæli hans í haust með því að
kjósa hann dr. litt. isíandicar-
um. Á hátíðinni á laugardag-
inn ávarpaði forseti heimspeki-
deildar, Halldór Halldórsson,
Sigurð Nordal en háskólarekt-
or, Ármann Snæyarr,, . lýsti
doktorskjöri. Sigur’ður þakkaði
sýndan sóma með snjöllu á-
varpi.
• í skólasetningarræðu sinni...
gat háskólarektor þess m.a. að
nú í vetur væru fleiri stúdent-
............................ <S>
í-
þróttamaður
Hér á íslandi virðist það
vera þáttur í menntun póli-
tíkusa að kunna að fara með
ósatt mál. Dr. Bjami Bene-
diktsson forsætisráðherra
hefur oft sýnt að hann er
mikill kunnáttumaður í þeirri
iðju. Háttur hans er oft sá
— eftir að hann tók að leika
hlutverk landsföðurins — að
hafa á sér yfirskin hófsemi
og sanngirni, en beita íþrótt
sinni í hálfkveðnum vísum og
setningabrotum. Morgunblað-
ið birti til að mynda í fyrra-
dag þætti úr ræðu sem ráð-
herrann hélt á fundi flokks-
ráðs Sjálfstæðisflokksins, og
ein setning gefur góða mynd
af vinnubrögðunum; forsætis-
ráðherra íslands segir að það
muni ,.lengi þykja í frásögur
færandi, að nokkrir menn
skyldu snúast á móti virkjun
Þjórsár og byggingu ál-
bræðslu". Og þetta er engan-
veginn í fyrsta skipti sem þessi
virðulegi þjóðarleiðtogi hefur
staðhæft í hálfri setningu að
stjórnarandstæðingar hafi
snúizt gegn virkjun Þjórsár.
En þessi kenning ráðherr-
ans er í engu samræmi við
staðreyndir. Tillagan um
virkjun Þjórsár var lögð fyr-
ir alþingi án nokkurra tengsla
við hugsanlega alúmínbræðslu
og rökstudd með þörfum fs-
lendinga sjálfra. Á það var
bent i greinargerð að íslend-
ingar þyrftu á þeirri virkjun
að halda sjálfra sín vegna
og hún væri á engan hátt of-
verk þeirra; hún væri hlut-
fallslega minna átak en íyrsta
virkjun Sogsins. Á þetta sjón-
armið féllst Alþingi íslendinga
einróma; ekki einn einasti al-
þingismaður snerist „á móti
virkjun Þjórsár". Þetta veit
Bjarni Benediktsson forsætis-
ráðherra að sjálfsögðu öllum
mönnum betur; ósannindi
hans eru vísvitandi.
Það var ekki fyrr en síðar
að stjórnarflokkarnir lögðu til
á þingi að virkjun sú sem ís-
lendingar höfðu ákveðið
handa sjálfum sér yrði að
verulegu leyti framseld út-
lendingum. Þá hófst ágrein-
ingurinn um það hvort ís-
lendingar ættu sjálfir að nýta
auðlindir sínar og safna arð-
inum af þeim í landinu, éða
leyfa erlendum auðfélögum
að fleyta rjómann af hag-
kvæmustu orkulindum okkar
og flytja hann úr landi. Bjarni
Benediktsson beitti sér þá
fyrir því að Búrfellsvirkjun
kæmi svissneskum auðhring
fyrst og fremst að gagni. Þess
vegna mætti halda þvíifram
með fullum rökum að einmitt
hann hafi verið „á móti virkj-
un Þjórsár" — handa íslend-
ingum. — Austri.
ar við nám í Háskóla íslands
en nokkru sinni áður. Innrit-
aðir nýstúdentar eru hálft
fjórða hundrað talsins, þar af
2 í guðfræði, 68 í læknisfræði,
11 í tannlækningum, 5 í lyfja-
fræði lyfsala, 43 í lögfræði, 31
í viðskiptafræðum, 30 (í verk-
fræði, 7 í BA-deild vérkfræði
og 145 í heimspekideild (90 í
BA, 39 í forspjallsvísindum og
16 í íslenzku fyrir erlenda
stúdenta).
