Þjóðviljinn - 22.01.1967, Síða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 22. janúar 1-962.
,Það hlýtur enn að vera hœgt'
IDanmörku hafa verið stofn-
uð samtök til stuðnings
þeirri dómsrannsókn sem að
frumkvæði Bertrands Russells
mun fara fram á að stríðsglæp-
um sem framdir hafa verið i
Vietnam. Samtök þessi munu
aðstoða við hina umfangsmiklu
rannsókn og til greina kemur
einnig að þau skipi fulltrúa í
þann dómstól sem nota mun öll
málgögnin og kveða upp úr-
skurð. Vitsð er að Russell hef-
ur óskað þess að í dómstóln-
um eigi sæti maður frá Norð-
urlöndum.
Margir kunnir danskir
menntamenn og forystumenn á
ýmsum sviðum standa að þess-
um samtökum, en frumkvæðið
að stofnun þeirra áttu þeir Ole
Wivel skáld- Ehbe Reich rit-
stjóri og Erik Vagn Jensen út-
gáfustjóri- Þeir höfðu áður rætt
og haft bréfaskipti við þrjá
frumkvöðla réttarhaldanna, —
pólsk-brezka sagnfræðinginn
Isaac Deutscher, júgóslavneska
rithöfundinn Vladimir Dedijer
og hinn bandsríska ritara Ru.ss-
ells, Ralph Schoenmann. Þær
viðræður leiddu í ljós að Danir
gátu unnið mikilvægt starf fyr-
ir dómstólinn, og er þannig í
Wivel
ráði að þeir annist frágang á
öllum kvikmyndum og ljós-
myndum sem lagðar verða fram
sem gögn í málinu.
-e
Guðjón Styrknrsson
hæstaréttarlögmaðui
AUSTURS l'RÆTi b
Simi 18354
B I L A -
L Ö K K
Grunnur
Fyllir
Sparsl
Þynnir
Bón.
EINKAUMBOÐ:
ASGEIR OLAFSSON heildv.
Vonarstræti 12. Sími 11075.
Sængurfatnaður
— Hvítur og mislitur —
ÆÐARDUNSSÆNGUR
GÆSADÚNSSÆNGUR
DRALONSÆN GUB
★
Annar megintilgangur hins
danska Russells-ráðs, eins og
það er nefnt, er að gefa dönsk-
um almenningi kost á að fylgj-
ast með öllum störfum dóms-
ins.
Frumkvöðlarnir þrír leituðu
til um 50 danskra framá-
manna á ýmsum sviðum um
stuðning við starf ráðsins og
hatfa langflestir orðið við þeim
tilmælum. Tveir ráðamanna
hafa í ,,Informati'on“ gert grein
fyrir því hvers vegna þeir hafa
tekið sæti í ráðinu- Þeir Ole
Wivel og prófessor K- E. Lög-
strup. Báðir eru þeir þjóðkunn-
ir menn í landi sínu. Ole Wivel
er eitt helzta ljóðskáld Dana
og hefur haft margvísleg af-
skipti af menningarmálum,
stofnaði sitt eigið forlag upp úr
stríðinu, var ritstjóri tímarits-
ins „Heretica“ ásamt Martin
A. Hansen, var um skeið for-
stjóri Gyldendals, en er nú lýð-
háskólastjóri. Prófessor Lög-
strup er einn kunnasti guð-
fræðingur Dana og það er ekki
sízt fyrir hans störf að guð-
fræðideild háskólans í Árósum
þykir öðrum fremri-
Ole Wivel segir í sinni grein-
argerð að þeir sem styðji rétt-
Lögstrup
arhöldin út af stríðinu í Viet-
nam finni að á þeim hvíli á-
byrgð. þeir geti ekki þegjandi
og hljóðalaust sætt sig við
framferði Bandaríkjamanna, við
„þetta ruddalega og vonlausa
stríð“. Þeir viti mætavel að því
séu takmörk sett hve miklu
þeir geti fengið á'orkað- ,,En
þeir vita“, heldur hann áfram,
,,að hið innra með þúsundum
manna ólgar og sýður og þau
tilfinningaviðbrögð geta þeir
stutt rökum sem eru málefna-
leg hve hræðileg sem þau eru.
Þeir geta aukið viðbjóð manna
á þessu stríði og l&'gt með hóf-
samri röksemdarfær.slu höfuð-
sökina á gangi þessa stríðs og
voðaverkum á herðar ábyrgra
leiðtoga Bandaríkjanna.
