Þjóðviljinn - 01.12.1966, Page 6
g Sfr*A — ÞJOÐVILJTNN — Fimmtudagur X. des«mber 196».
Flugmálahátíðin
er í Lídó í kvöld og hefst með borðhaldi kl. 7,30.
Mjög fjölbreytt skemmtiatriði.
Aðgöngumiðar seldir í Tómstundabúðunum í Aðal-
stræti og Skipholti. (Smókingur eða dökk föt).
VERÐLÆKKUN
670x15 kr. hjólb. 1.070,- slöngm kr. 148,—
820x15 kr. 1.500,- kr 150,—
500x16 kr 625,- kr 115,—
650x20 kr. 1.900,- kr 241,-
750x20 kr. 3.047,— kr. 266.—
EINKAUMBC
TRADIIMG
SIMI 17373
Utborgun bóta
Almannatrygginganna í Gullbringru- og
Kjósarsýslu fer fram sem hér segir:
í Mosfellshreppi, laugardaginn 3. desember
kl. 9,30 — 12. í Kjalarneshreppi, mánudag-
inn 5. des. kl. 2—4. í Seltjarnarneshreppi,
þriðjudaginn 6. desember kl. 1—5. í Njarð-
víkurhreppi, miðvikudaginn 7. desember
kl. 1—5. í Garðahreppi, miðvikudaginn 7.
des. kl. 2—4. í Grindavíkurhreppi, fimmtu-
daginn 8. des. kl. 10—12. í Miðneshreppi
fimmtudaginn 8. des. kl. 2—4.
Ógreidd þinggjöld óskast þá greidd.
Sýslumaðurinn í Gullbringu- og
Kjósarsýslu.
Aðalíundur
Styrktarfélags iamaðra og fatlaðra verður haldinn
að Sjafnargötu 14 sunnudaginn 4. des. kl. 2 e.h.
Stjómin
Utnesjavakan
Hljómleikarnir hefjast kl. 9.
Félagsheimilið STAPI
• Vega-
stafrófið
• Nýlega gáfu Umferðarnefnd
Rvíkur og lögreglan í Rvík
út „Vegastafrófið“. Annað
kverið er 64 síður að stærð og
er ætlað 7—9 ára gömlum
bömum. Með hverri litmynd í
kverinu fylgir önnur svart-
hvít sem börnin geta litað.
Hitt kverið er 32 siður og er
það fyrir börn á aldrinum 10
—12 ára.
Vegastarfrófinu er ætlað að
vera hjálpartæki fyrir skóla
og heimili við umferðarfræðslu
og má búast við að það verði
til þess að auka áhuga barna
á að kynna sér umferðarregl-
ur.
í bókinni er ekki nein tæm-
andi upptalning á umferðar-
reglum en hún er vel til þess
fallin að festa í huga barnsins
í formi mynda og ljóðlína
nokkur heilræða, sem nauð-
synlegt er að þau muni vel.
Um útgáfuna sáu Ásmundur
Matthíasson og Pétur Svein-
bjarnarson, vísurnar orti Þor-
steinn Valdimarsson og teikn-
ingar gerði Haukur Halldórs-
son.
úfvarpið
10-30 Messa í kapellu Háskól-
ans. Halldór Gunnarsson
stud. theol- prédikair.
13.15 Eydis Eyþórsdóttir stj-
óskalögum sjómanna-
14.00 Fullveldissamkoma í há-
tíðarsal Háskóla Islands. a)
Sigurður Bjömsson stud.
med. setur hátíöima- b) Anna
Áslaug Ragnarsdóttir stud.
philol- leikur á píanó. c)
Séra Þorgrímur Sigurðsson
prófastur á Staðastað flytur
ræðu: Andlegt sjálfstæði.
d) Böðvar Guðmundssoh
stud. mag- les frumort ljóð.
e) Stúden.takórinn syngur.
15.30 Islenzk kórlög og hljóm-
sveitarverk. Hljómsveitar-
verkin leikur Sinfóníuhljóm-
sveit ísl. undir stjóm J. Ro-
hans, Kiellands og Wodicz—
kos: a) Landsýn eftir Jón
Leifs. b) Tilbrigði um rímna-
lag eftir Árna B.jörnsson- c)
Fantasía fyrir strengjasveit
eftir Hallgrím Helgason.
