Þjóðviljinn - 04.02.1967, Qupperneq 2
BORGAKEPPNI I HANDKNATTL EIK
í dag kl. 17.
Verð miðá 125,00.
Fyrir börn 50*00.
H. K. R R.
REYKJAVÍK-KAUPMANNAHÖFN
Dómari: Hannes Þ. Sigurðs-
son. — Forleikur: Unglinga-
landslið karla, A og B.
H. K. R. R.
2 SlÐA — í>JÖÐVILJINN — Lraugardagur 4. febrúar 1967.
Sonur okkar.
GUÐBJARTUR ÓUAFSSON,
andaðist í Borgársjúkrahúsinu fimmtudáginn 2. febrúar
Dóra Guðbjartsdóttir.
Ólafur Jóhannesson.
Þökkum öllum þeim er auðsýndu samúð við andlát og
jarðarför.
HJARTAR EUÍASSONAR, fyrrv. verkstjóra.
Þökkum ennfremur herbergisfélögum hans að Vífilsstöð-
um, starfsfólki og læknum.
F.h. aðstandenda:
Gyða Erlingsdóttir.
Svavar Gests.
Leika í Búdapest á morgun
Á morgun, sunnudag, fer fram í Búdapest leikur í Evrópu-
keppni meistaraliða í liandknattleik. Eigast þar við íslandsmeist-
arar FH úr Háfnarfirði og ungversku meistaramir Honved.
Síðari leikur liðanna verður háður í Uaugardalshöllinni annan
sunnudag. — Myndin var tekin á Keflavíkurflugvelli á dögun-
um, er FH-ingarnir voru að leggja upp í hina Iöngu ferð með
flugvél Pan American félagsins bandaríska.
Stjóm HKRR 1966—67. Frá vinstri: Karl H. Sigurðsson (Val) blaðafulltrúi, Birgir Uúðvíksson
(Fram) ritari, Haukur Þorvaldsson (Þróttur)varaformaður, Jón Magnússon (KR) formaður, Birg-
ir Magnússon (ÍR) fundarritari, Davíð Jónsson (Á) spjaldskrárritari, Ámi Ámason (Vík.) gjaldk.
HKRR orðið 25 ára
Handknattleikur nú ein vin-
sælasta íþróttin hér á landi
— var litinn
■ Nú eru liðin 25 ár síðan Handknattleiksráð Reykjavík-
ur var stofnað og er þeirra tírtiamóta minnzt í dag með
borgakeppni milli Reykjavíkur og Kaupmannahafnar
og á morgun keppir Kaupmannahafnárúrvalið við Reykja-
víkurmeistara Fram.
■ HKRR var stofnað 29. janúar 1942 og það var ekki
svo ýkja löngu fyrr sem handknattleikur varð almennur
hér á landi eða á árunum 1930—-’40, endá er hann til-
tölulega ung íþrótt.
Handknattleikur er talinn
eiga raetur sínar að rekja til
Danmerkur og Þýzkalands um
síðustu aldamót og var í upp-
hafi leikinn sem 11 manna
handknattleikur á knattspyrnu-
völlum, en um 1911 byrjuðu
Svíar og Danir að leika hann
innanhúss og þá með 7 manna
líð, eins óg nú er algengast.
Hingað til lands mun leik-
urinn hafa borizt. með Valdi-
mar Sveinbj örnssyni íþrótta-
kennara, sem hafði kynnzt
hornauga í fyrstu
honum við nám í Danmörku,
og reyndi hann fyrst í Barna-
skólanum í Reykjavík haustið
1921. Þegar Valdimar byrjaði
síðan leikfimikennslu við
Menntaskólann í Reykjavík
1928 kenndi hann nemendum
þar handknattleik sem varð
strax mjög vinsæll þar.
íþróttafélögin í Reykjavík
gáfu leiknum illt auga í.fyrstu^
og hugðu, að hann; myndi draga
úr áhuga á leikfimi, sem þá
var efst á baugi. íþróttafélag
Hafnarfjarðar varð fyrst allra
íþrottaféíagá tii að taka- upp
leikinn og eins hafa Haukar í
Hafnarfirði lagt' íjtund. á hann
allt frá stofnun félagsfns 1931.
Reykjavíkurfélögin sáu þó
brátt að við leiknum og við-
gangi hans varð ekki spornað
og tók Valur að iðka hann
1931 og stúlkur í KR um svip-
að leyti. Piltar í KR fóru að
æfa leikinn 1936 og drengja-
flokkur úr ÍR 1938, en kvenna-
flokkur ÍR varð til 1940. Hjá
kvennaflokki Ármanns hefjast
reglúlegar æfingar 1937, en
karlaflokkur þar kom ekki til
sögunnar fyrr en 1940. Víking-
ar höfðu ekki fástar æfirigar
innan félags síns, eh héldu vel
saman í Menntaskölanum og
Háskólanum og áttu - þár’ sterk
iið. í F'rám var býrjað áð iðfta
handknattleik 1940'.
. Fyrstu handknattleikreglurn-
ar voru gefnar út af ÍSÍ árið
1934 og sá Benedikt Jakobsson
um þá útgáfu, en næstii íeglur
komu út 1940, skömmu fyrir
fyrsta landsmótið í handknatt-
leik og sá Aðalsteinn Hallsson
um útgáfu á þeim.
