Þjóðviljinn - 17.03.1967, Side 4
4 SÍÐA —r ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 17. marz 1967
Otgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokk-
urinn.
Ritstjórar: Ivar H- Jómsson (áb). Magnús Kjartansson,
, Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Sigurður T. .Sigurðsson.
Framkvstj-: Eiður Bergmann.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja Skólarvörðust- 19.
Sími 17500 (5 línur) — Askriftarverð kr. 105,00 á mánuði. —
Lausasöluverð kr. 7.00-
Lagaréttur sjémanna
gamtök atvinnurekenda telja sér orðið sjaldan fært
að ráðast á kjaraatriði og réttindi sem vinnandi
fólk hefur fengið viðurkennt i samningum eða með
löggjöf. Hér eru þó samtök útgerðarmamna undan-
tekning, eða réttara sagt þær fámennu stjórnar-
klíkur þessara samtaka sem halda völdum 1 krafti
þorskafjölda og síldarmála og tonnatölu skipa.
Landssamband íslenzkra útvegsmanna og Félag
íslenzkra botnvörpuskipaeigenda eru þar fremst
í flokki, í nafni þeirra er nuddað og suðað ár eftir
ár að nauðsyn sé að skerða áunninn aflahlut sjó-
manna eða þá að heimtað er að vökulögin séu sker't
og vinnutími togarahásetanna lengdur úr tólf
klukkustundum á sólarhring. Það er ekki til lofs
fyrir íslenzku sjómannasamtökin að þeim skuli
hafa mistekizt að kenna stjómarmönnum einnig
þessara atvinnurekendasamtaka að verkalýðs-
hreyfingin er ekki til viðtals um að láta af hendi á-
unninn hlut sinn eða réttindi vinnandi fólks sem
fengizt hafa skráð á lögbækur landsins.
j>jóðviljinn hefur átt sinn hlut að því að gera
þgssa viðleitni lýðum ljósa, og hefur blaðinu
jafnvel verið um það kennt að herferðir gegn sjó-
mannakjörum og réttindum hafa runnið út í sand,
þótt það sé sjálfsagt oflof. En sjómenn hafa tekið
eftir því að undanfama mánuði hefur verið stanz-
laust eggjahljóð í íhaldsþingmanninum Sverri
Júlíussyni sem vænzt hefur þess og að því róið
öllum árum að flutt væri og samþykkt á Alþingi
sem nú situr. skerðing á lögbundnum réttindum
sjómanna. Þjóðviljinn hefur eitt blaða skýrt þau
mál og varið af hálfu sjómanna, og er nú sýnt að
Sverrir og kumpánar treysta sér ekki til að koma
málinu fram á þessu þingi, en ætla .'að fara króka-
leið að markinu. Hugsjón þeirra er að afnumið
skuli það ákvæði sjómannalaganna frá 1963, sem
tryggir undirmönnum á skipum mánaðarkaup ef
þeir slasast eða veikjast meðan ráðningartími
þeirra stendur.
J framkvæmd þýðir þetta að sjómenn á fiskiskip-
um fá greiddan aflahlut sinn sama tíma, og
þetta ákvæði vill Sverrir Júlíusson nú endilega
afnema, og rniða slysa- og veikindabætúí^við kaup-
fryggingu, sem á engan hátt getur talizt eðlilegt
sjómannskaup á fiskiskipum. Nú hafa þrír íhalds-
þingmenn, Sverrir, Jón Árnason og Matthías
Bjamason og einn úr Alþýðuflokknum, Birgir
Finnsson, flutt þingsályktunartiliögu um skipun
nefndar sem endurskoða á sjómannalögin. í grein-
argerð er hins vegar tekið fram hvílíkur háski út-
gerðinni sé búinn af ákvæði sjómannalaganna um
veikinda- og slysabætur sjómanna á fiskiskipum,
svo ljóst er hvað fyrir flutningsmönnum vakir. En
það hefur áunnizt að þeir hafa gugnað á að koma
málinu í gegn á þessu þingi. í sumar verður kosið
og þá geta sjómenn og vandamenn þeirra svarað
þessum frambjóðendum og flokkum þeirra á þann
hátt einan sem íhaldsmenn skilja, og þakkað svo
hinn .sérkennilega áhuga þeirra áð rýra réttindi
sjómanna. — s.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
ADOLF HEITINN HITLER flutti
nokkrar ræður í útvarpinu núna
á þriðjudagskvöldið, og honum
til aðstoðar töluðu Hka með-
al annarra Göring og Göbbels,
gátu enda sjaldan orða bundizt
meðan þeir voru og hétu, einkum
■hinn síðarnefndi. Allt var þetta
flutt í sígildum geðbilunarstíl ofur-
menna, og ekki má gleýma heið-
ursmanninum Júlíusi Streicher,
sem var að öðrum ólöstuðum mesta
ofurmenni á fyrri hluta 20. aldarinn-
ar, sérflagi að andlegu atgerfi, og
fjallaði um lausn Gyðingavanda-
málsins af frábærri geggjun. Þetta
voru hljóðritanir frá Þýzkalandi
stríðsáranna og áheyrendur í tug-
þúsunda tali réðu sér ekki fyrir
fögnuði í návist þessara mikilhæfu
forystumanna sinna. Enn fleiri þús-
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■i
undir lögðu sig alla fram á sama
tíma svo að hugsjónir þeirra mættu
rætast í löndum Evrópu, og lögðu
megináherzlu á hina göfugustu, —
útrýmingu Gyðinga og kommúnista.
