Þjóðviljinn - 22.03.1967, Side 1

Þjóðviljinn - 22.03.1967, Side 1
Miðvikudagur 22. marz 1967 — 32. árgangur — 68. tölublað. Leikfimikennsla er algeriega vanrœkf hér n 37% nemenda í barna- og gagnfræða- skólum í Reykjavík njóta engrar eða ónógr- ar leikfimi'kennslu vegna þess að ekki er húsnæði fyrir hendi, og ástandið í þessum efnum er sízt betra hér í nágrenni; í Kópa- vogi, Garðahreppi og Hafnarfirði. Fjarri fer því að skólabörn njóti lögboðinnar kennslu í leikfimi, en hún skal vera 3 klst. á viku hjá 11 ára börnum og eldri og tvær stundir hjá yngri börnum. □ Leikfimikennsla skólabarna er því al- gerlega vanrækt hér á landi, þótt viður- kennt sé að kerfisbundin leikfimikennsla sé nauðsynleg heilbrigði barna og unglinga og ekkert getur komið í þess stað. □ Þ'essar staðreyndir komu fram hjá íþróttafulltrúa ríkisins, Þorsteini Einars- syni, á fundi með fréttamönnum í gær, þar sem rætt var um þríþraut FRÍ og Æskunn- ar og sagt er frá á íþróttasíðu blaðsins í dag. Frumvarp Gils Guðmundssonar og Björns Jónssonar um togarakaup ríkisins rætt á Aiþingi Togaraútgerð á að verða gildur atvinnulífi hér á landi Skotlands? Hinn 17. marz sl. birtist i Dagbladet í Noregi eftirfar- andi frétt: Sovézka skáksam- bandið gengst fyrir skákmóti dagana 20. maí til 16. júní í tilefni 50 ára afmælis októ- berbyltingarinnar 1917. 18 stórmeisturum er boðið til mótsins og þegar hafa eftir- taldir þeirra ákveðið þátttöku i mótinu: Petrosjan, Smysloff og Tal frá Sovétríkjunum, Fischer (Bandar.), Larsen Danm.), Ólafsson (íslandi), Najdorf (Argent.), Uhlmann (A-Þýzkal.), Portisch (Ungv.), Pachman (Tékkósl.), Bobot- zoff (Búlg.)), Unzicker (V- Þýzkal), Georghiu (Rúm.), og fimm stórmeistarar til við- bótar. — Verðlaun í mót- inu eru frá 1000 rúblum og niður í 200“ Þjóðviljinn bar þessa frétt undir Friðrik Ólafsson stór- meistara, og sagðist hann ekki hafa fengið boð um þátttöku í mótinu, enda mundi hann ekki geta tekið því þótt það baerist, þar sem hann væri á síðasta ári í lögfræðinámi sínu og gæti ekki fórnað tíma í svo lang^ og strangt mót. Hann hefði hins vegar feng- ið boð um þátttöku í skák- móti í Ungverjalandi en færi þangað ekki heldur. Helzt væri hann að hugsa um að taka boði um þátttöku í skák- móti í Skotlandi í júlí-mán- uði, það væri stutt mót og stutt að fara og gæti verið ems konar sumarfrí. Kepp- endur þar hafði hann heyrt nefnda þá Botvinnik, Keres, Gligoric og Zabo, en kepp- éndur yrðu þar 10—12 tals- ins. Ég vil leggja á það á- herzlu að hér er um stór- mál að ræða sem ekki þolir neina bið. Við höí- um raunar beðið of lengi að hefjast handa um þessa endurnýjun togara- flotans okkar til skaða og vanza, sagði Gils Guð- mundsson á Alþingi í gær er hann lauk ítar- legri framsöguræðu fyr- ir frumvarpi sínu og Björns Jónssonar um tog- arakaup ríkisins. „Áhugi framsækinna útgerðarmanna og skip- stjóra er þegar fyrir hendi. Til eru beir aðilar sem þegar vilja glíma við að leysa þennan vanda, svo framarlega sem þeim verður gert það fjárhags- lega kleift. Alþingi og ríkisstjórn á að koma til móts við bessa aðila. Ao því ber að stefna að tog- araútgerð geti á ný orðið gildur þáttur í íslenzku atvinnulífi”. Gils rafeti í ræðu sinni hvern- ig togaraútgerð hefði hnignað í tíð „viðreisnarstjórnarinnar.