Þjóðviljinn - 17.03.1967, Blaðsíða 12
FormaSur
sœnskra
kommúnlsfa
á hlaSa-
mannfundi
i gœr
Hermansson (fyrir miðju) ásamt fulltrúum Félags róttækra stúdenta og blaðamönnum. -
(Ljósm. Þjöðv. Ari Kárason).
□ C. H. Hermansson, formaður Kommún-
istaflokks Svíþjóðar, kom hingað í fyrradag í
boði Félags róttækra stúdenta. Hann talar í
kvöld á hringborðsfundi í Lindarbæ um nýtt
skipulagsform sósíalistískra flokka og á sunnu-
daginn talar hann um leiðir vinstri hreyfing-
ar á Norðurlöndum á almennum fundi í Lídó.
t gær spurðu blaðamenn Hermansson margs
um þá stefnu flokks hans sem hefur dugað
honum til verulegrar fylgisaukningar á uncj-
anförnum árum.
Stefna okkar er sósíalistísk end-
urnýjun verklýðshreyfíngarinnar
og alþjóðahyggja hefur aldrei verið brýnni en nú
Það eru ýmsar ástæður fyrir því, s&gði Hermansson, að ég
er gJaður yfir því að fá tækifæri til að heimsækja fsland.
Hér eru á dagskrá ýmisleg sérstæð vandamál, menningarleg
og pólitísk, sem fengur er að kynna sér- Þá hefur flokkur
okkar mikinn áhuga á aukinni samvjnnu Norðurlandaþjóða
Óg ég tel að vinstrisósíalistar geti haft áhrif á þessa sam-
vinnu — og hafa þeir .reyndar þegar hafizt handa á þessu
sviði með ráðstefnum um sameiginleg áhugamál.
Hermannsson sagði það hinsvegar misskilning, sem hefði
flogið fyrir hér í blöðum, að hann væri hingaö kominn sem
nokíkurs konar sáttasemjari vinstri manna — auðvitað leystu
þeir sín mál sjálfir. En reyndar findist sér að ýmsar hlið-
stæður mætti finna milli umræðna sem nú fara fram hér og
í Svfþjóð á vinstra armi stjómmála, sem fróðlegt væri að
kynna sér.
★ j
Hermannsson fórust á þessa leið orð um þær breytingar sem
hafa orðið á stöðu og starfsemi sænska kommúnistaflokks-
ins á undanfömum árum:
Við tejjum að flokkurinn hafi áður verið of „þröngur", haft
i Of ríkum mæli yfirbragð sértrúarflokks nokkurskonar. Við
höfum reynt að gera hann breiðari, benda á raunhæf úrræði
í sósíalistískum anda á þeim vandamálum sem við blasa í
sænskum stjómmálum í dag. Við höfum og reynt að berjast
fyrir því viðhorfi að sænsk verklýðshreyfing í heild þurfi á
sósíalistískri endumýjun að halda, þar eð sósíaldemókratar
hafa staðnað í svonefndu blönduðu hagkerfi, sem stórauð-
valdið hefur tögl og hagldir i. Við höfum bent á að brýn
vandamál eins og lýðræði í atvinnulífi, jafnari hagþróun ein-
stakra héraða og húsnæðismál verði ekki leyst nema með
að brjóta niður það valdakerfi sem nú er.
Ég tel að þessi stefna sé í fullu samræmi við pólitíska þró-
un í Svíþjóð — og reyndar hefur flokki okkar tekizt að tvö-
falda fylgi sitt í síðustu tvennum kosmingum. Og flokkurinn
hefur áreiðanlega mikla möguleika á að styrkja aðstöðu sina
mikið enn — við höfum nú um hríð safnað nýjum meðlim-
um og þá tekið upp aukaaðild, en til aukameðlima eru. ekki
gerðar sömu kröfur til flokksstarfs ög annarra- Þannig höf-
um við fengið 6—7 þúsund nýja meðlimi og það er ánægju-
legt hve mikið er þar af ungu fólki- Meirihluti flokksmanna
er sammála um þá stefnu að „breikka“ flokkirm, en það eru
líka til hópar sem eru þvf andsnúnir.