Skoðanakannanir hefðu áreið.anlega
leitt í l'jós að 4 af hverjum 5 Þjóð-
verjum fylgdu foringja sínum skil-
yrðislaust og munaði víst mjóu að
þeim tækist að ljúka ætlunarverki
sínu, — sennilega hefði talsverð-
ur hundraðshluti íslendinga ekki
heldur bugazt af harmi ef Hitler
hefði tekizt að framfylgja því sem
Alþýðublaðið nefndi „sögulegt hlut-
verk nazismans" — að þurrka. út
. Sovétríkin.
Á ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ rumsk-
aði vist margur útvarpshlustand-
inn og hugsaði enn einu sinni:
Hvemig má það ske að bandóðum
gangsterum tekst að fá heila þjóð,
sem er ekkert vitlausari én gengur
og gerist, til að kingja þessum en-
demis þvættingi og trúa á hann, og
æða af stað myrðandi og brennandi,
og.ana sjálf út í opinn dauðann með
fögnuði? Og nazistamir þurftu ekki
nema sex ár til að trýlla svo til alla
þýzku þjóðina. Það er ekki nema
aldarfjórðungur síðan þetta gerðist.
TÆPUM 20 ÁRUM eftir lok síðari
heimsstyrjaldar voru Bandaríkja-
menn búnir að taka á sig rögg við
útrýmingu kommúnista í Víetnam,
en öðrum frambjóðandanum við for-
setakosningarnar sem þá voru háð-
ar í Gúðs eigin landi,( Goldwater að
nafni, þótti slælega að verið og vildi
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■•■■■■•■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■i
hespa af þetta lítilræði og eyða land
óvinarins í hvelli — og þá með at-
ómsprengjum ef svo bæri undir.
Ekki vildi þó meirihluti Bandaríkja-
manna fallast á þessar kenningar
og kaus því ekki fyrrnefndan kappa,'
heldur andstæðing hans Lyndon B.
Johnson sem mælti gegn umrædd-
um voðaverkum. En Johnson sótti
fljótt í sig veðrið og tók að fram-
fylgja skoðunum keppinautar síns
í einu og öllu af sívaxandi krafti,
.og á nú raunar fátt eftir annað en.
atómsprengjuna á kommúnistana í
Víetnam. Og skoðanaköhnun sem
blaðið Washington Post efndi til ríú
á dögunum leiddi í ljós 'að 4 af
hverjum 5 Bandaríkjamönnum eru
fylgjandi auknum hemaðaraðgerð-
um til að koma fyrir kattamef í
eitt skipti fyrir öll og á sem
skemmstum tíma kommúnistunum
þama, austur frá.
ANDSTÆÐINGAR þessarar stefnu
um allan heim, — og þeir eru
margir, — vinna nú að því að koma
vitinu aftur fyrir Bandaríkjamenn,
líka hér á fslandi. En útrýmingar-
postularnir sem álíta það „sögiulegt
hlutverk ameríska kapítalismans“
að útrýma kommúnistunum í Víet-
nam eru einnig margir, líka hér á
íslandi, og ekki grunlaust um að
einhver slíkur kynni að finnast við
Alþýðublaðið ef vel væri að gáð.
Á þessari stundu veit enginn hvern-
ig framhaldið verður á Víetnam-
viðbjóði Bandaríkjamanna, en þó
er rétt að minnast þess að það era
ekki tvö og hálft ár síðan þeir kusu
Lyndon B. Johnson forseta sinn. ■■
KOLBEINN SVARTI.
■■■■«■■■■■■■■«
á greiSsIum til JöfmmarsjáSs
■ Stjórn Sambands íslenzkra sveitarfélaga hefur mót-
mælt harðlega því ákvæði í framvarpi til laga um ráð-
stafariir vegna sjávarútvegsins, sem nú liggur fyrir Al-
þingi, að greiðslur til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verði
króna. Mótmælunum fylgir
lækkaðar um 20 miljónir
svofelld greinargerð.
Lagt hefur verið fram á Al-
þingi frumvarp til laga um
ráðstafanir vegna sjávarútvegs-
ins. 1 írumvarpi þessu er gert
ráð fyrir að lækka greiðslur til
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga fyr-
ir árið 1966 frá því, sem á-
kveðið er í tekjustoínalögunuín
um 20 miljónir kr. 1 greinar-
gerð frumvarpsins er upplýst,
að tekjur Jöfnunarsjóðs 1966
muni fara 23 miljónir króna
fram úr áætiun fjárlaga íyrir
árið 1966, og er ráðgerð lækk-
un rökstudd með því, aðsveit-
arfélögin njóti góðs af árangri
verðstöðvunarinnar, og því sé
sanngjarnt, að þau taki nokk-
urn þátt í ráðstöfunum til að
tryggja framgang hennar.
