Þjóðviljinn - 13.11.1966, Blaðsíða 12
Vetrarstarfsemi Leikfélagsins Grímu hafin
ÆFA EINÞATTUNGA EFTIR BIRGI
ENGILBERTS OG MAGNÚS1ÓNSS.
★ fceikfélagið GRÍMA starf-
rækir I fyrsta skipti í vetur
skóla fyrir leikara þar sem
kenndar eru þrjár greinar;
látbragftsleikur, skylmingar
og leikfimi.
★ ÞJÖÐVLLJAMENN litu fyr-
ir skömmu inn í Valsheimilið
og stóð þá yfir kenrislustund
I látbragðsleik en Gríma
hefnr einnig fengið inni í
Austurbæjarskólanum fyrir
kénnslu í skylmingum.
★ Ennfremur var rabbað vift
Brynju Benediktsdóttur, for-
mann Grímu urri næstuverk-
efni félagsins sem eru tveir
einþáttungar eftir unga, ís-
lenzka leikritahöfunda.
I Valsheimilinu hittum við að
máli þau Helgu Kr. Hjörvar og
Kjartan Ragnarsson en félagið
hefur falið þeim að sjá um skól-
ann og svöruðu þau eitthvað á
þessa leið þegar spurt var um
starfsemi hans:
Myndirnar á síðunni eru frá kennslustund í æfingaskóla Gnmu.
„ Viðhaldsklúbbar“
— Það má segja að þessi skóli
sé nýjung í leiklistarlifinu hér
í borg, a.m.k. hefur slík kennsla
ekki verið í föstu formi áður.
En fyrir npkkrum árummynduðu
ungir leikarar svonefndan „við-
haldskjúbb", og leikarar Þjóðleik-
hússins og Leikfélags Reykjavík-
Ur verið í leikfimi í sambandi við
einstakar leiksýningar. Enski leik-
stjórinn Kevin Palmer er líka
vanur að drífa allan sinn mann-
skap í plastiksefingar.
Við stofnuðum þennan skóla
jafniramt til að skapa samstæð-
an hóp en í Grímu eru nú um
50 meðlimir. Skólinn er öllum
opinn en er aðallega ætlaður fyr-
ir fólk sem útskrifað er úr leik-
skólum. Kennslugreinamar eru
þrjár; látbragðsleik kennir Þór-
unn Magnea Magnúsdóttir, Þór-
hildur Þorleifsdóttir kennir leik-
fimi og Egill Halldórsson skylm-
ingar
Nemendur raða þvi sjálfir
hvort þeir eru fastir eða óreglu-
legir nemendur, þeir geta með
öðrum orðum mætt þegar þeim
hentar. í hverri grein eru 10—12
nemendur, sumir mæta aðeins í
tíma í einni grein. aðrir í öllum
þremur
En það var aldrei meiningin
að tefja kennsluna úr hófi fram
O) hraða nemendur sér nú út
i gólfið og gera hópæfingu undir
.•tjórn Þórunnar Magneu. Þegar
ljósmyndarinn' hefur smellt af
nægju sína yfirgefum við þennan
starfsglaða hóp og náum næst
tali af Brynju Benediktsdóttur
ÍÉIÍÍÍÍil
I
;
Talið frá hægri: Kjartan Ragnarsson, Stefanía Sveinbjarnardóttir, Björg Davíðsdóttir, Sigurlín
Landsleikimir við Vestur-
Þjóðverja 29. o§ 30. nóv.
NÚ ER ÁKVEÐIÐ aft lands-
Iið Vesturþjóðverja í hand-
knattlcik komi hingað til
lands I lok mánaðarins og
heyi tvo landsleiki vift fs-
Icndinga í íþróttahöllinni í
Laugardal.
ÞJÓÐVERJARNIR koma til
Reykjavíkur mánudaginn
28. nóvember en landsleikim-
kvöld, 29. og 30. þ.m.
ir fara fram tvö næstn
FARARSTJÓRI Þjóftverjamna
verður Wiiling aðalritari hand-
knattleikssamb. V. Þýzktl.
