Þjóðviljinn - 01.12.1966, Blaðsíða 7
/
Harkaíeg
Framhald á 5. síðu.
staerilæti og þeirri heimskulegu
afstöðu að láta aldrei undan.
Hinar fyrirhuguðu sáttaumleit-
anir dómsmálaráðuneytisins
voru aldrei nema orðin tóm.
þar réð sofandahátturinn og
sinnuleysið ríkjum, Og er ekki
vansalaust af þeirri stofnun að
láta þennan mann gegna störf-
um eftir að ég afhenti yður
bréf það er dagsett er 9. sept-
ember. Ef mál þetta hefði þá
þegar verið tekið þeim tðkum
er þér töluðuðvum. hefði aldrei
til þess ama komið.
Því þætti mér vænt um ef
þér vilduð gera mér grein fyrir
af hverju umrætt bréf var sent.
til Markúsar Einarssonar til
skriflegrar umsagnar sem svo
aldrei kom. Var það kannski
liður í umræddri sáttaumleit-
an? Ef svo er, af hverju var
Markús látinn komast upp með
að skila ekki nefndri umsögn?
Bar ég Markús ekki nægilega
stórum sökum til að rannsókn
færi fram á sannleiksgildi
þeirra? Það var náttúrlega
þægilegra að bola mér úr starfi
en viðurkenna öll sín svik i
sambandi við ráðningu mfna f
vor, td. er hann hafði ekki einu
sinni leyfi frá réttum aðilum,
þ.e.a.s. fjármálaráðuneyti, til að
greiða mér það kaup er hann
réð mig til vinnu fyrir. Svo
var það náttúrlega ódýrara að
láta fanga sjá um starf mitt.
Ekki gera þeir stórar kaupkröf-
ur. 1 11. kafla 24. gr. í reglu-
gerð um vinnuhælið á Litla-
Hrauni segir:
„Fangelsisstjóri ræður starfs-
menn og víkur þeim úr starfi,
ef honum þykir ástæða til, þó
þarf samþykki dómsmálaráðu-
neytisins til.“
Var það samþykki fyrir hendi
20. okt. þegar mér var formlega
sagt upp og borinn út? Hvaða
skýringu get ég fengið á bvf
að mér var ekki sagt upp vinnu
og húsnæði með löglegum fyrir-
vara og á löglegan hátt, held-
ur gripið til svo ruddalegra að-
gerða sem raun ber vitni? Mér
finnst málstaður Markúsar ekki
svo glæsilegur að hann gæti
bætt þessum gerræðislegu að-
gerðum við. Hvemig komst
hann inn um læstar dyr f eld-
hús, stofu og svefnherbergi?
Naut hann ef til vill aðstoðar
einhvers þeiiTa manna sem
hann er settur til að gæta?
Ekki hef ég trú á að hann
hafi notið aðstoðar fyrrverandi
vinnufélaga minna af Litla-
Hrauni, enda veit ég ekki til
að þeir geti státað sig af þeirri
kunnáttu er til þess þarf. Enda
hugsa ég að Markús Einarsson
hafi ekki skapað sér þær vin-
sældir meðal starfsmanna þar
að hann hafi getað höfðað til
vináttu þeirra eða vinsælda
sinna til að fá þá til að taka
þátt í þessari. svívirðilegu að-
för sem mannvonzkan ein virð-
. ist stjóma.
Ég hef beðið lögfræðing minn
um að koma fram kæru á
hendur Markúsi Einarssyni for-
stjóra á Litla-Hrauni fyrir það
misferli og virðingarleysi fyr r
eignum annarra er hann hefur
gert sig sekan um og ég hef
hér skýrt frá. Auk þess hef ég
beðið hann að kæra þjófnað er
hefur átf sér stað úr búslóð
minni. Ekki veit ég hver fram-
kvæmdi þann verknað. Það
kemur í hlut réttvísinnar að
upplýsa það.
Ég tel víst að dómsmálaráðu-
neytið sé ábyrgt fyrir öllu því
tjóni er ég hef orðið fyrir af
völdum þessa óhappamanns. Ég
vil bjóða yður að koma hingað
í Selásblett 22A, í hús Kolbeins
Steingrímssonár og kynna yður
ástand þeirra muna er um er
rætt, eða senda yðar fulltrúa.
