Þjóðviljinn - 02.11.1966, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 02.11.1966, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 2. nóvemfeer 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SlÐA J Frá landsfumfí Alþýðvbandafagsins Styrkár Sveinbjörnsson (Seltjarnamesi), Eyþór Ingri bergsson (Árnessýslu) og Björgvin Sigurðsson. Bresnéf segir að Kínverjar hindri aðstoð við Vietnam MOSKVU 1/11 - Lenoid Bresnéf, aðalritari Kommúnistaflokks Sov- étríkjanna, sakaði í dag Kín- verja um að torvelda aðstoð við Vietnam og koma í veg fyrir sameiginlegar aðgerðir sósíalist- ísku ríkjanna til hjálpar þjóð- inni. Bresnéf sem hélt ræðu á fjöldafundi í Tblisi, höfuðborg Georgíu, sagði að afstaða Kín- verja torveldaði þj óðfrelsisbaráttu Vietnama. Fréttar. *»Reuters seg- ir að hann hafi verið furðulega hófsamur í garð Bandaríkjanna. Hann hafi að vísu gagnrýnt hernað Bandaríkjamanna í Viet- nam, en ekki notað um hann þau stóru orð sem hann hafi látið falla áður í því sambandi. ,„^resnét sagði að Sovétrjkin vaeru fús til að vinna með öll- um ríkisstjórnum og einstakling- Hörð ádeila á starfsemi SÞ STOKKHÖLMI 1/11 — Sænski hershöfðinginn Carl van Horn, sem hefwr verið árum saman í þjónustu Sameinuðu þjóðanna, fer mjög hörðum orðum um sam- tökin, stjóm þeirra og starfsemi. Hann segir að SÞ séu gagn- i sýrð af njósnum, spillingu og baktjaldámakki og framkvæmda- stjóm samtakanna ' geri sér | „mjög óljósar hugmyndir um raunveruleikann.“ Geislavirkt ský WASHINGTON 1/11 — Geisla- virkt rykský sem stafar frá síð- ustu kjarnasprengingu Kínverja fór I dag um háloftin yfir Banda- ríkin og var búizt við að skýið myndi verða yfir Evrópu ann- að kvöld. Engin hætta er talin stafa af þessu skýi. HANOI 1/11 — Fréttastofa Norð- ur-Vietnams skýrir frá því, að Kína kaupir korn frá ástralíu HONGKONG 1/11 — Kína hefur gert nýjan samning við Ástralíu um kaup á hveiti. Talið er að samningurinn sé um kaup á 600.000 lestum af hveiti. í júní var gerður samningur milli land- anna um >aup á iafnmiklu híieitknagní um á vesturlöndum sem vildu fylgja meginreglum friðsamlegr- ar sambúðar. Bresnéf vék að Stalín i ræðu sinni, en hann var ættaður frá Georgíu. Hann kallaði Stalín „einlægan byltingarmann" og talaði um „volduga bolsévika- raust“ hans, en þúsundir áheyr- enda tóku undir þau ummæli með áköfu lófataki. Einn af helztu leiðtogum kín- verskra kommúnista, Sén Pota, hafði fyrr í dag ráðizt heiftar- lega á forystu sovézka flokksins sem h'ann sakaði um að sitja á svikráðum við Kína, vinna gegn 'hagsm'unum vietnömsku þjóðar- innar, en lifa í sátt og samlyndi með Bandaríkjamönnum. " Hann sagði á fjöldafvmdi í Peking sem haldinn var til að minnast 30. ártíðar skáldsins Lu Hsun, að sovézku leiðtogarnir hefðu svikið Lenin, þeir stæðu með heimsvaldasinnum gegn byltingumii, gegn alþýðunni, gegn kommúnismanum, gegn vi- etnömsku þjóðinni , og gegn Kína. Kínverska stjórnin vísaði í dag á bug mótmælum sovétstjórnar- innar út af stöðugum fundahöld- um „rauðu varðl iðanna“ við sov- ézka sendiráðið i Peking. ACCRA 1/11 — Fjórir háttsettir ráðamenn frá Gíneu, þ.