Þjóðviljinn - 13.12.1966, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 13.12.1966, Blaðsíða 1
9 Þriðjudagur 13. desember 1966 — 31. árgangur — 285. tölublað. Dregið verður / HÞ eftír ellefu dagu Á Þorláksmessukvöld veröur dregiö 1 Happdrætti Þjóðviljans 1966 um tvær Moskvitschbifreiffir og eru því aðeins 11 söludagar eftir. Kaupið miða í happdrætt- inu og styðjið með því útgáfu Þjóðviljans. í dag verður tekið á móti skilum í happ- drættinu á afgreiðslu Þjóðviljans, Skóia- vorðustíg 19, og i Tjarnargötu 20 kl. 10— 19. Munið að áriðandi er að gera sem allra fyrst skil fyrir seldum miðum. \ Miðinn í happdrættinu kostar aðeins 100 krónur og fyrir hann getið þið fengið fólks- bifreið, ef heppnin er með. Reynt á hvort rikisstjórnirmi er alvara meS verÓstöÓvunaráróSrinum; , 7----------------—-------------------—----~ir Vilja stjómarflokkamir samþykkja lög um að verðstöðvunin skuli framkvæmd? ■ Við 2. umræðu stjórnarfrumvarpsins um heimild til verðstöðvunar sem hófst í neðri deild Alþingis í gær, fæst úr því skorið hvort stiórnarflokkunum er alvara að vilja samþykkja verðstöðvun. Við þá umræðu flutti fulltrúi Alþýðubandalagsins í fjár- laganefnd, Lúðvík Jósepsson, mikilvægar breytingartillög- ur við frumvarpið, og lýsir flutningsmaður aðalatriðum þeirra þannig í nefndkráliti: Verkalýðshreffíng- ín mun ekki styðja sýmjarverðstöð vun □ Sl. Iaugardag sendi miöstjórn Álþýðusambands íslands rík- isstjórninni bréf ásamt álykt- unum 30. þings ASÍ um kjaramáv. í bréfinu leggur miðstjórnin áherzlu á aðalat- riði kjaramálaályktunarinnar, þ.e. styttingu vinnutímans án skerðingar tekna og aukningu kaupmáttar launa fyrir dag- vinnu þannig að í komandi samningum verði raungildi heildartekna tryggt þótt yfir- vinnutekjur kynnu að skerð- ast. □ 1 annan stað bendir mið- stjórnin á að I ályktuninni íeiist skýlaus yfirlýsing um stuðning verklýðssamtakanna við raunhæfar aðgerðir til að stöðva og draga úr verð- bólgunni en ckki við sýndar- tilburði og yfirbreiðsluaðferð- ir er miðist vift það eitt að halda vísitölunni í skefjum á yfirborðinu: Verði sú raun- in á um framkvæmd verð- stöðvunarstefnu rikisstjórn- arinnar lýsi verklýðshreyfing- in ábyrgðinni á hendur ríkis- stjórninni einni saman. □ Bréf miðstjórnar ASl til rík- isstjórnarinnar er birt í heild á 12.' síðu. Fundur í kvöld í Alþýðu- bandalaginu / Reykjavík Alþýðubandalagið i Kykjavík heldur félagsfund í kvöld kl. 20.30 i Tjarnarbúð niðri. Á fundinum flytur Björn Jónsson alþingismaður framsögu urri stöðu verklýðshreyfingarinnar gagnvart verðstöðvunarstefnunni. Þá skýrir Svavar Gestsson frá niðurstöðum landsfundar Al- þýðubandalagsins og kosin verður uppstillingarnefnd vegna kjörs í stjórn og fulltrúaráð félagsins. Félagsgjöld verða innheimt við innganginn. J í stað þess, að 1 frv. er lagt til, að ríkisstjórnin fái heimild til að ákveða verðstöðvun, þá legg ég til, að skýrt verði ákveðið, að ríkisstjórnin skuli ákveða verðstöðvun. 2 Ég legg til að ný verðlagsnefnd verði kosin í stað þeirrar, sem starfað hefur og unnið hefur verk sín þannig, að hún hefur leyft hækkun á- lagningar og í ýmsum greinum ótakmarkaða álagningu. k . ^ Ég legg til, að hinni nýju verðlagsnefnd verði beinlínis falið að ákveða hámarksvérð, eða há- mark álagningar á vörum og þjónustu. /| Þá vil ég, að skýr ákvæði séu í frumvarpinu um, að verðstöðvun nái til húsaleigu, og að jafn- framt verði komið í veg fyrir að þau ákvæði verði skágengin með uppsögn á húsnæði. Ég legg til, að stjórn Seðlabankans verði falið að ákveða lækkun vaxta, um leið og stöðvun verðlags hefur verið fyrirskipuð. ^ Ég vil ekki tímabinda þær verðstöðvunarfram- kvæmdir, sem fyrirskipaðar eru, og legg því til, að það ákvæði í frumvarpinu, sem segir, að verðstöðvunin skuli aðeins gilda til 31. október á næsta ári, verði fellt niður. tilkominn með nokkru verðfaili sjávarafurða síðari hluta þessa árs; en hann lagði áherzlu á erfiðleika bátaútvegs, togara- útgerðar og fiskvinnsluiðnaðar, sem ekki yrði leystur með þeim ráðstöfunum sém ríkisstjórnin segist fyrirhuga í verðlagsmál- um. Afstöðu Alþýðubandalagsins til frumvarpsins kvað Lúðvík myndi fara eftir því hvernig færi um breytingartillögurnar, sem miða að því að tryggja raunverulega verðstöðvunar- stefnu í stað sýndarmennsku stjórnarflokkanna. í nefndaráliti sínu segir Lúð- vík m.a.: Þegar málið kom til '2. umr. í gær hafði fjárveitinganefnd þríklofnað. lögðu