Ég reikna ekki með að Markús
Einarsson hafi áhuga fyrir að
skoða það dót nánar, en ef svo
væri er hann velkominn. Svo
vil ég taka fram að ég er til
viðræðna við fulltrúa ráðuneyt-
isins hvenær sem er næstu daga
um bætur á tjóni því er ég hef
orðið fyrir. Mér fyndist það
vera til að kóróna skömmina ef
ég þyrfti að sækja það mál
fyrir dómstóla.
Enn á ég margt eftir ósagt á
Fimmtudagur 1. desember 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SlDA J
framkoma á Litla-Hrauni
þessum vettvangi. Ég þarf að
skýra yður frá tildrögum þess
ósamkomulags er varð milíi
okkar Markúsar í upphafi, enn-
fremur aðstöðu þeirri er mat-
sveini á Litla-Hrauni var ætl-
að sl- sumar, heilbrigðisástand
og fl., en margt af því er svo
hart undir tönn að ég læt það
bíða um sinn. Því miður hef
ég orðið að velja þennan við-
ræðumáta, vegna vissra örðug-
leika á beinu viðtali sem væri
þó í alla staði heppilegra. Ef
forstjóri á Litla-Hrauni hefur
vald til að bera mig út svo ó-
vægilega, af hverju beitti hann
þvf ekki til að rýma hús það
á Eyrarbakka er mér var í upp-
hafi lofað til fbúðar en fékk
aldrei? Mér finnst það kald-
hæðni að íbúar þéss húss sem
var fjölskylda matsveins þess
er gegndi störfum á Litla-
Hrauni næst á undan mér,
skyldi fá að búa í því húsi í 5
mánuði frá uppsögn matsveins-
ins, en ég skyldi vera borinn
út jafnvel áður en mér var
fórmlega sagt upp. Læt égsvo
útrætt um þennan útburð í bili.
Tildrög ósamkomulags okkar
Markúsar f upphafi voru mat-
arræði á Litla-Hrauni. 1 þeim
efnum hvatti hann mig til mjög
mikils spamaðar, svo mikils að
fáránlegt mátti teljast. I reglu-
gerð um vinnuhælið á Litla-
Hrauni er kveðið á um matar-
ræði, þar segir svo: „í morgun-
verð skal vera brauð með á-
leggi, ásamt hafragraut og
nýmjólk eða skyrhræring og
mjólk. Á hverjum degi skal
vera heitur matur í miðdegis-
mat og kvöldverð. Kjöt skal
vera þrjá daga í viku. Brauð
með áleggi sé með eftirmið-
degiskaffi. Allir fangar skulu
fá matarskammt eftir þörfum.“
Þetta er ekki nógu greinilegt.
Þáð er talað'-um brauð með á-
leggi, en með hverju á að
smyrja það, smjöri eða smjör-
’lfki? — og hvaða álegg má
nota? Ræður matsveinninn því
eða forstjórinn? Kjöt skal vera
þrjá daga í viku segir svp. En
við hvað er átt með því?
Eiga að vera 3 kjötmáltíðir í
viku eða 6? Og hvemig er það,
ræður matsvéinninn hvers kon-
ar kjöt er notað eða forstjór-
inn? Þama varð fljótt mikill
ágreiningur milli mín og for-
stjóra. Ég tel ekki vera þörf
á yfirmatreiðslumanni á Litla-
Hrauni, ef maður sem ekkert
kann til matargerðar á að
segja honum algjörlega fyrir
verkum bara ef hann er titl-
aður forstjóri. Og ég er ekki
svo auðsveipur að ég láti hvem
sem er hafa áhrif á mig til
að brjóta þær reglur er kveða
á um matarræði á Litla-
Hrauni.
Þar með var friðurinn úti.