á.m. uí- anríkisráðherrann eru enn í haldi í Accra, höfuðborg Gana. Þeir voru kyrrsettir þegar flugvélsem þeir ætluðu með til Addis Ab- eba á þing Bandalags Afríkuríkj- anna hafði viðdvöl í Accra á Iaugardaginn. Beavogui utanrík- isráðherra fékk að ræða við fréttamann Reuters í dag og lét þar hafi dvalizt sendinefnd frá Kommúnistaflokki Kúþu og votu fyrir nefndinni þeir Raúl Castro landvarnarráðherra og Osvaldo Dorticos forseti. Ekki var tekið fram hvort nefndin væri þar enn. Þeir Raúl Castro og Dorticos voru á fundi leiðtoga spsíalist- ískra iríkja í Moskvu fyrir skömmu, en fóru þaðan til N- Kóreu. 1 dag var birt sameigin- leg yfirlýsing flokka Kúbu og Norður-Kóreu þar sem hvatt er til einingar allra kommúnista- flokka á grundvelli algerðs sjálf- stæðis hvers flokks. Brezkur ráSherrs i Ungverjalendi BÚDAPEST 1/11 — George Thomson, aðstoðarutanríkisráð- herra Bretlands, dvelst nú í Búdapest og hefur rætt þar við ungverska ráðamenn. Hann sagði í dag að í Ijós hefði komið í viðræðunum að skoðanir Breta og Ungverja á ýmsum alþjóða- málum, m.a. Vietnam, -væru mjög skiptar, en báðir vildu leitast við að finna lausn á því máli. Thomson sagði að Vietnam hefði verið helzta umræðuefnið. Stríðið þar torveldaði mjög frið- samlega þróun í öðrum hlutum heims, en brezka stjórnin teldi að halda ætti áfram viðleitninni til að draga úr viðsjám, hvað sem liði stríðinu í Vietnam. 0 Þant áfram í embætti til jóla NEW YORK — Allsherjarþing SÞ samþykkti í dag að U Þant skyldi gegna áfram starfi fram- kvæmdastjóra þar til þinginj lýkur, að líkindum 20. desember. Kjörtímabili Ú Þants lýkur eigin- lega á fimnatudag, en hann hef- ur fyrir þrábeiðni allra aðildar- ríkja samtakanna fallizt á að gegna starfinu áfram enn um sinn. í Ijós von um að hann og félag- ar hans kæmust leiðar sinnar áður en þingið i Addis Abeba hefst um næstu helgi. Aðrir 15 gíneskir þegnar voru kyrrsettir með stjórnmálamönn- unum. Þeir munu flestir vera stúdentar. Þrjár konur eru f hópnum. Stjórnarvöldin í Accra hafa lýst því yfir að allt þetta fólk verði haft í haldi þar til 100 Ganamönnum sem þau segja að séu í Gíneu en vilji fara heim verði leyft það. Sekou Toure, forseti Gíneu, sagði á fjöldafundi í Conakry í dag að ef þessir nítján menn yrðu ekki látnir lausir myndi Gínea neyðast til að taka1 til sinna ráða. Hann gaf ekki í skyn hver þau ráð myndu vera. FramreiÓslumenn Frámhald af 6. siðu. vegar það traust til þeirra þingmanna í Sjálfstæðisflbkkn- um, sem einhvern skilning hafa á' málefnum launþega, að þeir felli frumvarpið um staöfest- ingu bráðabirgðalaganna. Virðingarfyllst, f. h- Félags framTeiðslumanna Jón Maríasson íormaður. Flokkar Kábu og N-Kóreu hvetju báðir til einingar Sekou Toure hótar hefndum fyrir mannránið í Accra Heiftarleg árás í Tirana á forystu Sovétrikjanna Matvælabirgðir eru nú á þrotum RÓM 1/11 — Matvælabirgðir í heiminum eru nú næstum því á þrotum, sagði aðstoðarforstjóri Matvælastofnunar SÞ (FAO), Martin Hill, í gær. Samtímis því sem matvæla- birgðirnar hafa nær gengið til þurrðar er i mörgum löndum meiri skortur a matvælum en nokkru sinni áður. Aðstoð við hinar fátæku þjóð- ir hefur að heita má staðið f sta$ síðan í byrjun áratugsins og þau skilyrði sem oft eru sett fyrir slíkri aðstoð og lán- veitingum eru algerlega óviðun- ándi. Vextir hafa verið hækkað- ir, afborgunartími styttur og æ algengara verður að þess sé krafizt að lánin séu notuð til kaupa á vörum í landinu sem iánin veitir. 