Þjóðviljinn - 20.01.1967, Blaðsíða 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVIL.TINN — Föstudagur 2f„ Janúar 1967.
Útgeíandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson. \
Framkvstj-: Eiður Bergmann.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja Skólavörðust- 19.
Sími 17500 (5 línur) — Áskriftarverð kr. 105,00 á mánuði. —
Lausasöluverð kr. 7.00-
Bandarískt morðæði
jyjorgunblaðið hefur varið miklu rúmi og stórum
fyrirsögnum í lofgjörð um stjórnarfar og menn-
ingu Bandaríkjanna, allt frá því að þau áfanga-
skipti urðu í lífi blaðsins að ekki þótti lengur
treystandi á danskt auðvald eða brezkt auðvald
og þýzki nazisminn lá gersigraður í styrjaldarlok.
Linnulaust hefur Morgunblaðið boðað íslending-
um þá trú að í Bandaríkjunum ætti vestræn menn-
ing öflugasta vígið, stjórnendur hins volduga vest-
ræna herveldis væru gegnsýrðir anda fegurstu
hugsjóna vestrænnar menningar um mannhelgi
og manngöfgi. Þar ættu smáþjóðir ósíngjarnan
verndara, þar væri forystuþjóð lýðræðis og frels-
is. Til eflingar bandaríska trúboðinu hefur afrek-
um Bandaríkjamanna í stríði og friði verið hald-
ið hátt á loft.
Jjetta trúboðsblað Bandaríkjanna birtir tvídálka
frétt á 2. síðu blaðsins í gær, með fyrirsögn sem
aldrei þessu vant gerir minna úr afrekum hinna
bandarísku verndara en efni standa til, rétt eins
og fyrirmyndir Morgunblaðsins hefðu ofgert eitt-
hvað að dómi blaðsins. Fyrirsögnin er „Bandarík-
in varpa eldsprengjum á Víetnam“, og svo er birt
fréttaskeyti, sem rétt þykir að vitna í orðrétt úr
Morgunblaðinu. Þar segir: „Margar flugsveitir
bandarískra sprengjuþota af gerðinni B-52 vörp-
uðu rúmum 30 lestum af eldsprengjum á 50 fer-
kílómetra svæði innan Járnþríhyrningsins og ger-
eyddu þar öllu lífi í dag. Sprungu sprengjurnar
í 2500 metra hæð og böðuðu allt svæðið í eldslog-
um- Steig reykjarmökkurinn 5 km í loft upp og
sást hann úr 160 km fjarlægð. Er þetta mesta eld-
sprengjuárás sem gerð hefur verið í styrjöldinni
en sprengjurnar voru af sömu gerð og þær sem
brezkar og bandarískar flugvélar vörpuðu á þýzku
borgina Dresden í heimsstyrjöldinni síðari og lögðu
hana í rústir. Könnunarflugvélar sem flugu yfir
svæðið eftir árásina sáu ekkert lífsmark, en mik-
ill eldur geisaði í skóginum og stóðu 60 m há tré
í björtu báli. Af hálfu bandarískra hernaðaryfir-
valda var sagt að ef nauðsyn krefði yrði önnur
slík árás gerð á svæðið“.
EkH er líklegt að þessi hryllilega frétt um tortím-
ingu alls lífs á stóru svæði muni bæta málstað
Bandaríkjastjórnar í Víetnamstríðinu eða draga
úr hinni almennu fordæmingu sem sá málstaður
mætir nú hvarvetna um heim. Það er réttur skiln-
ingur hjá ritstjórn Morgunblaðsins að þessi frétt
sé ekki líkleg til að efla Bandaríkjatrúboð þess og
sé því ráðlegast að birta hana með lítilli litlausri
fyrirsögn. Ekki væri óeðlilegt að Asíuþjóðir spyrðu
— og lesendur Morgunblaðsins — hvort morðæði
sem tortímir öllu lifandi í eldslogum á stóru land-
svæði sé túlkun Bandaríkjastjórnar og bandaríska
hersins á vestrænum hugsjónum um mannhelgi
og manngöfgi. Og hvort þetta sé meint með há-
stemmdum ræðum um vernd smárra þjóða. — s.