Ég tel það hlutverk mitt að
gera fyllilega ljóst hvers eðlis
hernaður Bandaríkjanna í
Vietnam er. Stríðið brýtur í
bága við stjórnarskrá Banda-
ríkjanna, gengur í berhögg við
viðurkennd mannréttindi og
alþjóðarétt, við alþjóðasáttmála
og síðast en ekki sízt við bar-
áttu fátækrar þjóðar fyrir frelsi
sínu og sjálfstæði- Þessari þjóð
verðum við að liðsinna, enda
þótt hagsmunaréttur hennar og
markmið séu önnur en okkar
bg þótt hún eigi í svipinn í
miskunnarlausum átökum við
einn bandamanna okkar.
Ég er sannfærður um að
flestir þeir sem kynntust þeim
Afmæliskveðja
til Verkamannafé-
lagsins Hlífar
Auðgaðir þú okkar líf
anda samtakanua,
varst með sanni sverð og hlíf
sigurgöngumanna.
Jón Rafnsson.
Þessa mynd birti >>Information“ skýringarlaust með grein prófessors Lögstrups.
gögnum, flestum af bandarísk-
urp uppruna, sem leiða líkur að
eða sanna að hermenn Banda-
ríkjanna í Vietnam hafi framiö
stríðsglæpi, myndu fordæma
hernað þeirra í Vietnam. Mis-
þyrmingar og hryðjuverk eru
staðreyndir sem enginn getur
sætt sig við, sem myndu — ef
við létum okkur þær lynda —
afhjúpa mannúðarhugsjónir
okkar sem einbera lygi og
hræsni.
Þess vegna vil ég vinna með
öðrum að því að þessi gögn séu
lögð fram. Þau veikja traust
okkar til þeirra verðmæta sem
við teljum okkur trúa á, og
ekkert getur að minni sýn end-
urvakið það traust nema vægð-
arlaus sannleikurínn sem við
sjálf höfum gr&fizt fyrir um“.
Og lokaorð Ole Wivels eru
þessi:
,,Hvern dag er körlum, kon-
um og börnum tortímt á hrylli-
legasta hátt í Vietnamstríðinu.
Við skulum reyna að binda
endi á það með því m.a. aS
fletta ofan af framferði hins
vígalega, en vanmáttuga valda-
þursa- Það hlýtur enn að vera
hægt“. Æ
Prófessor Lögstrup svarar í
sinni grein ýmsum mótbárum
sem menn hafa haft uppi gegn
hinum fyrirhuguðu réttarhöld-
um og aðild hans og félaga að
þeim. Því hafi verið haldið
fram að þau séu aðeins sýnd-
armennska og áróðursbragð,
þar sem dómstóllinn eigi þess
engan kost að fullnægja dómi
sínum. Ekkert mark verði hægt
að taka á þeim dómi sem upp
verði kveðinn, þar sem hann
styðjist ekki við lög og réttar-
reglur, heldur aðeins við sið-
gæðiskennd dómarans. Svör
prófessors Lögstrups við þeim
mótbárum og heimspekilegum
vangaveltum úrtölumanna, á-
bendingar hans um andstæður
og samhengi siðgæðis og réttar,
verða ekki rakin hér, en hann
kemst svo að brði í grein sinni
miðri:
„Nú er komið að stríðsréttar-
höldunum- Ég ætla aðeins að
drepa á eitt atriði, þá fregn
sem ,,Information“ birti fyrir
skömmu eftir bandarískum
heimildum um stríðið í Viet-
nam og enginn starfsmanna
blaðsins hefur borið brigður á-
Bandaríski flugherinn varpar
sprengjum, svokölluðum tvístr-
unarsprengjum, sem eru vita
gagnslausar gegn hervirkjum og
eru aðeins nothæfar til að
drepa fólk. Stríðið í Vietnam
er haft til að reyna ný vopn.
Eðli stríðsins var lýst á þann
veg í þessari frásögn „Informa-
tions“ að það minnir óþyrmi-
lega á sprengjuárásina á Gu-^.
ernica í spænska borgarastríð-
inu.
