Þjóðviljinn - 25.10.1966, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 25.10.1966, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 25. október 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SlÐA g Handknattleiksfréttir: ★ Reykjavíkurmótið í handknattleik, hið 21. í röðinni, hófst í íþróttahöllinni í Laugardal sl. sunnudagskvöld. Fóru þá fram þrír leikir í meistaraflokki karla og urðu úrslit sem hér segir: Ármann vann í»rótt með 13 :10 Fram sigraði ÍR með 23 :13 KR sigraði Val með 16 :13 Nasstu ieikir mótsins verða sem hér segir: Sunnudag 30. október kl. 14,00 í Laugardal. 3. flokkur karla KR — Fram 3. flokkur karla Þróttur — Valur 3. flokkur karla Ármann — Víkingur 2. flokkur karla Víkingur — Valur 2. flokkur karla^ KR — ÍR 2. flokkur karla Fram — Þróttur 1. flokkur kvenna — Valur — Fram MeiStaraflokkur kvenna Víkingur — Valur Meistaraflokkur kvenna Ármann — Fram. Sunnudag 30. október kl. 20,00 í Laugardal. Meistaraflokkur karla ÍR — Valur Meistaraflokkur karla — Þróttur — Fram Meistaraflokkur karla Víkingur — Ármann. •k Þing Handknáttleikssambands íslands var háð í íþróttamið- stöðinni í Laugardal sl. föstudag og laugardag. Ásbjörn Sigur- jónsson var endurkjörinn forseti sambandsins. — Nánar verður sagt frá þinghaldinu síðar TRABANT EIGENDUR Viðgerðarverkstæði Smurstöð Yfirförum bílinn fyrir veturinn. Frá úrslitaleik bikarkeppninnar á sunnudag. FRIÐRIK ÓLAFSSON, vélaverkstæði Dugguvogi 7. Sími 30154. Reykjavíkurmótið kafiö, þing HSÍ haldið fyrir helgi KR bikarmeistari, sigraði Val með 1:0 í roki og kulda ■ KR vann á sunnudaginn titilinn „bikarmeist- ari 1966“ með því að vinna Val í úrslitaleik 1:0. Er þetta í sjötta sinn sem KR vinnur þessa keppni, en alls hefur verið keppt um titil þennan 7 sinn- um. betri, þeir börðust allan tím- ann og létu aldrei bilbug á sér finna, og undir lok leiksins mátti ekki miktu muna að þeim tækist að bseta við marki, en Sigurður Dagsson' bjargaði. Var það Gunnar Fel- ixson sem þar var að verki. Gunnar Felixson, Jón Sigurðs- son og enda Hörður Markan. Ellert var beztur í vörninni, var frískari en oft áður í sum- ar, svo og Guðmundur í mark- inu, sem varði*oft vel, og þá sérstaklega skot frá Reyni í lok fyrri hálfleiks. Veður var heldur slæmtfyrir knattspymu, rok og kuldi, og þetta eina niark sem /skorað var, skoraði annar bakvörður KR úr langri spymu, sem fyrir misskilning fór í markið. Eftir gangi leiksins vora þessi úrslit þó nokkuð isanngjöm. Það verður ekki sagt aðveð- ui-skilyrði hafl verið ákjósan- leg á sunnudag þegar þau komu til leiks KR og Valur til að leika úrslitaleikinn í bikar- keppninni 1966. Norðvestan stormur og kuldi í lofti, og mátti stundum sjá moldrok á vellinum. Þetta veðurlag or- sakaði einnig að illt var að hemja knöttinn, og vantaði þ'u’ alla góða knattspymu f leikinn, þótt baráttuvilji og viss spenna væri í leiknum frá upphafi.til enda. KR vann hlutkestið og kaus að leika undan storminum, og var almennt búizt við að KR myndi þegar taka Jeikinn ísín- ar hendur og með hraða sínum geha fljótlega út um hann. Á þessu varð þó bið, og þrátt fyrir það að KR-ingar væru oft- ast í sókn tókst þeim illa að skapa sér hin opnu tækifæri, og þau sem komu notuðu þeir illa. Fyrsta svolítið hættu'ega atvikið kom á 5. min. er Bald- vin átti góðan skalla á mark- ið, en knötturinn fór beint á Sigurð. Nokkru síðar er Baldvin kominn innfyrir hægra megin og sendir knöttinn fyrir til Ey- leifs, sem var alltof fljótfær og