Stefnir ríkisstjórnin nú ai því að
leggja íslenzkan sjávarútveg í rúst?
Nýlokið er íramhaldsaðal- um okkar hagsmuni, hefur snú- Við viljum ekki alþingi.
Nýlokið er framhaldsaðal-
fundi L.l.Ú. Fundur sá markaði
spor í sögu þessara samtaka.
Þar kom það skýrt í Ijós, að
allt tal og skrif stjómarvald-
anna um bættan starfsgrundvöll
fyrir bolfiskveiðar er meining-
arlaust þvaður.
Það er staðreynd, að útgerð
á bát, sem ekki getur stundað
síldveiðar, er rekin með veru-
legu tapi. I tilviki, þar sem
skipstjórinn er sjálfur eigandi
og sérstaklega heppinn, hefur
þetta getaö gengið með því að
hann vinni tveggja manna verJr,
þ.e.a.s. fái ekkert fyrir útrétt-
ingar sínar fyrir bátinn í landi,
sem er fullkomið meðalmanns-
verk, eins og ástandið'er nú. En
C1eru þessir menn orðnir
tnir um fimmtugt.
í öðru tilviki hafa fisk-
vinnslustöðvamar getað tekið á
sig verulegt tap af útgerð báts,
en nú er ekki lengur um það
að ræð.a.
L.Í.Ú. stóð nokkuð vel í stöðu
sinni, begar vinstri stjórnin
Kristján Gunnarsson.
var við völd, en síðan núver-ð,
andi ríkisstjórn komst til valda
hefur stjóm L.l.Ú. í æ ríkara
mæli sofið á verðinum.
Ég er ekki lögfróður maður,
en ég býst við að meðferð rík-
isstjórnarinnar á okkur báta-
útvegsmönnum sé brot á al-
mennum mannréttindum.
Kunnur athafnamaður í út-
gerð sagði í blaðaviðtali í haust,
að króna, sem lögð væri í út-
gerð, yrði að tíeyringi, en tí-
eyringur, sem lagður væri í-
íbúðabyggingar t.d., yrði að
krónu.
Er ekki þarna ráðizt á lög-
verndaðan eignarétt manna og
þegnum þjóðfélagsins mismun-
að stórlega.
Bankastjóri sagði við mig um
daginn í sambandi við þessi
mál, að peningarnir lytu sömu
lögmálum og vatnið. Það er
rétt, en mennimir hafa sem
Eftir
Kristján
Gunnarsson
skipstjorc
betur fer oft beizlað vatns-
orkuna, og beint vatninu í
heppilegan farveg. Ríkisvaldið
á og að gera það sama, beina
peningaflóðinu í þann farveg.
sem þjóðinni er heppilegastur.
En því miður hefur raunin
orðið sú, að stjórnin hefur horft
á það aðgerðarlaus, að peninga-^
ílóðið. sem sjávarútvegurinn
hefur framleitt, er látið renna
hömlulaust í gegnum hendur
braskaranna, en undirstöðuat-
vinnuvegimir bókstaflega látn-
ir svelta af fjárskorti.
Þetta er verra en engin stjóm,
og hafi verið forsenda fyrir
gengislækkun þegar þessi rik-
isstjórn tók við völdum, þá er
hún ekki síður nú.
Útgerðarmaður, sem gerir út
bát, og sjómaðurinn, sem vinn-
ur á bátnum og við hann í
landi, skaffa þjóðinni mestali-
an gjaideyri sem þarf til allra
vörukaupa.
Bankarnir afhenda svo öðrum
aðilum, heildsölum og bröskur-
um, þennan gjaldeyri, sem nú
er notaður svo hömlulaust og
vitlaust, að engu tali tekur.
Og nú er svo komið, að þeir,
sem útveg stunda eru að verða
öreigar einn á eftir öðrum. Á
sama tíma raka milliliðirnir að
sér stórgróða beinlínis á okkar
kostnað.
L.I.Ú., sem á að vera vörður
B/að-
dreifíng
Blaðburðarböm óskast I
eftirtalin hverfi:
Kvisthaga
Vesturgötu
Laufásveg
Laugaveg
Hverfisgötu
Skipholt.
