Þjóðviljinn - 23.11.1966, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 23.11.1966, Qupperneq 10
9T J \ ! ! Sinfónían og Fílharmónía flytja Sálumessu Brahms — á tónleikunum annað kvöld og á laugardag ■ Á 5. reglulegum tón- leikum Sinfóníuhljóm- sveitar Islands sem haldn- ir verða í Háskólabíói ann- að kvöld verður fluf:t Sálu- messa Brahms „Ein Deuts- ches Requiem“. ■ Auk Sinfóníuhljóm- sveitarinnar taka þátt í flutningi verksins Söng- sveitin Fílharmónía og einsöngvararnir Hanna Bjarnadóttir og Guð- mundur Jónsson. Stjórn- andi er dr. Róbert A. Ottósson. ■ Tónleikamir verða endurteknir laugardaginn 26. nóv. kl. 3 e.h. Johannes Brahms var 11 ár að semja þýzku sálumessuna og var hún frumflutt í Leip- zig 1869. Verkið varð brátt víðfraegt og var staða Brahms í þýzku tónlistarlífi seinustu aldar þessu verki að þakka fremur en nokkfu öðru. Sálumessa verður suiigin á þýzku og er textinn prent- aður í efnisskrá tónleikanna, á þýzku og í íslenzkri þýð- ingu. Fyrir fimm árum fluttu Sinfóníuhljómsveitin og Söngsveitin Fílharmónía Sálumessu Brahms og voru einsöngvarar Hanna Bjarna- dóttir og Guðmundur Jóns- son. ^Síðan hafa margir óskað eftir að verkið yrði aftur tekið fyrir. í fyrra fluttu sömu aðilar níundu sinfóníu Beethovens við góðar undirtektir. Sögðu Gunnar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Sinfóníuhljóm- sveitarinnar og dr. Róbert A. Ottósson á blaðamannafundi í gær að samstarf þessara aðila hefði verið og væri hið ánægjulegasta. Margir meðlimir Fílharm- óníu sem vt>ru með í flutn- ingi Sálumessu Brahms fyr- ir fimm árum syngja að þessu sinni en þó hafa orðið allmikil mannaskipti í kórn- um að sögn formannsins, Sigurðar Þórðarsonar. 115 manns úr Fílharmóníu syngja á tónleikunum og verða þvi nálægt 170 manns á sviðinu í Háskólabíói. Næsta verk- efni kórsins er Missa Solemn- is eftir Beethoven og verður það flutt í apríl undir stjórn Bohdan Wodiczko. Munu æf- ingar sennilega hefjast fyrir jól. Eins og fyrr segir eru tón- leikarnir annað kvöld 5. reglulegu tónleikarnir í ár og sagði framkvæmdastjóri Sinfóníunnar að hingað til hefðu allir miðar selzt á Dr. Róbert A. Ottósson •reglulega tónleika nema 12 stykki — og sunnudags- og skólatónleikarnir væru einn- ig vel sóttir. Miðvikudagui 23. nóvember 1966 — 31. árgangur — 268. tölublað. Síldveiðin: Heíldaraflinn er nú 619210 lestir Samkvæmt skýrslu Fiskifélags íslands um síldveiðamar norðanlands og austan nam héildaraflinn um síðustu helgi 619.210 lestum en var á sama tíma í fyrra 495.394 lestir. I skýrslunni segir svo um veiðamar m.a.: Heildaraflinn, sem barst á land í vikunni nam 21.503 lest- um. þar af fóru 1.981 lest í fryst- ingu og saltað var i 8.913 tunn- ur- Heildáraflinn í vikulok var orðinn 619.210 lestir og skiptist þannig eftir verkunaraðferðum: •i lestir. 1 frystingu ............ 10.404 1 bræðslu ........ %. 550-925 1»— Héra&svakan í Valaskjálf um síðustu helgi f jölsótt ■ EGIL5STÖÐUM, 22/11. — Héraðsvaka Menningarsam- taka Héraðsbúa var sett í félagsheimilinu Valaskjálf sl. föstudagskvöld. Formaður samtakanna, Sigurður Blöndal skógarvörður á Hallormsstað setti samkomuna með ræðu og gat hann þess, að þetta væri þriðja vakan sem samtökin héldu, að vísu væru 10 ár og 2 dagar síðan síðasta héraðs- váka var háldin en óframkvæmanlegt hefði verið fyrr en nú að halda þessum vökum uppi sökum húsnæðisleysis, nú j væri sá vandi leystur með tilkomu hins nýja félagsheimilás. Myndin sýnir pakkann og innihald hans. ,Jó!apakkar 'með íslenzkum niðursoðnum sjávarufurðum Liomsklúbburinn Baldur, Rvik, hefur útbúið jólapakka með völdum islenzkum niðursoðnum sjávarafurðum. Frágangur pakk- ans er þannig að hann er tilbú- irín til póstsendingar- Jafnframt þvi sem pakkinn er smekkleg gjöf þá