“ Hann vitnaði í umsagnir hinna færustu skipstjóra um gildi tog- araútgerðar og möguleika, og um nauðsyn á endurnýjun flc+- ans með nýtízku skipum. Frumvarp okkar gerir ráð fyr- ir því að keyptir verði til reynslu skuttogarar af a.m.k. tveim stærðum, sagði Gils m.a. Ef til vill ættu stærðir og gerð- ir þessará nýju tilraunaskipa að vera fleiri, til þess að sem fyrst fáist æskilegur samanburður er miðast við íslenzkar aðstæður. En á slíku tilraunastarfi verð- um við að byggja frekari end- urnýjun togaraflotans. * Rikið annist skipakaupin í frumvarpinu er gert ráð fyr- ir því að 'ríkið hafi með hönd- um skipakaupin og útvegun nauðsynlegs lánsfjár, á svipað- an hátt og gert var við kaup á nýsköpuhartogurunum svo- nefndu eftir síðustu heimsstyrj- öld. Jafnframt yrði bæjarútgerð- um og áhugasömum einstakling- um gert kleift að eignast þessi skip, og er ekkert því til fyrir- stöðu að væntanlegir kaupendur hafi áhrif á gerð og stærð skip- anna, eftir þvi sem hverjum þykir henta og telur vænlegast ail árangurs. Þar eð fiér verður í upphafi um tilraunastarfsemi að ræða sem á að geta orðið þýðingar- Framhald á 9. síðu. 1967 Aldarafmæli Borgarness ■ I dag eru liðin 100 ár frá því Borgarnes hlaut verzl- unarstaðarréttindi og er þess minnzt með hátíðahöldum í Borgarnesi í dag eins og áður hefur verið skýrt frá hér í blaðinu. Verður m.a. haldinn hátíðafundur í hreþpsnefnd- inni, síðan hefur hreppsnefndin gestamóttöku í tilefni dags- ins, opnuð verður sögusýning og í kvöld verður skemmt- un með fjölbreyttum dagskráratriðum. Verður nánar sagt frá hátíðahöldunum hér í blaðinu á morgun. Þá hefur Jón Helgason ritstjóri samið sögu Borgarness og á hún að koma út í dag í bókarformi. — Myndin fcr af merki sem gert var í tilefni af afmælinu. I Nýjasta styrkjakerfi rfkisstjórnarinnar? Uppbætur á rafmagnsverð! Bæjarstjórn Hafnarfjarðar leitar efíir því við ríkisst|órnina að hækkun raf- magnsverðs verði bætt úr ríkissjóði vegna verðstöðvunarinnar Um síðustu áramót hækkaði rafmagnsverð til þeirra sem kaupa rafmagn af Landsvirkj- un, en stjórn Landsvirkjunar samþykkti þessa hækkun me,ð sérstakri heimild ríkisstjórn- arinnar þar sem lög um verðstöðvun eru I gildi. Raf- veitunum er aftur á móti ó- heimilt að hækka verð til al- Bílum hér á landi f jölgahi um heíming á einum áratug □ Samkvæmt nýútkominni bilreiðaskýrsloi frá Vega- málaskrifstofunni var tala bifreiða á ölTu landinu 39278 og tala bifhjóla á sama tíma 309, þannig að bifreiðar og bif- hjól voru samtals 39587 talsins. Fólksbifreiðar með sæti fyrir allt að 8 farþega voru 32515, stærri fólksbifreiðir 466, vörubifreiðir alls 6297. Reykjavík var bílaflesta um- dæmi landsins eins og nærri má geta með 17105 bíla og bifhjól Næst í röðinni er Gullbringu- og Kjósarsýsla með 3790, næst er svo Akureyri og Eyjafjarðar- sýsla með 2597, þá Ámessýsla með 1873, Kópavogur með 1793, Þingeyjarsýsla með 1271 og Suð- ur-Múlasýda með 1042 bíla og bifhjól. Af