Hermansson var spurður um afstöðu flokks hans til er-
lendra pólitísfcm flokka svo og um það hvort hann hefði
látið alþjóðahyggjuna fyrir róða.
Áöur fyrr sagði Hermaneson höfðum við nær einungis
samband við aðra kommúnistaflokka en nú leitum við eftir
víðtækari samskiptum — ekki aðeins við aðra verkamanna-
flokka, heldur og við flokka sem eru fulltrúar þjóðfrelsis-
hreyfinga í fátækum löndum. Ég tel að alþjóðahyggja hafi
aldrei skipt eins miklu' máli og nú, en það væri of þröng-
sýnt viðhorf að miða hana við samheldni kommúnistaflokka
'eiima. Á okkar dögum reynir fyrst og fremst á alþjóðahyggju
í sambandi við afstöðuna til hinna fátækari ' þjóða hei'msins.
Við gagnrýnum ekki hlutleysisstefnu sænsku sósíaldemókrata-
stjórnarinnar í utauríkismálum, en tilraunir okkar til að
hafa áhrif á utanríkisstefnuna miða fyrst og fremst að því
að Svíþjóð beiti sér meir í Vietnam, í andstöðu við stjórnir
Suður-Afríku, Portúgals og þeirra líka. ,
Spuming: hvað álítið þér um þróun mála í Kína og deilur
sovézkra og kínverskra kommúnistai?
Menn hafa, sagði Hermannsson, fengið mikið af hæpnum
upplýsingum um Kína, en vitanlega verða menn að reyna
að gera sér grein fyrir jákvæðum og neikvæðum hliðum þeirr-
ar þróunar ástríðulaust. Ég tel það neikvætt hve mjög ofsa-
fengin þjóðemisstefna hefur sett svip sinn á þróunina í Kína,
en jákvætt hinsvegar að þar virðist gerð tilraun til að steypa
ofurvaldi skriffinnsku og embætti'smannákerfi. Ég sé ekki að
sænskir kommúnistar hafi neina ástæðu til að taka afstöðu
til deilu soyézkra og kínverskra — sá skoðanaágreiningur á
sér eðlilegar forsendur en víst er það leitt, að hann skuli
koma fram á svt> ofsafenginn hátt og raun 'ber vitni. En vist
em viðhorf okkur til ýmissa atriða, eins og t.d. möguleika á
að varðveita frið og koma á sósíalisma með friðs'&mlegum
hætti meir í ætt við þær hugmyndir sem þróast hafa í Sov-
étríkjunum að undanfömu.
Er spurt,var um afstöðu sænskra kommúnista til þjóðnýt-
ingar svaraði Hermansson á þá leið, að flokkur sinn
hefði þá stefnu að öll stærri fyrirtæki væm í almennings-
eign — og væri þá ekki endilega átt við að þau væm í ríkis-
eign heldur og í eign bæjarfélaga, samvinnufélaga eða starfs-
fólks á hverjum stað, eftir þvl sem bezt hentaði. Þær þjóð-
nýtingarkröfur sem nú væm settar á oddinn lytu að þjóð-
nýtingu olíufélaga, lyfjaiðnaðar og stórra tryggingafélaga í
einkaeign. En f dag væri það enn brýnna en þjóðnýting í
hvaða mæli ríkið stjórnaði fjárfestingu í landinu — teldu
kómmúnistar að einkahagsmunir ættu ekki að ráða meiri-
háttar fjárfestingu heldur þarfir samfélagsins.
