Þjóðviljinn - 25.10.1966, Page 12
I
fulltrúar á þingi málm- og skipasmida um helgina. — (Ljósm. Þjóðv- A. K*).
Alþýðubandalagið:
Stofnfundir í
kvöid í Kópa-
vogi og Eyjum
Um helgina voru stofnuð
þrjú ný Alþýðubandalagsfélög
í Suðurlandskjördæmi. Á laug-
ardaginn var haldinn fundur
að Vík í Mýrdal og stofnað
félag fyrir alla Vestur-Skafta-
fellssýslu. Á sunnudag var
haldinn fundur á Selfossi og
stofnað félag fyrir alla Ár-
nessýslu en áður var aðeins
starfandi féiag á Selfossi.
Loks var á sunnudag haldinn
fundur í Njálsbúð í Vestur-
Landeyjum og stofnað félag
fyrir alla Rangárvallasýslu.
Vegna þrengsla í blaðinu í
dag verða nánari fréttir af
þessum fundum að bíða birt-
ingar þar til á morgun.
1 kvöld, þriðjudag, klukkan
210« verður haldinn stbfn-
fundur Alþýðubandalagsins í
Kópavogi og munu þingmenn
Atþýðubandalagsins í Reykja-
neskjördæmi, þeir Gils Guð-
mundsson og Geir Gunnars-
son, mseta á fundinum.
Þá verður í kvöld haldinn
stofnfundur Albýðubandalags-
ins í Vestmannaeyjum og
heflst hann klukkan 20.30 í
Alþýðuhúsmu.
Fjölsóttur borg-
arafflndur
Borgarafundurinn sem Hlíf,
Sjómannafélag Hafnarfjarðar og
Framtíðin boðuðu til í Bæjarbíói
í gærkvöld um stöðvun Bæjarut-
gerðar Hafnarf jarðar og atvinnu-
ástandið í bænum var mjög fjöl-
mennur og tóku margir til máls.
Var fnöt út úr dyrum í bíóinu.
SfófS fundurinn enn er blaðið
leitaði frétta af honum seint í
gærkvöld. Verða nánari fregnir
af fundinum að bíða næsta blaðs,
III umgeiKgni
irjúpnaskyttna
Að þvi er forstöðumenn Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkur tjáðu
blaðamonnum í gær, hafa
rjúpnaskyttur sýnt heldur illa
úmgengni um Heiðmörk og haft
skilti og spjöld félaganna þar
að skotspæni svo og sorptunnur.
Eru þessir hlutir meira og minna
sundurskotnir.
Að öðru leyti er umgengni al-
ménnings um þetta friðland
Reykjavíkur til fyrirmyndar í
alla staði.
Skógræktarfélag Reykjavíkur 20 ára
Stérmkinn garBræktaráhugi
émsnnings er mesti sigurinn
Það er kannski mesti sigurinn
í starfi okl^ar hve garðræktar-
áhugi almennings hefur vaxið
mikið síðan Skógræktarfélag ís-
lands tók fyrst til starfa 1932,
sagði framkvæmdastjóri Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkur, Einar
G. E. Sæmundsen, á fundi sem
stjórn þess hélt með blaðamönn-
um í gær til að minnast 20 ára
afmælis félagsins. I»á voru falleg-
ir garðar í Reykjavik teljandi á
fingrum sér, sagði Einar, en nú
hefur þetta snúizt við, Reykjavík
á fjölmarga fallega garða, bæði
almenningsgarða og einkagarða
við íbúðarhús.
Formaður félagsins, Guðmund-
ur Marteinsson, rakti aðdraganda
að stofnun þess 24. október 1946,
en þá var gerð sú -skipulags-
breyting á Skógræktarfélagi ís-
lands sem aftur var stofnað við
Alþingishátíðina 1930, að það
varð samband allra skógræktar-
félaga í landinu og var þá sjálf-
sagt að stofna sérstakt félag í
Reykjavík. Var skógræktarstöð-
in í Fossvogi þá afhenti Reykja-
víkurfélaginu, en hana hafði
Skógræktarfélag íslands stofn-
sett 1932. Skógræktarstöðin var
þá 9 hektarar lands og var byrj-
að á uppeldi og gróðursetningu
í smáum stíl þá þegar, en þegar
Skógræktarfélag Reykjavíkur tók
við stöðinni 1946 var ákveðið að
leggja megináherzlú á plöntuupp-
eldið, því þá var ræktun Heið-
merkur þegar á döfinni og vitað
að þar yrði mikil þörf á plönt-
um, auk þess sem félagið vildi
leitast við að sjá almenningi fyr-
ir plöntum í garða þar sem ann-
ar aðaltilgangur félagsins auk
skógrasktar var að stuðla að
auknum áhuga almennings é
skóg- og garðrækt.