Skúli Guð- mundsson og Einar Ágústsson til að frumvarpið yrði sam- þykkt óbreytt; stjómarþingmenn vildu samþykkja það með þeirri breytingu, að ríkisstjórnin skyldi þurfa að samþykkja allar leyfðar verðhækkanir, en 2. minnihluti (Lúðvík Jósepsson) lagði fram ýtarlegar breytingar- tillögur sem fyrr segir. Davíð Ólafsson hafði fram- sögu fyrir meirihlutanum og lagði nær eingöngu áherzlu á verðfall sjávarafurða sem til- efni frumvarpsins. Skúli Guð- mundsson deildi fast á ríkis- stjórnina fyrir framkvæmd verðlagsmála. Lúðvík Jósepsson færði skýr rök fyrir því að vandi efnahagsmálanna er ekki Frá drættinum í Happdrætti. Háskóla íslands á laugardaginn. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.). Happdrætti Háskóla íslands: Miljón króna vinningarnir 2 ti/ Húsavíkur og Eyrarbakka Frumvarp ríkisstjórnarinnar er aðeins heimildarfrumvarp. Það er eins og hún hafi enn Frafhald á 3. síðu. Tiltölulega fleiri flogaveikir með öku- skirteinihér á landi en annars staðar Annar antímælandi við doKt orsvörnina í hátíðasal háskól- ans á laugardaginn, Tómas Helgason prófessor, kvað það vekja sérstaka athygli að rannsóknir dr. Gv.nnars Gui*,- mundssonar læknis, þær sem doktorsritgerð hans um floga- veiki ? tslandi væri reist á sýndu að tiltölulega miki'., fleiri flogaveikisjúklingar hér á landi hefðu öðlazt ökuskír- teini en i öðrum löndum, þar sem sambærilegar rannsókn- ir hafa íarið fram, t.d. i Bret- landi og Bandaríkjunum. Samkvæmt rannsóknum dr. Gunnars munu um 30%floga- veikisjúklinganna 16 ára og eldri hafa ökuleyfi; ef karl- mennimir eru einir taidir er hlutfallstalan enn hærri eða 60%. Taldi Tómas þessar töl- ur íhugunarveröar; sjúkdómur- inn væri að vísu afar mis- munandi í einstökum tilfell- um, en stór hópur sjúkling- anna gæti þó fengið slæm köst, misst mcðvitund, fyrir- varalaust eða lítið. Þess skal- getið að lögum samkvæmt (27. grein um- ferðarlaga nr. 26/1958) er það eitt af skilyrðum þess að maður geti öðlast ökuskír- teini að hann „sé nægjanlega hraustur andlega og líkam- lega“. — Frá doktorsvörninni ei nánar skýrt á 4. sfðu blaðs- ins í dag. dr. Gunnar Guðmundsson í ræðustól við doktorsvörniha Laugardagimi 10. desembtr var dregið í 12. fl. Happdrættis Háskóla Islands. Dregnir voni 6.500 vinningar að fjárhæð 24.020.000 krónur. Hæsti vinningurinn, tveir milj. kr. vinningar, komu á heilmiða nr. 47.850. Annar heilmiðinn var seldur í umboðinu á Eyr- arbakka en hinn í umboðinu á Húsavík. Það má geta þess, að eigandi miðans á Húsavík er ungur maður, sem hefur í hyggju að byrja búskap fyrir norðan. t 100.000 kr. vinningurinn kom a hálfmiða númer 57.760. Þrír hálfmiðarnir vonx seldir í umboði Guðrúnar Ólafsdóttur, Bóka- vex-zlun Sigfúsar Eymundssonar í Reykjavík. En fjórði hálfmið- inn var seldur í Hafnartirði. Auk þessa voru dregnir út 968 vinningar á 10.000 kr., 1.044 vinningar á 5.000 kr. og 4.480 vinningar á 1.500 kr. Vinninga- skráin er komin út og fæst hjá öllum umboðunum. Útbcwrg- un vinninga hefst á mánudag- inn kemur, þann 19. desember. Póstmenn samþykkja vítur á tvo œðstu vfirboðara slna! * * 1*1 Enn situr allt við sama í póstmannadeilunni; póstmenn vinna enga eftirvinnu og hrúgast jólapósturinn því upp óafgreiddur. í gær var byrjað að flytja póst til geymslu í lögreglustöðvar- byggingunni nýju við Hverfisgötu, þar eð allar geymslur iióst- stofanna í miðbænum voru þá orðnar yfirfullar. *j í gær benti ekkert til þess að yfirvöld hyggðust ganga til samninga við póstmenngþau hafa þvért á móti reynt að bæta upp eftirvinnustöðvun starfsfólks póstsins með því að ráða til starfa fjölda unglinga, skólanema ninkum úr Verzlunar- skólanum til bráðabirgða. ★ 1 gærkvöld var haldinn fundur í Póstmannafélagi lslands og t ' var hann mjög fjölsóttur og rikti þar mikill einhugur. Sam- þykkti fundurinn eftirfarandi vítur á póst- og símamálastjóra og póstmeistara: ★ ,,Fundur í Póstmannafélagi íslands haldinn 12. desember 1966 vítir harðlega póst- og símamálastjóra og póstmeistara fyrir ábyrgða-rleysi það sem fram kemur í siðustu ráðstöfunum þeirra með því að ráða til starfa fólk sem enga þekkingu hefur á póststörfum sem því er ætlað að leysa af höndum í þeim einum tilgangi að brjóta niður baráttuþrek póstmanna fyrir sann- gjömum kröfum þeirra um leiftréttinsm tfl jafn« við fjölda ann- arra sambærilegra starfshé-'-' hr» ríktnu'*.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.