16.40 Tónlistartími barnanna.
Jón G. Þórarinsson stjómar
tímanum.
17 05 Ingvar ÁsmundssOn stj.
skákþætti og talar við skák-
sveitarmenn frá Olympíu-
mótinu í Havana.
19-30 Daglegt mál- Ami Böðv-
arsson flytur þáttinn.
19 35 Efst á baugi.
20.05 Dagskrá Stúdentafélags
Reykjavíkur. a) Formaður
félagsins, Birgir Isleifur
Gunnarsson, lögfr,, flytur á-
varp. b) Þór Vilhjálmssom
borgardómari flytur ræðu:
Lýðræði á íslandi- c) Ur
veizlufagnaði stúdentafélags-
ins kvöldið áður: Barði Frið-
riksson lögfr. talar. stúdenta-
kórinn syngur og Ómar
Ragnarsson flytur gaman-
mál-
21-30 Tríó fyrir píanó. fiðlu og
selló eftir Sveinbiörn Svein-
björnsson. Ól. Vignir Al-
bertsson, Þorv. Steingríms-
son og Pétur Þorvaldsson
leika í útvarpssal.
21.50 Þjóðlíf. Óiafur Ragnar
Grímsson stjómar bættinum,
sem fjallar um Alþingi.
22,35 Danslög.
24.00 Dagskráriok.
• Leiðrétting
í Þjóðviljanum í gær var
birt minningarljóð um Elísabet
Stefánsdóttur Hjaltalín sem
lézt 11. október 1966. Átti
myndin hér að ofan að fylgja
með ljóðinu og eru þeir sem
hlut eiga að máli beðnir af-
sökunar á þessum mistökum.
Laust starf
Brunavarnaeftirlit ríkisins óskar eftir að ráða eftir-
litsmann með brunavörnum.
Áskilið er að umsækjendur séu tæknifrseðingar eða
hafi próf frá Vélskólanum í Reykjavfk.
Umsóknir skal senda til Bnmavarnaeftirlits ríkis-
ins, pósthólf 1128, Reykjavík, fyrir 15. des. n.k.
Forstöðumaður.
Freistið gæfunnar — Kaupið miða og
vinningsvon í Happdrætti Þjóð /iljans
Ný Ijóðabók
eftir Hannes Sigfásson
Jarteikn
Ib. kr. 270,00, ób. 220,00 + sölusk.
HEIMSKR
Samkvæmt sérstöku samkomulagi
við hin Norðurlöndin eru heimiluð hrað- og for-
gangshraðsímtöl milli Norðurlandanna svo og til
Grænlands, frá og með 1. desember 1966.
Gjald fyrir hraðsímtöl er tvöfalt og fyrir forgangs-
hraðsímtöl þrefalt venjulegt gjald.
Reykjavík 30. nóvember 1966
Póst- og símamálastjórnin.
BRUNA VARÐA-
STÖÐUR
Ákveðið hefur verið að fjölga brunavörðum í
Slökkviliði Reykjavíkur frá 1. janúar 1967 að telja.
Samkvæmt 10. gr. Brunamálasamþykktar fyrir
Reykjavík má ekki skipa í stöður þessar aðra en
þá, sem eru á aldrinum 22—29 ára. Þeir skulu hafa
óflekkað mannorð, vera andlega og líkamlega heil-
brigðir og hafa fulla líkams- og starfsorku.
Laun samkvæmt kjarasamningi starfsmanna
Reykjavíkurborgar.
Eiginhandar umsóknir um stöður þessar ásamt upp-
lýsingum um náms- og starfsferil sendist undirrit-
uðum fyrir 12. desember n.k.
29. nóvember 1966
Slökkviliðsstjórinn í Reykjavík.
Staða Ijósmóðnr
í Höfða- og Nesjaumdæmi í Húnavatnssýslu er
laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er tíl 15. des.
og skulu umsóknir sendast sýslumanni Húnavatns-
sýslu, er gefur nánari upplýsingar. Staðan veitist
frá 1. janúar.
Hér um bil allar konur í umdæminu fæða börnin
í héraðsspítalanum á Blönduósi og er þar Vel búín
fæðingarstofa.
Skrifstofu Húnavatnssýslu, 26/11 1966
Jón ísberg.
Jólaalmanök verb kr. 12,00
BÓKABÚÐ MALS OG MENNINGAR. Lauqavpwí 18.