Þjóðviljinn - 17.03.1967, Blaðsíða 5
Hafnfirðingar verða fyrir áföllum
F.H. OG HAUKAR TÖPUÐU FYRIR
VlKING OG FRAMIFYRRAKVÖLD
Á miðvíkudagskvöld 'fóru fram fveir leikir í
meistaraflokki karla í handknattleiksmóti ís-
lands, og voru Hafnarfjarðarfélögin bæði í eldin-
um. Úrslitin urðu óvænt og geta haft mikil áhrif
á niðurstöður mótsins, því bæði töpuðu þau — FH
fyrir Víking með 14:16 og Haukar fyrir Fram með
19:24. Hér á eftir fer frásögn Frímanns Helga-
sonar af þessum leikjum.
Á miðvikudagskvöldið fóru
fram tveir leikir í meistara-
flokki karla í handknattleiks-
móti íslands. og voru félögin
úr Hafnarfirði bæði í eldinum.
Fyrri leikurinn mun fy^ir-
fram ekki hafa verið talinn sér-
lega athyglisverður eða mundi
bjóða upp á mikla tvísýnu, þar
mundi F.H. vinna nokkuð ör-
ugglega, en það fór nú á aðra
lund. Það óvænta skeði að Vík-
ingar gengu út af sem sig-
arvegarar, unnu 16:14 og höfðu
yfir að kalla allan tímann. Vík-
ingar náðu mjög góðum leik.
þegar tekið er tillit til þess að
liðið er ungt og vantar ennþá
leikreynslu. Það sem þó vakti
mésta athygli var að það voru
hinir ungu Víkingar sem réðu
gangi leiksins og hraða, og léku
í þeim hraða: sem þeim hæfði
og þeir réðu við. FH tókst
aldrei að hrista þá af sér svo
um munaði, og sýndu aldrei
þan frískleik sem þeir sýndu
fyrr í vetur í mörgum leikjum.
og var svo komið að öll spenna
var úr mótinu, F.H. virtist svo
i sérflokki. Þetta hefur breytzt
svo að nú eru líkurnar ekkert
síður með Fram eftir leiki
kvöldsins, en allt bendir til
þess að þau bítist í. úrslitum
að þessu sinni.
Liðin.
Víkingar léku allan tímann
mjög skynsamlega, og sýndu
oft góðan leik, og virkan sem
virtist koma FH-ingum á óvart.
og setja þá út af laginu.
Einar Magnússon og Jón
Hjaltalín eru að verða stoð-
ir og styttur liðsins þótt ung-
ir séu, og Einar í markinu
varði oft vel. Báðir eru þessir
menn mjög skotharðir, og þeii
sem skoruðu flest mörkin. Þór-
arinn og Rósmundur eru ald-
ursforsetarnir og gefa vissu-
lega styrk hinum yngri. í
heild fellur liðið vel saman og
virðist í góðri þjálfun og það
ræður yfir mikilli knattleikni
og leikmennirnir gátu brugðið
á'hraða, en þeir stilltu sig sem
rétt var í þessari viðureign.
Gunnar Gunnarsson var einnig
ágætur og fylginn sér.
Það vantar eitthvað í FH-lið-
ið sem það hefur haft í leik
sínum áður. Það vantaði sókn-
arbroddinn og hraðann, sem
oft hefur verið þeirra leyni-
vopn. Það getur verið rann-
sóknarefnf út af fyrir sig að
finna í hverju þetta liggur.
Ekki er ósennilegt að farin sé
að gera vart við sig viss þreyta,
sem oft vill steðja að eftir langt
æfingatímabil, en það mun nú
orðið nær 8 mánuðir síðan þeir
fóru að æfa og búa sig undir
bikarkeppnina við Honved. Það
er því ekki óhugsandi að þeir
séu komnir yfir toppinn á
þjálfuninm og séu á niðurleið
aftur. Sé svo, er ekki ólíklegt
að það hafi svo sín geðrænu
áhrif, sem síðan hafa áhrif á
-leik þeirra. Við þetta bætist
svo að það er vafasamt að gefa
mönnum ekki hvíld í leik, og
sérstaklega ef þeir eru komnir
af léttasta skeiði. En hvað sem
veldur er FH ekki svipur hjá
sjón frá því fyrr í vetur, cg
tekur það bæði til sóknar og
varnarleiks. Enginn slapp veru-
lega vel frá leiknum, léku
undir meðallagi, meira að segja
Geir og Örn, sem yfirleitt
aldrei bregðast, hálf týndust.