Hermansson sagði að allir flokkar Svíþjóðar nema hægri
menn hefðu stutt ríkisstyrk til stjómmálaflökka og þing-
flokka og talið hann auðvelda flokkunum að vinna að málum
á raunhæfan hátt. Enn væri ekki útkljáð um það, hvort tekinn
yrði upp einnig beinn styrkur til dagblaða. Hann taldi að
sænska sjónvarpið hefði jákvæð áhrif í þá átt að,- efla áhuga
almenniitgs á pólitik og hefði flokkur sinn ekki hvað sízt
notið góðs af því, þar eð hann stæði höllum fæti að' því er
blaðakost varðar. .
Nýtt blað am hús oghúsbúnað hefur göngu
Þjóðviljanum hefur borizt nýtt
blað sem er að hef ja göngu sína.
Nefnist þaö Hús & Búnaður og
fjallar eins og nafnið bendir til
einkum um húsbúnað, innrétt-
ingar húsa og, fleira er að því
efni lýtur. Ctgefandi og ábyrgð-
armaöur er Ragnar Ágústsson og
hyggst hann gefa blaðið út 11
sinnum á ári. Er hvert blað 8
síður i sama sniði og Eldhúsbók-
in sem margir munu kannast við.
Áskriftarverð er kr. 300.00 á ári
en í Iausasölu kostar hvert blaj*
kr. 35.00. Blaðið er myndskreytt
og Iitprentað.
Útgefandi fylgir blaðinu úr
hlaði mcð eftirfarandi orðum:
„Þessu blaði, sem nú hefur
göngu sína, er fyrst og frémst
ætlað að gegna tvöþættu hlut-
verki. Það á að vera upplýsinga-
blað um byggingar, húsbúnað og
heimilis- og ferðatæki, sem til
eru á markaðnum eða nýjungar
á því sviði. En það á einnig að
veita almenningi fræðslu um
híbýlaprýði og gerð þess búnað-
ar sem á markaðnum er hverju
srnni. í framtíðinni er því ætlun-
Framhald á 8. síðu.
Föstudagur 17. marz 1967 — 32. árgangur — 64. tölúblað.
Jazzklúbbur Rvík-
hefur starf á ný
— gefur út tímaritið Jazzmál
□ Nýuega var Jazzklúbb-
ur Reykjavíkur endurreist-
ur en starfsemi hans hafði
legið niðri um tíma. Var
haldinn fundur í klúbbnum
á sunnudaginn og þá kosin
ný stjórn.NÞann sama dag
kom út fyrsta tölublað af
ritinu Jazzmál, sem á að
koma út ársfjórðungslega.
í formála ritsins segir Vern-
harður Linnet, sem er ritstjóri
blaðsins m.a.: Fyrst var gefið
hér út jazztímarit 1947, nefnd-
ist það Jazz og var Tage Am-
endrup ritstjóri þess. Það kom
út í ár. alls 7 tölublöð. 1948
hófu svo þeir Svavar Gests og
Hallur Símonarson útgáfu nýs
tímarits, Jazzblaðsins. Svavar
ritstýrði blaðinu allt til síðasta
tölúblaðs er kom út 1952. Jazz-
mál er því 3ja jazztímaritið og
það er á valdi íslenzkra jazz-
elskara hve langlíft það verður.
Til að útgáfa verði trygg þurfa
um 1500 eintök að seljast,' en
vart skal trúað að óreyndu, að
eigi séu það margir jazzunnend-
ur á íslandi sem kaupa blaðið.
Blaðið mun koma út ársfjórð-
ungslega. Efnið mun að mestu
verða frumsamið af íslenzkuii)
höfundum, einnig munu þekktir
erlendir jazzgagnrýnendur
fengnir til að skrifa grein og
grein fyrir blaðið. Einnig verða
þýddar greinar úr erlendum
jazztímaritum, þær er merkar
þykja.“
Hin nýja stjórn Jazzklúbbsins
er þannig skipuð: formaður er
Þráinn Kristjánsson. varafor
maður Vernharður Linnet, ritari
Árni Scheving, gjaldkeri Reynir
Sigurðsson og meðstjómandi
Pétur Östlund.
