Þjóðviljinn - 04.02.1967, Síða 3
Laugardagur 4. febrúar 1967 — ÞJÓÐVILJINN — SfÐA 3
Talsmaður Hanoistjórnar:
Hefja má viðræður
sé ioftárásum hætt
PHNOMPENH og SAIGON 3/2 — Stjórn Norður-Vietnams
hefur enn einu sinni ítrekað að hún myndi fús til að taka
upp samningaviðræður til að koma á friði í Vietnam ef
Bandaríkjamenn hættu loftárásum sínum á landið.
Það var sendimaður Hanoi-
stjórnar í Phnompenh, höfuðborg
Kambodju, Nguyen Vuy Thu, sem
sagði þetta á fundi sem hann
hélt þar með blaðamönnum í dag.
Hann sagði að ef Bandaríkin
hættu skilyrðislaust loftárásum á
Norður-Vietnam og öðrum hern-
aðaraðgerðum gegn landinu,
myndi hægt að hefja samninga-
viðrasður.
Talsmenn stjórnarinnar í Hanoi
hafa hvað eftir annað að undan-
fömu gefið sams konar yfirlýs-
ÞingvaHanefnd .
Framhald af 1. síðu.
íslands; Hákon Bjarnason, skóg-
ræktarstjóri, skipaður samkv.
tilnefningu Skógræktarfélags ís-
lands. — Auk þess eiga for-
stöðumenn deilda náttúrugripa-
safns sæti í ráðinu samkvæmt
stöðu sinni: Eyþór Einarsson.
mag. scient., dr. Finnur Guð-
mundsson og dr. Sigurður Þór-
arinsson."
Frá því Rikishandbókin kom
út árið 1965 hefur Steingrímur
Steinþórsson látizt og varamað-
ur hans, Páll Zóphóníasson. fv.
alþingismaður. einnig. Hefur
ráðuneytið skipað Halldór Páls-
son, búnaðarmálastjóra. í ráðið
í stað Steingríms. Starfsmaður
ráðsins er Gunnar Vagnsson,
deildarstjóri.
ingar, en Bandaríkjástjórn hefur
jáfnan daufheyrzt við þeim og
svarað því einu til að hún hefði
er.gar sannanir fyrir því að
stjórn Norður-Vietnams væri fús
til að hefja samningaviðræður.
Bandaríkjamenn hófu í dag að-
gerðir á hinu svonefnda „hern-
aðarsvæði D“ skammt fyrir norð-
an Saigon. Þetta. er í fyrsta sinn
sem bandarískir hermenn eru
sendir inn á þetta svæði, þótt
það sé aðeins 45 km frá höfuð-
borginni. Svo virðist sem ætlun
Bandaríkjamanna sé. að leggja
það í eyði eins og gert var í
„járnþríhyrningnum" svonefnda
þar í grenndinni.
Johnson sendir
Kosygin boðskap
MOSKVU 3/2 — Sendiherra
Bandaríkjanna í Moskvu, Llewel-
lyn Thompson, hefur afhent
Kosygin forsætisráðherra boð-
skap frá Johnson forseta. Talið
er að í þessum boðskap sé fjall-
að um þá tillögu Bandaríkja-
manna sem áður hefur verið birt
að Bandaríkin og Sovétríkin
geri með sér samning til að
afstýra kapphlaupi þeirra á milli
um að koma upp kostnaðarsöm-
um varnarkerfum gegn flug-
skeytum.
Voxandi starfssmi Búnaðarbankan
""*Ffámhald aí 4. síðu.
Á árinu 1966 var unnið að
gagngerðum breytingum í húsi
aðalbankans í Reykjavík með
það fyrir augum að bæta af-
greiðsluskilyrði bankans gagn-
vart viðskiptamönnum sínum,
og var opnaður nýr afgreiðslu-
salur á annarri hæð bankahúss-
ins f Austurstræti 5 og Hafn-
arstræti 6 hinn 3. desember s.l.
I nýja afgreiðslusalnum eru
þrjár deildir bankans: Veðdeild
Búnaðarbankans. Stofnlánadeild
landbúnaðarins og víxladeild.
Skrifstofur bankastjórnar og
bankaráðs hafa verið fluttar á
4. hæð tii bess að rýma fyrir
hinum nýia afgreiðslusal.
Vélbókhald mcð IBM
skýrsluvélum:
Á árinu var tekið upp vélbók-
hald með IBM skýrsluvélum
fyrir víxladeild. Veðdeild Bún-
aðarbankans og Stofnlánadeild
landbúnaðarins.
Af þessu tilefni hefur verið
sett á stofn ný deild innan
bankans, skýrsluvéladeild, sem
annast gagnaúrvinnslu fyrir áð-
urnefndar deildir eftir gata-
spjöldum, og hófst undirbún-
ingsvinna við breytinguna s.l.
vor og lauk fyrir gjalddaga lán-
anna um haustið.
1 víxladeild var byrjað að
vinna með vélbókhaldi og IBM
skýrsluvélum í byrjun janúar-
mánaðar 1967.
Búnaðarbankinn hefur nú
tekið upp það nýmæli að nota
nafnnúmer þjóðskrár við af-
greiðslu lána f Veðdeild, Stofn-
lánadeild og víxladeild. Sérhver
lántakandi og víxilaðili: sam-
þykkjandi. útgefandi, framselj-
amdi (ábekkingur) og seljandi
víxils verður að tilgreina nafn-
númer sitt.
Þjóðskrárnúmerin eru tekin
upp til þess, að auðveldara sé
að gera fuilkomna spjaldskrá
og skapa meira öryggi fyrir
bankann.
