Þjóðviljinn - 01.12.1966, Blaðsíða 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVIUXNN — Fimmfcudagur 1. desember 1966.
Otgeíandi: Sameiningarflotckux alþýðu — Sósáalistaflolck-
urlnn.
Ritstjórar: tvar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson,
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. '
Auglýsingastj.: Þorvaldur Jóhannesson.
Stml 17-500 (5 línur». Askriftatrverð kr. 105.00 á mánuðl. Lausa-
söluverð kr. 7.00.
Gerbreytt viðhorf
j^kkert’ er mönnum jafn hættulegt og að trénast
upp, staðna í gömfum viðhorfum og glata hæfi-
leikanum til þess að meta nýjar aðstæður á fersk-
an hátt. Einkanlega er háskalegt ef forustumenn í
stjómmálum verða að þvílíkum eintrjáningum;
þeir leiða þá afleiðingar vangetu sinnar yfir heil-
ar þjóðir. Þau urðu örlög íslenzkra ráðamanna á
tímabili kalda stríðsins; þeim voru þá innrættar
skoðanir sem þeir virðast ímynda sér að haldið
geti gildi sínu um aldur og ævi, vitsmunalíf þeirra
breyttist í grýlukerti sem ekki hafa þiðnað síðan.
Þetta er þeim mun alvarlegra sem aðstæður í Evr-
ópu hafa breytzt mjög stórlega á undanfömum
árum. Það vanhelga bandalag, kennt við Atlanz-
haf, sem sumir ímynduðu sér að standast myndi
um aldur og ævi hefur riðlazt á skemmri tíma en
tveimur áratugum; eitt öndvegisríki bandalagsins-,
Frakkland, hefur hætf allri hernaðarsamvinnu við
það og kveðst ekki munu taka þátt í að framlengja
það í óbreyttri mynd. Önnur ríki bandalagsins
hafa í verki hafnað forustu Bandaríkjanna eftir
að hið vestra^na stórveldi tók að beita herafla sín-
um í siðlausri árásarstyrjöld í Víetnam; Bandarík-
in eru nú einangraðri en þau hafa nokkm sinni
verið. Á sama tíma háfa eðlileg samskipti Evrópu-
ríkja aukizt til mikilla muna þvert yfir jámtjald j
kalda stríðsins og allt bendir til þess að sú skyn- i
semdarþróun muni halda áfram. Jafnframt hefur j
það gerzt að hernaðartækni hefur gerbreytzt, svo i
að einnig herfræðilegar forsendur Atlanzhafs-
bandalagsins hafa glatað gildi sínu. Allt hefur
þetta leitt til þess að viðhorf manna til alþjóða-
mála hafa verið mjög í deiglunni í Vestur-Evrópu (
að undanfömu, umræður hafa verið miklar og f jöl- j
breytilegar, ekki sízt meðal þeirra sem forustu
hafa í stjórnmálum. Það er naumast annarstaðar en
á íslandi að ráðamenn ímynda sér að heilbrigð j
skynsemi og sjálfstæð hugsun séu til óþurftar þeg-
ar fjalla þarf um alþjóðamál; það er aðeins hér sem
tuttugu ára gamlar formúlur eru taldar duga til
þess að leysa sjálfkrafa vandamál dagsins í dag.
|^n þótt valdhafarnir hætti sér ekki út úr íshöll
kalda stríðsins hefur að undanförnu orðið vart!
nýrra og fjörlegra viðhorfa til alþjóðamála einnig
hérlendis, ekki sízt meðal æskufólks. Þau mál bar
til að mynda mjög á góma þegar háskólastúdentar
kusu sér stjórn í félagi sínu í haust. Þar tókst hin
víðtækasta samstaða, þvert á öll flokksbönd, og
það sem fyrst og fremst sameinaði menn var sú af-;
staða að íslendingar yrðu að temja sér aukið menn- j
ingarlegt sjálfstæði og óháðari stefnu í utanríkis-
málum. í þeim anda gangast háskólastúdentar í
dag fyrir hátíðahöldum í minningu fullveldisins.
Þegar íslendingar endurheimtu fullveldi sitt fyr-,
ir tæplega hálfri öld urðu utanríkismálin eftir í
fórum erlendrar ríkisstjórnar, og þjóðin setti sér
það mark að taka einnig þau í sínar hendur. Þótt
stjórn utanríkismála hafi á nýjan leik verið flutt
burt úr landinu, megum við ekki láta merki sjálf-
stæðisbaráttunnar falla Óháð stéfna í utanríkis-
málum er ein af forsendum þess að við fáum til j
frambúðar haldið þjóðlegu fullveldi. — m.
frídldkans, en þeir eru reyndar
Brúður og bangsar til að gæla við, við tókum hundana með
•: .
A JOLAmArKAÐNUM
alltof dýrir sem Ieikföng handa bömum- — (Ljóstn. Þjóðv- A. K.).
