Þjóðviljinn - 22.03.1967, Side 3

Þjóðviljinn - 22.03.1967, Side 3
Miðvikudagur 22. marz 1967 — ÞJÓÐVTLJINN — SÍÐA J f----------------------------r------------- Fréttaritari ,L'Expressy: Búast má við borgarastríði á næsta leiti í Indónesíu — Nú viðurkenna allir, að heita má, segir hann, að kommúnistar hafi ekki átt upptök að uppreisninni PARÍS — Fréttaritari franska vikublaðsins „L’Express“, Jean-Francois Kahn, sem að undanförnu hefur ferðazt um lönd Suðaustur-Asíu, skrifar frá I5jakarta, að búast megi við borgarastríði í Indónesíu á næsta leiti. fíann segir að nú viðurkenni allir að heita má að kommúnistar hafi hvergi komið nærri þegar uppreisnin var gerð haustið 1965, en hana notuðu herforingjarnir sem skálkaskjól þegar þeir gengu milli bols og höfuðs á kommúnistum og flokki þeirra. Hermennska ,bandamanna okkar'í Vietnam Mynöin hér að ofan er tekin úr vikublaðinu „Der Stern“ sem gefið er út í Hamborg og er út- breiddasta vikublað í Vestur-Þýzkalandi. í skýringartexta með myndinni segir „Stern“ að þessir kampakátu hermenn sem halda á afskornum höfðum af „vietcong-föngum“ séu í „einni úrvals- sveit Kys hershöfðingja, forsætisráðherra stjórnar Suður-Vietnams. Þeir eru bandamenn Banda- rikjanna og því einnig bandamenn okkar“. Blaðið segir að myndin sé tekin í þorpinu Pa Keien. Ú Þant gerír enn eina tilraun tíi að nsiðia máium í Vietnam Orðsendingar hafa farið á milli forsetanna Johnsons og Ho Chi Minhs um viðraeður - Birtar í Hanoi ígær HANOI, SAIGON og WASHINGTON 21/3 — í dag var það haft eftir áreiðanlegum heimildum í Saigon að Ú Þant, framkvæmdastjóri SÞ, hefði sent stjórnunum í Saigon og Hanoi nýjar tillögur í þeirri von að þær gætu leitt til vopna- hlés og samningaviðræðna. Samtímis voru birt í Hanoi bréf sem þeim forsetunum Johnson og Ho Chi Minh hafa farið á milli. Kahn segir að ástæðan fyrir því að herforingjarnir sem hafa öll ráð Súkarnos í höndum sér hafa kosið að taka hann vett- lingatökum sé sú að þeir viti að landið sé á barmi borgara- stríðs og að íniljónir Indónesa telji Súkarno dýrling og ást- mög þjóðarinnar. Þeir geri sér vel ljóst hvað gerast muni ef bræðravíg hefjist meðal hundr- að miljóna Indónesa. Stríðið í Vietnam myndi verða bamaleik- ur hjá því. Hann segir að herforingjamir hafi að vísu völdin i sínum höndum. Hins vegar hafi fram- koma þeirra verið slík, fégræðgi þeirra og harðneskja við almúg- an, að þeir hafi engan bakhjarl meðal alþýðu manna. Hersveit- imar á Mið-Jövu séu þeim ó- þægar, landgöngulið flotans og lögreglan séu holl hinum afsetta forseta, flugherinn sé á báðum Snjófíóð í V-Evrópu OSLÓ 21 3 — Snjóflóð urðu víða í Vestur-Evrópu í dag og ollu slysum. Tveir sænskir ferðamenn fórust þegar snjó- flóð féll á þá á Rundhögda, fyr- ir norðaustan Engerdal. Einn maður va'rð undir snjóflóði og beið bana skammt frá ferða- mannahóteli við Abisko í Norð- ur-Svíþjóð. Tveir menn létu líf- ið þegar snjóflóð féll á hús í fjallaþorpi einu í Sviss og á öðr- um stað grófust