er hann einnig kynning á íslenzkum sjávarafurðum- 1 pakkanum eru sex dósir, sem innihalda eftirfarandi tegundir af niðursuðuvörum: Sardínur í tómatsósu. rækjur, kippers, kaviar, murtu og smjör- síld. Framleiðendur eru Ora h.f., Kr- Jónsson. Akureyri, Fiskiðjan Arctic, og S- 1- S. FH-Oppum 34:15 FH gersigraði í gær vestur- þýzka handknattleiksliðið Oppum með 34 mörkum gegn 15; í hálf- leik var staðan 16:10. FH lék fjörlegan leik og hafði yfirburði, en Þjóðverjarnir þoldu það ekki og gripu til hörku sem kom þó ekki að gagni. Nánar verður skýrt frá leiknum í blað'inu 3 morgun. Meðlimir Lionsklúbbsins Bald- urs munu sjá um sölu og dreif- ingu á jólapökkunum, en þeir verða einnig til sðlu í Kjörbúð Laugamess við Dalbraut. Sími 3-37-22- Söluverð jólapakkans er kr. 200.00. Ágóði af sölunni mun renna til verkefna Lionsklúbbs- ins Baldurs, en meðal verkefna klúbbsins hafa verið: Bókasafns- gjöf til Borgarsjúkrahússins og aðstoð við Kumbaravogsheimilið, sem er starfrækt fyrir rriunaðar- og umkomulaus böm- Á föstudagskvöldið var haldinn fundur um sameiningu sveitarfé- laga. Framsögu hafði Unnar Stef- ánsson fulltrúi en að lokinni ræðu hans urðu fjörugar umræð- ur. Aðalvandamálin sem ræðu- menn töldu vera í sambandi við sameiningu sveitarfélaga em hin ýmsu sérmál hreppsfélaganna. Samþykkt var tillaga frá Sig- urði Blöndal þess efnis að á Fljótsdalshéraði hefði verið og væri mjög góð samvinna með hreppsfélögunum, má þar nefna rekstur sjúkraskýlisins á Egils- stöðum, byggingu sameiginlegs félagsheimilis og skólabyggingar á Eiðum og Hallormsstað. Segir í tillögúnni að ekki komi til mála að sameina sveitarfélögin með lagaboði heldur verði, ef til kem- ur að vera háð samþykki viðkom- andi sveitarfélaga. Á laugardagskvöldið hófst dag- skráin með því að tekizt var á yfir Lagarfljót, þ.e. spuminga- keppni var milli hreppa austan fljóts og norðan og tók einn fulltrúi frá hverjum hreppi þátt í keppninni. Stjórnandi var Matt- hías Eggertsson Skriðuklaustri en dómari Kristján Ingólfsson á Eskifirði. Spumingakeppnin var mjög lífleg og fór þannig að austanmenn töpuðu glæsilega, fengu 87x/2 stig en norðanmenn 115. Gamanmál fluttu Hákon Að- alsteinsson lögregluþjónn og Karl Guðmundsson leikari. Hókon flutti frumsamið efni um Lagar- fljótsorminn og eftir að hafa hlustað á þetta hávísindalega er- indi Hákonar blandaðist engum hugur um að Lagarfljótsormurinn sé enn í fullu fjöri og við góða heilsu þrátt fyrir tilræði það er fréttamenn Morgunblaðsins, Tím- ans og Alþýðublaðsins sýndu honum á sl. vori. Karl Guð- mundsson las upp og hélt sam- komugestum í góðu skapi. Að lokum var stiginn dans við undirleik hljómsveitar Eiðaskóla. Á sunnudag hófst dagskrá kl. 14 með ávarpi Sigurðar Blöndal. Hörður Ágústsson listmálari flutti fróðlegt erindi og sýndi skugga- myndir um forna byggingalist. Tónakvartettinn frá Húsavjk söng við ágætar undirtektir. Þá var kynning á Stefáni Ólafssyni skáldi í Vallanesi. Ágúst Sigurðs- son prestur í Vallanesi flutti er- indi um skáldið og Karl Guð- mundsson las úr verkum hans. Þórarinn Þórarinsson fyrrverandi skólastjóri flutti ræðu og stjórn- aði almennum söng. Um kvöldið var stiginn dans við undirleik Kátra félaga úr Reykjavík. Fjöldi gesta sótti Héraðsvökuna sem fór hið bezta fram. — S. G. Fundur Flugfélagsmanna um sölumál hófst í gær í Rvík Hinn árlegi haustfundur Flug- félags Islands um sölumál og flugreksturinn á næsta sumri hófst í aðalskrifstofu félagsins á mánudag. Meðal fundarmanna eru allir fulltrúar félagsins er- Iendis, forstjóri, umdæmisstjórar utan af Iandi, deildarstjórar og fulltrúar. 