Heimsókn í Leikfangaland
Það er ein verzlun hér í ná-
grenni Þjóðviljans sem með
sanni má kalla LeikfangalanÓ
enda sjást börnin þar oft með
nefin klesst upp við gluggarúð-
urnar bcndandi á eitt og annað:
svona langar mig í, . . . sjáðu
þetta, . . . svaka, maður, . .
ó, finnst þér hún ckki sæt?
Rétt til getið, þetta er verzl-
unin Fáfnir á horni Klapparstígs
og Grettisgötu, stór verzlun og
björt með allar hillur úttroðnar
af Ieikföngum handa börnum á
Fáfni, en við biðjum þau hjón-
in að tína til fyrir okkur og
benda á leikföng, sem hafa
uppeldislegt gildi, eru þrosk-
andi fyrir bömin og fyrir þau
minnstu umfram allt sterk.
Fyrir vöggubörnin finnum víð
alls konar naghringi og bit. lit-
skrúðugar hringlur, ekki aðeins
til að halda á í höndunum, en
einnig til að festa á borð eða
annars staðar með soggúmmii
og hringluband til að hengja
yfir vöggu en neðan í þvi eru
Og hér höfum við safnað nokkrum leikföngum sem hafa upp-
eldislegt gildi: A borðinu sjást pýramidi, tréplata með lausum
raðmyndum, tannhjól sem snúast, kúlnaspil, og vinylbíllinn. A
gólfinu er kökudeigið og áhöld, slagtré, klukka, kubbar og fleira-
öllum aldri, alltfrá því þau fara
fyrst að skima kringum sig í
vöggu og greina sterka liti, fram
á unglingsár, já og reyndar e,
ekki örgrannt um að fullorðna
fari líka að kitla í finguma er
þeir líta dýrðina.
Við hittum að máli eiganca
verzlunarinnar Ingimar Guð-
mundsson og konu hans Sig-
þrúði Helgadóttur, sem sjálf eru
orðin afi og amma og hafa
bæði vit á leikföngum og böm-
um. Af nógu er að taka, því
varla mun það leikfang á mark-
aðnum að það sé ekki til hjá
tveir hringir sem bamið getur
gripið um og lyft sér upp þegar
það fer að hafa styrk til þess.
Fyrir bamið sem orðið er eins
árs eða tveggja em alls kon-
ar trékubbar hentugir, við mæi-
um ekki með plastkubbum fyrir
þennan eldursflokk, þeir em of
léttir. I>á era trépýramídarnir
rússnesku, allavega litir hring-
ir sem settir em á pinna. Einri-
ig em slagtrén skemmtileg
fyrir lítii böm, það cr lítið borð
með þykkum trénöglum og fylg-
ir hamar til að slá þá niður
með og það þarf náttúrlega ekki
að taka það fram að allt er
þetta í hinum fegurstu litum.
Enn eitt sovézkt leikfang fyTir
lítil böm er stöng með hjólum
á endanum og kúlum sem snú-
ast þegar bamið ýtir stönginni
eftir gólfinu.
Ekki má gleyma því að strax
frá þessum aldri fer bamið að
fá þörf fyrir að kjassa og gæla,
þá er rétt að gefa þeim bangsa
eða brúðu sem þölir mikið
hnjask, fínni brúður og vand-
meðfamari má svo gefa böm-.
um sem orðin eru eldri, við töl-
um hér viljandi um böm og
ekki telpur, því við höfum ekki
orðið vör við annað en Iftlir
drengir hafi alveg eins gaman
af að þykjast vera pabbar eins
og telpurnar mömmur, a.m.k.
meðan þeir sem eldri era hafa
ekki innrætt þeim eitthvað
annað og ankannalegt sjónar-
mið. A sama hátt er sjálfsagt
að gefa telpum bíla og fieira
sem oft er flokkað sem drengja-
leikföng, mætti t.d. benda á
einstaklega sterka bíla úr vinyi,
sem lítur út líkt og plast en
er miklu endingarbetra.
Eitt leikfang fyrir böm inn-
an skólaaldurs ætlað 2—5 ára®"
vekur athygli okkar, það er
tréþlata með lausum útskomum
myndum sem teknar era úr og
bamið á síðan. að raða í rétta
staði. Þetta er ekki of erfitt og
þó ekki of létt, við fengum að
reyna leikfangið á tveggja ára
bami, sem var 10 mínútur að
skiija hvað ætti að gera, síðan
eru liðnir nokkrir dagar og
bamið hefur unað sér við þetta
meira og minna á hverjum degi.