Framleiðnis.ióður Land-
búnaðarins:
Alþingi samþvkkti 16- desem-
ber 1966 lög um Framleiðnisjóð
landbúnaðarins. Hlutverk sjóðs:
ins skal það að' veita styrki og
lán til framleiðniaukningar og
hagræðingar í landbúnaði 03
atvinnurekstrar á.bújörðujn. Má
með jöfnum höndum styrkja
rannsóknir og frafnkvæmdir, er
miða að lækkun framleiðslu- og
dreifingarkostnaðar svo og
framkvæmdir, er stefna að því
að samræma landbúnaðarfram-
leiðsluna þörfum þjóðfélagsins
miðað við markaðsaðst.æður
innan lands og utan á hverjurr
tíma.
Lán og styrk úr sjóðnum má
meðal annars veita til einstakra
bænda, vinnslustöðva, ræktun-
arsambanda og vísindastofnana.
Við styrkveitingar til einstakra
bænda skal að öðru jöfnu taka
tillit til efnahags þeirra.
Stjórn Framleiðnisjóðs úthlut-
skipuð fimm mönnum, er land-
búnaðarráðherra skipar til fjög-
urra ára í senn.
Stjórn Framleiðnisjóðs skal
ar lánum og styrkjum úr sjóðn-
um.
Búnaðarbanki íslands hefur
umsjón með Framleiðnisjóði,
sér um bókhald hans og rekst-
ur, eftir nánari samkomulagi
við sjóðstjómina.
GOLFTEPPI
WILTON
TEPPAOREGLAR
TEPPALAGNIR
EFTIR MÁLI
Laugavegi 31 - Simi 11822.
TRABANT EIGENDUR
V iðgerðarverkstæði
Smurstöð
Yfirförum bílinn
fyrir veturinn.
FRIÐRIK ÖLAFSSON, vélaverkstæði
Dugguvogi 7. Sími 30154.
<gntinental
SNJÓHJÓLBARÐAR
MEÐ NÖGLUM
sem settir eru í, með okkar full-
komnu sjálfvirku neglingarvél.
veita fyllsta öryggi í snjó ög
hálku.
Nú er allra veðra von. — Bíðið
ekki eftir óhöppum, en setjið
CONTINENTAL hjólbarðá, með
eða án nagla, undir bílinn nú
þegar.
Vinnustofa vor er opin alla daga
frá kl. 7,30 til kl. 22.
Kappkostum að veita góða þjón-
ustu með fullkomnustu vélum
sem völ er á.
GÚMMÍVINNUSTOFAN h.f.
Skipholti 35 — Sími 3-10-55.
Útsa/a i nokkra daga
MIKILL AFSLÁTTUR.
Verzlunin Ó.L.
Traðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu).
liM.I.-LiullM.] 4j
V erkamannafélagið
Dagsbrún
SKÁKÆF/NG
Dagsbrún hefur ákveðið að efna. til skákæfinga
fyrir félagsmenn. — Fyrsta skákæfingin verður
sunnudaginn 5. febrúar frá kl. 2—5 í Lindarbæ
uppi. — Hafið með ýkkur töfl.
Síðar í vetur verður skákkeppni við önnur félög.
Nefndin.
Hvað líður nóttunni
— fer dagur í hönd?
nefnist erindi, sem O. J.
OLSEN flytur í Aðvent-
kirkjunni sunnudaginn
5. febrúar kl. 5.
Allir velkomnir.
Ku/dajakkar og ú/pur
í öllum stærðum. Góðar vörur — Gott verð.
Verzlunin Ó.L.
Traðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu).
SÍLDVE/Ð/SJÓMENN
FramhaldsstQfnfundur Félags síldveiðisjómanna
verður haldinn í Slysavamafélagshúsinu. Granda-
garði sunnudaginn 5. febr. kl. 14.
Dagskrá: 1. Lög félagsins.
2. Önnur .mál.
Undirbúningsnefndin.
Póst- og símamá/astórnin
vill ráða nokkra laghenta menn til starfa á Birgða-
vörulu Pósts og síma.
Umsóknir skulu sendar póst- og símamálastjórn-
inni fyrir 15. febr. 1967.
Nánari upplýsingar í síma 11-000.
Fóst- og símamálastjómin.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í notaða sandhörpu sém nú er stað-
sett við Malbikunarstöð Reykjavíkurborgar við
Ártúnshöfða.
Sandharpan samanstendur af;
Þremur trésílóum úr eik, fyrir 4 tegundir.
Sigtasamstæðu með útbúnaði fyrir þvott,
— 2x3 rammar.
Gúmmífæriband með skúffum.
Nýtt gúmmíband til vara.
Skammtari.
Rafmótor fyrir skammtara.
Rafmótor fyrir færiband.
: Rafmótor f.yrir sigti.
Kaupandi skal taka þessi tæki niður og fjarlægja
þau af núverandi stað á einum mánuði frá sam-
þykkt tilboðs.
Bjóðendur geta skoðað þessi tæki á ofangreindum
stað og þer að snúa sér til yfirverkstjóra Grjótnáms
í bifreiðavog borgarinnar við Ártúnshöfða.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri, Vonar-
stræti 8, þriðjudaginn 14. febrúar n.k. kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYK)AVÍKURBORGAR
VONARSTRÆTI 8 - SÍMI 18800
Kjötbúb Suöurvers tilkynnlr:
Tckum að okkur veizlur, kalt borð, smurt brauð,
snitiur, kokteilsnittur og brauðtertur.
KJÖTBUÐ SUÐURVERS, horni Stigahlíðar og
Hamrahlíðar. - Sími 35645. - Geymið auglýsinguna.
V
4