fólksbílum eru 138 tegund- ir í landinu. Ford er í fyrsta sæti með 3908, Volkswagen í öðru sæti með 3849, Moskwitch í fjórða með 2867, Willys jepp- ar eru 2604, Skóda 2046, Opel 1981, Landrover 1934, Chevrolet 1545, Volvo 1034 og Mercedes Beriz 1022. Af vörubílum er mest af Ford, eða 1261 og Chevrolet 1069. Af hinum einstöku árgerðum eru flestir frá 1966, eða 5654, þá 1963 með 4069, 1965 með 3680 og 1964 með 3505 bíla. Enn eru í gangi 1832 bílar frá árimi 1946 og elztu bílamir á skrá erti frá 1927, 1 bíll, 1926 2 bílar og 1923 1 bíll. Saankvæmt skýrslunni hefur bílaeign landsmanna 'rúmlega tvöfaldazt á 10 árum. Var 18123 bílar árið 1957. en 39587 í árs- lok 1966. mennra notenda, og getur þvi svo farið að ríkisstjórnin verði aó taka upp nýtt uppbótakerfi enda hefur komið fram um það áskorun frá flokksbræðr- um ráðherranna i Bæjar- stjóm Hafnarfjarðar. Það var eitt mcginstefmimið „viðreisnarstjórnarinnar,, að afnoma allt styrkja- og upp- bótakerfi, en hún hefur orðið að éta þessi Ioforð öll ofan í sig og hefur styrkjakerfið aldrei blómgazt betur en nú. Kæmi því engum á óvart þótt rík- Isstjómin endaði sinn feril í þessmn efnum með þvi að taka upp uppbætur á raf- magnsverð og koma upp styrkjakerfi (il rafveitna. Sem kunnugt cr selur Lands- virkjun fjórum aðilum raf- magn: Áburðarverksmiðjunni, Rafmagnsveitu Reykjavíkur, Rafveitu Hafnarfjarðar og Rafveitum ríkisins, sem end- urseljasvo rafmagnið til ým- issa aðila. Stjórn Landsvirkj- unar ákvað sl. haust að hækka aflverðið á rafmagní úr 850 — 860 kr. KW. og mun hækk- ttn þessi gerð vegna fram- kvæmdanna við Búrfell. Þrír þeirra aðila sem kaupa raf- magnið af landsvirkjun eiga óbeint í virkjuninni og gætu því tekið á sig byrðar tri að byggja þá stofnun npp. ★ Gagnvart Kalveitu Hafnar- fjarffar er hér hins vegar um að ræða hreina útgjaldaaukn- ingu, því að miðað við notk- un sem er á svæði rafveitunn- ar hækkar kílóvattstundin úr 8 aurum í 10,75 aura, og er það 12,40/n hækkun. Þyrfti rafveitan því að taka á sig vegna þessarar hækkunar um 900 þús. kr. kostnað á ári, ef ekkert kemur í staðinn. Ljóst er aff þessi kostnaður kemur niður á notendum rafmagns- ins fyrr eða síðar og sam- þykkti rafveitunefnd því á fundi sínum, hinn 6. marz sl. að hækka verð á rafmagnitil notenda. ★ Er málið koni fyrir bæjar- stjóm, þar sem Sjálfstæðis- menn eru mestu ráðandi, var hins vegar samþykkt eftirfar- andi: „Bæjarstjórn telur eigi rétt, að svo stöddu, að sam- býkkja hækkun rafmagns- verðs til notenda áf framan- greindum ástæðum, en sam- þykkir aff fela bæjarstjóra að leita eftir því við ríkisstjórn- ina að Rafveitu Hafnarfjarðar verði bætt úr ríkissjóði út- gjaldaaukning sú, er hér um ræðir“. ★ Ástæða er til að ætla að Bæj- arstjóm Hafnarfjarðar gcri ekki slíka samþykkt algerlega Framhald á 9. síðu. >■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■! Æ.F. Æ.F. KÓPAVOGUR HAFNARFJÖRÐUR REYKJAVÍK Viðreisnarfagnaður er í kvöld og hefst kl. 9 í Félagsheimilinu í Kópavogi v/Neðstutröð. SIGURÐUR RÚNAR leikur á fiðlu og fleiri hljóðfæri. FJÖLMENNIÐ.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.