Hugsið yður, herra minn, að
þér væruð kokkur og gerðuð
pöntunarlista eins og þvístarfi
fylgir. En svo þegar listinn væti
korpinn af stað í verzlunina
kæmist einhver ódæll götu-
strákur í hann og strikaði út
meira en helming þess er þér
pöntuðuð en skæri hitt niðúr
um helming. Gætuð þér séð um
yðar starf ef margar slíkar
endui-tekningar yrðu? Það er á-
kaflega erfitt, það get ég sagt
yður. Mér finnst að svo gegnd-
arlaus sparnaður eigi ekki að
koma fram í öfsóknum og neð-
anjarðarstarfsemi ef svo má að
orði komast gagnvart mat-
reiðslumanni, heldur beri að
beina honum inn á aðrar braut-
ir, t.d. að annar bíll vinnuhæi-
i.sins, sá minni, væri notaður
til daglegra útréttinga hælisins,
t.d. í þágu eldhúss og varð-
stofu, en ekki prívat fyrir for-
stjóra-
Hefur forstjóri leyfi til að
refsa föngum, öllum sem
einum, með þv£ að banna
matsveini notkun matarkex i
óákveðinn tíma? Er það ekki
gert á kostnað matsveins
að vissu leyti? Ef þér ef-
izt um að þetta hafi verið
gert þá spyrjið forstjóra; ef
hann segir nei, spyrjið þá fanga
og starfsmenn hælisins.
Ennfremur verð ég að efast
um að forstjóri hafi vald ti)
að banna notkun nauðsynja-
vöru svo sem krydds ýmiskon-
ar og grænmetis á niðursettu
verði þann litla tíma ársins
þegar það er á boðstólum.
Hér sjáið þér upphaf ósam-
komulags okkar Markúsar en
þar með er ekki öll sagan sögð.
Það var um það samið að ég
sæi um allar útréttingar fyrir
eldhús nema bæjarferðir, það
er ferðir til Reykjavíkur, og
hefði til þess minn bíl. Hver
getur borið mér á brýn að ég
hafi ekki staðið við þann hluta
samningsins?
Og þá er komið að kaupinu.
Svo var um samið að ég hefði
17 þúsund krónur fyrir mánuð
hvem miðað við 44 stunda
vinnuviku. Markús heldur bví
hinsvegar fram að ég hafi ráð-
ið mig fyrir 17 þúsund kr.,
burtséð frá vinnu eða að ég
hefði tekið starfið að mér fyrir
17 þúsund kr., og borgaði mér
þvi samkvæmt 13. launaflokki
opinberra starfsmanna rúmar 9
þúsund kr. á mán. miðað við
44 stunda vinnuviku. Og síð-
an eftir- og helgidagavinnu
eftir dúk og disk þar til komn-
ar voru 17 þús. kr.
Hvernig væri nú að félags-
samtök matréiðslumanna gæfu
okkur upp sinn taxta semværi
gildandi í þessu tilfelli? Eða
viljið þér kannski gefa mér
upp kaup það og fríðindi er
fyrirrennari minn á Litla-
Hrauni hafði og það væri síðan
haft til hliðsjónar, þegar að upp-
gjöri kemur? Það skyldi þó
aldrei vera að honum hafi
verið sagt upp vegna þess að
hann hafi haft of mikið kaup?
Er yður kunnugt um að kaup-
trygging matsveina á fiskiskipa-
flotanum er um 16.000 ’kr.? Er
yður kunnugt um hversumik-
il vinna.er í því fólgin aðvera
matsveinn á Litla-Hrauni? Þar
er ekki nema einn matsveinti,
yfirmatsveinninn, en hjálpar-
lið allt eru fangar. Það tel ég
ennfremur vera mjög vafasam-
an sparnað. Eins og þér vafa-
Jaust vitið eru allir starfsmenn
vinnuhælisins í fyrsta lagi
gæzlumenn. Þetta leiðir tilþess
að matsveinninn má aldrci
skilja fanga einan eftir í eld-
húsi, því eins og Markús segir
er matsveinn. ábyrgur fyrir
þeim mönitum er hann hefur
sér til aðstoðar í eldhúsi.
■ Þetta leiðir aftur af sér að
vinnutími matsveins verður
langur, mjög langur, og ég
gerði mér grein fyrir því þegar
ég réði mig að Litla-Hrauni í
vor.
Finnst yður trúlegt að ég færi
að vinna undir taxta matsveina
jafnt lærðra sem ólærðra, og
jafnvel undir taxta opinberra
starfsmanna eins og Markús
‘vill halda fram?
Ennfremur vil ég taka fram
að á Litla-Hrauni er gerð sú
krafa til matsveins að hannsé
bakari líka.
Hreinskilnislega sagt finnst
mér það lýsa gáfnaskorti hjá
Markúsi að ætla sér að telja
mönnum trú um að ég hafi
tekið þetta. starf að mér fyrir
17 þús. kr. á mánuði.