HEILSUVERNDARSTÖD
KÓPA VOGS
er opin sem hér segir:
Ungbamavernd:
Mánudaga kl. 9—11 fyrir börn úr Vesturbæ.
Þriðjudaga kl. 9—11 fyrir böm úr Austurbæ.
Föstudaga kl. 14—15 fyrir böm úr báðum bæjar-
hlutum 1 árs og eldri.
Mæðravernd:
Þriðjudaga kl. 16-
-17.
Heimilishjúkrun og heimilishjálp:
Viðtalstími alla virka daga kl. 12—13.
Héraðslæknir:
Viðtalstími kl. 14—16 virka daga nema laugardaga
kl. 11—12. — Sími 41188.
Stjórn Heilsuverndarstöðvar Kópavogs.
um okkar hagsmuni, hefur snú-
izf'í æ ríkari mæli á sveif með
núverandi ríkisstjórn og gætir
hennar hagsmuna.
En það mega þeir vísu menn
vita, að þegar uppsprettulind
þeirrar velmegunar, sem alger-
lega hefur farið framhjá okk-
ur bátaútvegsmönnum, er þorr-
in, þá fer að kreppa að hjá af-
ætunum, en hætta er á því, að
gróðinn verði þá kominn á
þann stað þar sem ekki næst til
hans, þ.e.a.s. út úr landinu.
Þá er næsta úrræðið sam-
kvæmt reglu þessara hákarla,
að selja landsréttindi og þar
með sjálfstæði landsins í hend-
ur útlendingum. Það tók okkur
700 ár að fá sjálfstæðið aftur,
við skulum minnast þess.
Við viljum ekki alþingis-
menn eins og þá, sem eru í
stjórn L.I.Ú., við viljum ráða
málum okkar sjálfir. Ég heiti
hér með á alla sanna Islend-
inga, að standa með okkur í
baráttu okkar fyrir því, að hægt
sé að reka útgerð á heiðarlegan
hátt á Islandi og viðurkenna
í verki, að sá undirstöðuat-
vinnuvegur sé lífsnauðsynlegur
sjálfstæði landsins. Það er
dýrt að vera íslendingur, en er
ekki sjálfstæði einhvers virði?
Fyrst leggjum við niður tog-
arana og svo bátana og ætli
síldarflotinn fylgi ekki fljótlega
á eftir, og í staðinn fáum við
svo ál og kísilgúr; það er ef
til vill allt í lagi?
17/1 1967.
THkynning um útsvör
i Hafnarfírði
Útsvarsgjaldendum ber að greiða upp í útsvar
1967, fjárhæð 'jafnháa helmingi þess útsvars, sem
honum bar að greiða árið ’66 með fimm jöfnum
greiðslum, er falla í gjalddaga: 1. febrúar, 1.
marz, 1. apríl, 1. maí og 1. júní. Er skorað á alla
útsvarsgjaldendur að inna fyrirframgreiðslur sín-
ar af hendi á réttum gjalddögum, samkvæmt fram-
ansögðu. Atvinnurekendum hvar sem er á landinu
ber að senda bæjarskrifstofunum nöfn útsvars-
gjaldenda í Hafnarfirði, sem þeir hafa í þjón-
ustu sinni.
Hafnarfirði, 14. jan. 1967.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði.
Nfíðstöðvarketill óskast
Olíukyntur miðstöðvarketill ca. 15 ferm.
óskast til kaups. Sími 41576.
@níineiital
SNJÓHJÓLBARÐAR
MEÐ NÖGLUM
sem settir eru í, meS okkar íull-
komnu sjálfvirku neglingarvél.
veita fyllsta öryggi í snjó ög
hálku.
Nú er allra veðra von. — Bíðið
ekki eftir óhöppum, en setjið
C0NTINENTAL hjólbarðá, með
eða án nágla, undir bílinn nú
þegar.
Vinnustofa vor er opin alla daga
frá kl. 7,30 til kl. 22.
Kappkostum að veita góða þjón-
ustu með fullkomnustu vélum
sem völ er á.
GÚMMÍVINNUSTOFAN h.f.
Skipholti 35 — Sími 3-10-55.
4