Þó að íþróttinni yxi mjög
fiskur um hrygg hérlendis á
áratugnum 1930—1940 var ekki
mögulegt að hefja reglulega
keppni innanhúss í því hús-
næði sem þá var völ á. Við
byggingu íbróttahúss Jóns Þor-
steinssonar við Lindargötu
breyttust aðstæður og um ára-
mótin 1940—41 fól stjórn ÍSÍ
Val og Víking að annast fram-
kvæmd íslandsmóts í hand-
knattleik innanhúss. Sjö félög
sendu lið til mótsins, Ármann,
Fpam,’ Íþrótíafélag Háskólans,
Haukar, ÍR, Valur og Vífting-
ur, og þótti það takast mjög
vel.
Árið 1942 var svo komið að
sex félög iðkuðu handknattleik
í Reykjavík og því eðlilegt að
sú hugmynd kæmi fram að
samstarf Reykjavikurfélaganna
í handknattleik yrði skipulagt
á sama hátt og gefið hafði góða
raun í öðrum íþróttagreinum.
í ársbyrjun 1942 var því á-
kveðið að stofna HKRR og var
skipulag þess hið sama og var
þá hjá KRR. Formaður var til-
nefndur af ÍSÍ, en fulltrúar fé-
laganna skyldu kosnir á árs-
þingi (síðar aðalfundi) ráðsins.
Frá 1951 hafa félögin sem að-
ild eiga að HKRR sjálf tilnefnt
fulltrúa í ráðið og er formaður
síðan kosinn á aðalfundi úr
þeirra hópi.
Aðalverkefni HKRR hefur
verið að annast framkvæmd
handknattleiksmóta og hefur
sú starfsemi aukizt mjög á
þessum 25 árum. Þar að auki
var HKRR aðalmálsvari íþrótt-
arinnar þar til HSÍ var stofnað
1957. Átti HKRR mikinn þátt
í að koma á fyrstu landsleikj-
um í handknattleik svo og í
stofnun HSÍ.
Fyrsti formaður HKRR var
Baldur Kristjánsson íþrótta-
kennari. Aðildarfélög HKRR
eru nú sjö, Ármann, Fram, ÍR
KR, Valur, Víkingur og Þrótt-
ur. Núverandi formaður HKRR
er Jón Magnússon, KR, og með
honum í ráðinu eru Árni Árna-
son, Víking, Birgir Lúðviks-
son, Fram, Birgir Magnússon,
IR, Davíð Jónsson, Ármanni,
Haukur Þorvaldsson, Þrótti, og
Karl H. Sigurðsson, Val.
Eins og áður segir verður í
dag efnt til borgakeppni milli
Reykjavíkur og Kaupmanna-
hafnar, en meðal dönsku leik-
mannanna eru ekki færri en
sex úr landsliði Dana sem
varð annað í nýafstaðinni
heimsmeistarakeppni. Leikur-
inn verður háður í Laugardals-
höllinni og hefst kl. 5, en á
morgun mæta Reykjavíkur-
meistararnir Dönum, og byrjar
sá leikur kl. 3.
útvarpið
13,00 Öskalög sjúklinga.
14.30 Vikan framundan. Baldur
Pálmason og Þorkell Sigur-
björnsson kynna útvarpsefni.
15,10 Veðrið í vikunni. — Páll
Bergþórsson veðurfræðingur
skýrir frá.
15,20 Einn á ferð. Gísli J. Ást-
þórsson flytur þátt í tali og
tónum.
16,05 Birgir Sveinsson kennari í
Mosfellssveit velur sér hljóm-
plötur.
17,05 Tómstundaþáttur barna.
og unglinga — örn Arascn
flytur.
17.30 0r myndabók náttúrunn-
ar. Ingimar Öskarsson talar
um aldur jurta og dýra.
17.50 Dóra Ingvadóttir og Pét-
ur Steingrímsson kynna nýj-
ar hljómplötur.
19.30 Smásaga, „Minningar“,
eftir Friðjón Stefánsson. Höf.
flytur.
19,55 Egill Jónsson kynnir ým-
iskonar músík.
20.50 Leikrit „Rauðar rósir“,
gamanleikur eftir Benedetti
og Home. Þýðandi: Einar
Pálsson. Leikstjóri: Benedikt
Árnason.
22,40 Lestur Passíusálma (12).
22.50 Danslög.
0,^-fÍAFÞÓR ÓUMUmm
Skólavör&ustícf 36
s£mi 23970.
INNHBIMTA
CÖOMV&tSTÖtÍF
« »
----------,--------• -. -------------:----$•
Stýrimannafélag íslands
Fyrri hluti aðalfundar verður baldínn sunnudag-
inn 5. febr. kl. 15.30 að Bárugötu 11.
Fundarefni:
/ 1. Uppstilling til stjómarkjörs.
2. Önnur m-ál.
Stjórnin.
TOYOTA CROWNSTATION
Toyota Crown Station
Traustur og ódýr
StationbíII.
TRYGGIÐ YÐUR TOYOTA.
Japanska bifreiðasalan hf.
Ármúla 7 — Sími 34470.
♦