Sérstök jólafargjöld hjá F/
fyrir Islendinga í útlöndum
Með það í huga, að alla sem
langdvölum dveljast enlendis, fýs-
ir hfiim um jólin, hefur Flugfé-
lag Islands komið á sérstökum
jólafargjöldum frá útlöndum til
Islands um hátíðamar, og nú
geta íslendingar sem erlendis
dveljast skroppið heim með ilítl -
um tilkostnaði og haldið jól og
nýár heima meðal vina ogkunn-
ingja.
Þá hafa allmargar fjölskyldur
tekið upp þann hátt, að gefa
slíka ferð í jólagjöf, og hlýtur
slíkt að vera kærkomið þeim úr
fjölskyldunni, sem erlendis
dvelst við nám eða störf.
Þessi sérstöku jólafargjöild,
sem ganga í gildi X. desember
n.k. fengust samþykkt á far-
gjaldaráðstefnu IATA-félaganna
fyrir nokkrum árum og giltu i
fyrstu aðeins frá Bretlandi til
Islands. Síðar tókst Flugfélagi
Islands að fá þessar reglur
rýmkaðar þannig að jólqfargjöld-
in gilda nú frá mörgum borgum
í Evrópu. Frá fyrsta desember í
ár gilda jólafargjöidin frá eftir-
töldum stöðinn: Amsterdam,
Bergen, Brussel, Khöfn, Frank-
furt, Glasgow, Gautaborg, Ham-
borg, Helsingfors, London, Lux-
emborg, Osló, Paris, Stavanger
og Stokkhólmi.
Framhald á 4. síðu.
Björn Þorsteinsson skák-
meistari TR i þriðja sinn
Síðasta umferð haustmóts
Taflfélags Reykjavíkur var tefild
s.l. fimmtudag. Úrslit í meist-
araflokki urðu þau að Björn
Þorsteinsson varð sigurvegari,
hlaut 11 vinninga af 13 mögu-
legum og ávann sér þar með
sæmdarheitið „Skákmeistari
Taflfélags Reykjavíkur 1966.“ Er
þetta í þriðja skiptið sem Björn
verður skákmeistari Taflfélags-
ins. I 2. — 3. sæti urðu þeir
Haukur Angantýsson og Bragi
Bjömsson með 9Vs vinninghvor.
1 1. fl. sigraði Andrés Fjeld-
sted með 6 vinninga, en í 2.
sæti varð Ólafur G. Oddsson
með 4 vinninga. 1 2. flokki urðu
úrslit sem hér segir: Júlíus
Friðjónsson varð efstur í A-
riðli með 7 vinninga, en Jón Þor-
valdsson í 2. sæti með 5V2 v. 1
B-riðli sigraði Steingrímur Stein-
grímsson með 5V2 vinriing, en 2.
sæti skipaði Ásgeir Jórtsson með
5 vinninga. 1 unglingaflokki
varð efstur Geir Haarde með 9t/2
vinning, en annar í röðinni var
Sverrir Friðþjófsson með 8 v.
1 dag, sunnudag, fer fram ihrað-
skákkeppni haustmótsins að
Freyjugötu 27 kl. 2 e.h. Keppt
verður eftir Monradkerfi alls 10
umferðir. Mánudaginn 21. þ.m.
hefst bikarkeppni Taflfélags R-
víkur og er það útsláttarkeppni.
Við setningu þess móts verður
sigurvegurum haustmótsins af-
hentir verðlaunabikarar og heið-
urspeningar.
Alþýðubandalagsmemi
Greiðið félagsgjöldin á skrifstofunni í Lindarbæ,
Lindargötu 9.. Skrifstofan er opin frá kl. 13 til 18,
sími 18081.
Framhald á 4. síðu. Oskarsdóttir, Helga Kr. Hjörvar og Oktavía Stefánsdóttir. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
Alþýðubandalagið í Reykjavík.
ENSKIR OG ÞÝZKIR
KULDASKÓR
fyrir kvenfólk
Stórglæsilegt úrval
. •. * / / •.*
SKÓYAL
Austurstræti 18. — (Eymundssonarkjallara).
KULDASKÓFATNAÐUR
fyrir kvenfólk, karlmenn og börn
- MIKIÐ ÚRVAL
SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR
Laugavegi 100.