Húsnæðismál mín í ráðn-
ingarsamning mínum ætla ég
ekki að eyða orðum frekar að.
en ég er búinn hér.
Þá er komið að vinnuskll-
yrðum þeim, er mér var boðið
uppá i sumar svo og heilbrigð-
ismál í þvi sambandi. Eins
og þér kannski vitið er eldhús-
ið á Litfe-Hrauni í kjallara
hússins. Þar er yfirleitt þungt
og rakt loft- Þar er engin vifta
til að blása hreinu lofti inn
eða soga óloftið út. Þar eru
þrír gluggar opnanlegir, en
vegna grinda sem eru fyrir öll-
um gluggum er ekki hægt að
opna þá nema að vissu marki,
þannig að um það bil 5 cm rifa
verður þar sem hún er breiðust.
Ekki kom til nokkurra málaað
eyða fjármunum i loftræstingu
bó ég óslcaði eftir. — Úr eld-
húsi er innangengt í búr- Þar
er lúga eða litlar dyr til þæg-
inda fyrir matsvein. Nú benti^
ég Markúsi á hve þægilegtværi
að setja þar. nokkurskonar
grindahurð sem væri til loft-
ræstingar og alltaf lokuð þó.
Það þótti honum mesta fjar-
stæða og ekkert nema bruðl á
fjármunum ríkisins. En hitt
var aukaatriði þó nærri væri ó-
líft í eldhúsinu á matmálstím-
um fyrir hita og ólofti, aö ég
ekki tali nú um þegar gamla
kolavélin var í notkun. A
Litla-Hrauni er nefnilega stór
og mikil rafnjaPnseldavél. En
sá stóri galli er á henni að
hellumar eru orðnar slitnar og
biluðu reglulega tvisvar í mán-
uði. Þó mátti ekki kaupa nýj-
ar hellur — heldur gera við
þær gömlu. Ég vil taka það
fram að það er ekki forsjá
Markúsar sem hefur forðað því
að orðið hafi alvarleg slysbæði
á mér óg aðstoðarmönnum
mínum í sumar. Það er svo
undarlegt að þegar þessarheli-
ur bila leiðir út i þeim og af
því gætu hafa hlotizt slys í
hvert skipti sem þær biluöu í
sumar. Hjá því hefði verið hægt
að komast með þvi að kaupa
nýjar .hellur. Hki það hefur
sennilega þótt of dýrt.
Inn af eldhúsinu er kæliklefi.
Hann var í ólagi í allt sumar.
Kannski viljið þér athuga mál-
ið og reyna að sannfæra Mark-
ús um það. Mér hefur enn ekki
tekizt það og af þvf hefur
hlotizt skaði sem skrifast sem
matarúttekt á Litla-Hrauni.
Þegar ég byrjaði vinnu á Litla-
Hrauni f vor fannst mér skrit-
ið að ekki var kaffikanna i
eldhúsinu, heldur var kaffi
lagað í emeleraða skolpfötu.
Þetta kom til af því að kaffi-
kannan var biluð og var é verk-
stæði. Svo fyrir slysni bilaði
hún fljótlega aftur er hún var
komin úr viðgerð,J ofhitnaði og
bráðnaði lóðning. Stakk égupp
á þvi að til að fyrirbyggja
slíkt framvegis yrði settur á
hana svokallaður útsláttarrofi.
En því var neitað, eins, og
öðru er til umbóta hefði getað
orðið í eldhúsinu. Heldur varð
ég að nptast við skolpfötunai í
rúman mánuð meðan viðgerð
fór fram.
Seinnipartinn í júlí bilaði
vaskurinn f eldhúsinu á Litla-
Hrauni, þannig að allt sem út
átti að renna kom út á eldhús-
gólf. Var nú brugðið við eftir
hæfilegan biðtíma og keyptur
nýr vaskur, sem reyndist svo
oí lítill. En vatnslás fékkst ekki
á sama stað svo honum var
bara sleppt. Það var ekki fyrr
en eftir mániuð er ég keypti
sjálfur vatnslás í Reykjavíkað
hægt var að taka vaskinn í not-
kun. Þó varð ég að biðja einn
gæzlumannanna að tengja
vaskinn' f sínum frítíma, þar
sem annir voru svo miklar við
smíði færibands þar á staðnum
og engan mann var hægt að
missa í það verk f nokkra
daga.