níu manns und- ir snjóflóði og var ekki vitað hvernig þeim reiddj af. Sprenging varð í „TorreyCanyon“ LAND’S END 21/3 — Gífurleg sprenging varð í dag í vélar- rúmi olíuflutningaskipsins „Tor- rey Canýon“ sem strandaði á skeri rétt undan suðvesturströnd Englands á laugardaginn. Skipið klofnaði næstum í tvennt við sprenginguna. Fjórir menn af áhöfn skipsins og nokkrir björg- unarsveitarmenn sem voru um borð meiddust og einn þeirra svo mikið að hann lézt skömmu síðar. Skipið er 61.000 lestir og' var fu'llfermt með 120.000 lestir af olíu. Unnið hefur verið að því af kappi að koma í veg fyrir að hin mikla olíubrák frá skipinu berist upp í fjörur. áttum. Ef „Bung“ Kamo væri beittur hörku, myndi herim klofna í tvennt. Hann lýsir agaleysinu í hern- um. Hermenn fari sínu fram, þeir hafi vanizt við það eftir uppreisnina 1965 þegar 700.000 manfls voru myrt undir yfirskyni baráttunnar gegn kommúnisman- um. Enginn sé óhultur fyrir of- ríki þessa hermannalýðs, þeir taki hús á mönnum, slái eign sinni á það sem þeim lízt’ á. Grein Kahns er reyndar kölluð: „Indónesía: Hermenn að degi til. Stigamenn á nótt,inni“ Uppreisnin 1965. „Þetta ofríki kom í kjölfar þess sem enn er opinberlega kallað „uppreisn kommúnista'*. Reyndar er það nú viðurkennt af öllum að heita má að Komm- únistaflokkur Indónesíu kom þar hvergi nærri“. segir fréttamaður „L'Express". Hann gefur þessa skýringu á atburðunum haustið 1965: Súbandrio, utanríkisráð- herra og yfirmaður leyniþjónust- unnar, skýrði Súkarno frá því í september að herforingjarnjr hefðu undirbúið valdarán og ætluðu þeir að taka völdin um leið og Súkarno vrði ófærumað gegna stjómarstörfum, en hann hafði átt við vanheilsu að stríða. Það yrði því að taka fram fyrir hendur á herforingjunum. Sú- karno hafi bá fallizt á að gerð yrði „uppreisn", án þess þó að hann kæmi þar sjálfur nærri. Uppreisnarmenn áttu vísan stuðn- ing víða í hernum og stjórnar- kerfinu, en þeir höfðu engi.i fjöldasamtök að baki. ,,Þeir vissu vel“. segir Kahn „að Aidit, leiðtogi kommúnista. sem var að vísu hliðhollur Kín- verjum í orði, en varkár í verki. myndi vera andvígur slfku æv,- intýri. Þess vegna ákváðu þeir að fara af stað án hans. Kommún- istar myndu ekki eiga nema einn kost, þegar annars vegar vævi uppreisn „vinstrimanna“ oghins vegar viðbrögð hinna íhalds- sömu herforingja“. Hins vegar. segir Kahn, gafst kommúnistum enginn tíma tii að velja. Herfor- ingjarnir, undir forustu Súhartos, voru beim of snarir í snúning- um. og fyrr en varði höfðu beir gengið milli bols og höfuðs á kommúnistum og flokki beirra. Eins og í Kína. „Herforingjarnir báru óneit- anlegan sigur úr býtum. En aðeins um stundarsakir“. heldur Kahn áfram. „Ástandið líkist mjög bví sem ríkti f Kfna 1927 þegarSjang Kajsék hófst til valda með þvf að stráfella kommúnista. Þá hefði mátt ætla að flokkur kommúnisra væri úr sögunni í Kína En af þessu leiddi Mao og Gönguna löngu“. — Hálfu öðru ári eftir upp- reisnartilraunina í sept. berast