FH á eftir að leika við Val áð-
ur en þeir leika við Fram sem
dregst nokkuð. Takist Val upp
mega FH-ingar vara sig ef
þeir sameinast ekki betur um
verkefnið en í þessum leik.
Vera má að þeir hafi vanmetið
Víkinga, fyrir leikinn en það
var þá enn ein veilan hjá
þessu annars reynda liði. Vík-
ingar hafa sýnt það undanfar-
ið að þeir kunna mikið fyrir
sér, og undir það átti FH að
búa .sig.
Gangur leiksins
Víkingar skoruðu fyrsta
markið, en FH-ingar jafna og
taka forustuna á 2:1 og var
það í eina skiptið í fyrri hálf-
leik sem þeir höfðu frumkvæði
í mörkum. Víkingar jafna og
komasteitt mark yfir og standa
leikar eftir 13 mínútur 5:2.
Litlu síðar varð staðan 6:3. Á
20. mín. er munurinn aðeins
1 mark 6:5, en Vikingar hafa
forskotið og standa leikar í
leikhléi 9:7.
í byrjun síðari hálfleiks lítur
svo út sem FH ætli. að taka
leikinn í sínar hendur er Birg-
ir skorar á fyrstu mín, og á
7. mín. höfðu þeir jafnað, 10:10.
Enn taka Víkingar forustu og
halda henm þar til á 18. mím
að FH tekst að jafna 13:13. Á
næsta augnabliki skaut Jón
Gunnlaugur H.jálmarsson. skor-
aði flest mnrk iregn Haukum
Hjáltaiin. vitakasii iangt fram-
hjá! Á 20. mín. tekst Geir að
skora og gefa FH forustu og
nú bjuggust allir við að enda-
spretturinn yrði FH megin, en
það var síður en svo. FH skor-
aði ekki fleiri mörk .en Víking-
ar bættu þrem við áður en
lauk. og lokatölurnar urðu eins
og fyrr segir 16:14, og voru
það sanngjörn úrslit í leiknum.
Þeir sem skdruðu fj'rir Vík-
ing voru: Jón Hjaltalín 7, Ein-
ar og Þórarinn 3 hvor, Gunnar
Gunnarsson. Guðmundur og
Rósmundur 1 hver.
Fyrir . FH skoruðu Geir 5,
Birgir 3, Jón Gestur og Páll' 2
hvor, og Ragnar 1.
Dómari var Sveinn Kristj-
ánsson og slapp sæmilega en
virtist taka strangar á brotum
varnarmanna en sóknarmanna.
Leikur Fram og Hauka
Eftir þessum leik var beðið
með mikilli eftirvæntingu. Sig-
urganga Hauka hafði á vissan
hátt gefið fyrirheit um það að
Fram ætti þar engan vissan
sigur. Ef frá eru skildar fyrstu
5 mínúturnar í fyrri hálfleik
leit út fyrir að allt gæti skeð
í síðari hálfleiknum, því Hauk-
ar höfðu unnið uþp 4:1 sem
Fram náði á fyrstu 5 mínútun-
um, og var það hressilega gert
af hinum ungu Hafnfirðingum.
Fram átti sem sagt í miklum
erfiðleikum með Hauka allan
fyrri hálfleikinn. Hraði þeirra
og viðbragðsflýtir samfara
góðri knattmeðferð gerði það
að verkum að ekkert mátti útaf
bera hjá Fram ef þetta aetti að
hafa góðan endi. í hálfleik
stóðu leikar 12:12.