Einar Sæmundsen, sem var
ráðinn framkvæmdastjóri félags-
ins 1947 og hefur verið það síð-
an, sagði að plöntuframleiðslan
hefði aukizt gífurlega á þessum
árum, ársframleiðslan 1950 var
t.d. 67.700 plöntur en kemst
naesta vor yfir 40ft þúsund. Aldar
eru upp um 40 mismunandi teg-
undir, en verulegur hluti þeirra
eru runnar, ætlaðir í garða. Stöð-
in hefur verið stækkuð og voru
keyptir til viðbótar fimm hektar-
ar lands sem lágu upp að landi
hennar og er nú meginhluti
þessa svæðis alls kominn undir
græðireiti, skjólbelti og skógar-
lundi.
Fyrsta sitkagrenið sem gróður-
sett var í stöðinni 1943 og 44 er
Frarohaid á 8- séðu.
Stjóm Skógræktarfélags, Reykjavíkur og framkvæmdaistjóri við elzta sitkagrcnireitinn í gróðrarstöðinni
í Fossvogi. Frá vinstri: Sveinbjöm Jónsson mcðstjómandi, Ingólfur Davíðsson ritari, Guðmundur
Marteinsson formaður, Jón Helgason, gjaldkeri, Einar G. E- Sæmundsen, framkvæmdastjóri og Lárus
Rlöndal meðstjómandi. — (Ljósm- Þjóðv. vh).
N
Þing Málm- og skipasmiðasambands íslands:
Snorri Jónsson endurkjör-
inn fonnaður sambandsins
vara-
ar áliti, sem rædd voru og sam-
þykkt.
Að lokum fór fram kjör sam-
bandsstjómar. f sambandsstjórn
voru kjörnir: Miðstjórn: For-
maður Snorri Jónsson, varafor-
maður Guðjón Jónsson, ritari
■ 2. þing Málm- og stópasmiðasambands íslands var hald- Sigurgestur Guðjónsson;
ið í Reykjavík sl. laugardag og sunnudag og sátu þingið j1rita.ri
39 fulltrúar frá 9 sambandsfélögum. Þingið samþykkti
ályktanir, m.a. um kjaramál, atvinnumál og öryggismál
og verða þær birtar hér í blaðinu síðar.
Þingforseti var Jijörinn Sigur-
gestur Guðjónsson frá Félagi
bifvélavirkja. 1. varaforseti var
kjörinn Halldór Ámason frá
Sveinafélagi járniðnaðarmanna
á Akureýri og 2. varaforseti Ás-
geir Hafliðason frá Jámiðnaðar-
mannafélagi Ámessýslu á Sel-
fossi. /
Ritarar þingsins voru Tryggvi
Benediktsson frá Félagi járniðn-
aðarmanna og Helgi Amlaugs-
son frá Sveinafélagi'skipasmiða.
Formaður sambandsins, Snorri
Jónsson, flutti skýrslu mið-
stjórnar og Helgi Amlaugsson,
gjaldkeri þess, las og skýrði
reikninga sambandsins. Að því
loknu fóm fram umræður um
skýrslu miðstjómar og reikning-
ana.
Tvö félög voru tekin í sam-
bandið: Málm. og skipasmiðafé-
lag Neskaupstaðar og Málm- og
skipasmiðadeild Iðnsveinafélags
Keflavíkur. \
Á sunnudaginn hófst þing-
fundur kl. 2 e.h. með því, að
Kristmundur Halldórsson hélt
erindi um hagræðingarmál.
Eftirtaldar nefndir störfuðu á
þinginu: Kjara- og fetvinnumála-
nefnd, og Iðnaðar. og öryggis-
málanefnd og skiluðu þær báð-
Árekstrar og bíl-
velta á Akureyri
Mikil hálka og ísing var á Ak-
ureyri um helgina og urðu af
tóm völdum tveir árekstrar á
laugardagskvöld, sá fyrri milli
tveggja bifreiða á horni Brekku-
götu og Gránufélagsgötu og stór-
skemmdust báöar, en sá síðari
varð með þeim hætti að fólks-
bíll sem var að fara á stæði á
mótum Hafnarstrætis og Aðal-
strætis lenti á tveim kyrrstæðum
jeppum og skemmdist mikið,
ernnig stórlaskaðist annar jepp-
inn. Engin slys urðu á fólki við
þessa árekstra.
Þá valt bíll rétt norðan við
Glerárbrú um tvöleytið um nótt-
ina og er talinn gjörónýtur eftir
veltuna, en þrennt sem í honum
var slapp ómeitt.
keri Helgi Arnlaugsson, með-
stjórnendur Hannes Alfonsson
og Tryggvi Benediktsson.
í sambandsstjórn auk mið-
stjórnar: Halldór Arason, Akur-
eyri, Haraldur Sigurðsson, Vest-
mannaeyjum, Ásgeir Hafliðason,
Selfossi, Árni Björn Árnason,
Akureyri, Jóhann Zóega, Nes-
kaupstað, Guðmundur Sigurðs-
son, Keflavík, Ámi Magnússon,
Akureyri og Guðmundur Hall-
dórsson, Selfossi.