fréttir um að andspymuhóp- ar hafi verið myndaðir á mið- og austurhluta Jövu, umhverfis Djokjakarta og Semarang. — Fram til þessa var Komm- únistaflokkur Indónesíu ekki frá- brugðinn öðrum kommúnista- flokkum. Nú má þúast við að hann breytist í herskara hinna óánægðu, sem færa sér í nyt ýmugust almúgans á herforingj- unum, vildarhug þann sem marg- ir smábændur bera í brjósti til Súkarnos, þjóðernishugsjónina og þrá þeirra eftir skiptingu stór- jarða, sem er enn heitari fyrir þá sök að þeir jarðnæðislausu bændur sem höfðu tekið sér jarðskika eigendunum að for- spurðum voru fyrstu fórnar- lömbin í blóðbaðinu mikla. Þannig hófst líka Þjóðfrelsis- fylkingin í Suður-Vietnam til á- hrifa, segir Kahn. Flestir V-Þjóðverjar: Viðurkennum A-Þýikalund STUTTGART 21/3 / Nið- urstöður skoðanakönnunar sem birtar hafa verið f Vestur-Þýzkalandi sýna að 48 prósent allra Vestur- Þjóðverja 18 ára og eldri vilja að Bonnstjórnin við- urkenni stjórn Austur- Þýzkalands. Aðeins fjórð- ungur aðspurðra var and- vígur viðurkenningu, en 27 prósent höfðu enga á- kveðna skoðun á málinu. Sjú Enlæ hélt ræðu á fundi bænda úr nógrenni Pekingborg- ar á sunnudag og lagði þá á- herzlu á hve mikil þörf væri fyrir aukna framleiðslu búsaf- urða. — Við viljum að á þess- um fundi verði skorin upp. her- ör í því skyni að auka landbún- aðarframleiðsluna. sagði Sjú En- læ. „Alþýðudagblaðið" segir að Johnson átti upptökin að þess- um bréfaskiptum þegar hann hann hafi þar talað af hálfu Mao Tsetungs og „síns nána vopnabróður“ Lin Piaos. Þetta leggja fréttaritarar út á þá leið að Lin Piao sé enn fastur í sessi sem annar æðsti valda- maður Kína. Sjú Enlæ skýrði frá því í ræöu sinni á sunnudaginn að margar hersveitir hefðu verið sendar út á landsbyggðina til þess að hjálpa bændum við vorannirnar. Herinn héldi hátt á loft merki hugsunar Maos og lyti stjórn Lin Piaos. Hann hvatti bændur til að halda áfram pólitisku og hug- myndafræðilegu starfi jafnframt framleiðslustörfunum svo að þeir gætu lagt meira af mörk- um til hinnar miklu menning- arbyltingar öreiganna. Á fundinum voru auk Sjú En- læs og meðal annarra þau Sjang Sjing, eiginkona Maos, og Sén Pota, ritari hans, sem verið hafa fremst í flokki í forystu menn- ingarbyltingarinnar. sendi Ho Chi Minh bréf í byrj- un síðasta mánaðar. í bréfi þessu gaf hann til kynna' að Banda- ríkjastjórn myndi fús að hefja viðræður við fulltrúa stjórnar Norður-Vietnams í því skyni að greiða fyrir samningaviðræðum um frið í Vietnam. Bréf þetta var afhent fulltrúa stjórnar Norður-Vietnams í Moskvu. Bréfin voru lesin í Hanoiút- varpið í dag. Fréttastofa Norð- ur-Vietnams segir að Ho Chi Minh hafi 1 svari sínu ítrekað að það sé algert skilyrði fyrir viðræðum að Bandaríkin hætti loftárásum sínum og öllum hern- aðaraðgerðum gegn Norður-Vi- etnam. — Johnson forseti Jágði til að stjórnir Bandaríkjanna og Norður-Vietnams tækju upp beint samband sín á milli með viðræðum ábyrgra fulltrúa sinna. Slíkar viðræður ættu að