Verða væntanlega sessjónir á
vegum klúbbsins á hverjum
sunnudegi framvegis og er ráð-
gert að fá hingað erlenda jazz
leikara í heimsókn þegar tæki-
færi gefast, en aðalkraftarnir
verða eðlilega innlendir.
Listi Framsóknár-
manna í Rvík
Tíminn birti í gær framboðs-
lista Framsóknarflokksins í
Reykjavík við Alþingiskosning-
arnar í vor og hefur Fram-
sóknarflokkurinn þá birt fram-
boðslista sína í öllum kjördæm-
um.
Sex efstu sæti listans eru
þannig skipuð: 1. Þórarinn Þór-
arinsson alþingismaður, 2. Einar
Ágústsson alþingismaður, 3.
Kristján Thorlacius formaður
BSRB, Tómas Karlsson rit-
stjórnarfulltrúi, 5. Sigríður
Thorlaeius húsfreyja og 6. Jón
Abraham Ólafsson sakadómari.
Þær breytingar hafa orðið á
skipun þessara sex efstu sæta
listans frá síðustu alþingiskosn-
ingúm, að Tómas Karlsson tek-
ur nú sæti Kristjáns Benedikts-
sonar borgarfulltrúa og Jón
Abraham kefnur í stað Jónasar
Guðmundssonar stýrimanns.
Félagsdómur
gega póstmönnum
Félagsdómur kvað í gær upp
dóm í deilu þeirri sem reis í
des. sl. út af yfirvinnuskyldu
póstmanna, en þá neituðu póst-
menn að vinna meir en henni
nam (5 st. á viku) til að herða
á kröfum um kjarabætur. Var
ákvæðið um 5 tíma skylduna
dæmt ógilt og póstmenn taldir
hafa sömu vinnuskyldu og op-
inberir starfsmenn. — Póstmenn
munu telja þennan dóm mjög
ranglátan.
Samþykkt bæjarstjornar Hafnarfjarðar:
EKKI VERÐI VEITT VIN I
SAMKVÆMUM BÆJARINS
Á fundi,bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar í fyrradag var gerð sam-
þykkt um að ekki verði veitt
áfengi í samkvæmum bæjar-
stjórnar og b'æjarstofnana. Telur
bæjarstjórnin að það sé árang-
ursríkur þáttur í baráttu gegn
áfengisbölinu, að opinberir aðil-
ar veiti ekki áfengi í samkvæm-
um sínum, og að forysta af hálfu
bæjaryfirvalda í því efni geti
stuðlað að minnkandi áfengis-
neyzhi í bænum.
Samþykkt þessi cr gerð vegna
áskorunar frá Landssambandi
gegn áfengisbölinu, en sams kon-
ar áskorun var send öllum bæj-
Jónas Rafnar ráð-
inn bankastjóri
Útvegsbankans
Á fundi bankaráðs Útvegs-
banka íslands 16. þ.m. var Jónas
G. Rafnar ráðinn bankístjóri
Útvegsbanka íslands í stað Jó-
hanns Hafsteins, sem hefur nú
sagt starfinu lausu. Jónas G.
Rafnar hefur tvívegis verið sett-
ur bankastjóri Útvegsbanka ís-
lands í forföllum Jóhanns Haf-
steins.
arstjórnum á landinu. Sam-
kvæmt upplýsingum frá forystu-
mönnum þessara samta1: mun
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar vera
fyrsta bæjarstjórnin, sem gerir
formlega samþykkt um að verða
við þessari áskorun frá Lands-
sambandi gegn áfengisbölinu.
BlaÖskák TR:TA
SVART: TA:
Jón Björgvinsson
Þorgeir Steingrímsson.
abcdef gh
i ’ 4 * i ’ ö?
tm m mvm
P i7S 4 vt
/t m ■ m ái i m
abcdef gh
HVÍTT: TR:
Arinbjörn Guðmundsson
Guðjón Jóhannsson
15. hxgS