Síðari hálfleikur átti eftir
að sýna að leikreynsla í afger-
andi leikjum er vikils virði fyr-
ir hvert handknattleikslið. og
ef til vill gerði það gáefumun-
inn í þessari viðureign. í síð-
ari hálfleik skorar Fram þrjú
mörk í röð eftir hlé o.g kom-
ust í 15:12. og það er ekki fyrr
en á 9. mínútu sem Haukar
skora fyrsta mark sitt. og um
miðjan hálfleikinn er staðan
orðin 19:15 Haukar náðu ekki
þeim hraða og sóknarákafa sem
þeir náðu í fyrri hálfléik, og
áttu erfitt með að finna smugur
í varnarvégg Fram sem nú
þétti vörnina sem mest mátti.
Var léikur Fram í þéssum hálf-
leik mun betri en í þeim fyrri,
og notuðu þeir sér af éftirgjöf
Hauka sem sýndu um of von-
leysi í leik sínum. og gerðu :
Fram auðveldara 'fyrir.
Er- ekki að éfa. að hin mikla
leikreynsla Fram kom þeim
að góðu haidi í þessum leik.
Eftirgjöf Hauka í síðari hálf-
leik má vafalaust kenna að
miklu leyti því hve ungir
Haukamenn eru og óvanir
leikjum þar sem mikið er í
húfi. það er eitt af náminu á
leiðinni á toppinn. í fyrri hálf-
leik léku Haukarnir mjög vel
og skemmtilega, og sýndu að
það er engin tilviljun sigur-
ganga þeirra að undanförnu,
og ef þetta lið heldur saman í
framtíðinni ætti það að geta
náð langt, en það þarf sína
reynslu i hörðum leikjum.
Þegar nær 20 mín voru liðn-
ar af síðari hálfleik var rtað-
en 19:16, én það lyfti ekki und-
ir Hauka, og á lokasprettinum
gáfu þeir aftur eftir og lauk-
Framhald á 8. síðu.
íþróttafélag stúdenta 40 ára
□ Um þessar mundir á íþróttafélag stúdenta fertugs-
afmæli og heldur það upp á þetta afmæli sitt með keppni
í ýmsum greinum. Fór hún fram í Íþróttahöllinní í gær-
kvöld og hófst kl. 8.15.
Meðgl stúdenta hafa alltaf
vérið snjallir íþróttamenn í
ýmsum greinum og margir
þeirra skrifað blað í íþróttasög-
una. Það var því ekkert und-
arlégt þótt þeir stofnuðu með
sér félag, en það gerðist 1927.
Tildrögin voru þau í stuttu
ikáli, að þetta haust (1927) lof-
áði Háskólaráð allt að 500,00
kr. styrk til þess að halda upp'i
æfingum í leikfimi fyrir há-
skólastúdenta. I félagi stúdenla
ffá 1925, hafði fyrir forgöngu
Guðmundar Karls Péturssonar
vérið kosin nefnd til að vekja
áhuga meðal stúdenta fyrir
fnáli þessu.
Æfingar ’ í íimleikum hófust
fyrst í nóvember 1927 í íþrótta-
sal Ménntaskólans undir stjóm
Bjöms Jakobssonar. Fyrsti for-
maður félagsins var Þorgrímur
Sigurðsson nú prestur á Staðar-
stað. Það er greinilegt að þeir
hafa sett markið hátt þegar i
byrjun, því aðeins tveim árum
síðar fer glímuflokkur stúd-
enta í glímuför til Þýzkalands
og þótti sú för takast vel og
vakti athygli. Þjálfari stúdent-
anna var Guðmundur Kr. Guð-
mundsson og fararstjóri var
Guðmundur Karl, nú læknir á
Akureyri. Eftir heimkomuna
héldu stúdentar giímtmni við,
en þó fór svo að árið 1932 lögð-
ust æfingar alveg niður.