1.112 gervitung! á brant um jörðu GREENBELT 1/11 — Goddard- stofnunin í Maryland í Banda- ríkjunum sem hefur síðan 1958 fylgzt með öllum gervitunglum sem eru á braut umhverfis jörðu skýrir frá því í síðustu skýrslu sinni að nú séu á braut 1.112 gervitungl, eldflaugarþrep eða hlutar úr þeim. Þá hafa fundizt þrjú önnur „tungl“ sem eru á braut um jörðu, en ekki eru komin þangað af mannavöldum. Talið er að þar sé um að ræða loftsteina sem farið hafa á braut um jörðina. TIRANA 1/11 — Fimmta þing albanskra kommúnista var sett í Tirana í dag Hoxha, formaður flokksins, lýsti í setningarræðu sinni fullum stuðningi Albana við Kínverja og stefnu þeirra. en réðst af heift á það sem hann nefndi hið nýja keisaraveldi í Kreml“. Hoxha sagði að Sovétríkin og Bandaríkin hefðu myndað með sér nýtt „heilagt bandalag“ í þeim tilgangi að drottna saman yfir heiminum. Albanar myndu halda áfram baráttu sinni gegn hinni „nýju keisarastjóm í Kreml“. Fjölmenn kínversk sendinefnd er á þinginu, en auk þess eru þar gestir frá flokkunum í Rúm- eníu, Norður-Kóreu og Norður- Vietnam, þeim þrem sósíalistísKu ríkjum sem ekki hafa tekið af- stöðu í deilum Sovétrfkjanna og Kína. Auk þess eru þar mæt+.ir fulltrúaf frá flokksbrotum í 23 Johnson forseti farinn frá Seúl SEÚL 1/11 — Johnson Banda- ríkjaforsetí hélt í kvöld heim- leiðis frá Seúl, höfuðborg Suður- Kóreu, og er þá lokið hálfs mán- aðar ferðalagi hans um Ástralíu og Asíu, en hann hefur haft við- komu í sjö löndum og lagt um 50.000 km að baki. Á leiðinni til Washington kemur hann við í Anchorage í Algska. löndum. Aldarfjórðungur er lið- inn um þessar mundir frá stofn- un Korhmúnistaflokks Albaniu. Hoxha sagði í setningarræðu sinni að ráðgert væri að auka þjóðarframleiðsluna um 45—50 prósent á næstu fjórum árum og myndu meðaltekjur aukastum 20%. Miklar framfarir hefðu orðið á síðustu árum þrátt fyrir sviksamlegt samningarof Sovét- ríkjanna sem hefðu hætt allri éfnahagsaðstoð sinni árið 1962. Ólympíuskákmót Framhald af 1. síðu. 7. og síðústu umferð undan- keppninnar átti að tefla í kvöld og áttu þá íslendingar að tefla við Indónesa, Austurríkismenn við Júgóslava, Tyrkir við Mexí- kana en Mongólíumenn að sitja hjá Á morgun, miðvikudag, er frídagur, en á fimmtudag mun úrslitakeppnin væntanlega hefj- ast. Efstu sveitirnar þegar ein um- ferð er eftir eru þessar: 1. rið- ill — Sovétríkin 22, Spánn 19 (1 biðsk.), Svíþjóð er í 4. sæti með 12 (1) 2. riðill: — Júgó- slavía 17,5, ísland 12,5. 3. rið- ill — Bandaríkin 16, fsrael 14,5, Noregur í 4. sæti með 12 (2), 4. riðill — Argentína 16,5, Dan- mörk 14,5 (2). 5. riðill — Tékkó- slóvakía 18, Kanada 17. 