Við enim vitni að her-
mennsku sem er óumdeilanleg
sem með engu móti verður var-
in, sem brýtur að auki í bágr
við alþjóðarétt, og er þannir
sa'knæm lögum samkvæmt. S:
einn hængur er á, að enginn
dómstóll er til sem gæti stöðv-
að hana, hvað þá dæmt í refs-
ingar fyrir hana. En þá er það
gert sem hægt er við þær að-
stæður sem fyrir eru- Það er
settur dómstóll sem fær eftir
því sem hægt er verkefni og
eiginleika þes9 dómstóls sem
ekki er til- Það er: Hann verð-
ur alþjóðlegur, hlutiaus og
kannar af algerri hlutlægni þau
gögn sem fyrir hann verða lögð.
Það er: Hann hefur ekkert 1
vald til að fullnægja dóminum
og hann er sjálfskipaður.
En vonir standa til að dóm-
urinn og þær forsendur hans
sem byggjast á málsgögnunum
muni hafa áhrif. Ekki vegna
þess að fram fór athyglisvert
sjónarspil, heldur vegna þess
að dæmt var um rétt eða
rangt“.
Blindravinafé-
iagi íslands
berst dánargjöf
Hjónin Elín Þorsteinsdóttir,
er andaðist 5. apríl 1966, og
Þorvaldur Friðfinnsson, útgerð-
armaður, Brekkugötu 13, Ólafs-
firði, er andaðist 7. des. 1947,
arfleiddu Blindravinafélag ís-
lands að jöfnu við barnaheim-
ilið í Ólafsfirði, að eignum
sínum eftir sinn dag. Elín
dvaldi hjá systursyni sínúm,
Adam Magnússyni, Brekkustíg
2, Akureyri, síðustu ár ævi
sipnar og átti hann og annað
frændfólk Elínar drýgstan þátt
í því, að svo drjúgur skilding-
ur var eftir í þessu búi og er
félagið frændfólki Elínar inni-
lega þakklát fyrir þátt þess í
þessari gjöf.
Hlutur félagsins varð kr.
102 624,80 og er það mikið fé,
sem félaginu er mikils virði
að fá til ráðstöfunar, þó er
annað athyglisverðara, það er
sá kærleiksandi og hjálpfýsi,
sem liggur að baki þessari höfð-
mglegu gjöf. Megi blessun
guðs fylgja þessum hjónum og
frændum þeirra.
(Frá Blindravinafélagi
íslands).
Þakkir frá HrafnistuDval-
arneimm alaraðra s/omanna
• Hrafnista, DAS, óskar efln
að koma á framfæri þakklæti
til hinna mörgu aðila, semmeð
gjöfum, heimsóknum eða öðr-
um hætti glöddu vistfólk á
Hrafnistu nú um jólin og ára-
mótin og oft endranær á ný
liðnu ári.
Blindravinafélagið, stúkan
Rebekka, ýmis átthagafélög og
margar fleiri stofnanir og ein-
staklingar hafa í verki sýnt
hlýhug sinn til stofnunarinnar.
En ekki hvað sízt. skal minn-
ast starfs séra Gríms Grímsson-
ar, sóknarprests og séra Magn-
úsar Guðmundssonar, sjúkra-
húsaprests fyrir hin miklu störf
beirra á kvöldvökum og við
pjölmörg önnur tækifæri.
Fyrir alla slíka auðsýnda
vinsemd eru hér fluttar alúðar
bakkir í nafni vistfólks og
stofnunarinnar.
Auðunn Hermannsson.
¥ eggsp jölcf Rau&ra varðliöa
fááfft&CÍtlM f
> W u j
Fátt hefur valdid annarri eins ringuireiö á fréttastofum heimsins og veggblöð og veggspjöld Kauðra
varðliða í Kína. Hér sjást þrjú þeirra — frá vinstri: „Högg okkar hæfa svarta 6áldarflokkinn“,
„Kremjum guð dauðans“ (Lú Tingjí) og „Berjum niður andbyltingarsinnaða endurskoðunarmenn.“
SÆNGURVER
LÖK
KODDAVER
Skólavörðustíg 21.
Kjötbúö Suöurvers tilkynnir:
Tökum að okkur veizlur, kait borð, smurt brauð, KJÖTBÚÐ SiJí)iLIKVÉKt ‘'vrni Stigahlíðar og
snittur, kokteilsnittur og brauðtertur. Hamrahlíðar. - Sími 35645. - Geymið auglýsiiiguna.
4
t
i