Árið 1928 var Júlíus Magn-
ússon ráðinn til félagsins sem
íþróttakennari og var hann til
árslok 1931, en næsta ár er
Benedikt Jakobsson ráðinn' og
er þar enn. Má segja að með
komu Benedikts hafi færzt nýtt
líf i starfsemina og félagið, því
á næstu árum taka þeir að æfa
ýmsar greinar íþrótta og taka
þátt í keppni í þeim. Veturinn
1932 hófu stúdentar að æfa
handknattleik og hefur hann æ
síðan verið uppáhaldsíþrótt
þeirra. Árið 1938 stofnaði Sam-
bands bindindisfélaga í skólum
til keppni í handknattleik milli
skólanna og vann Háskólinn þá
keppni og hefur ætíð verið sig-
ursæll síðan. Þá tóku stúdentar
sameinaðir þátt í fyrsta Is-
landsmóti í handknattleik inni
og urðu í öðru sæti. Munaði
aðeins einu marki í úrslitum
við Val eftir mjög harða og
tvísýna keppni.
Á árunum 1934 — 38 æfðu
stúdentar hnefaleika og annað-
ist Þorsteinn Gíslason þá
kennslu. Þá stuðluðu stúdentar
að bringusundskeppni skólanna
1938 og 1940 fylgdi svo skrið-
sund og boðsund á eftir, sem
þeir stuðluðu einnig að.
Þá má geta þess að stúdent-
ar undirbjuggu fyrstu frjálsí-
þróttakeppni milli skóla vorið
1939 og fyrsta innanhúsmótið
1951.
Skíðaíþróttina hafa stúdent-
ar látið nokkuð til sín taka og
sum árin keppt við íþróttafé-
lög bæjarins.
Fimleika hafa stúdentar
stundað öll árin frá 1927, og
Framhald á 8. siðu.
Föstudagur 17. marz 1967 — ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA g
Þátttaka fslands
í Olympíuleikjum
Olympíunefnd Islands sam-
þykkti á fundi sínum 16. nö-
vember ’66 að Island yrði' þátt-
takandi í Vetrarolympíuleikj-
unum í Grenoble 1968. í fram-
haldi af bví réði Skíðasamband
íslands austurrískan þiálfara,
Herbert Mark, og hefur hann
undanfarnar vikur bjálfað
skíðamenn hér á vegum Skíða-
sambandsins. Þá hefur Jónas
Ásgeirsson bjálfað á vegum
þess í norrænum greinum.
Á sarrm fundi Olympíunefnd-
ar var samþykkt, að ísland taki
þátt í undankeppni í knatt-
spyrnu vegna Olympíuleikanna
í Mexfkó 1968.
SI. haust barst Olympíunefnd
Islands bréf frá Olymþíunefnd-
um hinna Norðurlandanna, þar
sem þær boðuðu til saméigin-
legs fundar í Stokkhólmi 14.
séptémber 1966. Ákváð néfndin
að taka þátt í bessum fundiog
var sámbvkkt að Gísli Hall-
dórsson, varáformaður Olymp-
íurtefhdar Islands, mætti sém
fulltrúi.
Á fundi þessum í Stokkhólmi
var rætt um athugun Svía á
áðstæðum íþróttamanna til
keppni í Mexíkó með sérstöku
tilliti til þess hve sú borg ligg-
ur hátt yfir sjávarmál. Þá var
rætt um ýmis önnur atriði er
snerta þátttöku Norðurland-
anna í Sumarolympíuleikunum.
Framhaldsfundur var síðan
haldinn í Osló 9. og 10. des-
ember 1966. Samþykkti olýmn-
funefnd fslands, að þar skyldi
einnig mæta sem fulltrúi henn-
ar Gísli Halldórsson, varafor-
maður Olympíunefndar Is-
lands.
1 samræmi við reglur Olymp-
íunefndar Islands, fá sérsam-
böndin fulltrúa í framkvæmda-
nefnd hennar, um leið og til-
kynnt er þátttaka í Olympíu-
leikjum í þeim íþróttagreinum,
sem þau éru sérsambönd fyrir.
Samkvæmt því hefur Skíða-
samband íslands tilnefnt Stef-
án Kristjánsson og Knatt-
spyrnusamband fslands Ragnar
Lárusson. til þess að taka sæti
f framkvæmdanefndinni.
Frá aðalfundi Þrottar:
Knattspyrnuvöllur Þröttur
verður tilbúinn nú íhaust
Aðalfundur Knattspyrnufé-
lagsins Þróttar var haldinn 19.
febrúar s.l. að Hótél Sögu.