Allan þann tima þurfti ég að
láta sækja vatn upp á salemi
það er allir fangar gengu um
oft á dag, þar sem þar eru líka
handlaugar til þvotta. Mánærri
geta hve mikill áhugi rikti
fyrir heilsufarinu hjá forstjóra
hælisins meðan á þessu ástandi
stóð. Allt skolp var borið út á
hlað og uppvask fór fram f
pottum og kimum þeim er ég
hafði yfir að ráða.
Þá er eftir að víkja aðtækja-
skorti. Á Litla-Hrauni er eng,
inn brauðhnífur til eða áleggs-
skurðarvél. Þar voru ekki tíl
kaffikönnur £ sumar, þannig að
hver maður fengi sina könnu,
heldur stóð allur friður og féll
með því hve stundvíslega fang-
ar mættu i mat. Þar var ekki
til nóg af diskum þannig að
allir gætu borðað f einu eða
matskeiðar, þar var til einn
haldarlaus hraðsuðuketill á
aldrinum 10 til 20 ára. Þar var
ekki til sög ef saga þurftikjöt.
Þar var ekki til þitabox þannig
að hver maður hefði sitt, fangar
urðu að drekka kaffi sitt af
stút úr hitabrúsum því ékki
voru til ílát til að drekka úr,
Þannig gæti ég lengi taliðupp
bað sem vantaði, en ekki mátti
kaupa, svo fjárreiðumar eklri
gengju úr skorðum.
Margt á ég enn ósagt, en læt
það bíða. Þar sem það virðist
vera ásetningur dómsmálaráðu-
neytisins að Markús Einars-
son hafi úrslitavald í deilu
okkar sé ég mér ekki annað
fært en vísa algjörlega á
bug ásökunum um að ég
hafi stokkið úr vinnu fyrir-
varalaust og án ástæSu-
Ég hef hér gért gréin fyrir
þéim ástæðum er urðu til þess
að ég lagði niður vinnu og var
Markúsi vel kunnúgt um þær
ráðagerðir. En honum er líka
vel kunnugt um að hann cr
fulltrúi dómsmálaráðuneytistns
á þessum stað og skákar í þvf
skjóli.
Herra ráðuneytisstjóri.
Hverjum sem er er héimílt
að trúa því er hann álítur
rétt og hverjum sem er er
heimilt að efast um það, er
hann álítur rangt. Þér getið
aflað yður sannana fyrir fléslu
af því sem ég hér hef sagt,
með viðtölum við fanga og
gæzlumenn á Litla-Hrauni. Af-
ganginn mun ég sjálfur sanna
ef óskað verður eftir því.
Virðingarfyllst,
Axel Svanbergsson.
Guðjón Styrkársson
hæstáréttarlögmaður
AUSTURSTRÆTl 6.
Sími 18354.
Smurt brauð
Snittur
við Öðinstorg.
Simi 20-4-90.
Viðgerðir
á skinn- og
rúskinnsfatnaði.
Góð þjónusta.
Leðurverkstæði
Úlfars Atlasonar.
Brötugötu 3 B.
Sími 24-6-78.
<S>
BRl DGESTON E
HJÓLBARÐAR
Síaukin sa!a
sannargæðin.
BRIDGESTONE
veitir aukið
öryggi í akstri.
&RI ÐGESTON E
ávallt fyrirliggjandi.
GÓÐ ÞJÓNUSTA
Verzlun og viðgerðir
Gúmmbarðinn h.f.
Brautarholti 8
Sími 17-9-84
SÍMASTÓLL
Fallegur - vandaður
Verð kr. 4.300.00.
Húsgagnaverzlun
AXELS
EYJÓLFSSONAR
Skipholti 7. Sími 10117
TRIUMPH
undirfatnaður
í fjölbreyttu
úrvali.
ELFUR
Laugavegi 38.
Snorrabraut 38.
BRAUÐHUSIÐ
SNACK BAR
Laugavegi 126.
SMURT BRAUÐ
SNITTUR
BRAUÐTERTUR
+
Sími: 24631
SÆNGUR
Endurnýjuro gömlu sæng-
umar. eigum dún- og fið-
urheld ver. æðardúns- og
gæsadúnssængur og kodda
af vmsum stærðum
Dún- og
fiðurhreinsun
Vatnsstig 3. Siml 18740
(örfá skref frá Laugavogi)
KMlÆi