eiga sér stað í kyrrþey. Það ætti ekki að nota þær i áróðursskyni, heldur ættu þær að vera vott- ur um einlæga viðleitni í því skyni að komast að viðunandi lausn. Johnson kvaðst reiðubú- inn til að fyrirskipa að loftárás- unum og frekari útfærslu stríðs- ins i Suður-Vietnam væri hætt um leið og hann væri sannfærð- ur um að liðsflutningar úr norðri til Suður-Vietnams hefðu verið stöðvaðir. Svar Ho Chi Minhs. í svarbréfi Ho Chi Minhs, sem afheni var 15. febrúar, seg- ir að Bandaríkjamenn verði að hætta árásarstriði sínu í Viet- nam. Friði verði aðeins komið á með því móti. Vilji Banda- ríkjastjórn í rauninni taka upp beint samband við stjórn Norð- ur-Vietnams verða Bandaríkin fyrst að hætta lofthernaðinum og öllum öðrum hernaðaraðgerð- um gegn Norður-Vietnam, sagði Ho Chi Minh. Marklaust boð Það er nú ljóst að það voru þessi bréfaskipti, eða öllu held- ur bréf Johnsons, sem varð til að vekja nokkrar vonir um það fyrrihluta síðasta mánaðar að samningaviðræður gætu tekizt í Vietnam. Bréf Johnsons var sent þegar vopnahléið vegna viet- namska nýársins var að hefj- ast og meðan þeir Wilson og Kosygin ræddust við í Lijndon. Lítill vafi er á því að Wilson hafði bréf Johnsons í huiga þegar hann sagði að meðan þeir Kosygin ræddust við hefði vaknað örlítil von um samnings- lausn. Hins vegar verður það líka ljóst af birtingu bréfanna, að ekkert mark hefur verið tak- andi á því boði sem Johnson gerði stjórn Norður-Vietnams, því að Bandaríkjamenn hófu aftur loftárásirnar á Norður-Vi- etnam og rufu þahnig vopnahléið áður en Ho Cbi Minh hafði svar- að. Engar viðrædur í Washington þar sem frásögn Hanoiútvarpsins af bréfaskipt- unum var staðfest i dag eru menn sagðir þeirrar skoðunar að eng- ar horfur séu á samningavið- ræðum. Sagt er að flestir öldungadeildarmenn Demókrata telji að ekkert geti orðið úr viðræðum á þessu ári og jafn- vel heldur ekki næsta. Hin her- skáa og einstrengingslega af- s.taða Kys hershöfðingja á fund- inum á Guam um helgina hefur ekki glætt friðarvonir manna. Mark Hatfield'. öldungadeildar- maður Repúblikana frá Oregon, sagði að afstaða Kys myndi tor- velda viðræður milli * Saigon- stjórnarinnar og Þjóðfrelsisfylk- ingarinnar í Suður-Vietnam. „New York Times“ segir í dag að fulltrúar Saigonstjórnarinnar hafi þótzt sannfaerðir um að þeir hafi farið með sigur af hólmi frá Guam RAFViLAVIRKI EÐA RAFVIRKI vanur véla- og háspennutengingu óskast. Upplýsingar gefa Jón Helgason, Egilsstöðum og Erling Garðar Jónsson. RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Laugavegi 116 — Sími 17400. Bodskapur frá Sjú Enlæ: Ekki skipt um menn s mestu vorönnunum PEKING 21/3 — Sjú Enlæ forsætisráðherra. heiur sagt kínverskum bændum að þeir eigi ekki að leyfa fjölda- samtökum Maosinna að taka völdin — jafnvel ekki þar sem slík stjórnarskipti kynnu að vera nauðsynleg — með- an vorannir enu í sveitunum. Frá þessu skýrðu kvöldblöð- in í Peking í dag.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.