Skýrsla fráfgrandi stjórnar
lá fjölrituð frarnmi fyrir fund-
armönnum, ásamt reikningum
félagsins.
Að loknum nokkrum umraéð-
um var skýrslan og reikning-
arnir samþykkt athugasémda-
laust.
í skýrslunni kom fram m.a.:
Félagssvæðið:
Eitt af höfuðvandamálum fé-
lagsins gégnum árin hefur ver-
ið það, að félagið hefur ékkert
félagssvæði átt, en nú er að
rofa til í þessum málum og
hefur félagið látið hefja fram-
kvæmdir við gerð malarvallar
á hinu nýja félagssvæði sínú
við Njörvasund og mun völl-
urinn væntanlega verða tilbú-
inn til notkunar í sumar. Einn-
ig hefur verið unnið að ínn-
réttingu á búningsherbergjum,
sem einnig munu verða tilbúin#
í sumar. Félagið lítur nú bjart-
ari augum til framtíðarinnar
með tilkomu þessa bráða-
birgða félagssvæðis, en hærra
skal stefnt og unnið verður öt-
ullega að því að upp rísi í-
þróttasvæði og glæsilegt fé-
lagsheimili. í sambandi við fé-
lagssvæðið var á sínum tíma
stofnaður félagssvæðissjóður
og hafa honum borizt margar
góðar gjafir; t. d. gaf héildv.
Hoffell í Reykjavík kr. €0.000
í þennan sjóð nú nýlega.
Knattspyrna:
Meistaraflokkur félagsins
vann á s.l. ári í fyrsta skipti
Reykjavíkurmeistaratitilinn í
knattspyrnu, en í 1. deildar-
keppninni gekk þvi miður ekki
vel og féll liðið niður í 2. deild.
Þjálfari meistara- og 1. flokks
var Örn Steinsen, þjálfari 2.
flokks Sölvi Óskarsson,' þjálf-
ari 3. flokks Gísli Benjamíns-
son og þjálfarar 4. og 5. flokks
voru þeir Jón Baldsinsson og
Magnús Kristófersson. For-
maður knattspyrnudeildar var
Steinþór Ingvarsson.
Handknattleikur:
Félagið stóð í fyrsta sinn
fyrir erlendri handknattleiks-
heimsókn í nóvember s.l., en
þá kom hingað þýzka liðið
Krefeld Oppum og lék hér
þrjá leiki og var það almennt
álitið að þessi fyrsta erlenda
handknattleiksheimsókn hefði
tekizt vel. Núverandi þjálfarar
í handknattleik eru: Fyrir
meistara-, 1.- og 2. flokk Hilm-
ar Ólafsson og fyrir 3. flokk
þeir Helgi Þorvaldsson og
Erling Sigurðsson. Formaður
handknattleiksdeildar var
Haukur Þorvraldsson og aðrir
í stjórn Axel Axelsson og Er-
Iing Sigurðsson.
Framkvæmdastjóri:
Á árinu var í fyrsta skipti
í sögu félagsins ráðinn fram-
kvæmdastjóri og tók Sölvi Ósk-
arsson starfið að sér og væntir
félagið sér mikils af starfi hans
og þó sérstakléga við uppbygg-
ingu á hinu nýia félagssvæði.
Heiðranir:
„ Á fundinum voru Guttormur
Ólafsson og Kjartan Kjartans-
son heiðraðir, Guttormur fyrir
að hafa leikið með landsliði á
árinu, Kjartan fyrir að hafa
leikið með öllum flokkum fé-
lagsins, einnig fengu nokkrir
piltar úr 4. og 5. fl. viðurkenn-
ingu fyrir ástundun við æfing-
ar.
Stjórnarkjör:
Eftirtaldir menn voru kosnir
í stjórn fyrir næsta ár: Form.
Guðjón Sv. Sigurðsson, form.
knattspyrnudeíldar Haraldur
Snorrason. form. handknatt-
leiksd. Eysteinn Guðmundsson,
meðstjórnendur: Óskar Péturs-
son, Guðjón Oddsson, Börge
Jónsson., Jón M. Björgvinsson,
Steinþór Inavarsson og Helgi
Tr>nT*rr)^SSr