6. riðill — Ungverjaland 20, Kúba 17,5 (1), 7. riðill — Rúmenía 20, Búlg- aría 17,5 (2), Finnland 14,5 (2). Vetraráæilun Flugfélagsins gekk í gildi í gær, l nóv. ■ í gær, í. nóvember gekk í gildi vetraráætlun Flugfélags íslands á flugleiðum bæði innanlands og á milli landa. Verður ferðum flugvéla félagsins hagað í vetur sem hér segir: Millilandaflug: Til Kauproannahafnar verður flogið á mánudögum, þriðjudög- um, miðvikudögum, föstuciögum, laugardögum og sunnudögum. Til Glasgow verður flogið á mánu- dögum, miðvikudögum og laug- ardögum. Lundúnaferðir verða á þriðjudögum og föstudögum. Flugferðir til Færeyja verða á þriðjudögum, til Osló á föstu- dögum og til Bergen á þriðju- dögum. Frá Kaupmannahöfn verða ferðir á mánudögum, þriðjudög- um, miðvikudögum, fimmtudög- um, laugardögum og sunnudög- um. Frá Osló á laugardögum, frá Björgvin og Færeyjum á miðvikudögum. Þar sem Viscountflugvélin Gullfaxi verður nú seld, verða allar millilandaflugferðir félags- ins í vetur flognar með Cloud- master flugvélum og Friendship skrúfuþotum. I Innanlandsflug: Milli Reykjavíkur ogv Akureyr- ar verða tvær ferðir á dag alla virka daga og ein ferð á sunnu- mánudaga, fimmtudaga og laug- ardaga. Til Þórshafnar á miðvikudög- um og laugardögum og til Kópa- skers á miðvikudögum. Til Fag- urhólsmýrar verður flogið á miðvikudögum. Til flugs á innanlandsleiðum mun Flugfélagið nota tvær Friendship skrúfuþotur og þrjár Douglas DC-3 flugvélar. Bílferðir í sambandi við flug- ið innanlands: Flugfélag Islands hefur ásamt aðilum á viðkomandi stöðum, unnið að skipulagningu áætlun- arbílferða í sambandi við flugið. Þannig eru bílferðir frá Isafirði til Bolungavíkur, Flateyrar, Súða- víkur, Suðureyrar og Þingeyrar. Frá Patreksfirði til Bíldudals og Tálknafjarðar. Frá Akureyri til Dalvíkur og Grenivíkur. í sambandi við flug til Sauð- árkróks eru ferðir til Siglufjarð- ar og Hofsóss. Þangað til flug- ferðir hefjast til hins nýja flug- vallar á Raufarhöfn verða bfl- ferðir þangað í sambándi við flug til Kópaskers. í sambandi við flug til Egilsstaðaflugvallar eru ferðir til Seyðisf jarðar, Reyð- arfjarðar, Eskifjarðar, Norðfjarð- ar, Stöðvarfjarðar og Fáskrúðs- ! fjarðar. BLAÐDREIFING Laus hverfi: Kvisthagi. Seltjarnarnes I, Vesturgata, Laugavegur Múlahverfi Skipasund Sogamýri ÞIÓÐVILIINN Sími — 17-500 dögum. Til Vestmannaeyja verða tyær ferðir á dag ámánudögum, þriðju- dögum, fimmtudögum, föstudög- um og laugardögum, en ein ferð á miðvikudögum og sunnudögum. Til Isaf jarðar verður flogið alla virka daga. Milli Egilsstaða og Reykjavíkur verður flogið alla vjrka daga Og milli Ak,ureyrar og Egilsstaðá á miðvikudögum og föstudögum. Milli Reykjavíkur og Húsavík- ur verður flogið á þriðjudögum, og milli Húsavíkur og Þórshafn- ar á laugardögum. Til Hornafjarðar verður flogið á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum, og milli Horaa- fjarðar og Fagurhólsmýrar á miðvikudögum. Til Patreksfjarð- ar verður flogið á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. Til Sauðárkróks verður flogið STRETCHBUXUR á börn og fullorðna Verð frá kr. 147,00.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.