skaut slaklega framhjá. Eina verulega hættulega tæki- færið áttu þeir á 15. mín. leiksins, þegar Eyleifur var kominn allnærri markinu f góðu færi og skaut þaðan hörkuskoti secn Sigurður varði snilldarlega. Annars var þetta heldurþóf- kennt á vallarhelmingi Vals, með örfáum áhlaupum Vals sem flest voru hættulítil. Var eins og framlína Vals ætti erfitt með að sameinast gegn vöm KR og vindinum. Á 25. mín. er Ársæll Kjart- ansson, bakvörður KR, bominn nokkuð framarlega og spymir langri spymu fVrir markið. en einn varnarmaður Vals kallar að hann hafi knöttinn, og mun Sigurður markmaður hafa skil- ið það svo að hann hafi ætlað að skalla og lét þar við sitja þó hann hefði nægan tíma til að verja þar sem knötturinn mundi koma. En enginn skallar og skoppar knötturinn rólega^, inn í marjdð, og þegar Sigurður sér hvert stefnir er allt um Seinan, og markið er staðreynd. Valsmenn létu þetta ekkert á sig fá og héldu uppi ágætri vöm, þar sem KR-ingum tókst ekki að brjótast hættulega í gegn, og undir lok hálfleiksins tóku Valsmenn að sækja meira á en áður, , en ekki tókst að jafna, og þannig lauk fyrri hálf- leik. Með vindinn í bakið, þenn- an litl^ markamun og þann, nokkuð góða vamarleik Vals í fyrri hálfleik, þótti sem allt gæti skeð og ætti Val að geta tekizt að jafna og ef til vill meira. Valsmenn gáfu eftir í sfðari hálfleik í stað þess að nota sér vind- inn og sameinast um aðsækja að marki KR-inga gáfu Vals- mennimir hreinlega eftir, og það vom KR-ingar sem höfðu alveg eins tök á leiknum, þótt þeir þyrftu móti vindi að sækja. Þeir vom fljótari á knöttinn og mun meiri baráttuvilji í þeim Eins og fyrr segir var KR virkara og ákveðnara liðið og sigur þess sanngjarn þó sigur- markið hefði átt að koma úr öðru skoti en langsendingu Ársæls. Valsmenn léku allir, að Sig- urði Dagssyni undanskildum, undir því sem þeir geta, sér- staklega var það í síðari hálf- leik. Vörnin var þó góð og þétt að kalla í fyrri hálfleik, KR-ingar, Eyleifur Ilafsteinsson og Jón Sigurðsson, sækja að marki Vals í fyrri hálfleik. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.). Björgvin Schram, forseti Knattspyrnusambands íslands, afhendir bikarmeisturum KR verðlaunin í lok úrslitaleiksins á sunnudaginn. en Val. Þeim tókst hvað eftir annað að sækja að vítateig Vals án þess þó að skapa veruleg tækifæri, og það sama var um Valsmenn, þeir komust inn undir vítateig og þar rannallt út í sandinn. Þeim tókst nánast aldrei að koma verulegu skoti. á KR-markið, eða ógna vem- lega. Það var eins og Valslið- ið í heild vantaði baráttuvilja. og eiginleikann að sameinast. Þar vom KR-ingamir mun Þannig skiptu þau Valur og &R um hlutverk. Nú hefur Valur íslandsmeistaratitilinn, en KR í fyrra, Valur var bik- armeistari þá, en KR 'nú. Ef til vill hefur það verið veðrinu að kenna, en KR náði ekki eins góðum tökum á leiknum og gert Var ráð fyrir eftir fyrri leikjum þeirra í þessari keppni. Framlínan var nokkuð ágeng, sérstaklega í fyrri hálfleik einkum þeir en framlíhan náði aldrei sam- an, í hvorugum hálfleiknum. Björn Júlíusson, Árni og Halldór sluppu bezt, og enda Þorsteinn.. í framlínunni var það Bergsveinn og Gunn- steinn Skúlason sem börðust einna skárst. Dómari var Magnús Péturs- son og dæmdi yfirleitt vel. Áhorfendur voru nær þrjú þúsund, þrátt fyrir kuldann. Frímann. i KpmaiBíLA.LEICAN rALUR P Rauðarárstíg 37 sími 22-0-22 Kr. 300,00 daggjald og 2,50 á ekinn km. ÞER LEIK

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.