Varamenn í miðstjórn: Theó-
dór Óskarsson, Karl Árnason,
Hörður Jóhannsson.
Varamenn í sambandsstjórn:
Jón Þorgilsson, Vestmannaeyj-
um, Halldór Pálsson, Keflavík,
Sigurður Björnsson, Neskaup-
stað og Norðmann Hansen, Ak-
ureyri.
Þinginu var slitið kl. 7.30 á
sunnudagskvöld.
Þriðjudagur 25. október 1966 — 31. árgangur — 243. tölublað.
BRAUÐIN HÆKKA
MJÓLKIN LÆKKAR
Margar húsmæður ráku upp
stór augu I gærmorguH þegar að
því kom að borga mjólkina.
Rcyndist hún hafa lækkað um
kr- 1.35, úr kr. 8,05 í kr. 6-70. Að
vísu hafði þessa verið getið
rækilega í útvarpinu á sunnu-
dag og þá jafnframt þess, að
ríkissjóður tæki á sig þennan
aukna bagga. Nema þá - niður-
greiðslur úr ríkissjóði á hvern
mjólkuriítra nákvæmlega kr.
6,70, eða jafnmiklu og húsmæð-
ur greiða fyrir hann I mjólkur-
búðum-
Aðrar mjólkurafurðir, sem
greiddar eru niður úr ríkissjóði
erra ostur og smjör. Niðurgreiðsl-
ur á hvert kíló af smjöri nema
nú kr. 121,86, en á sama magn
af osti kr. 25-00 á 40% ost og
19.00 á 30% ost.
Á hinn bóginn varð kætin ekki
eins mikil þegar kom að brauð-
unum- Þau reyndust nefnilega
,hafa hækkað. í fyrradag kostuðu
1500 grömm af rúgbrauði kr.
12-50 en í gærmorgun kr. 13,20.
500 grömm af franskbrauði
hækkuðu úr kr. 8,60 í 9,40, 1250
grömm ’af normalbrauði hækk-
uðu úr kr- 13.50 í 14,20, stykkið
Garnaveiki enn
í Borgarfirði
Ærslátrun er nú hálfnuð í
Borgarfirði og hefur fundizt
garnaveiki í fé frá nokkrum
stöðum, að því er Guðmundur
Gíslason læknir á Keldum tjáði
Þjóðviljanum í gær. Garnaveiki
fannst ekki á nýjum stöðum, en
á sömu bæjum og í fyrra, öllum
í Stafholtstungum.
MÁLFUNDUR SÓSÍALISTA
I I kvöld verður haldmn málfundur á vegum Æskulýðs-
fylkingarinnar í Reykjavik í salnum niðri í Tjamargötu
20. Hefst fundurinn kl. 20,30.
I Einar Ol-geirsson flutti framsöguerindi á fundinum:
Hlutverk og stjórnlist sósíaliskrar verkalýðshreyfingar
á íslandi í dag.
I Sósíalistar eldri sem yngri em hvattir til að fjölmenna.
aí vínarbrauðinu úr 2,30 £ 2,50
og kílóið af tvibökum úr 39,00
krónum í 43,00.
Á þessa hækkun var ekki
minnzt í útvarpsfréttum á
sunnudag.
Hifaveitan
brást i gamla
bœnum
Á föstudagskvöld og Iaugar-
dag brást hitaveitan enn einu
sinni á Skólavörðuholti og á
Landakotshæðinni. — Spurði
Þjóðyiljinn Jóhannes Zoega,
hitaveitnstjóra í gær hverju
þetta sætti og hafði hann eft-
irfarandi um málið að segja:
Ástæðan er einfaldlega sú
að við höfoim ekki meira vatn
eða varma til umráða- Við er-
um að bíða eftir Elliðaárstöð-
inni og vatnsgeymunum en
höfum bætt svolítið úr með
dælum þannig að ástandið er
betra núna en fyrlr helgina.
Dælurnar sem beðið er eftir
ei ga aið vera komnar um mán-
aðamótin en stýri ketillinn í
varastöðina og nýir geymár
verða ekki teknir í nptkun
fyrr en um miðjan nóvember.
— Og má búast við að hita-
laust verði í gamla bænum
af og til fram að beim tíma-
— Já, ef kólnar í veöri,
sagði hitaveitustjóri að end-
ingu.
Alþýdubandalagi
í Hafnarfirði
Aðalfundur Alþýðubaindalags-
ins í Hafnarfirði verður haldinn
að Strandgötu 41 — Skálanum —
í kvöld, þriðjudag, kl. 20-30.
Dagskrá:
1. Inntaka nýrra félaga-
2. Venjul. aðalfundarstörf.
3- Kosning fulltrúa á lands-
fund Alþýðubandalagsins.
4- önnur mál.
* Félagar fjölmennið.
Stjómin.