Það hafði verið barátturhál
sveitarfélaganna árum saman
að fá nýjan tekjustofn, hlut-
deild í söluskattstekjum ríkis-
sjóðs. Með samþykkt s.ölu-
skattslaganna nr. 10/1960 og
laga ■ um Jöfnunarsjóð sveitar-
félaga nr. 19/1960 kom ríkis-
Fyrirlestur í
Háskóla íslands
Prófessor Torsten Lund frá
Califomiaháskóla flytur fyrirlest-
ur í boði Háskóla íslands í dag
kl. 5' e.h. i I. kennslustoh: há-
skólans.
Fyrirlesturinn, . sem verður
fluttur á ensku,. fjallar um upp-
eldi nútíma æsku. öllúm er
heimill aðgángur.
(Frá Háskóla íslands)
valdið til móts við ósk sveitar-
félaganna og sýndi með því
skilning á aðstöðu þeirra ogþví
mikilsverða hlutverki, sem þau
gegna í þjóðfélaginu. Lögfest-
ing þessa fyrirkomulágs mark-
aði tímamót í samskiptum rík-
isvaldsins og sveitarfélaganna.
Þetta hafa sveitarfélögin
þakkað og metið.
Því ber að harma það, að
með ákvæðum frumvarpsins
skuli nú stefnt að skerðingu
þessara þýðingarmiklu rétt-
inda sveitarfélaganna.
Sveitarfélögunum er það
vissulega hagsmunamál, að
verðstöðvunin nái tilgangi sín-
um, enda hafa þau tekið á ,,sig
þær byrðar, sem af henni leiðir,
þar sem tekjustofnar þeirra
voru bundnir með verðstöðv-
unarlögum, en ýmsar útgjalda-
hækkanir höfðu orðið á árinu
1966, m.a. kaupgjaldshækkanir
allt að 15%, eftir að fjárhags-
áætlanir höfðu verið samþykkt-
ar. Þessar hækkanir haldast á
þessu ári, en tekjustofnar sveit-
arfélaganna en: bundnir. Þvi
hefur orðið að draga úr frjálsu
ráðstöfunarfé sveitarfélaganna
þ.e. minnka framlög til verk-
legra framkvæmda s.§, gatna-
gerðar og skólabygginga. Með
þessum hætti hafa sveitarfé-
lögin þegar lagt fram sinn
skerf til að tryggja árangur
verðstöðvunarinnar.
Sveitarfélögin telja því mjög
ranglátt, að til viðbótar eigi að
koma hvorutveggja: skerðing á
framlagi til Jöfnuriarsjóðs og
lækkun á -Iramlagi ríkisins til
sameiginlegra framkvæmda þess
og sveitarfélaganna, svo sem
gert er ráð fyrir í frumvarp-
inu.
Stjómin telur þess vegna eðli-
legra, að byrðum vegna þeirrá
ráðstafána, er í frumvarpinu
greinir, verði déilt á aðrar stofn-
anir í þjóðfélaginu.
‘
Stjóm Sambands íslenzkra
sveitarfélaga vijl vekja athygli
á því, að sveitarfélögin, a.m.k.
þau stærstu, hafa þegar afgreitt
fjárhagsáætlanir sínar fyrir ár-
ið .1967, svo sem lögboðið er, og
að sjálfsögðu -reiknað með
framiagi úr Jöfnunarsjóði :sam-
kvæmt gildandi lögum þ,á:m.
samþykktum fjárlögum fyrir
árið 1967. Samþykki Alþingi
téð ákvæði frumvarpsins, verðá
sveitarfélögin að taka fjárhags-
áætlanir sínar til endurskoðun-
ar. Aðrir tekjustofnar þeirra
bundnir með verðstöðvunarlög-
unum, og eigi er unnt að lækká
lögboðin útgjpld. Sveitárfélögin
verða því neydd til að draga
enn meira úr framlögum ýih
verklegra framkvæmda, sem
•víðast hvar em knýjandi -nauð-
syn.
Stjóm Sambands íslenzkra
sveitarfélaga treystir því, áð
háttvirt Alþingi leysi þettamál
á farsælan hátt fyrir. sveitar-
félög landsins, þannig að. þeim
verði ekki torveldað að gegna
þeim þýðingarmiklu verkéfn-
um, sem löggjafinn hefur falið
þeim. !• . 7,. •
<*-
li
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Aðalskrifstofan verður lokuð til hádegis í
dag .vegna útfarar Árna Benediktssonar. .
Happdrætti Háskóla Íslands
ATHUGIÐ
Getum bætt við okkur klæðningum og við-
gerðum á bólstruðum húsgögnum. — Góðir
vanir fagmenr*
Húsgagnav. Þorsteins Sigurðss.
Grettisgötu 13. — Sími 14-0-99.