Fyrir heldur eldri böm er
óhætt að mæla með t.d. klukk-
um og pinnaspilum, sem eru
þannig gerð að marglitum plast-
pinnum er raðað á götótt spjald
og þannig búnar til myndir,
perlur til að draga á band eru
vinsælar, brúðuhúsgögn og mat-
arstell, bollastell, pottar og
pönnur, al'lt eru þetta sígild
leikföng. Þá má ekki gleyma
mekkanóinu, gamla jámmekka-
nóið er nú minna notað ög
meira verið með trémekkanó
með skúffum, hólfum og öðr-
um hlutum úr plasti. Þessi leik-
föng eru ætluð bömum frá
þriggja til tólf ára, það er að
sjálfsögðu misjafnt hvað þeim
tekst að ná út úr hlutunum
en öll fá þau útrás fyrir sköp-
unarþörfina.
Alveg nýtt á markaðnum
núna er kögudeig, með kefli,
mótum og öllu tilheyrandi og
kemur þetta í staðinn fyrir
drullukökumar áður fyrr, en
eins og allir vita getur verið
talsvert erfitt að komast í
drullukökubakstur nú á dögum,
a.m.k. þegar maður á heima í
borg. Að sjálfsögðu er deigið
ekki ætt og sé þess gætt að
geymá það í dósunum sem það
kemur í, harðnar það ekki
heldur. Deigið má að sjálfsögðu
nota lfka sem leir, þ.e. móta
úr því ýmsa hluti aðra en kök-
ur. Mjög falleg ítölsk brúðu-
rúm og vöggur með brúðum er
einnig nýtt á markaðnum þetta
árið.
Þannig mætti halda áfram að
telja upp í það óendanlega og
verður einhvers staðar að láta
staðar numið, er þó rétt að
minna að lokum á sleðana úr
plasti, sem nú eru að verða sem
vinsælastir — „þeir drífa alla
aðra“ sagði ein átta ára okk-
ur, og svo eru það spilin fyr-
ir eldri bömin, fótboltaspii,
fjölfræðispil, já allavega spil,
sem ævinlega eru velkomin
dægrastytting.
Fyrir kunningja sem gaman
hafa af að grínast, fullorðna eða
böm, viljum við benda á alls
konar hrekkjaleikföng. (Reynd-
ar sagðist Ingimar nú bara
reyna að fela þetta dót meðan
á jólaösinni stæði!) Má nefna
sem dæmi spæld egg úr plasti,
köngulær, mýs og fleiri kvik-
indi sem hoppa uppúr vindla-
kössum eða bókum, spýju úr
plasti sem lögð er á fínt gólf-
teppi til að hrella húsmóðuriría,
ja, það er kannski bezt að segja
ekki meir. Þó megum við til
með að segja söguna af iðn-
nemanum sem í fyrra hellti
bleki yfir skólasystur sína sem
klædd var hvítri kápu. Hún
brást auðvitað hin reiðasta við
og hljóp beint til skólastjórans
og klagaði, ætlaði síðan að sýna
kápuna, en viti menn: blekið
var horfið. — Daginn eftir kom
allur bekkurinn og keypti
undrablekið.
Þau hjónin segja okkur að
Iokum, að ekki sé enn mikið
farið að verzla fyrir jólin, en
fólk sé talsvert farið að koma
með bömin og leyfa þeim að
skoða og fiska þá eftir því um
leið í hvað þau Iangi.
— Reykjavíkurbömin eru
náttúrlega orðin þessu svo vön,
segir Sigþrúður. En það
skemmtilegasta sem ég veit er
að fá hingað í búðina böm ofan
úr sveit, sem aldrei hafa áður
séð svona mikið af leikföngum
samankomin. Þau trúa ekki sín-
um eigin' augum og eru svo
innilega glöð yfír að fá að
skoða þetta, jafnvel þótt þau séu
ekkert að kaupa. — vh
Nýnazistar telja
sig fá 60 fil 90
þingsæti í Bonn
HAMBORG 29/11 Einn helzti
leiðtogi flokks nýnazista í Vest-
ur-Þýzkalandi, NDP, Otto Hess,
segir í viðtali við vikublaðið
„Der Spiegel“, að búast megi vi3
að flokkurinn fái 60—90 sæti
á sambandsþinginu í Bonn i
næstu þingkosningum 1969. Hann
kvaðst sannfærður um að flokk-
urinn myndi spjara sig enn bet-
ur í kosningunum á næsta ári
til fylkisþinganna í Neðra-Sax-
landi og Slésvík-Holstein en • i
nýafstöðnum kosningum í Hess-
en og Bajern þar sem hann hlaut
8 prósent atkvæða.
Kínverjar kaupa
r
I
PEKING 28/11 — Kína hefur
samið um kaup á miklu magni
af tilbúnum áburði frá fimm
löndum Vestur-Evrópu, Vestur-
Þýzkalandi, Frakklandi. ítaliu,
Sv’-ss og Belgíu. Kínverjar munu
kaupa 3 miljónir lesta af tilbún-
um áburði fyrir 22 miljónir doll-
ara. Vesturþýzkt félag mun ann-
ast flutning áburðarins sem verð-
ur 300 skipsfarmar.