Rektor minntist í ræðu sinni
tveggja látinna starfsmanna
háskólans, Níelsar Dungals
prófessors og sr. Bjama Jóns-
sonar vígslubiskups sem um
áratugaskeið var prófdómari
við- guðfræðideild. Þá lýsti
hann breytingum á kennara-
liði og gat! m.a.' nýrra sendi-
kennaraembætta i finnsku og
rússnesku. Hann greindi frá
byggingu húss Raunvisinda-
stofnunar Háskólans og gat
starfs stofnunarinnar og ann-
arra háskólastofnana. Þá lýsti
hann góðum gjöfum sem há-
skólanum hafa borizt á liðnum
mánuðum; m.a. hafði Stefán
Einarsson próf gefið mikið og
gott einkabókasafn til skólans
og Framkvæmdabankinn 300
þús. kr. til listaverkaskreyt-
inga í skólahúsinu. Hefur
Gunnlaugur Scheving verið
ráðinn til ,að vinna að þeim
málverkum.
Þakkar-
ávarp
• Hér með viljum við hjónin
flytja öllum kærar þakkir, sem
með fjárframlögum og vinar-
hug studdu að því, að litla
dóttir okkar, Anna Björk, gat
gengizt undir kostnaðarsama,
en vel heppnaða læknisaðgerð í
Bandaríkjunum á liðnu sumri.
Sérstakar þakkir færum við
héraðslækninum í Sauðárkróks-
læknishéraði, Friðriki J. Frið-
rikssyni, sem hvatti til þessarar
farar, studdi okkur með ráðum
og dáð, og gekkst fyrir fjár-
söfnun svo hún væri möguleg.
Einnig þökkum við sérstaklega
Ingibjörgu Magnúsdóttur, yfir-
hjúkrunarkonu á Akureyri, sem
fylgdi dóttur okkar til Banda-
ríkjanna og reyndist henni sem
bezta móðir.
Fyrir alla þessa ómetanlegu
aðstoð og velvilja þökkum við
af heilum hug.
Sauðárkróki, 20 okt. 1966
Erla ÁsgTÍmsdóttir
Örn SigMrðsson.
Pabb Picasso er 85 ára í dag
Pablo Picasso, helztí brautryðjandi myndlistarinnar á þessari öld og einn mesti snillingur. henn-
ar frá npphafi vega, er hálfníræðnr í dag. Picasso er enn við góða heilsu, sköpunargáfa hans
hefur ekki sljóvgazt og hann er enn óhræddnr við að fara nýjar leiðir. Picasso er spænskur að
ætt, en hefur dvalizt nær allan aldur sinn í Frakklandi, og í næsta mánuði verður hann hyllt-
ur í París með sýningu sem ekki á sinn líka; sýnd verða 800 verk hans frá öllum skeiðum hans
og verður sýningin jafnframt vigsla hinnar nýju menningarmiðstöðvar sem fær aðsetur í „Grand
Palais“. — Myndin er tekin af Picasso í vinnustofu hans í París.
Stofnfndur Alþýðubandalags í Kópavogi
rvopU" verður haldinn í Félagsheimili Kópavogs í kvöld, 25; október, kl. 9 síðdegis.
vogs- Þingmenn Alþýðubandalagsins í Reykja- neskjördæmi mæta á fundinum.
búar Undirbúningsnefndin. ..... _ -Ja—
Námskeið í sjákrahjálp / Borgar-
spítalanum
Námskeið 1 sjúkrahjólp á vegum Borgarspítalans hefst þann 6. janúar 1967.
Námskeiðið, sem stendur í 8 mánuði, byrjar með 4ra vikna forskóla, en síðan fer
starfsþjálfun fram á sjúkrahúsum, og lýkur með prófi. Laun sjúkraliða eru sam-
kvæmt reglum um laun opinberra starfsmanna. Nemendur í sjúkrahjálp fá 60%
af launum sjúkraliða. Umsækjendur skulu hafa lokið prófi skyldunámsstigsins og
vera ekki yngri en 17 og ekki eldri en 50 ára.
Umsóknareyðublöð fást í Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur og hjá forstöðukonu
Borgarspítalans í Fossvogi, sem lætur í té frekari upplýsingar, sími 41520.
/Í!' ..
Umsóknir skulu hafa borizt Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur Heilsuverndarstöðinni,
fyrir 18. nóvember 1966.
Reykjavík 24. okt. 1966.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
i