1 inngangsræðu raeddi öm Ó. Johnson, forstjóri, m.a. mikla og góða reynslu af hinum nýju Friendship-flugfélum og stór- aukna flutninga innanlands. Hann sagði félagið nú standa á tíma- mótum, er þotuflug hefst á milli- ALÞÝÐUSAMBANDIÐ SENDIR DÖNUM KVEÐJU VEGNA HANDRITAMÁLSINS I byrjun þingfundar Alþýðu- sambandsins í gær minntist for- seti Hannibal Valdimarsson á lausn handritamálsins og fór viðurkenningarorðum um þátt danskra stjómarvalda í málinu. Kvað hann Alþýðusambandið hafa sent Alþýðusambandi Dan- merkur að gjöf Ijósprentun af íslenzku handriti frá 14. öld í viðurkenningarskyni fyrir fram- komu Dana í málinu. Hannibal flutti svo eftirfarandi tillögu til ályktunar. „Þrítugasta þing Alþýðusam- bands fslands tekur þátt í inniileg- um fögnuði íslenzku þjóðarinnar yfir endurheimt handritanna og undinstrikar þakkir íslendinga til dönsku þjóðarinnar vegna drengi- legrar framkomu leiðtoga hennar í handritamálinu, með þessum orðum - úr þjóðhátíðarkveðju þjóðskáldsins Matthíasar Joch- umssonar, 1874, er h .nn sagði: Bróðurlegt orð Snorra land Saxa-grund sendir. Samskipta vorra sé endir, bróðurlegt orð.“ Var ályktunin samþykkt ein- róma af þingfulltrúiwn. landaleiðum á sumri komanda, er hin nýja Boeing 727 þota kem- ur til landsins. öm sagði að því miður mundi afhending þotunnar seinka um ca. einn mánuð. Mundi hún vænt- anlega verða afhent félaginu síð- ari hluta júnímánaðar í stað maímánaðar svo sem fyrirhugað var. Þessi töf á afhendingj myndi að sjálfsögðu skapa félag- inu ýmsa erfiðleika, en hún ætti rætur að rekja til seinkana á af- greiðslu hreyíla í flugvélina og nokkurra annarra tækja. 1 við- tölum við fulltrúa Boeing verk- smiðjanna hefði komið fram, að seinkanir þessar ættu rætur að rekja til stríðsins í Viet Nam. Mörg flugfélög sem pantað hafa þotur af bandarískum gerð- um sjá nú fram á seinkanir á afhendingu flugvéla, sem munu valda þeim- erfiðleikum. Boeing þota F. 1. mun stytta flugtímann á millilandaleiðum um ca. helming miðað vfð þær flugvélar sem félagið starfrækir í dag. Þotan mun geta flutt 119 farþega sé hún öll eitt farrými. Til athugunar er hinsvegar að i henni verði fyrsta farrými og ferðamannafarrými og munu þá verða sæti fyrir 102 farþega 1 ferð. í salt 57-881 Auk þess afla hafa erl. skip landað 4.829 lestum vinnslu- aérlendis til Á sama tíma í fyrra nam heildaraflinn 495-394 lestum og skiptist þannig eftir ferðum: verkunarað- Iestir. I salt .... 58.647 I frystingu ...... 3.964 í bræðslu 432-783 Helztu löndunarsfSðir eru þessir: , lestir. Reykjavík 37.337 Bolungavík 6.850 Siglufjörður 28.268 Ólafsfjörður 6607 Hjalteyri 10006 Krossanes 16.240 Húsavík 4-260 Raufarþöfn 53.606 Þórshöfn 2-313 Bakkafjörður 1.359 Vopnafjörður 36.135 Borgarfjörður .... 7.971 Neskaupstaður .... 91-448 Eskif jörður 66-914 Reyðarfjörður .... ...... 36.171 Fáskrúðsf jörður , 32-928 Stöðvarf jörður 9.258 Breiðdalsvík .....; 8>246 Djúpivogur 11.715 V estmann aey j ar 4.729 Keflsvík ...... 1.001 Seyðisfjörður .... 148-699 Fró ÆFR Félagsfundur verður haldinn á fimmtudaginn klukkan 20-30 í Tjamargötu 20. Fundarefni: 1. Inntaka nýrra félaga. 2- Kosning tveggja manna í stjóm og eins í varastjórn. 3. Rætt um vetrarstarfið. 4- Ragnar Stefánsson skýrir frá nýafstöðnum þlngum Æsbulýðsfylkingarinnar og Ólafur Einarsson segir frá landsfundi Alþýðubanda- lagsins- Stjómin. Fró ÆFR Félagar! Umræðuhópurinn um vandamál sósíalismans tekur til starfa í kvöld, miðvikudag, kl. 20.30 í Tjaraargötu 20. Mætið stundvís- lega. Stjórnin. AB-fundur í Borgarnesi Alþýðubandalagsfélag ' Mýra- og Borgarfjarðar- sýslu, norðan Skarðsheið- ar, heldur fund í hótelinu í Borgarnesi n.k. sunnudag kl. éitt og verður þar að sjálfsögðu tekið á móti nýjum félögum. Megin- verkefni fundarins verður að kjósa fulltrúa á kjör- dæmisráðsfund, en hann hefst kl. 2 á sunnudag, einnig í hótelinu í Borgar- 'nesi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.